Morgunblaðið - 13.04.1980, Side 28

Morgunblaðið - 13.04.1980, Side 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRIL 1980 M0R<£dK/-íp| KtoFINU \\ j Það má alveg reikna með þessu hafi veturinn verið mildur! Þér eigið sem sé 1/7 úr húsinu, eitt prósent bíl og 0.8 prósent útvarp- og sjónvarp? o O o o O ° o Þetta gerðist Ekki segja alltaf: „Drepa, drepa66 BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Enski lávarðurinn Lever var í tíma síðustu stjórnar verka- mannaflokksins helsti ráðgjafi hennar í fjármálum. Frú Thatcher var ekki aldeilis sammála tillög- um hans í efnahagsmáium en datt ekki í hug að andmæla þegar Lever var tilnefndur í bridgesveit þingsins til keppni við þing Hol- lendinga. Lever lávarður segir, að rangt sé að nota hindrunarsögn með spil, sem möguleika hafi á slögum í vörn. Það skýrir sumpart opnun hans með spil suðurs í keppninni. Suður gaf, austur-vestur á hættu. Norður S. D752 H. DG8 T. - L D87532 Austur S. G8643 H. K T. D853 L. K104 Suður S. 9 H. Á109754 T. KG10976 L. - Lávarður Lever opnaði á einu hjarta, sem norður hækkaði í tvö eftir dobl vesturs. í sæti austurs var hollenskur þingmaður, Kaiser að nafni, sem íslenskir lands- liðsmenn þekkja frá keppnum við Holland í Evrópumótum, sagði 2 spaða en Lever stökk í 4 hjörtu, sem vestur doblaði og varð það lokasögnin. Vestur tók fyrsta slaginn á spaðakóng en skipti síðan í lauf. Og spilið reyndist auðvelt. Lever trompaði, spilaði tígulgosa og gaf á drottninguna, trompaði spað- ann, sem austur spilaði, píndi út tígulásinn og trompaði í blindum og hirti trompkónginn af austri. Doblaður yfirslagur — takk fyrir. Á hinu borðinu opnaði Hollend- ingurinn með spil suðurs á 3 hjörtum. Síðan varð austur sagn- hafi í fjórum spöðum, sem norður þorði ekki að dobla, þar sem hann bjóst ekki við bæði ás og kóng sem slögum hjá makker sínum. Og þó austur gerði vel og fengi 8 slagi má telja fullyrðingu lávarðarins sannaða og frú Thatcher eflaust greitt henni atkvæði sitt. 1976 — 45 biðu bana í sprengingu í finnskri skotfæraverksmiðju. 1968 — Stúdentaóeirðir í Vestur- Berlín og Rudi Dutschke særist í banatilræði. 1954 — Rússinn Vladimir Petrov fær hæli í Ástralíu — Dr. Jagan dæmdur í Brezku-Guiana. 1951 — Allsherjarþingið fordæmir apartheid-stefnuna. 1948 — Stjórnarskrá Rúmeníu breytt að sovézkri fyrirmynd. 1941 — Rússar gera hlutleysis- samning við Japani — Þjóðverjar taka Bardia, Norður-Afríku. 1939 — Bretar og Frakkar ábyrgj- ast sjálfstæði Rúmeníu og Grikk- lands. 1909 — Herinn gerir gagnbyltingu gegn stjórn Ung-Tyrkja. 1868 — Herlið Robert Napier tekur Magdala í Eþíópíu. 1848 — Sikiley lýsir yfir sjálfstæði. 1772 — Warren Hastings skipaður landstjóri í Bengal á Indlandi. 1605 — Feodor II verður keisari Rússlands. 1598 — Nantes-réttarbót Hinriks VI af Frakklandi fyrir Húgenotta. 1589 — Sir Francis Drake og Sir John Norris fara í víking til Portú- gals með 18.000 manna liði á 150 skipum. Afmæli. Thomas Percy, enskur rit- höfundur (1729—1811) — Thomas Jefferson, bandarískur forseti (1743—1826) — Lily Pons, frönsk óperusöngkona (1904—1976) — Samuel Becket, franskur rithöfund- ur (1906-). Andlát. 1605 Boris Godunov Rússa- keisari — 1743 Jean de La Fontaine, rithöfund'ur. Innlent. 1565 Stóridómur staðfest- ur af konungi — 1203 Guðmundur bp Arason vígður — 1252 Sæmundr og Guðmundr Ormssynir vegnir af Ögmundi Helgasyni — 1419 Minnst 25 ensk skip fórust hér við land — 1723 Jón bp Árnason gagnrýnir vesti & parruk — 1773 Framfara- sjóður íslands, mjölbótasjóður, stofnaður — 1819 d. Vigfús Þórar- insson sýsl. — 1329 d. Sturla Ólafsson cum sociis — 1883 d. Stefán Gunnlaugsson landfógeti — 1874 Auglýsing Halldórs Kr. Frið- rikssonar um þjóðhátíð á Þingvöll- um — 1974 Frumvarp um heimild til útfærslu í 200 mílur samþykkt — 1972 d. Jóhannes Kjarval — 1881 f. Jónas Tómasson tónskáld — 1978 d. Snorri Sigfússon. Orð dagsins. Það að Jón dýrki guð í sér snýst upp í það að lokum að Jón mun dýrka Jón. - G.K.Chesterton, enskur rithöfundur (1874—1936). Kæri Velvakandi. Ég las í Velvakanda „Hunda- líf“ 25. marz og „Hundaæði og gáleysi" 26. marz og mig langar af því tilefni að leggja orð í belg. Hundurinn er og verður ætíð bezti vinur manna og barna. Hundurinn er einnig mikil hjálp fyrir blinda, hann hefur ekki fundið ófáa týnda menn, lögreglan notar hunda í starfi sínu og þeir eru ómetanlegir fyrir einmana fólk. En af hverju er þá ekki hægt að eiga hund í friði á íslandi? — Það er eitt stórt vandamál sem slíku fylgir. Ég veit mjög vel um þennan hættulega sjúkdóm, sem berst með dýrum sem ekki eru sprautuð (hundar, kettir, refir) og að sjúk- dómnum fylgir dauði. Það er alveg rétt. En ef hverju eru hundar og kettir á íslandi ekki sprautaðir móteitri, eins og gert er í Englandi og Póllandi og öðrum löndum? Þar er það skylda árlega og fólk er ekki í mikilli hættu og það er mjög ánægt og heyrir ekki allt í kring- 1972 — Sprengjuherferð á Norð- ur-írlandi. 1971 — Richard Nixon forseti slakar á viðskiptabanni Bandaríkj- anna á Kína. 1955 — Chou En-lai, forsætisráð- herra Kína, heimsækir Rangoon, Burma. 1945 — Bandarískar loftárásir á Tokyo og japönsku keisarahöllina. 1935 — Stresa-ráðstefnunni lýkur. 1931 — Alfonso XIII Spánarkon- ungur leggur niður völd. 1912 — S.S.„Titanic“ siglir á ísjaka á Norður-Atlantshafi og sekkur (aðfaranótt 15.) og rúmlega 1.500 fórust. 1890 — Bandalag Amerikuríkja stofnað á fyrstu ráðstefnu ríkjanna. 1865 — Leikarinn John Wilkes Booth skýtur að Abraham Lincoln forseta í Ford-leikhúsinu í Wash- ington og hann andast daginn eftir. 1861 — Orrustunni um Fort Sumt- er lýkur. 1828 — Orðabók Webster fyrst gefin út. 1784 — Friðrik krónprins tekur völdin í Danmörku. 1672 — Bandalag Frakka og Svía gegn Hollendingum stofnað. 1629 — Susa-friðurinn bindur endi á ófrið Englendinga og Frakka. 1544 — Danir segja upp bandalag- inu við Frakka. um sig „drepum, drepum, hund- ana“. Ég á hund, Bangsa, sem varð eins árs 1. apríl, en hversu mikil vandræði ég hef gengið í gegnum út af honum, veit ég ein um. Maðurinn minn kom með hann af togara u.þ.b. fjögurra vikna gamla og við tókum hann inn í fjölskyld- una. Við gleymdum að taka inn í dæmið að við bjuggum á sjöundu hæð og að Bangsi myndi stækka. Móðir mín og systir búa í Warsaw í Póllandi á 6. og 8. hæð og þær eiga hunda, án þess að eiga við þessi vandamái að etja. Meðan Bangsi var mjög lítill tók ég hann með mér út í ferðatösku. Þegar hann stækkaði hoppaði hann alltaf upp í fang mér, þegar við fórum inn og út þar sem hann skilur að mörgu fólki er illa við hann. Hann geltir ekki, en þó gerðist það á gamlárskvöld að hann gelti vegna hræðslu við raketturnar og sprengjuhljóðin og nábúar okkar kölluðu á lögregl- una. Hún var mjög alúðleg því ég Afmæli. Vilhjálmur þögli, prins af Óraníu (1533—1584) — Christian Huygens, hollenzkur eðlisfræðingur (1629—1695) — Arnold Toynbee, brezkur sagnfræðingur (1889— 1975) — John Gielgud, brezkur leikari (1904—) — Julie Christie, brezk leikkona (1941 — ) — Rod Steiger, bandarískur leikari (1925-). Andlát. 1759 George Frederick Hándel, tónskáld — 1900 Osman Pasha, hermaður — 1951 Ernest Bevin, stjórnmálaleiðtogi. Innlent. 1931 Þingrofið — 1852 Konungsleyfi fyrir prentsmiðju á Akureyri — 1911 Björn Jónsson hverfur úr ráðherrastóli — 1942 Flugvélin „Smyrill" hrapar — 1963 „Hrímfaxi" fórst við Fornebu í Ósló og 12 með honum — 1872 d. Ólafur sekr. Stephensen — 1957 d. Ari Arnalds — 1963 d. Anna Borg — 1956 d. Pétur Á. Jónsson söngvari. Orð dagsins. Kostgæfni er móðir góðrar gæfu — Miguel de Cervant- es, spænskur rithöfundur (1547— 1616). Vestur S. ÁklO H. 632 T. Á42 L. ÁG96

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.