Morgunblaðið - 17.04.1980, Page 1
48 SÍÐUR
87. tbl. 67. árg. FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Danmörk:
5% árleg kjara-
skerding í 5 ár
Kaupmannahöfn 16. apríl.
Frá Erik Larsen. fréttaritara Morgunblaðsins.
NEYÐARRÁÐSTAFANIR þær, sem danska
stjórnin hefur á prjónunum, fela í sér 5%
árlega _ kjaraskerðingu, næstu fimm árin
a.m.k. í tillögunum er gert ráð fyrir þvi að
niðurskurður ríkisútgjalda verði fyrst og
fremst á sviði mennta- og félagsmála, en
byrjað verður á því að lækka opinber útgjöld
um 13 milljarða danskra króna, nái tillög-
urnar fram að ganga.
Ætlunin er að skerða*ellilaun
þannig, að atvinnutekjur 67 ára og
eldri dragist frá útborguðum elli-
launum. Þannig munu sparast um
Bretland:
Dularfull
veira herjar
á aldraða
Edinborg, 16. apríl. AP.
DULARFULLUR veirusjúk-
dómur hefur orðið 45
mönnum að aldurtila á Bret-
landseyjum síðustu tvær vik-
urnar, að því er brezk heil-
brigðisyfirvöld staðfestu í
dag.
Allir hinna látnu voru vist-
menn á fimm elliheimilum og
sjúkrahúsum í Skotlandi og
Norðvestur-Englandi. Þeir
voru á aldrinum 71—91 árs.
Ekki hefur tekist að greina
veiruna, sem veikinni veldur,
en hún hefur flest einkenni
inflúensu og er einkum skað-
leg þeim sem eiga við lasleika
í öndunarfærum að etja.
500 milljónir króna. Þá verður sett
þak á félagslegar bótagreiðslur,
þannig að þær nemi aldrei hærri
fjárhæð en dagpeningar vegna
atvinnuleysis segja til um. Þá er
ætlunin að ákveða „félagslegt
tekjumark", og miðast það við 110
þúsund króna árstekjur, en þeir
sem hafa umframtekjur verða
sjálfir að standa straum af kostn-
aði við ýmiss konar félagslega
þjónustu, svo sem dagvistun og
kaup á hjálpartækjum vegna fötl-
Álögur vegna orkusparnaðar
eru mikilvægur liður í neyðar-
ráðstöfunum stjórnarinnar.
Bensín og rafmagn munu hækka,
en hins vegar lækkar verð á gasi. I
tillögunum er gert ráð fyrir 3%
hækkun fasteignagjalda og ýms-
um stórframkvæmdum verður
frestað, svo sem byggingu nýs
Konunglegs leikhúss og líklega
einnig rafvæðingu járnbrauta-
kerfisins.
■ -i • A 1 • Símamvnd — AP.
F egnir frelsinu
FYRSTU kúbönsku flóttamennirnir úr sendiráði Perú á Havana
komu í dag til borgarinnar San Jose í Costa Rica. Á þriðja
hundrað flóttamenn voru í dag fluttír frá Kúbu, en alls voru í
sendráðinu um 10.800 flóttamenn og hefur rúmlega helming
þeirra verið tryggð vist í öðrum löndum. Á þessari mynd er
flóttamaðurinn Oscar Alcazar ásamt eiginkonu og syni við
komuna til San Jose.
Hafnbann á íran um
miðian næsta mánuð?
Washington. Istanbul. London,
lfi.apríl. AP.
Bandaríkjastjórn veitti yf-
irvöldum í Iran í dag mánað-
arfrest til að tryggja frelsi
gíslanna í bandaríska sendi-
ráðinu í Teheran, og hótaði
að hugsanlega yrði gripið til
hernaðaraðgerða ef ekki yrði
farið að þeim kröfum. Við
þessar fregnir féll Banda-
ríkjadalur í verði á evrópsk-
um gjaldeyrismörkuðum.
Blaðið Boston Globe hafði eftir
áreiðanlegum heimildum að stjórn
Carters hefði þegar skýrt banda-
mönnum sínum og yfirvöldum í
íran frá því að gripið yrði til
hafnbanns herskipa ef gíslarnir
verða ekki lausir fyrir 11. maí
næstkomandi.
Jody Powell blaðafulltrúi Hvíta
hússins sagði að frétt blaðsins
væri „ónákvæm“ og að ákörðun
um hafnbann hefði ekki enn verið
tekin. Talsmaður yfirvalda í Bonn
sagði einnig að engin vitneskja
hefði borist um hafnbann.
Féllu a.m.k. fjórir og fjöldi særð-
ist. Miklar skemmdir urðu á
byggingu íranska flugfélagsins Ir-
an Air er sprengja sprakk þar.
Einnig fórust fimm og a.m.k. 30
slösuðust, sumir lífshættulega,
þegar sprengja sprakk í dag í
borginni Abadan við Persaflóa.
Fjöldi bygginga eyðilagðist í
sprenginunni.
Símamynd — Al*
Karl Brctaprins kom í dag til Salisbury í Rhódesiu en á miðnætti 17. apríl afhcndir hann stjórn
Mugabes völd í landinu. sem þá hlýtur sjálfstæði frá Bretlandi og fær frá þvi nafnið Zimbabwe. Hér
kastar prinsinn kveðju á Mugabe, en í baksýn eru ráðherrar úr stjórn Mugabes og Soames landsstjóri.
Ráðunautur Carters, er vildi
vera nafnlaus, sagði að líklegast
yrði tilkynnt um nýjar efna-
hagsþvinganir og pólitískar
þvinganir á hendur íran á morg-
un, fimmtudag, en trúlega yrði
ekki gripið til neinna hernaðar-
legra aðgerða fyrr en um miðjan
næsta mánuð og „ættu íranir því
að hafa nægan tíma til að átta sig
á hlutunum".
Ólíklegt er að hafist verði handa
í málum gíslanna af hálfu yfir-
valda í Iran fyrir miðjan maí, þar
sem seinni hluta þingkosning-
anna, sem fara áttu fram 2. maí
nk., var í dag frestað um viku.
Háttsettur klerkur í Teheran
sagði að ólíklega yrði mál gíslanna
tekið fyrir í þinginu fyrr en eftir
um þrjá mánuði.
Hermt er að Bandaríkjamenn
muni leita eftir samstöðu banda-
manna sinna um aðgerðir gegn
Iran til að fá gíslana lausa, og sé
Cyrus Vance utanríkisráðherra
senn á förum til Evrópu þeirra
erinda. Á morgun verður sú ósk
Carters forseta tekin sérstaklega
fyrir í þingi Efnahagsbandalags-
ins, og í dag skýrði sænska
utanríkisráðuneytið frá því að
bandarísk yfirvöld hefðu leitað
eftir stuðningi Svía við aðgerðir
til að fá gíslana lausa.
Til átaka kom í dag í Beirút
milli Shiita er styðja Khomeini
trúarleiðtoga írana og vopnaðra
gæslusveita er fylgja Saddam
Hussein forseta íraks að málum.
Þá skýrði stærsta blað Tyrk-
lands frá því í dag að um 500
uppreisnarmenn kúrda og íranskir
hermenn hefðu fallið í hörðum
bardögum í norðvesturhluta írans
síðustu daga. Svo virtist sem
mikilli sókn gegn Kúrdum hefði
verið hrundið af stað, en að
yfirvöld hafi ekki haft erindi sem
erfiði, þar sem uppreisnarmenn
hafi höggvið mikið skarð í raðir
hermanna.
Banna rúss-
neskt vodka
London 16. apríl. AP.
TIL AÐ sýna andúð sína á
innrás Sovétmanna í Afgan-
istan. hefur brezka stjórnin
nú lagt bann við því að
rússneskt vodka verði veitt í
opinberum veizlum og við
opinber tækifæri. í staðinn
skuli nota brezkt vodka.
Talsmaður stjórnarinnar
sagði við fyrirspurnir í neðri
málstofu þingsins að frá því í
júlí 1974 hefði stjórnin keypt
vodka til neyzlu við opinber
tækifæri fyrir 1.986 sterl-
ingspund, eða sem svarar
tveimur milljónum króna.
Þriðjungur vodkans hefði
verið rússneskur.