Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 í óvissunni Graham Greene: HINN MANN- LEGI ÞÁTTUR. 297 bls. Haukur Ágústsson íslenskaði. Almenna bókafélagið. Rvík. 1980. Graham Greene hefur ekki fengið Nóbelsverðlaun. Menn segja að skáldsögur hans séu of reyfaralegar til að hann eigi slíkan heiður skilið. Eigi að síður hefur hann verið meira í sviðsljós- inu en margt Nóbelsskáldið. Les- endahópur hans hefur löngum verið fjölmennur. Sennilega hefur enginn enskur skáldsagnahöfund- ur verið þekktari utan heimalands síns síðustu þrjátíu til fjörutíu árin. Þrátt fyrir reyfaraleg sögu- efni hefur hann alltaf verið tekinn alvarlega. Sögur hans fjalla í aðra röndina um háalvarleg málefni. Graham Greene hefur lag á að höfða bæði til vinstri manna og^ frjálslyndra. Þess konar meðalveg þræða fáir höfundar nú á dögum. Ástæðan er meðal annars næmi hans á smekk og hugsunarhátt samtíðarinnar; hann finnur jafn- an á sér hvað fólkið vill. Og fer eftir því. Aðalpersónan í þessari sögu er enskur leyniþjónustumaður, starf- andi í London. Áður starfaði hann í Suður-Afríku. Þar kynntist hann svartri konu — samneyti við hana taldist þar um slóðir lögbrot — smyglaði henni úr landi með hjálp þarlends kommúnista og hefur nú búið með henni í allnokkur ár í Englandi. Hún á son, en leyni- þjónustumaðurinn er ekki faðir hans. Castle, en svo heitir leyni- þjónustumaðurinn, á aftur á móti hund sem Buller nefnist og leikur hann verulegt hlutverk í sögunni. Buller er enginn skemmtikraftur, síður en svo. Hann slefar. Leyni- þjónustumaðurinn hefur hann ekki heldur sér til skemmtunar heldur til — öryggis. Fyrri hluti sögunnar líður við samfundi Castles og ýmissa persóna þar sem skrafað er um allt og ekkert, og þó meira um ekkert. Hvað ætlar að verða úr þessu? Hundrað og fimmtíu síður um daginn og veg- inn er ekki spennandi lestur. Þar að auki er einhver firring yfir söguhetjunum framan af. Þær vinna, éta og sofa — af vana að helst verður séð. Hugsjónir þeirra og tilfinningar eru að sama skapi hálfgufulegar. Ýmislegt liggur þó í loftinu. Castle leyniþjónustumaður er óró- legur, kvíðir framtíðinni. Upp kemst um »leka« frá stofnuninni. Hver er þá sekur? Grunur fellur á ungan mann. Honum er byrlað eitur. Þá lekur ekki meira gegnum hann. En lekinn heldur áfram. Að lokum trúir Castle konu sinni, svörtu, fyrir því að hann sé sjálfur »undirferlismaður«. Þá fer sagan á hreyfingu, tekur að gerast reyf- araleg, Graham Green fer jafnan hægt af stað, en vinnur á. Ætl ég ekki að rekja söguþráðinn gerr nema hvað samstarfsmenn Castl- es uppgötva í sömu mund hvaðan lekinn berst og er þá þegar tekið að fylgjast með honum. Læt ég svo hverjum og einum eftir að njóta spennunnar það sem eftir er. Því seinni hluti sögunnar er ekki aðeins tilþrifameiri heldur líka mun betri skáldskapur og á allan hátt læsilegri. Efnið er dæmigert enskt. Burg- ess, McLean og Philby flýðu allir til Moskvu eftir að hafa starfað fyrir bresku leyniþjónustuna. Upplýsingar þær, sem þeir komu til húsbænda sinna austantjalds, Bókmennllr eftir ERLEND JÓNSSON ullu Bretum ekki alvarlegum bú- sifjum. Hins vegar fóru þeir kumpánar með traust Breta á eigin leyniþjónustu. Menn tóku að líta svo á að hún væri til lítils nýt nema sem efniviður fyrir njósna- sagnahöfunda sem aldrei virðast munu þurrausa þann nægtabrunn. Frá sjónarmiði venjulegs bresks lesanda séð er raunsætt að líta svo á að sérhver leyniþjónustumaður geti jafnframt verið »undirferlis- maður« og njósnari erlends ríkis. Sagan af Castle þessum er því sprottin úr breskum jarðvegi og höfðar skiljanlega sterkar til ensks lesanda en til að mynda Islendings sem þekkir ekki njósn- ara nema af erlendum fréttum, kvikmyndum og skáldsögum. Hvort maður hefur gaman af þessari sögu fer meðal annars eftir því hvernig hann metur njósnarsögur sem slíkar. Fyrir minn smekk er sagan einum of langdregin og tæpast nógu lífleg sem skemmtisaga fyrr en undir lokin þegar líf færist loks í mannskapinn. Grámi Lúndúna- borgar svífur hér yfir vötnunum. Framan af er of mikið um inni- haldslaus samtöl en of lítið um tilþrif. Bætir ekki úr skák að erfitt er að þýða skáldsögu af þessu tagi. Enska og íslenska eru ólík mál, talshættir mismunandi, tjáning með ólíkum hætti. Það sem er eðlilegt í munni Englendinga kann að sýnast tilgerðarlegt, óeðlilegt og — mér liggur vi að segja þýðingarlegt þegar því hefur verið snúið til íslensks máls. Það á t.d. við um stutta málkæki sem eru tamir í enskunni en verða óþjálir þegar þeim hefur verið snúið á íslensku. En þýðanda er vandi á höndum því ekki er að ætlast til að svona saga sé beinlínis staðfærð eða efnið gert um of kunnuglegt, hún þarf að halda sínum fram- andleik að vissu marki. Vil ég kalla að texti Hauks Ágústssonar sé sæmilegur þrátt fyrir »brúð- kaupsgjöf« (í stað brúðargjöf), »jórturleður« og fleiri slíkar að mínum dómi stirðlegar orðmynd- ir. í Djúpinn Þjóðverji að nafni JÚRGEN GENZEMANN sýnir grafík í gamla kjallaranum hjá Elling- sen, sem nú heitir DJÚPIÐ, og er undir hinu ágæta veitingahúsi, HORNINU við Hafnarstræti. Það hafa verið nokkrar sýningar á þessum stað, og hljómleikar hafa einnig verið þarna, ef ég veit rétt, er jass hafður þar í miklum metum á síðkvöldum. Þannig eru sameinuð tvö atriði listar, hljómlist og myndlist. Ekki verður annað sagt en að þetta sé ágætt fyrirkomulag og skemmtilegt. Mér er sagt, að veitingamaðurinn á Horninu sé potturinn og pannan í þessari starfsemi, og væri gott, að sem flestir notfærðu sér þá áráttu gestgjafa til að bergja af brunni menningarinnar. Júrgen Genzemann mun vera þekktur grafíker í heimalandi sínu, og vekur það enga furðu, er litið er á þau 20 verk, sem hann sýnir í Djúpinu. Þar er handverk eins og á að vera með þýskum og mikil alúð lögð í frágang og myndverk. Genzemann virð'.st mikill rómantíker í sambúð v>5 náttúruna og notfærir sér g,-..m ur og veðurfar til að koma tilfinningum sínum til Mynúllst eftir VALTÝ PÉTURSSON áhorfenda. Hann mun vera menntaður umhverfismaður eða réttara sagt vistfræðingur. Garðyrkjumaður, er síðan sneri sér að myndlist, og má drjúgum sjá áhrif frá því í verkum hans. Það er viss spenna og drama- tískur kraftur í þessum verkum, sem annars eru svo nosturlega gerð, að jaðrar við, að þau verði væmin. En hvernig sem á því stendur, þá gengur þetta allt saman og maður verður þess vitandi, áður en varir, að hér er á ferð listamaður, sem svo er tengdur náttúru og hamförum hennar, að ekki kemur til mála, að hann geti tjáð hug sinn á annan hátt en þann, er við blasir á þessari sýningu. Titlarnir á þessum verkum segja sína sögu: Sólarupprás, Fjöllin í suðri, Kvöldgola, Haust, Jónsmessu- ,’lÓtt. Flest þau verk, sem Genze- mann sýnir í Djúpinu, eru í lit, og meðferð listamannsins á sjálfum litatónunum er mjög hæversk og gefur góða heild, en skapar því mim. átök. Hér er boginn ekki spenntur of hátt, en meðalhófið valið til að koma hlutunum til skila. í sjálfu sér er þetta vandasamt verk. Engu má muna, að hlutirnir verði „banal- ir“ eins og sagt er á fráleitri íslensku. En það er ekki í fyrsta skipti, sem útlend sletta er notuð í skrifum um myndlist hér á landi, en ég finn ekki í augna- blikinu annað orð. Það er nota- legt þarna í Djúpinu og skemmtilegt. Ég þakka fyrir stutt innlit og læt lokið þessu skrifi. Bókmenntatímarit lifa enn Flest bókmenntatímarit eiga sér stutta sögu. Það hefur til dæmis gengið fremur illa hjá Gyldendal forlagi í Danmörku að halda úti góðu tímarit um bók- menntir. Síðasta tilraunin á því sviði var Fælleden, tímarit sem ungir rithöfundar stýrðu og var í senn fjölbreytt og áhrifamikið við mótun nýrrar stefnu í bókmennt- um. Við skulum vona að nýjasta bókmenntatímarit Gyldendal sé ekki aðeins tilraun heldur muni því auðnast að ná nokkrum aldri. Chansen nefnist ritið og eru ritstjórar þess Inger Christensen og Pil Dahlerup. Ætlunin er að Chansen komi út sex sinnum á ári. Nú eru komin út fjögur tölublöð. Það sem vekur athygli þegar þessu nýja tímariti er flett er hve mikil áhersla er lögð á fagurbók- menntir og heimspeki. Félagsleg umræða er vitanlega í ritinu, en mínna ber á henni en í öðrum skandínavískum tímaritum af þessu tagi. Ritið er í vönduðum búningi. Hvert tölublað er ríku- lega myndskreytt og er hið fjórða í röðinni með teikningum eftir Palle Nielsen. Chansen hefst afsjö ljóðum eftir Henrik Nordbrandt, en ljóð hans eru í klassískum anda og yrkisefn- in eins og löngum áður hjá honum flest sótt til Grikklands. í einu ljóðanna sem nefnist Beðið eftir bréfi yrkir skáldið um fegurð þeirra bréfa sem aldrei eru send: „Komdu og segðu mér frá öllum þeim bréfum sem þú hefðir viljað senda mér“. En jafnvel klassískt skáld eins og Henrik Nordbrandt getur orðið pólitískt því að hann yrkir bölsýnt kvæði í tilefni þess að Grikkland gekk í Efnahags- bandalagið: „Grikkland hefur geislað frá sér svo mikilli birtu að það er að lokum orðið blint". I Chansen er jafnan bók- menntaþáttur þar sem fjallað er um ljóð sem orðið er sígilt og að þessu sinni skrifar Tove Pilgaard um Sorg konungsins eftir Edith Södergran. Einnig er birt ljóð eftir samtímaskáld að eigin vali skáldsins og skáldið fengið til þess að skýra tilgang ljóðsins. Síðan segir gagnrýnandi álit sitt á sama ljóði. I því blaði sem hér er fjallað um er Nanna Jeiner í hlutverki skáldsins og Marie-Louise Svane í hlutverki gagnrýnandans. Um samfélagsmál og heimspeki rökræða Karen Nicolajsen og Per Aage Brandt í formi bréfaskipta og er óvenju hreinskilnislega tekið á hlutunum. Tor Nörretrander fræðir lesendur um kenningar Frakkans René Thom sem er stærðfræðingur og hefur áhrifum hans á samtímann verið líkt við það sem Isaac Newton kom til leiðar með verki sínu Principia 1687. Karen Nicolajsen skrifar um Roland Barthes og „gleði textans" sem þessi franski bókmennta- frömuður er kunnur fyrir. Hún birtir líka sýnishorn þess sem Barthes hefur skrifað um þetta efni, en gerir sér ljóst að Barthes muni varla fá mikinn hljómgrunn meðal Dana. Fagurfræði hans og heimspeki eru í mótsögn við það sem venjulegast er í þessu efni í Danmörku. Meðal efnis sem má hafa gaman af í Chansen er ritdómur eftir Suzanne Brögger um danska þýð- ingu skáldsögu De Sade: Justine. De Sade samdi Justine tveimur árum fyrir stjórnarbyltinguna miklu í Frakklandi, en þótt hann sé byltingarmaður að vissu marki er það ekki mannúð samkvæmt hefðbundum skilningi sem hann boðar heldur frelsi langana okkar og girnda. Og Suzanne Brögger virðist himinlifandi yfir þörf hans til að spilla konum og „óhreinka" þær. Chansen sker ,sig úr öðrum bókmenntatímaritum að því leyti að birta framhaldssögu. Sagan nefnist á frummálinu Kein Ort, Nirgends og er eftir austurþýsku skáldkonuna Christa Wolf. Bókin sem kom út 1979 hefur vakið mikla athygli, enda fjallar hún um örlög tveggja kunnra skálda, Bókmennllr eftir JÓHANN HJÁLMARSSON Heinrichs von Kleist og Caroline Gúnderode sem bæði fyrirfóru sér á unga aldri. Þetta er söguleg skáldsaga án þess að vera um of háð fyrirmyndum. I Newcastle eru gefin út mörg tímarit um bókmenntir og listir. Eitt þessara rita er nú að verða meðal þekktari bókmenntatíma- rita í enskumælandi heimi. Það heitir Stand, útg. Stand, 19 Hald- ane Terrace, Newcastle upon Tyne, NE2 3AN. Ritstjórinn er skáldið Jon Silkin, en aðrir í ritstjórn Loma Tracy, David Wise og David McDuff. Sá síðastnefndi er íslendingum að góðu kunnur, dvaldist hér við nám í íslensku og hefur þýtt íslenskar bókmenntir. Stand virðist mér ákaflega breskt tímarit, ef það segir þá nokkuð. Einkum gildir þetta um nýjasta tölublað þess sem helgað er skáldum sem af eigin raun kynntust fyrri heimsstyrjöld. Grein er í blaðinu um Isaac Rosenberg sem féll 1918 og Wilfred Owen sem féll sama ár. Rosenberg er meðal þeirra skálda sem hafa fengið nokkra endur- reisn á síðari árum, en hann var aðeins 27 ára þegar hann lést. I Stand er leitast við að kynna nýja ljóðlist hvaðanæva að úr heiminum þótt varla komi það á óvart að þessu sinni að lesa í þýðingum ljóð eftir jafn kunn skáld og Giuseppe Ungaretti og Eugenio Montale frá Ítalíu, Alex- ander Blok og Maríu Tsvetayevu frá Rússlandi eða Frakkann Jean Follain. Þá finnst mér meira um vert að lesa ljóð austurþýskra skálda í enskum þýðingum í fyrsta tölublaði þessa árs og sömuleiðis þýðingu eftir David McDuff á ljóði eftir Rússann Jósef Brodskí. Ljóst er að Stand hefur haft gildi sem tengiliður milli Eng- lands og Bandaríkjanna, enda hafa mörg bandarísk skáld fyrst verið kynnt fyrir enskum lesend- um í Stand. Meðal þessara skálda má nefna Robert Bly. Stand birtir umsagnir um bæk- ur, einkum ljóðabækur og oft hressilega umræðu um bókmennt- ir og samfélag eins og sjá má í nýjustu tölublöðum þess. Oft eru líka góðar smásögur í Stand. Þegar á allt er litið er tímaritið meðal þeirra sem ómissandi eru fyrir þá sem vilja fylgjast með enskum bókmenntum og fá nasa- sjón af því sem er að gerast utan landamæra Englands.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.