Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 Hitaveita stofn- uð í Hjaltadal Frá norrœna fóstrunámskeiðinu að Ilótel Loftleiðum. Ljósm. Mbl. Rax. Norrænt fóstrunám- skeið í Reykjavík NORRÆNT fóstrunámskeið er haldið þessa dagana á Hótel Loftleiðum, en því lýk- ur í dag. Þátttakendur eru 120 talsins, þar af 30 íslend- ingar. Dagskrá námskeiðsins er með því sniði, að deginum er skipt niður í fyrirlestra og hópvinnu, auk þess sem farið er í heimsóknir á dagvistun- arheimili. 29.158 atvinnu- leysisdagar í janúar, febrú- ar og marz FYRSTU þrjá mánuði ársins voru skráðir 29.158 atvinnuleys- isdagar á landinu öliu, sem er 15.353 dögum færra en á sama tíma í fyrra, en þá voru skráðir 44.511 atvinnuleysisdagar í janú- ar, febrúar og marz. I janúar sl. var fjöldi atvinnu- lausra á skrá 651, í febrúar 473 og 345 í marz, eða alls 1.469 en fyrstu þrjá mánuðina í fyrra var fjöldi atvinnulausra á skrá 2.130. Fyrirlesarar á námskeiðinu eru níu talsins. Ulla Britta Bruun frá Sví- þjóð flytur erindi um dag- vistarheimili frá hugmynda- fræðilegu sjónarmiði. Björn Eriksson frá Dan- mörku flytur erindi um áhrif stjórnmála á þróun dagvist- arheimila. Gunnel Holmström Finn- landi flytur erindi um hvert sé álit samfélagsins og fjölskyld- unnar á dagvistarheimilum. Frá Noregi koma tveir fyrir- lesarar, þeir Peter Ville og Per Linge. Munu þeir hafa sam- vinnu í flutningi erindis síns og nefna það: „Dagvistarheim- ili sem skapandi uppeldisum- hverfi". Af íslands hálfu hafa 4 ^slenskar fóstrur unnið að erindi er þær kalla: „Mismun- andi sjónarmið á uppeldislegu starfi á dagvistarheimilum á íslandi". í starfshópnum eru: Heiðdís Gunnarsdóttir, Sigur- laug Gísladóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Sólveig Ás- geirsdóttir. Geitaskarði. 16. apríl. AÐALFUNDUR veiðifélags Vatnsdalsár var haldinn í Flóð- vangi 11. april sl. Teitur Eyj- ólfsson flutti erindi á fundinum um ræktun árinnar. en hann hefur kannað seiðamagn á vatnasvæðinu ofan laxgengra fossa. í erindi hans kom fram, að burðarás laxaræktar í Vatnsdalsá er að sleppa sumar- öldum seiðum í kvíslar og seftjarnir, þar sem laxfiskur er ekki fyrir. Gísli Pálsson formaður stjórn- ar Hólalax hf., sem er félag veiðiræktareigenda í Húna- vatnssýslum og Skagafirði, upp- lýsti að daginn áður hefði verið undirritaður sameignarsamning- ur um stofnun og rekstur hita- veitu í Hjaltadal. Ragnar Arn- alds fjármálaráðherra undirrit- aði samninginn fyrir hönd ríkissjóðs, Matthías Eggertsson fyrir hönd Hólahrepps og Gísli Pálsson fyrir hönd Hólalax hf. Þeir síðarnefndu undirrituðu með fyrirvara um samþykki umbjóð- enda sinna. Eignarhlutföll eru: Hólahreppur 6%, Hólalax hf. 50% og rikissjóður 44%. Veitan er frumhönnuð og gert ráð fyrir að hún verði lögð í sumar, en það er þó háð gerð lánsfjáráætlunar. Fjölhönnun hf. annast hönnun og áætlanagerð við veituna. Lýður Björnsson og fleiri Reykvíkingar hafa annað og fjórða svæði árinnar á leigu næstu tvö ár. Leigan er 35.500.000 krónur fyrir árið 1980, auk þess sem leigutakar greiða viðhald og rekstur Flóðvangs og kostnað við að breyta olíukyndingu í rafhit- un. Leigðar verða sex stangir samtímis í ánni á þessum tveim- ur svæðum. Ágúst. Stofnfundur Fiskeldis hf. í kvöld: Stofnf élagar úr 50 byggðarlögum — hlutafé orðið meira en 100 milljónir króna STOFNFUNDUR félags áhuga- manna um fiskeldi hér á landi, Fiskeldi hf., verður haldinn á Hótel Sögu, Súinasai, klukkan 20.30 í kvöld. Undanfarið hefur söfnun stofnfélaga átt sér stað en einnig geta menn gerst stofnfé- lagar á stofnfundi í kvöld. Hilmar Helgason, sem er einn þeirra sem unnið hafa að undir- búningi stofnunar félagsins, sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær, að undirtektir landsmanna hefðu verið mjög góð- ar. Alls hefðu á sjöunda hundrað manns skrifað sig á lista úr um fimmtíu byggðarlögum á landinu, og hlutafé sagði hann þegar vera orðið um 100 milljónir króna. Lágmarksupphæð sem hver stofn- félagi getur lagt fram er 100 þúsund krónur, en stærsta aðilann til þessa kvað Hilmar hafa lagt fram fimm milljónir króna. Þá kvað Hilmar allmörg félög og fyrirtæki hafa sýnt stofnun félagsins áhuga, svo sem fyrirtæki á markaðs- og flutningasviði. Mætti þar meðal annars nefna Hafskip, SÍS, SH og fleiri. Þessi fyrirtæki biðu hins vegar eðlilega eftir stofnfundinum og því að stjórn yrði kjörin, stefnan mörkuð og markmið skilgreind. Stofnfélagar munu þurfa að greiða 25% hlutafjár innan hálfs mánaðar frá stofnfundi en af- ganginn innan tveggja ára eftir því sem síðar verður ákveðið og tilefni þykir gefast til. Hilmar sagði að lokum, að stjórnarkjör yrði á dagskrá fund- arins í kvöld og ætti hann von á að tillaga undirbúningsnefndar myndi vekja mikla athygli. Þar væri stungið upp á til stjórnarsetu mörgum kunnum mönnum í at- vinnulífi hér á landi, mönnum, sem kunnir væru að því að geta tekið til höndunum. Peysufata- dagur upp á gamla móðinn NEMENDUR fjórða bekkjar í Verzlunarskóla íslands héldu hátíðlegan peysufatadaginn í gær eins og þeir hafa gert árlega í áratugi. Fjöl- menntu nemendur um bæinn og komu víða við, auk þess sem dagamunur var gerður í skólanum. Piltarnir klæddust kjól- fötum og skörtuðu að sjálfsögðu tilheyrandi pípuhatti, en stúlkurnar voru þjóölegar í peysuföt- um með rós í barmi. Sjálfsagt hefur einhver amman þurft að sjá af djásnum sínum þennan dag eða þá að piltarnir hafa leitað til feðra sinna og afa. Meðfylgjandi myndir eru teknar í mið- bænum í gær og sannar- lega settu nemendur Verzlunarskólans svip sinn á bæinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.