Morgunblaðið - 17.04.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980
21
Ekkert fyrir-
liggjandi um lóð
handa Byggung
— ENNÞÁ liggur ekkert fyrir
um lóðaúthlutun til Byggung og
því er á þessu stigi ekkert hægt
að segja til um hvort félagið
getur fengið lóð á næstunni eða
ekki, sagði Egill Skúli Ingi-
bergsson borgarstjóri í samtali
við Mbl. í gær er hann var inntur
eítir því hvort hugsanlegt væri
að Byggung ætti kost á lóð. en
samþykkt var á aðalfundi félags-
ins nýlega að leggja það niður
verði borgaryfirvöld ekki við
margítrekuðum umsóknum fé-
lagsins um byggingarlóð.
Borgarstjóri sagði að unnið
hefði verið að lóðaúthlutunum^ í
Reykjavík að undanförnu og svo
myndi verða áfram, en ekki væri
hægt aðsegja til um úthlutun til
Byggungs né heldur hvenær mætti
búast við að svar við umsóknum
félagsins gæti legið fyrir.
Meðan réttarhöldin i máli Hvals hf. gegn
mótmælastaða friðunarmanna utandyra.
Greenpeace fóru fram
Hallveigarstöðum í gær var
Ljúsmynd Mhl. Ól.K.M.
„Krefjumst þess fyrst og fremst að
beitt verði mannúðlegri aðferðum“
sagði Bill Jordan, deildarstjóri hjá Konung-
lega breska dýraverndunarfélaginu, á blaða-
mannafundi Greenpeacesamtakanna í gær
VITNALEIÐSLUR fóru fram í Bæjarþingi Reykjavíkur í máli því er
Hvalur hf. höfðaði gegn Greenpeacesamtökunum, þar sem farið er
fram á að lögbann á aðgerðir Greenpeace, sem sett var á sl. ári standi
áfram í fullu gildi. Á móti krefjast Greenpeacemenn þess að lögbannið
falli ógilt niður.
Eftir að tveir fulltrúar á vegum
Greenpeace, þeir Bill Jordan
deildarstjóri hjá Konunglega
breska dýraverndunarfélaginu og
Harry Lillie læknir, höfðu verið
yfirheyrðir og lögmenn höfðu gert
grein fyrir málum aðila var sam-
þykkt að beiðni málsaðila að
fresta réttarhaldinu um fjórar
vikur.
Á blaðamannafundi sem Green-
peacemenn ásamt lögfræðingi
sínum Herði Ólafssyni boðuðu til í
gær kom fram að talið hefði verið
nauðsynlegt að fresta dómhaldi
meðan ýmis plögg væru þýdd á
milli íslenzku og ensku, svo og var
farið fram á að dómarinn í
málinu, Garðar Gíslason borgar-
dómari, færi í ferð með hvalbát á
komandi vertið, eða sendi fulltrúa
sinn til að kynnast af eigin raun
hvernig veiðunum væri háttað.
Bill Jordan sagði að Green-
peacemenn og reyndar allir frið-
unarmenn væru ekki í raun að
fara fram á að öllum veiðum á
dýrum eins og hvölum væri hætt,
heldur krefðust þeir þess að beitt
væri mannúðlegri aðferðum. í því
sambandi hefur hann gert það að
tillögu sinni að annað hvort verði
beitt rafmagnsskutlum, sem gera
það að verkum að hvalurinn miss-
ir þegar meðvitund, eða þá að
eiturpílum verði komið fyrir í
skutlunum þannig að dýrin látist
nær samstundis.
Þá kom það fram hjá þeim
Greenpeacemönnum að þeir gerðu
sér í raun enga grillu vegna
væntanlegrar niðurstöðu dómsins,
þeir höfðuðu heldur til dóm-
greindar almennings og vonuðu að
almenningur tæki málstað þeirra
vel. — „Það skiptir í raun ekki
máli hver niðurstaða dómsins
verður, við munum beita eftir sem
áður uppteknum hætti og mót-
mæla,“ sagði Alan Thornton á
fundinum.
Þá kom það fram hjá Herði
Ólafssyni að hann liti þannig á, að
ef dómurinn felldi úr gildi lög-
bannsúrskurðinn, þá neyddist
Hvalur hf. til þess að breyta
sínum veiðiaðferðum þegar í stað.
Lögfræðingur Hvals hf. í málinu
er Benedikt Blöndal hæstaréttar-
lögmaður.
Frá blaðamannafundi Greenpeacesamtakanna í gær, f.v. Bill Jordan,
dr. Harry Lillie og Alan Thornton. Ljúsmynd Mbi. KmiiiH.
Verkfall á
pappírnum
VERKALÝÐSFÉLAGIÐ
Vörn á Bíldudal hefur boð-
að sjómannaverkfall frá og
með 22. apríl, hafi samn-
ingar ekki tekizt fyrir
þann tíma.
Samkvæmt upplýsingum,
sem Morgunblaðið hefur
aflað sér, er þetta verkfall
nokkuð sérstætt, þar sem
enginn sjómaður mun í
raun hætta störfum. Togar-
inn, sem leggur upp afla í
Bíldudal, er ekki gerður út
frá staðnum, heldur frá
Tálknafirði, en þar hefur
ekki verið boðað verkfall.
Eini báturinn, sem nú legg-
ur upp afla á Bíldudal, er
sömuleiðis gerður út frá
Tálknafirði. Bátur, sem
Bílddælingar eiga, mun
vera í slipp í Reykjavík.
A-Húnavatnssýsla:
Hlutafélag um ferða-
mannamiðstöð að Reykjum
(icitaskarói. lfi. apríl.
UNNIÐ er að stofnun hlutafélags sem hefur það markmið að reisa og
reka ferðamannamiðstöð að Reykjum á Reykjabraut í tengslum við
sumarhótelið á Húnavöllum. Reykir eru sameign ríkisins og þeirra sjö
sveitarfélaga, sem að Húnavallaskóla standa.
Atvinnumálanefnd SAH, en í
henni eru Ólafur B. Jónsson, Gísli
Pálsson, Jóhannes Torfason og Árni
Jóhannsson, tók málið upp á fundi
síðastliðið haust og fór þess á leit
við oddvita viðkomandi hreppa, að
þeir leigðu væntanlegu hlutafélagi
Millilandaflug Flugleiða:
Svipað Evrópuflug og í
en færri ferðir í
Norður-Atlantshafsflugi
fyrra
SUMARÁ/ETLUN millilanda-
flugs Flugleiða gekk i gildi 1.
april 8.1. Frá byrjun sumaráætl-
unar fjölgar millilandaferðum í
áföngum. Milli íslands og Evróp-
ulanda er áætlunin svipuð og i
fyrrasumar og sætaframboð
ámóta mikið. í Norður-
Atlandshafsflugi verða hins veg-
ar nokkru færri ferðir, eða 10 til
11 á viku milli íslands og Band-
arikjanna.
Sú breyting verður á flugvéla-
kosti að ný Boeing 727-200 þota
verður tekin í notkun í byrjun júní
og mun ásamt annarri Boeing
727-100 þotu sem Flugleiðir eiga
fyrir verða í förum milli Islands
og annarra Evrópulanda. Þá munu
DC-8-63 þotur Flugleiða fljúga á
leiðunum Ísland/Luxembourg og
Ísland/Bandaríkin en einnig tvær
ferðir í viku milli íslands og
Kaupmannahafnar. DC-10 þota
Flugleiða hverfur nú úr flotanum
þar sem hún hefur verið leigð til
Bandaríkjanna í tvö ár.
Þegar sumaráætlun Flugleiða
hefur að fullu gengin í gildi verður
ferðum hagað sem hér segir: Til
Luxembourgar verða 12 ferðir í
viku. Til Kaumannahafnar verða
tíu ferðir í viku, til Oslo fimm
ferðir, til Stokkhólms fjórar ferð-
ir, til London sex ferðir, til
Glasgow þrjár ferðir, til Dusseld-
orf tvær ferðir, til Frankfurt am
Main tvær ferðir og til Parísar ein
ferð á viku. Til New York verða
sjö ferðir í viku. Til Chicago verða
fjórar ferðir í viku. Ti Narsarsuaq
verður flogin ein ferð í viku. Til
Færeyja munu verða tvær ferðir í
viku. Þá munu vera fjórar ferðir í
viku á leiðum Air Bahama milli
Luxembourgar, Nassau og Free-
port.
Áætlaðar eru í sumar 50 ferðir
frá Reykjavík til Kulusuk og
verður flogið með skemmtiferða-
fólk eins og undanfarin sumur,
segir í frétt frá Flugleiðum.
land í þessu skyni. Peirri málaleitan
var vel tekið og bókuð yfirlýsing þar
um. Allt er þetta á umræðustigi enn
sem komið er og verða engar
framkvæmdir hafnar fyrr en hluta-
félagið hefur verið formlega stofnað
og samningar um land og aðstöðu
undirritaðir.
Kosin hefur verið undirbúnings-
nefnd, sem á að annast stofnun
hlutafélagsins. í henni eru Gísli
Pálsson Hofi, Grímur Gíslason
Blönduósi, Guðmundur Theodórsson
Blönduósi, Grétar Guðmundsson
Blönduósi og Haukur Pálsson Röðli.
Meðal annars hefur verið rætt um
byggingu lítilla sumarhúsa, gerð
tjald- og hjólhýsastæða, gerð
snyrtiaðstöðu í tengslum við svæðin,
aðstöðu til hestaleigu, aðstöðu til
tamningastöðvar, reiðhestaþjálfun-
ar og geymslu, aðstöðu vegna sölu
hrossa til útflutnings, gerð skeið-
vallar (hringvallar) sem jafnframt
gæti verið íþróttaleikvangur, gerð
tómstundavalla og umboðssölu
veiðileyfa. Einnig hafa komið fram
hugmyndir um að skipuleggja svæði
fyrir einstaklinga.
Leitað hefur verið til formanns
Ferðamálaráðs um lánsfé til fram-
kvæmdanna, forstjóra Ferðaskrif-
stofu ríkisins um kynningu og aðra
fyrirgreiðslu, skipulagsstjóra ríkis-
ins um skipulag landsins og fleiri
aðila.
Að félagsstofnuninni standa ein-
staklingar úr sveitum Húnavatns-
sýslu og frá Blönduósi og Skaga-
strönd, nokkrir brottfluttir Hún-
vetningar og ýmis félagasamtök á
svæðinu. Undirbúningsstofnfundur
verður haldinn laugardaginn 19.
apríl klukkan 16 í félagsheimilinu á
Blönduósi. Ágúst
Herjólfur af
stað um helgina
SKOÐUN og viðhaldi á Eyjaferjunni
Herjólfi lýkur um helgina og mun
skipið hefja siglingar á milli lands
og Eyja á ný um eða eftir helgina.
Skipið hefur verið málað í hólf og
gólf á meðan það hefur verið í slipp í
Reykjavík.
Skagafjörður:
ís að taka af vötnum og ám
Bff. Höfðaströnd. lfi. apríl.
í NÓTT gerði 10 til 15 sm snjó í
Skagafirði, en sýnilega tekur það
upp áð mestu í dag. Áður var
jörð rauð og byrjuð klakahlaup í
túnum, og þar sem skjól er var
að byrja að koma grænn litur í
tún. ís er að taka af vötnum og
ám, en 1979 var það 10. júní.
Netabátar fiska sæmilega og
loðna og smásíld er talin mikil í
firðinum. Grásleppuveiði hefur
verið frekar treg.
Björn