Morgunblaðið - 17.04.1980, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRIL 1980
Ljósm. Mbl. Emilia.
Dimmitantar frá M.R. gerðu sér glaðan dag í gær áður en alvara upplestrarfrísins tók við.
Eggert Haukdal í þingflokk
Verkalýðsfélag Akraness:
Átelur harðlega seinagang
í samningaviðræðum ASÍ
Sjálf stæðisf lokksins:
Einróma samþykkt
Jónas Jóns-
son ráðinn
búnaðar-
EGGERT Haukdal alþingismaóur var samþykktur inn i þingflokk Sjálfstæð-
isflokksins á þingflokksfundi í gær með öllum atkvæðum. Eftirfarandi bókun
var gerð þar: „Með því að kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins hefur lýst yfir að
jafnaðar hafi verið þaT deilur. sem risu innan kjördæmisráðsins vegna
framhoðsmála fyrir síðustu kosningar. samþykkir þingflokkurinn að Eggert
Ilaukdal taki sæti í þinKflokknum. enda ligKur fyrir ósk hans um það."
Mortjunblaðið ræddi í gær við Ejjk-
ert Haukdal um málið og Ólaf G.
Einarsson og fer hér fyrst á eftir
umsöKn E(tt;erts Haukdals:
„L-listinn var borinn fram af sjálf-
stæðismönnum í tveimur sýslum, sem
stóðu sem næst einhuua að þessu
framboði. Þessi listi hlaut einnití
þróunin verði sú að það byt’tíist upp
ttat;nkvæmt traust, virðint; ot; sam-
staða."
Þá ræddi Mbl. við Ólaf G. Einarsson
formann þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins og sat;ði hann: „Ét; tel að
þarna hafi verið sti(;ið heillavænlet;t
spor og vil láta í ljós þá von að það
takist samstaða milli manna oj; ein-
hut;ur í flokknum. Þetta er spor í þá
átt að það er ástæða til þess að ætla
að svo verði því algjör samstaða var
um þessa afgreiðslu í þint;flokknum.“
ElCKcrt Haukdal
stuðninj; sjálfstæðismanna víðar í
kjördæminu auk stuðningsmanna úr
öðrum flokkum og óháðra. Meirihluti
kjördæmisráðs féllst ekki á að þessi
listi væri borinn fram í nafni kjör-
dæmisráðs.
Það hcfur legið fyrir allt frá
upphafi þings að ég vildi starfa í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins, enda
sjálfstæðismaður sjálfur on borinn
fram af sjálfstæðismönnum.
Þessi dráttur sem hefur orðið á
sáttum hefur að sjálfsögðu haft slæm
áhrif fyrir báða aðila, en það sem
skiptir met;inmáli í dag er að það hafa
náðst sættir um þau formsatriði sem
voru í veginum ok vonandi er að
Brýna forystu
BSRB í samningum
FUNDUR í Kennarafélatíi Fella-
skóla skorar á samninganefnd og
stjórn BSRB að standa fast á rétti
opinberra starfsmanna í komandi
kjarasamningum og vinna til baka
þá kjaraskerðingu, sem orðin er.
í ályktun félagsins, sem Morgun-
blaðinu barst, segir ennfremur, að
Kennarafélag Fellaskóla muni
styðja allar þær aðgerðir, sem nauð-
synlegar teljast til að árangur náist.
málastjóri
STJÓRN Búnaðarfélags
íslands ákvað á fundi í gær
að ráða Jónas Jónsson rit-
stjóra Freys í starf búnað-
armálastjóra frá og með 1.
maí n.k. Tekur hann við af
Halldóri Pálssyni, sem
gegnt hefur starfinu um
árabil.
Auk Jónasar sóttu um stöðuna
Hjalti Gestsson ráðunautur á
Selfossi, Jóhannes Sigvaldason
ráðunautur á Akureyri, Jón Viðar
Jónmundsson ráðunautur og
kennari á Akureyri og Sveinn
Hallgrímsson ráðunautur í
Reykjavík.
Jónas Jónsson er fimmtugur að
aldri, fæddur 9. marz 1930 á
Ystafelli í Ljósavatnshreppi í
Suður-Þingeyjarsýslu, sonur Jóns
Sigurðssonar bónda þar og k.h.
Sigfríðar Helgu Friðgeirsdóttur.
Hann varð stúdent frá MA 1952 og
búfræðingur frá Hólum 1953.
Hann varð búfræðikandídat frá
Ási í Noregi 1957. Jónas hefur
síðan starfað sem kennari og
jarðræktarráðunautur og hin
síðustu ár verið ritstjóri búnaðar-
blaðsins Freys. Hann var aðstoð-
armaður landbúnaðarráðherra í
nokkur ár frá 1971. Jónas hefur
setið á Alþingi sem þingmaður
Norðurlandskjördæmis eystra.
Kona hans er Siguveig Erlings-
dóttir.
Jónas Jónsson
AÐALFUNDUR Verkalýðsfélags
Akraness var haldinn 12. apríl.
Stjórn félagsins skipa nú: Skúli
Þórðarson, formaður; Bjarnfríð-
ur Leósdóttir, varaformaður;
Garðar Halldórsson, ritari og
aðrir í stjórn eru: Agnar Jónsson,
Gréta Gunnarsdóttir og Sigrún
Clausen.
I fréttatilkynningu, sem Morg-
unblaðinu barst segir m.a. að
hagur félagsins hafi verið góður á
árinu og að á árinu hafi félagið
fagnað áfanga í félagslegri bygg-
ingu verkalýðsfélaganna á Akra-
Gasolíuverðið mjög
á uppleið af tur
GASOLÍUVERÐ hefur
hækkað stórlega á Rotter-
dammarkaði undanfarna
daga.
Hinn 8. apríl var skráð
verð á gasolíu 282 dollarar
hvert tonn. Þremur dögum
seinna eða 11. apríl var
skráð verð 304,50 dollarar.
Hafði verðið hækkað um
22,50 dollara á þremur dög-
um eða um 8%.
Hækkanir höfðu einnig
orðið á bensíni og svartolíu
en þær voru mun minni.
nesi, sem nýlega var fokheld eftir
eins árs byggingatíma. Fullgildir
félagar eru nú 993. Eftirfarandi
ályktun var samþykkt á aðalfundi
félagsins:
„Áðalfundur Verkalýðsfélags
Akraness, haldinn 12. 4. 1980,
átelur harðlega seinagang í
samningaviðræðum um nýja
kjarasamninga. Nú eru liðnir 3
mánuðir frá því að samningar
runnu út, og verkalýðshreyfingin
lagði fram mjög hóflegar kröfur,
sem miðuðust fyrst og fremst að
því að leiðrétta kjör hinna lægst
launuðu með breyttri vísitölu
þeim í hag.
Á þessu tímabili hefur kaup-
máttur rýrnað verulega vegna
gífurlegra hækkana, sem dunið
hafa yfir alþýðuheimili og bætast
ekki að fullu vegna skerðingar á
vísitölu samkvæmt svonefndum
Ólafslögum.
Fundurinn skorar á verkalýðs-
hreyfinguna að standa einhuga
um allar tiltækar leiðir til að
knýja fram kröfur sínar í nýjum
samningum."
Vinstri skattar
Tekjuauki ríkisins vegna
erlendra verðhækkana á
bensíni 10,1 milljarður kr.
Birgir Isleifur Gunnarsson:
Sjálfstæðismenn telja
útsvarshækkunina
með öllu ónauðsynlega
„VINSTRI flokkarnir í borgar-
stjórn hafa nú gert tillögu um
að nota álagsheimild nýsam-
þykktra laga að langmestu
leyti," sagði Birgir Isleifur
Gunnarsson borgarfulltrúi í
samtali við Morgunblaðið í gær,
er hann var spurður álits á
áformum borgarstjórnarmeiri-
hlutans um aukna skattheimtu
á borgarbúa.
„Samkvæmt þeim lögum sem
Alþingi samþykkti á dögunum,“
sagði Birgir Isleifur ennfremur,
„er sveitarfélögunum heimilt að
leggja útsvar á allt að 12,1%, en
vinstri meirihlutinn í borgar-
stjórn hefur gert að tillögu sinni
að lagt verði á 11,88%. Þetta
þýðir 1700 milljónir króna í
hækkuð útsvör á borgarbúa.
Við sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn erum andvígir þessari
hækkun, og teljum hana ónauð-
synlega með öllu. Munum við
þess vegna greiða atkvæði gegn
henni á fundi borgarstjórnar á
morgun, fimmtudag. Við teljum
það með öllu ósæmilegt, að
hækka nú útsvörin ofan á allar
þær skattahækkanir, sem vinstri
flokkarnir í ríkisstjórn hafa
beitt sér fyrir.
Við sjálfstæðismenn munum á
fundi borgarstjórnar flytja
breytingartillögur við tillögur
vinstri flokkanna, um fjárhags-
áætlun. í þeim tillögum munum
við sýna fram á, að þessi út-
svarshækkun er ónauðsynleg.
Tillögur vinstri manna um
hækkuð útsvör nú, sýna að
aðhald og sparnaðarvilja skortir
hjá meirihlutanum," sagði Birg-
ir ísl. að lokum.
Fundur borgarstjórnar verður
í dag klukkan 17, og þar verður
sem fyrr segir tekin um það
ákvörðun, hvort Reykvíkingum
verður gert að greiða 1700 millj-
ónir króna í viðbótarskatta á
þessu ári.
Á MÁNUDAGINN hækkaði
bensín í verði í níunda sinn á
tæpum tveimur árum og hefur
bensín hækkað um 261% á þessu
timabili.
• Bensínlítrinn kostar í dag 430
krónur og þar af renna 247,04
krónur í ríkissjóð eða 57,54%.
• í septemberbyrjun 1978, eða
fyrir rúmum 20 mánuðum
kostaði bensínlítrinn 145 krón-
ur og þar af runnu 90,56 krónur
í ríkissjóð eða 62,44%.
• Ríkissjóður hefur því 173%
meiri tekjur af hverjum
bensínlítra nú en í september-
byrjun 1978.
• Ef miðað er við 120 milljón lítra
árssölu á bensíni eru tekjur
ríkissjóðs af bensínsölu 29,7
milljarðar króna á heilu ári
miðað við núverandi verð en
þær voru 10,9 milljarðar á heilu
ári, miðað við 145 króna bensín-
verð.
• Hækkun framfærsluvísitölu frá
1. ágúst 1978 til 1. febrúar 1980
er 79,4%. Ef tekjur ríkissjóðs af
bensínsölu eru framreiknaðar
miðað við framfærsluvísitölu
yrði útkoman 19,6 milljarðar.
Tekjuauki ríkissjóðs vegna er-
lendra verðhækkana á bensíni
eru því 10,1 milljarður umfram
hækkun framfærsluvísitölu á
tímabilinu.
430 kr.
Bensínverð
álögur
ríkisins
145 kr.
sept. 78 apríl ’80