Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 23 Danska konungsfjölskyldan veifar af svölum Amalienborgarkastala til mannfjölda er þar safnaðist saman í gær í tilefni fertugsafmælis Danadrottningar. Á myndinni eru (fv.) Jóakim prins. Margrét drottning, Friðrik krónprins og Henrik prins. Simamynd-AP. Eining á ný með ítölskum og kínversk um kommúnistum Pekiní? 15. apr. AP. ÍTALSKIR og kínverskir kommún- istar hafa nú tekið á ný upp samskipti eftir fimmtán ára fáleika og jafnvel úlfúð. Enrico Berling- uer, formaður italska kommúnista- flokksins, sem hefur verið í Peking siðustu daga ásamt sendinefnd frá ttaliu. greindi frá þessum endur- nýjuðu tengslum, er komið var af fundi Hua Kuo-fengs formanns kínverska kommúnistaflokksins i í loftbelg til Afríku frá Spáni Algeciras, Spáni, 16. apríl. AP. SPÆNSKUR sjónvarpsfrétta- maður, Jesus Gonzales Green, fór fyrstur manna yfir Njörvasund milli Evrópu og Afríku í loftbelg í dag. Green fór frá Tarifa, syðsta odda Spánar, og lenti í spænska landskik- anum Ceuta á norðurströnd Mar- okkó eftir tveggja tíma ferð. Spænskt varðskip og þyrla fylgdust með honum. Green tilkynnti í 1.500 metra hæð að hann sæi sovézka flotadeild undir forystu flugvélamóðurskips á sigl- ingu á sundinu. dag. >Það var eins og ekkert hefði gerzt — eða komið upp á siðan við hittumst síðast,“ sagði varafor- maður flokksins, Giancarlo Paietta, fagnandi við blaðamenn. Hann sagði að fullkominn einhugur hefði verið rikjandi milli aðila um að koma samskiptum þeirra aftur i eðlilegt vináttuhorf. í hófi sem Hua formaður hélt ítölsku gestunum fór hann lofsam- legum orðum um „jákvæðan skerf ítalska kommúnistaflokksins í bar- áttunni gegn fasismanum" og taldi mikilsvert hversu forystumenn ítalska kommúnistaflokksins hefðu jafnan lagt sig fram um að vinna í þjóðarþágu og reynt að efla einingu öreiga allra landa. Væri mikils um vert að ítalski flokkurinn héldi til streitu sjálfstæði sínu á leiðinni til sósíalismans. Þá notaði Hua tæki- færið til að gagnrýna sovézka kommúnista að venju, en vék ekki að upphafi þess að vinslit urðu með flokkunum. Berlinguer og sendinefnd hans hefur verið vel fagnað og þeir farið víða. Á fimmtudag munu þeir hitta Deng varaformann að máli og síðan verður farið í ferðalag til Shanghai og víðar. vj -r V Vec Akureyri \ur 5 skýjað Amsterdam 21 heiðríkt Aþena 23 heiðríkt Barcelona 15 skýjaö Berlín 21 heiðríkt BrUssel 20 heiöríkt Chicago 7 heiðríkt Oyflinni 10 rigning Feneyjar 14 skýjað Frankfurt 22 heiörikt Helsinki 12 skýjaö Jerúsalem 15 heiðríkt Jóhannesarborg 24 heiöríkt Kaupmannahöfn 17 heiðríkt Líssabon 15 heiðríkt London 22 heiöríkt Los Angeles 27 heiðríkt Madríd 13 heiöríkt Mallorca 19 skýjað Malaga 19 skýjað Miami 22 heiðrikt Moskva 0 heiðríkt New York 18 skýjað Ósló 15 heiðríkt Parls 18 skýjað Reykjavík 4 skýjað Rio de Janeiro 32 rignina Rómaborg 16 skýjað Stokkhólmur 15 heiðrikt Tel Aviv 20 heiðríkt Tókýó 11 skýjað Vancouver 14 skýjað Vínarborg 17 heiðrikt Maraþonfundir um Palestínu Washington. 16. apríl. AP. MENACHEM Begin. forsætisráð- herra ísraels, og Jimmy Carter forseti tilkynntu í dag að Egyptar og ísraelsmenn mundu þegar í stað hefja maraþon-viðræður um pólitíska framtíð Palestínu-Araba á herteknum svæðum ísraels- manna til að freista þess að ná samkomulagi fyrir 26. maí sem var sá frestur sem var settur í samkomulaginu í Camp David. Carter. sagði að Bandaríkjamenn mundu taka fullan þátt í viðræðun- um, sem fara fram jöfnum höndum í Egyptalandi og Israel. Það er í samræmi við tillögu sem Begin kom fram með við komuna -til Washington og Carter sagði að bæði hann og Anwar Sadat Egyptalandsforseti hefðu sam- þykkt hina nýju áætlun. Sadat og Carter munu hafa verið því hlynntir að viðræðurnar færu fram í Washington þar sem Banda- ríkjamenn gætu beitt báða aðila þrýstingi til að ná samkomulagi. Þátttaka Bandaríkjamanna í maraþonviðræðunum virðist eiga að tryggja Carter og fulltrúum hans þau áhrif em þeir hafa sótzt eftir. Fyrst í stað kom ekkert fram sem benti til þess að samkomulag hefði tekizt um lausn grundvallar ágreiningsmála varðandi framtíð Palestínu-Araba. En Carter sagði að viðræðurnar hefðu verið „mjög jákvæðar og mjög árangursríkar". Hann sagði að svipaðir fundir með Sadat í síðustu viku hefðu gert kleift að bera kennsl á málin og sundurgreina hugsanlegan ágrein- ing Egypta og Israelsmanna. Begin sagði að viðræðurnar hefðu verið „mjög alvarlegar" en vildi ekki nota orðið „vinsamlegar“ eða „hreinskilnar" þar sem þau væru oft túlkuð þannig að ágrein- ingur hefði ríkt. Hann kvaðst telja að þetta hefðu verið „mjög góðar viðræður", að áfram hefði miðað í samkomulagsátt og að allir aðilar mundu „gera sitt ítrasta til að koma samkomulagi til leiðar". Leikkona greið- ir metverð á uppboði London. 16. apríl. AP. BANDARÍSKA leikkonan Jenni- fer Jones greiddi 1,7 milljónir dollara á uppboði hjá Sotheby's í London í dag fyrir málverk af upprisu Krists eftir fimmtándu aldar flæmska listmálarann Dirk Bouts. Talsmaður Sotheby's sagði, að þetta væri hæsta verð. sem hefði verið greitt fyrir mun á uppboði hjá fyrirtækinu. Hæsta verð, sem hefur fengizt fyrir málverk í heiminum, var 2,3 milljónir dollara (nú jafnvirði 5 milljóna dollara) sem var greitt fyrir málverk eftir spænska list- málarann Velazques á uppboði hjá keppinaut Sotheby’s, Christie’s, 1970. Ungfrú Jones bauð hærra verð en brezka listasafnið. Hún er síðari kona Norton Simon, auðmanns sem er framkvæmdastjóri fjölþjóðafyr- irtækja. Ungfrú Jones sagði, að málverkið færi til Norton Simon safnsins í Kaliforníu. Fyrirsát í Istanbul Istanbul. 16. apríl. AP. FJÓRIR vopnaðir menn sem eru grunaðir um að vera vinstrisinn- aðir hryðjuverkamenn skutu bandariskan sjóliðsforingja og bilstjóra hans til bana í Istanbul í dag. Einn árásarmannanna beið bana í einum af fjórum skotbar- dögum við lögreglumenn og her- menn eftir árásina. Tveir hinna hryðjuverkamannanna náðust, en sá fjórði komst undan, og þrír öryggisverðir og einn vegfarandi særðust. Sjóliðsforingjanum, Sam No- vello og bílstjóra hans, Ali Sabri Baytar, var veitt fyrirsát þegar þeir fóru frá heimili Novellos. Árásarmennirnir fjórir flúðu á vélhjóli eftir aðalveginum til Bosporus og börðust við lögreglu á flóttanum. Árásarmennirnir virtust allir vera á þrítugsaldri og tengdir vinstrisamtökunum Frelsisflokk- ur tyrknesku alþýðunnar sem eru einnig talin bera ábyrgð á morð- um sex Bandaríkjamanna í öðrum árásum í Tyrklandi á undanförn- um tólf mánuðum. Samtökin hafa átt í höggi við hryðjuverkamenn lengst til hægri síðan 1975. ýtfærslan við Grænland veldur Islendingum meiri áhyggjum en óvissa vegna Jan Mayen Ósló, 16. april. Frá Jan Erik Lauré íréttaritara Morgunblaðsins. JAN MAYEN-viðræðurnar í Reykjavík hafa ekki verið settar á oddinn í norskum fjölmiðlum. Þær hafa gjörsamlega fallið í skugga kjaramálanna. sem nú eru í brennidepli. Norsk blöð, sjónvarp og útvarp eru þó á einu máli um að svo virðist sem íslendingar muni fallast á efnahagslögsögu Norðmanna við Jan Mayen, og i fréttaflutningi um málið er megináherzla lögð á að fyrirsjáanleg útfærsla Dana við Grænland valdi íslendingum nú meiri áhyggjum en það hvort takast megi að komast að samkomuíagi við Norðmenn. Kjeld Olesen, utanríkisráð- herra Dana, sem nú ræðir við norska blaðamenn í Kaup- mannahöfn, segir að um mánaðamót maí-júní muni Dan- ir færa efnahagslögsöguna við Grænland út í 200 mílur fyrir norðan 67. breiddargráðu. Ole- sen hefur skýrt frá því að undirbúningur að útfærslunni sé hafinn af miklum krafti, en áður en hún geti átt sér stað þurfi að skera úr um mörg lagaleg og tæknileg vafaatriði. Jafnframt hefur Olesen skýrt frá því að eftir 1. júní muni Danir hafa frumkvæði að viðræðum við þau ríki, sem eigi hagsmuna að gæta innan hinnar væntanlegu efnahagslögsögu. Eina stórblaðið í Noregi, sem fjallar um Jan Mayen-viðræð- urnar á forsíðu, er Aftenposten. I fyrirsögn kemur fram að íslendingar muni fallast á norska lögsögu og blaðið slær því föstu að Islendingar hafi orðið að láta af ýmsum hörðustu kröfum sínum í málinu. Aften- posten telur að framundan séu verulegar deilur um málið á íslandi þar til viðræður hefjist í Ósló hinn 7. maí. Ennfremur að ekki sé loku fyrir það skotið að íslenzku samningamennirnir verði neyddir til að draga til baka sumar af þeim tilslökun- um, sem þeir hafi komið með í viðræðunum hingað til. Knut Frydenlund utanríkisráðherra Norðmanna kveðst ánægður með árangur viðræðnanna, enda þótt samningar hafi ekki tekizt að þessu sinni. Frydenlund segir, að lögsaga Dana við Grænland hafi haft jákvæð áhrif á gang við- ræðnanna, séð frá sjónarhóli Norðmanna, og Aftenposten hef- ur það eftir íslenzkum samningamönnum, að íslend- ingar séu komnir í klípu með málið. Næstútbreiddasta blaðið í Noregi, Verdens Gang, skýrir frá því að símtal íslenzkra samningamanna við danska utanríkisráðuneytið meðan á næturfundi stóð í Reykjavík hafi reynzt afdrifaríkt fyrir gang viðræðnanna, en þar hafi komið fram að Danir hygðu á útfærslu við Grænland á næstunni. Hafi þessar upplýsingar gert það að verkum að íslenzku samn- ingamennirnir hafi látið undan ýmsum kröfum Norðmanna. Aðilar í norskum sjávarútvegi hafa ekki látið í ljós skoðun sína á niðurstöðu viðræðnanna í Reykjavík, en sjómenn reiða sig á loforð Frydenlunds utanríkis- ráðherra um að norsk fiskveiði- lögsaga umhverfis Jan Mayen verði gengin í gildi áður en sumarloðnuveiðin hefst í júní, hvort sem samningar hafa þá náðst við Islendinga eður ei. rVORSK SOM ÍSLAND VIKER kkaKU *•"!<!<• 9<U, llawn-lorlunuUhwm- i >.» \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.