Morgunblaðið - 17.04.1980, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍU 1980
RIDGID
RÖRSNITTI-SETT
og stakir hausar
RÖRSNITTIBAKKAR
RÖRTENGUR
RÖRHALDARAR
RÖRSKERAR
RÖRSKERAHJÓL
RÍMARAR
ÖFUGUGGAR
RÖRÞÉTTIBÖND
RÖRKÍTTI
SNITTOLÍA
•
HANDFÆRA-
VINDUR
HANDFÆRAÖNGLAR
NÆLONLÍNUR
HANDFÆRASÖKKUR
PIKLAR M. ÚRVAL
SIGURNAGLAR
HÁKARLAÖNGLAR
SKÖTULÓÐAÖNGLAR
KOLANET
SILUNGANET
BLÝNET ATEIN AR
NETAFLOT '
•
BJORGUNARVESTI
ÁRAR
ÁRAKEFAR
TÓGKEFAR
ÁTTAVITAR
BÁTADÆLUR
BÁTADREKAR
BÁRUFLEYGAR
DRIFAKKERI
RADARSPEGLAR
BATASAUMUR
BÁTALANTERNUR
BÁTALAKK
•
BAUJU-
STENGUR
ÁL, PLAST, BAMBUS
BAUJULUKTIR
ENDURSKINSHÓLKAR
LÍNUBELGIR
NETABELGIR
NOTABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
LÍNUDREKAR
NETADREKAR
NETAKEÐJA
NETALÁSAR
NETAKÓSSAR
BAUJUFLÖGG
NETAFLÖGG
PLASTKÖRFUR
VÍRKÖRFUR
FISKISTINGIR
SALTSKÓFLUR
ÍSSKOFLUR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
VASAHNÍFAR
STÁLBRÝNI
HVERFISTEINAR
•
CARBOLIN
KOLTJARA
BLAKKFERNIS
EIROLÍA
•
SANDPAPPÍR
SMERGELLÉREFT
SLÍPIPAPPÍR
STÁLBURSTAR
TVISTUR
HVÍTUR OG MISLITUR
í 25 KG BÖLLUM
HESSIAN-STRIGI
TJÖRUHAMPUR
SKÓLPRÖRAHAMPUR
Simi 28855
Opiö laugardaga 9—12.
Jónas H. Haralz
bankastjóri
Útvarp kl.
11 árdegis:
Umræður um verð-
bólguvandann
í útvarpi i dag er á dagskrá
þátturinn Verslun og viðskipti
og hefst hann kiukkan 11.00
árdegis. Umsjónarmaður þátt-
arins er Ingvi Hrafn Jónsson.
sem er einnig þingfréttaritari
sjónvarpsins.
Ingvi sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær, að í þættinum í
dag yrði fjallað um verðbólgu-
vandann. Verður í þættinum
sagt frá ráðstefnu sem nýlega
var haldin í Munaðarnesi í
Borgarfirði um verðbólguvand-
ann og fleira á vegum Félags
viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga. Einnig verður rætt við tvo
þeirra er þá ráðstefnu sátu, þá
Jónas H. Haralz bankastjóra
Landsbankans og Hans Kristján
Árnason frá félagi því er gekkst
fyrir ráðstefnunni.
Ráðstefna þessi hefur mikla
athygli vakið, og meðal annars
hefur rækilega verið fjallað um
hana hér í Morgunblaðinu.
Útvarpsleikritið í kvöld klukkan 21.15:
Maðurinn sem vildi
ekki fara til himna
í kvöld. fimmtudags-
kvöld klukkan 21.15 verð-
ur flutt í útvarpi leikritið
„Maðurinn sem vildi ekki
fara til himna“ eftir
Francis Sladen-Smith, í
þýðingu Árna Guðnason-
ar. Leikstjóri er Lárus
Pálsson. Með helstu hlut-
verkin fara Róbert Arn-
finnsson, Emilia Jónas-
dóttir, Ævar R. Kvaran og
Indriði Waage. Áður flutt
í útvarpi 1962. Flutn-
ingstími er 45 mínútur.
Engillinn Thariel situr
við hlið himnaríkis og tek-
ur á móti „gestum“. Þar er
misjafn sauður í mörgu fé,
en einn sker sig þó úr. Það
er Richard Alton, kallaður
Dick trúlausi. Hann hefur
lýst því yfir í ræðu og riti,
að allt tal um himnaríki sé
tómur þvættingur, og hann
fer strax að deila við Thar-
iel. Minnir það um sumt á
viðskipti þeirra Jóns bónda
og Lykla-Péturs í „Gullna
hliðinu", nema hvað þarna
koma miklu fleiri persónur
við sögu.
Francis Sladen-Smith
var breskur höfundur, sem
einkum starfaði á fyrri
hluta þessarar aldar. Hann
skrifaði talsvert af gam-
ansömum verkum, en einn-
ig alvarlegri leikrit, stund-
um sögulegs efnis. Má þar
nefna „Pretty Toys“ og „St.
Simeon Stylites“.
Verk Sla-
den-Smiths eru yfirleitt rík
að hugmyndaflugi, oft með
ævintýrablæ. „Maðurinn
sem vildi ekki fara til
himna" er eina leikrit
hans, sem útvarpið hefur
flutt.
Á dagskrá útvarps í dag:
Tónleikar Sinfóníunnar
Útvarpshlustendum gefst
tvívegis kostur á að heyra
Sinfóniuhljómsveit íslands
leika í dag, klukkan 10.25 og
klukkan 20.30.
Á morguntónleikum mun
hljómsveitin leika Adagio con
variatione fyrir kammersveit
eftir Herbert H. Ágústsson, en á
tónleikum Sinfóníuhljómsveitar-
innar í Háskólabíói klukkan
20.30 í kvöld, sem útvarpað
verður beint, verður fluttur for-
leikurinn Rómeó og Júlía eftir
Pjotr Tsjaikovsky og hörpukon-
sert eftir Jörgen Jersild.
Hljómsveitarstjóri í kvöld verð-
ur James Blaír.
Útvarp Reykjavík
FIM41TUDKGUR
17. apríl
MORGUNINN___________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn. (8.00
Fréttir.)
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
9.00 Fréttii.
9.05 Morgunstund barnanna:
Jón Gunnarsson heldur
áfram að lesa söguna „Á
Hrauni“ eftir Bergþóru Páls-
dóttur frá Veturhúsum (7).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morguntónleikar. Sin-
fóníuhljómsveit íslands leik-
ur „Adagio con variatione“
fyrir kammersveit eftir Her-
bert H. Ágústsson; Alfred
Walter stj./ Hljómsveit
Belgíska lífvarðarliðsins
leikur „Afríska rapsódíu"
eftir Auguste de Boeck og
„Allegro barbaro“ eftir Béla
Bartók; Yvon Ducene stj./
Fílharmoníusveitin í New
York leikur „Adagietto",
þátt úr Sinfóníu nr. 5 í
cís-moll eftir Gustav Mahler;
Leonard Bernstein stj.
11.00 Verzlun og viðskipti. Um-
sjón: Ingvi Hrafn Jónsson.
11.15 Tónleikar: Þuliu velur og
kynnir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SÍDDEGID___________________
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Tónleikasyrpa. Léttklassísk
tónlist, dans- og dægurlög og
lög leikin á ýmis hljóðfæri.
14.45 Til umhugsunar. Jón
Tynes sér um þáttinn.
15.00 Popp. Páll Pálsson kynn-
ir. 15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Tónlistartími barnanna.
Stjórnandi: Egill Friðleifs-
son.
16.40 Útvarpssaga barnanna:
„Glaumbæingar á ferð og
flugi“ eftir Guðjón Sveinsson
Sigurður Sigurjónsson les
(11).
17.00 Síðdegistónleikar. Rut
Ingólfsdóttir og Gísli Magn-
ússon leika Fiðlusónötu eftir
Fjölni Stefánsson/ Ama-
deus-kvartettinn og Cecil
Arnonovitsj leika Strengja-
kvintett í F-dúr eftir Anton
Bruckner.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDID____________________
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Daglegt mál. Stefán
Karlsson flytur þáttinn.
19.40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.05 .„Turnleikhúsið“. Thor
Vilhjálmsson rithöfundur les
kafla úr nýjustu bók sinni.
20.30 Tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands i Há-
skólabiói; — fyrri hluta efn-
isskrár útvarpað beint.
Hljómsveitarstjóri: James
Blair. Einleikari á hörpu:
Osian Ellis — báðir frá
Bretlandi. a. „Rómeó og
Júlía“, forleikur eftir Pjotr
Tjaíkovský b. Hörpukonsert
V
FÖSTUDAGUR
18. apríl 1980.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og
dagskrá.
20.40 Prúðuleikararnir
Gestur i þessum þætti er
gamanleikarinn og tónlist-
armaðurinn Dudley Moore.
Þýðandi Þrándur Thor-
oddsen.
Umsjónarmaður Guðjón
Einarsson fréttamaður.
22.05 Jeríkó
Bresk sjónvarpsmynd.
Aðalhlutverk Patrick
MacNee, Connie Stevens og
Herbcrg Lom.
Jeríkó hefur viðurværi sitt
af því að pretta fólk sem
hefur auðgast á vafasaman
hátt.
Þýðandi Kristmann Eiðs-
21.05 Kastljós son.
Þáttur um innlend máleíni. 23.30 Dagskrárlok.
/
í B-dúr ópus fjögur eftir
Hándel númer sex.
21.15 Leikrit: „Maðurinn, sem
ekki vildi fara til himna“
eftir Francis Sladen-Smith.
(Áður útv. 1962). Þýðandi:
Árni Guðnason. Leikstjóri:
Lárus Pálsson. Persónur og
leikendur: Richard Alton/
Róbert Arnfinnsson, Eliza
Muggins/ Emilía Jónasdótt-
ir, Bobbie Nightingale/ Ævar
R. Kvaran, Thariel, hliðvörð-
ur himnarikis/ Indriði
Waage, Harriet Rebecca
Strenham/ Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, Timothy Toto
Newbiggin/ Þorsteinn ö.
Stephensen, Aðrir leikendur:
Valur Gíslason, Helga Val-
týsdóttir, Gísli Alfreðsson,
Arndis Björnsdóttir og
Margrét Guðmundsdóttir.
22.00 Fjögur lög fyrir einsöng,
kvennakór, horn _og píanó
eftir Herbert II. Ágústsson.
Guðrún Tómasdóttir og
Kvennakór Suðurnesja
syngja, Viðar Alfreðsson
leikur á horn og Guðrún
Kristinsdóttir á píanó; höf.
stj.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.35 Reykjavíkurpistill. Egg-
ert Jónsson borgarhagfræð-
ingur flytur erindi: Rekstur
borgarinnar.
22.55 Peter Heise og Friedrich
Kuhlau, a. Bodil Göbel syng-
ur lög eftir Heise; Friedrich
Gtirtler leikur undir. b. Palle
Ileichelmann og Tamás Vetö
leika Fiðlusónötu í f-moll od.
33 eftir Kuhlau.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.