Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 33 Drög að bókyn um viðræður ríkisstjórna Islands og Noregs Ríkisstjórnir Islands og Noregs sem viðurkenna nauðsyn á raunhæfum ráðstöfunum til verndunar, hagkvæmrar nýtingar og vaxtar og viðgangs lifandi auðæfa hafsins og ennfremur nauðsyn á raunhæfri verndun auð- linda landgrunnsins, sem viðurkenna að skv. þjóða- rétti bera löndin tvö sem strandríki höfuðábyrgð á raun- hæfri verndun og hagkvæmri nýt- ingu þessara auðlinda, sem viðurkenna mikilvægi sam- ræmds, náins og vinsamlegs sam- starfs milli landanna tveggja til að tryggja að þessum markmiðum verði náð og viðurkenna einnig nauðsyn á skipulögðu samstarfi við önnur lönd sem hlut eiga að máli til þess að ná þessum mark- miðum, sem viðurkenna hina þýð- ingarmiklu fiskveiðihagsmuni Islands á hafssvæðunum við Jan Mayen, sem viðurkenna hinar sérstöku aðstæður sem hafa áhrif á afmörk- un milli landanna tveggja á hafs- svæðum þessum bæði að því er varðar fiskveiðar og landgrunn, sem láta í ljós áhyggjur sínar vegna hættu á ofveiði, sem sér- staklega steðjar að loðnustofnin- um á þessum hafsvæðum, sem hafa hliðsjón af því að ísland hefur sett 200 mílna efna- hagslögsögu á hafsvæðum um- hverfis ísland skv. lögum frá 1. júní 1979 og að Noregur mun skv. lögum frá 17. desember 1976 um efnahagslögsögu koma á lögsögu á hafsvæðunum umhverfis Jan Mayen, sem hafa í huga þau störf sem unnin eru á 3. hafréttarráðstefnu S.þj., og enn er ólokið, hafa orðið ásáttar um eftirfar- andi: 1. gr. Báðir aðilar munu efla samvinnu í sjávarútvegi, sérstaklega með tilliti til verndunar, skynsamlegr- ar nýtingar og viðgangs þeirra fiskistofna, sem flytja sig á milli svæða og halda sig á miðunum innan lögsögunnar við ísland og Jan Mayen svo og á nálægum hafsvæðum. 2. gr. Sett verði á fót fiskveiðinefnd. Báðir aðilar tilnefni hvor sinn fulltrúa og varafulltrúa í nefndina. Fulltrúar geta fengið sér til ráðu- neytis ráðgjafa og sérfræðinga. Nefndin komi saman a.m.k. einu sinni á ári, til skiptis í löndunum tveimur. Auk þess skal nefndin koma saman svo oft sem þurfa þykir. Auk nefndarinnar skal komið á fót starfshópi fiskifræðinga frá báðum aðilum. Hópurinn láti nefndinni í té fræðilegar ráðlegg- ingar varðandi störf hennar. 3. gr. Nefndin ráðgist um þau mál er upp koma varðandi stjórnun fisk- veiða. Hún leggi fram tillögur varðandi veiðar á göngufiski á svæðinu, þar á meðal tillögur varðandi heildaraflakvóta þegar um er að ræða slika fiskistofna, auk þess sem ræddar skulu og samræmdar aðrar verndunarað- gerðir. Nefndin leggi tillögur sínar og ráðleggingar fyrir stjórnir beggja ríkjanna. Samhljóða ráð- leggingar nefndarinnar verða bindandi innan tveggja mánaða, hafi ekki komið fram athugasemd- ir frá hvorugri ríkisstjórninni. Aðilar geta falið nefndinni að fjalla um og gera úttekt á öðrum málum sem upp kunna að koma vegna veiðanna. íslenzk við- aukatillaga við 3. grein Náist ekki samstaða milli aðil- anna tveggja um ákvörðun heild- arkvóta getur það ríkið, sem á meiri hagsmuna að gæta varðandi umræddan fiskistofn, tekið ein- hliða ákvörðun um heildarkvóta. Geti hitt ríkið engan veginn sætt sig við ákvarðanir getur það mót- mælt og óskað eftir því að málið verði tekið til frekari umfjöllunar. 4. gr. — tiilaga frá Norðmönnum Þar til sumar- og haustvertíð 1980 hefst skuldbinda Norðmenn sig til að takmarka loðnuveiðar sínar innan Jan Mayen-lögsögunn- ar og á nálægum hafsvæðum við ... tonn. Nefndin leggi til ákveðna skipt- ingu á heildarloðnukvótanum milli Norðmanna og Islendinga næstu fimm ár. Þessi skipting verði tekin til endurskoðunar, eigi síðar en í lok fimm ára tímabilsins, í ljósi þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað á veiðisvæðunum og á grufld- velli hugsanlegra niðurstaðna fiskirannsókna um dreifingu loðn- unnar á hinum ýmsu svæðum. (Geri Danir-Grænlendingar kröfu til hlutdeildar í loðnukvótan- um skal á ný gengið til samninga um kvótann). Tillaga ís- lendinga um aðra málsgrein 4. gr. Hlutdeild Norðmanna í heildar- loðnukvótanum miðist við ... '/<• næstu fimm ár eftir að sumar- og haustvertíð 1980 er lokið. Þegar það tímabil er á enda endurmeti nefndin þessi hlutaskipti. 5. gr. Islenzkir sjómenn fái aðgang að loðnumiðunum innan norsku 200 mílnanna við Jan Mayen í sam- ræmi við ákveðinn kvóta Islend- inga. Þegar um er að ræða annan göngufisk innan 200 mílnanna við Jan Mayen skal af sanngirni tekið tillit til þess hve íslendingar eru almennt háðir fiskveiðum og til mikilvægra fiskveiðihagsmuna íslendinga á umræddum hafsvæð- um. Við fiskveiðar innan norsku 200 milnanna við Jan Mayen hlíti íslenzk fiskiskip norskum lögum, fyrirmælum og ákvörðunum. fi. gr. Hvor aðilinn sem er getur ráð- stafað sínum hluta heildarkvótans með samningum við þriðja land. 7. gr. Aðilarnir viðurkenna að raun- hæf verndun og hagkvæm nýting stofna sem ganga milli svæða kunni að krefjast viðræðna og samræmingar fiskveiðiráðstafana með öðrum löndum á svæðinu. 8. gr. Aðilar munu halda áfram við- ræðum um kröfu Islands til land- grunnssvæða utan efnahagslög- sögu íslands á svseðinu milli íslands og Jan Mayen. 9. gr. Ekkert í bókun þessari skal hafa áhrif á sjónarmið aðila varðandi víðáttu og afmörkun landgrunns- svæða þeirra. Bókun um viðræður í tveimur samhljóða eintökum á íslensku og norsku. Reykjavík, 15. apríl 1980. Ríkisstjórn Noregs lýsir því yfir að í viðræðum við þriðja riki um afmörkun svæðanna við Jan Mayen og við Austur-Grænland svo og um fiskveiðiréttindi á svæð- inu verður af norskri hálfu reynt að koma á fyrirkomulagi sem tryggi hina þýðingarmiklu fisk- veiðihagsmuni íslands á svæðinu. „Þar sem Island hefur með lögum frá 1. júní 1979 um land- helgi, efnahagslögsögu og land- grunn ákveðið að efnahagslögsaga skuli vera 200 mílur einnig á svæðinu miili íslands og Jan Ma.ven vill ríkisstjórn Noregs minna á að skv. þjóðárétti ber að ákveða afmörkun lögsögu á hafinu með samningum. Rikisstjórn Nor- egs telur því nauðsynlegt að gera fyrirvara um réttindi sín.“ HÉR FARA á eftir drög, sem undirnefndir íslendinga og Norðmanna fjölluðu um í Jan Mayen-viðræðunum og* lögðu fyrir formann íslenzku viðræðunefndarinnar, Olaf Jóhannesson, utanríkisráðherra. Sá hluti þessara tillagna, sem fjallar um hafsbotninn var lagður fyrir þingflokkana. eins og hann kemur hér fram, en sá hlutinn, sem fjallar um fiskveiðar var kynntur munn- lega í þingflokkunum. Þessum drögum og hugmyndum var sem kunnugt er hafnað af þingflokkum Sjálfstæðis- flokks, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags: Fjáröflun til styrkt- ar barna- deild S.F.A. KVENFÉLAGIÐ Hlíf hefur frá árinu 1973 styrkt Barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akur- eyri af miklum skörungsskap með veglegum, árlegum gjöfum. Það hefur gefið ýmiss konar mjög dýr tæki, sem í dag eru notuð á barnadeildum með gjörgæslu á börnum. Barnadeildin er því nú vel búin tækjum, sem þakka má aðallega Kvenfélaginu fyrir. Auk þess hefur Minningarsjóð- ur Hlífar gefið nú nýlega vandað- an skírnarfont úr íslensku birki, útskorinn, skál hans er sett íslenskum steinum. Einnig hefur Minningarsjóðurinn gefið sjón- varp, silfurkertastjaka, sálma- bækur, leikföng og bækur. Fjáröflunardagur Kvenfélags- ins er sumardagurinn fyrsti. Um leið og ég þakka Kvenfélaginu fyrir hina margvíslegu aðstoð vil ég hvetja Akureyringa til að fjölmenna á basarinn og kaffisöl- una í Sjálfstæðishúsinu og kaupa einnig merki félagsins. Agóðinn rennur óskiptur sem áður til Barnadeildar F.S.A. Baldur Jónsson, yfirlæknir Barnadeildar F.S.A. INNLENT íf-TT t* ** WÍr'2^'1 Flugleiðaþota sett saman Þetta er fyrsta myndin af Boeing 727—200 þotu Flugleiða, sem nú er verið að smíða í Boeing verksmiðj- unum í Seattle í Bandaríkjunum. Aætlað er að vélin verði tekin út úr flugskýli 28. apríl og að fyrsta reynsluflugið verði 7. eða 8. maí. Nýja þotan, sem mun hafa sæti fyrir 164 farþega, verður afhent Flugleiðum og er áætlað að hún komi hingað til lands í byrjun júní. Einkennisstafir hennar verða TF- FLI og hún verður notuð á flug- leiðum milli íslands og annarra Evrópulanda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.