Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 Viktor til Standard KNATTSPYRNUÞJÁLF ARI ÍBV Viktor Helgason hólt utan í morgun til Belgíu. nánar tiltekiA til Standard í Liegc en þar mun hann dvcljast í vikutíma hjá fólaginu og kynna sór þjálf- un hjá Ernst Happel þeim fræga þjálfara. Jafnframt mun Viktor fylgjast með æfingum og leikjum fólags- ins. - HKJ. Van Der Elst til Cosmos BANDARÍSKU knattspyrnufélögin eru hætt að gera sór að góðu að kaupa leikmenn frá Evrópu og Suð- ur Ameríku. sem eru meira og minna farnir að gefa eftir sem knattspyrnumenn sökum aldurs. Æ meira reyna ríkustu félögin að lokka til sín yngri og snjall- ari leikmenn með oft góðum árangri. T.d. hefur stórliðið New York Cosmos fest kaup á belgíska landsliðsmannin- um Francois Van Der Eist, en hann hefur verið snjall- asti leikmaður Belga síðustu árin. Woods fór tii Norwich ENSKI útherjinn snjalli hjá Ipswich, Clive Woods, heíur gert samning við nágranna- liðið Norwieh, gott ef hann hefur ekki þegar leikið með liðinu. Woods, sem þykir afburðaframherji þegar svo ber undir. missti stöðu sína í aðaliiði Ipswich snemma á keppnistimabilinu og var liðið þá við botn 1. deildar. I>egar hann varð aftur góð- ur af meiðsium sínum. hafði gengið svo vel að liðið var komið í fremstu röð og út í hött að fara að taka ein- hvern út fyrir Woods. Undi hann þvi illa og heimtaði sölu hið snarasta. Breiöablik AÐALFUNDUR Breiðabliks verður haldinn að Hamra- borg 1 í kvöld og hefst hann klukkan 20.00. George lenti í sláttuvél CHARLIE George, knatt- spyrnukappinn kunni hjá Southampton, snaraði sór í öll helstu æsifréttablöð Eng- lands fyrir skömmu, er hann flækti hendi sina í siáttuvél sinni með þeim afleiðingum að hann missti einn fingur. George, sem átt hefur við meiðsl að stríða síðustu vik- urnar, var að stytta sér stundir úti í garði. er slysið átti sér stað. Drap hann óvart á sláttuvólinni og er hann hugðist gangsetja hana á nýjan leik, tókst ekki •tur til en svo að hann Ai fingrinum í hreyfil- Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær, þá varð karlalið UMFL bikarmeistari með góðum 3—1 sigri gegn brótti, en leikurinn fór fram á Selfossi í fyrrakvöld. UMFL varð því bæði deildar- og bikarmeistari og er það mikið afrek og gott. Kvennalið Víkings lék sama leikinn. bróttur vann fyrstu hrinuna gegn UMFL 15—9, en mátti síðan þola þrjú töp í röð, 15—6, en síðan naumlega 16—14 og 15 — 13 í æsispennandi hrinum. í kvennaflokki sigraði Víkingur eins og áður hefur verið skýrt frá, vann liðið brótt í úrslitum með 3 hrinum gegn engri, 15—8, 15—7 og loks 15—13. Meðfylgjandi mynd er af liði UMFL. ísland lagði Sviss — og hafnaði í öðru sæti í sínum riðli ÍSLAND vann góðan sigur, 3—2, á Svisslendingum á Evrópumót- inu í badminton sem fram hefur farið í Groningen í Hollandi síðustu dagana. Sigruðu íslend- ingarnir í karlaflokkunum og tvenndarleik. Broddi Kristjánsson sigraði andstæðing sinn 15—12, 15—8 og tapaði auk þess 15—18. Broddi og Sigurður sigruðu í tvíliðaleik, unnu sína mótherja 17—14 og 15—7. Sigfús Ægir Árnason og Sif Friðleifsdóttir Pétur ólöglegur? SÚ SAGA hefur flogið, að Pétur Ormslev, miðherjinn leikni hjá Fram, hafi verið ólöglegur leik- maður með liði sínu það sem af er Reykjavíkurmótinu í knatt- spyrnu, en þar hefur Fram þegar leikið tvo leiki. Mun flugufregn þessi stafa af því að tilskilinn tími er ekki liðinn síðan að Pétur lék með vestur-þýsku áhuga- mannaliði i vetur. Mbl. spurði Pétur um mál þetta eftir leik Fram og Víkings á Reykjavíkurmótinu og sagði hann: „Ellert Schram, formaður KSI, segir að ég sé ekki ólöglegur, en hinir stjórnarmennirnir segja hins vegar að ég sé það. Ég veit ekkert hvað þeir finna út úr því, en það hefur a.m.k. engin kæra borist enn svo að ég viti til, og ég mundi ekki skilja í ef svo yrði, því að mér finnst ekki að líta beri á þetta mót svo alvarlega." — gg. sigruðu síðan í tvenndarleik, unnu mótherja sína 15—9 og 15-4. Kristin Magnúsdóttir tapaði fyrir sinum andstæðingi 1 —11 og 1 — 11. Kristín og Kristin Berg- lind töpuðu síðan i tviliðaleik 14-18 og 5-15. íslendingar urðu í öðru sæti i sínum riðli, hlutu 6 stig. Pólverj- ar, sem unnu nauman sigur á íslandi i fyrsta leiknum, hlutu 8 stig og urðu efstir. Sviss, Portú- gal og Ítalía höfnuðu öll neðar i riðlinum heldur er ísland. Annars urðu Danir Evrópu- meistarar, þeir sigruðu Englcnd- inga i úrslitaleik með 3 vinning- um gegn 2. B-keppnin í Frakklandi „NÚ HEFUR alþjóðahandknatt- leikssambandið gengið endan- lega frá því að B-heimsmeistara- keppnin í handknattleik fari fram í Frakklandi og mun keppnin sennilega fara fram á timabilinu 5. til 15. mars. Eins og skýrt hefur verið frá sótti hand- knattleikssamband íslands um á sinum tima um að fá að halda keppnina og um tíma taldi það góðar líkur á að það fengi keppnina, en nú er ljóst að svo verður ekki. — br. Leikið í tveimur riðlum ÁKVEÐIÐ hefur verið að leika í tveimur sex liða riðlum í B-heimsmeistarakeppninni i handknattleik sem fram fer i Frakklandi i mars á næsta ári. Ekki er enn búið að draga í riðlana en ljóst er að róður islenska landsliðsins verður ekki léttur i keppninni. Ekki larið til Kína Handknattleikssamband íslands á inni gott boð um að koma með stóran hóp af hand- knattleiksfólki i keppnisferð til Kina. Um nokkurt skeið hefur verið unnið að þessu máli í samráði við ÍSÍ, en nú er ljóst að þar sem ekki kemur til styrkur frá hinu opinbera í ferð þessa á þessu ári mun ekkert verða úr heimsókninni að sinni. Formaður HSÍ sagði að áfram yrði unnið að máli þessu og ekki væri óliklegt að hægt yrði að hrinda þessari heimsókn i framkvæmd i ágúst- mánuði á næsta ári með góðri hjálp opinberra aðila. - þr. Fjögur Islandsmót fatlaóra um helgina UM næstu helgi verða hér í Reykjavik fjögur íslandsmót fatl- aðra, með þátttöku hreyfihaml- aðra, blindra, heyrnardaufra og þroskaheftra. Keppendur á þess- um fjórum mótum verða um eitt hundrað talsins, og er það meiri fjöldi en áður hefur tekið þátt i mótum á vegum íþróttasam- bands fatlaðra. bá má geta þess að nú fer fram i fyrsta sinn Sundmeistaramót fyrir fatlað fólk, sjónskert og þroskaheft. Mótin sem fram fara á fjórum stöðum í borginni verða öll sett kl. 20.00 í SundhöII Reykjavíkur á föstudagskvöld. Og síðan mun meistaramótið i sundi hef jast. Laugardaginn 19. apríl kl. 14.00 fer svo fram keppni í Boccia í íþróttahúsi Álftamýrarskóla, og eru þar mjög margir keppendur skráðir. Á sunnudag verður svo keppt í bogfimi og borðtennis í Laugardalshöllinni kl. 16.00. Á sunnudagskvöld verður svo lokahóf á Hótel Loftleiðum þar sem afhent verða verðlaun, gull-, silfur- og bronsverðlaun í öllum flokkum, svo og glæsilegir far- andgripir sem Kiwanisklúbburinn Esja gaf sambandinu og var það mikill og góður stuðningur. - þr. Hvi þetta fargan aukaleikja? f FYRRAKVÖLD léku bróttur og ÍR fyrri leik sinn um laust sæti í 1. deildinni i handknatt- ieik. í kvöld leika þau siðari leikinn. ÍR hafnaði i næst neðsta sæti 1. deildar, en brótt- ur varð i næst efsta sæti 2. deildar. Nú hefur undirritaður ýmis- legt við þetta aukaleikjafyrir- komulag að athuga. bess ber þó strax í upphafi að gcta, að það er í alla staði samkvæmt regl- um HSÍ og það sem hér kemur á eftir er einungis persónuleg skoðun blaðamannsins sem það ritar. Nú, ÍR og Þróttur eiga að leika tvo leiki. I sjálfu sér er minnst við það að athuga, sérstaklega ef annars vegar væri um utanbæj- arlið að ræða og hins vegar iið úr Reykjavík. En bæði ÍR og Þrótt- ur eru Reykjavíkurfélög eins og aliir vita sem á annað borð fylgjast með handknattleik hér á landi. Það kemur hins vegar spánskt fyrir sjónir að ef liðin sigra sinn leikinn hvort, þá gildir ekki betri markatala, Þróttur myndi því ekki njóta þess að hafa unnið fyrri leikinn með tveimur mörkum ef ÍR ynni síðari leikinn með einu marki. Vinni ÍR í kvöld, verður því að leika þriðja leikinn og má þá segja að málið sé orðið æði iangdregið og bjóði upp á leiki sem eru ekki lengur handknatt- leikur, heldur stríð. Það er ekki ætlunin að skrifa langhund um mál þetta, best að láta reglur HSÍ einar um slíka hunda. En undirritaður vill endi- lega láta frá sér fara eftirfar- andi skoðanir á aukaieikjafarg- ani þessu. — í fyrsta lagi finnst mér út í hött að leika aukaleiki, vegna þess að næst neðsta lið 1. deildar, ÍR í þessu tilviki, er búið að hafa heilan vetur til þess að sýna fram á að liðið eigi heimt- ingu á að vera áfram í 1. deild. Því þykir mér ósanngjarnt gagn- vart því liði, sem verður í öðru sæti í 2. deiid, að stilla upp enn einni hindrun í 1. deildina og gefa þannig botnliði 1. deildar- innar enn einn óverðskuldaðan möguleika á því að halda sæti sínu. Á þessi skoðun ekki síður við um aðrar deildir handknatt- leiksins, bæði í karla- og kvenna- flokki. En fyrst veriö er að leika aukaleiki, því þá ekki að láta einn slíkan nægja, á hlutlausum velii, það hlýtur að hafa minnsta kostnaðinn í för með sér. Og fyrst verið er að puða með tvo aukaleiki, hvers vegna er þá boðið upp á þriðja aukaleikinn með því að láta markatölu ekki ráða ef liðin ynnu hvort sinn leikinn? Þetta er slík endaleysa, að breytinga er þörf. Þaö er a.m.k. skoðun undirritaðs. - gg. V* <•< VA '.»» , Yt yj* T& Wft

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.