Morgunblaðið - 17.04.1980, Side 24

Morgunblaðið - 17.04.1980, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980 25 flfofgtiltlrlaMfe Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjóm og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.800.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 240 kr. eintakiö. mm. Þróun skattheimtu frá 1978 Þjóðhagsstofnun áætlar brúttótekjur framteljenda, sem koma til álagningar 1980, 820 milljarða króna, miðað við 47% tekjuhækkun milli áranna 1978 og 1979. Skatthlutfall beinna skatta var 11.6% af brúttótekjum 1978, samkvæmt tekjuáætlun ríkisstjórnar Geirs Hallgrímssonar það ár. Ef það skatthlutfall væri virt 1980 þýddi það 95 milljarða króna á álagningu tekjuskatts, eignaskatts, sjúkratryggingargjalds, útsvars og fasteignaskatta. Skatthlutfall núverandi ríkis- stjórnar, sem er 14.7% af brúttótekjum, þýðir hinsvegar um 120 milljarða króna álögur, eða 25 milljarða umfram það sem verið hefði samkvæmt álagningarreglum frá 1978. Ekki er myndin glæsilegri þegar litið er til óbeinna skatta. Halda á öllum skattaukum vinstri stjórnar og hækka söluskatt um l'/2% að auki. Þetta þýðir hvorki meira né minna en 45.5 milljarða króna í verðþyngjandi skatta, aðallega í formi söluskatts, vörugjalds og ábótar á benzínverð, umfram það sem verið hefði ef skattareglur ársins 1978 væru enn í gildi. Sé dregið frá þessum mismun tollalækkun, samkvæmt milli- ríkjasamningi, og niðurfelling söluskatts á nokkrar vöruteg- undir, samtals 14.5 milljarðar króna, stendur enn eftir rúmlega 31 milljarður króna í umframskatta í vöruverði miðað við árið 1978. Tillögur sjálfstæðismanna í efri deild Alþingis um skatt- stiga 1980 þýða í raun að horfið skuli að skatthlutföllum ársins 1978, svo sem flokkurinn hét í kosningastefnuskrá sinni. Þar er lagt til að tekjuskattur verði 25% af fyrstu 4 m. kr., 35% af næstu 4 m. kr. og 45% af tekjum umfram 8 m. kr. Þetta þýðir 7.2 milljörðum króna lægri tekjuskatt á einstaklinga en stjórnarliðar stefna að. Skattalækkun einstaklinga, samkvæmt tillögum sjálfstæðismanna, yrði 12%, skattalækkun hjóna 17% en meðaltalslækkun 16.4%. „Niðurtalning" bensínverðs Skattaálögur ofan á bensínverð hafa þrefaldast að krónu- tölu síðan 1978. Hvergi i veröldinni eru nú hærri skattar á stofnkostnað né rekstur bifreiða en hér. Vegagjald, tollar og söluskattur í bensínverði gáfu ríkissjóði 9 milljarða króna 1978 — en 29 milljarða 1980. Hækkunin nemur 20 milljörðum króna eða 221%. Dálagleg „niðurtalning“ vöruverðs að tarna. Af 430 króna bensínverði ganga rúmlega 247 krónur eða 57.6% til ríkisins. — Engu er líkara en ríkisstjórnin stefni markvisst að því að gera heimilisbílinn að forréttindum hinna betur megandi. Já, það virðist mega „vernda kaupmátt launanna“ með margvíslegum hætti þegar Alþýðubandalagið stýrir ríkisfjármálunum. Þrátt fyrir margföldun ríkisskatta í bensínverði eru bein framlög úr ríkissjóði til vegaframkvæmda 1980 skorin niður um 2 milljarða króna frá 1978, miðað við raungildi. Varanleg vegagerð er svo til engin ráðgerð í ár. Slík vegagerð skilar sér þó á undraskjótum tíma aftur í minna vegaviðhaldi. Þar að auki er meðaltalsslit bifreiða talið 63% meira á malarvegi en bundnu slitlagi. Bundi'ð slitlag sparar og 21% af eldsneytis- kostnaði bifreiða. Osamræmið í skattheimtu og framkvæmd- um, tengdum umferð, er þeim mun óskiljanlegra þegar þess er gætt, að núverandi fjármálaráðherra er fyrrverandi sam- gönguráðherra. Útsvörin í Reykjavík Vinstri menn í borgarráði hafa lagt til við borgarstjórn að nýtt verði að mestu hækkun á útsvör Reykvíkinga 1980. Þetta þýðir a.m.k. 1700 m. kr. hærri heildarútsvör en vera myndi, ef sama álagsprósenta væri notuð í Reykjavík og í þeim nágrannasveitarfélögum sem lúta meirihlutastjórn sjálfstæð- ismanna. Fróðlegt er að athuga þann mismun, sem er á álögum útsvara og fasteignaskatta í sveitarfélögum, eftir því, hverjir fara þar með meirihlutavald. Hjá sveitarfélögum speglast sams konar ágreiningur og á Alþingi um skattahlutfall þess opinbera af heildartekjum þjóðarinnar; en ríkjandi skatta- stefna hverju sinni er mjög afgerandi um kjarastöðu heimilanna í landinu, ráðstöfunartekjur þeirra og sjálfræði um lífsstíl. II Ljósm.: Einar Gunnar Einarsson. sem geta ekki bjargað sér á markaðnum? Og hvað segir hann um hið blandaða hagkerfi, sem félagshyggjumenn nútímans styðja í nafni félagslegs réttlætis? Kverkatak verka- lýðsforingja Fyrstu spurningunni — um or- sakir öfugþróunarinnar — svaraði Hayek svo, að í því landi, sem hann þekkti bezt til í, Bretlandi — en Hayek varð brezkur ríkisborg- ari 1938 og er enn — væri ægivald eða kverkatak verkalýðsforingja á atvinnulífinu versta meinsemdin. Verkalýðsfélögin hafi samkvæmt lögum sérréttindi, sem enginn annar hafi. Þau gætu hótað of- beldi eða beitt ofbeldi til að hindra menn, sem kjósi að vinna.i því. Þau gætu líka skipulagt samn- ingsrof og útilokað menn frá vinnu, lokað heilum atvinnugrein- — Rætt við Friedrich A. Hayek Svarið við þriðju spurningunni — um hið blandaða hagkerfi — varð Hayek tilefni til að rökstyðja betur svarið við annarri spurning- unni — um lítilmagnann á mark- aðnum. Hann sagði, að fylgismenn „volga“ sósíalismans, stuðnings- menn hins blandaða hagkerfis, segðu, að einkaframtakið gæti framleitt lífsgæðin samkvæmt markaðslögmálunum. En ekki væri hægt að láta það um að dreifa þeim. Það yrðu ríkisstjórn- ir að sjá um. Þeir væru þannig ekki ríkisrekstrarsinnar, heldur ríkisafskiptasinnar. Þessi skoðun þeirra væri þó röng. Ekki væri hægt að gera þennan greinarmun á framleiðslu og dreifingu lífsgæð- anna. í hinu óraflókna hagkerfi nútímans þjónaði verðlagið því hlutverki að leiðbeina fólki, sam- hæfa starfsemi þeirra, flytja boð um hagkerfið, þannig að menn gætu brugðizt skjótt og vel við breytingum. Sú væri skýringin á þeim afköstum, sem náð hefði verið, og á aðlögunarhæfni markaðskerfisins. Þetta gilti eins um tekjur manna og annað verð. Tveir menn sem væru jafndug- legir og -hæfir, en ynnu mis- Stefna einstaklingsf relsis er eina stefnan fram á við Brezki heimspekingurinn Shirley Robin Letwin lýsir kennara sínum, Friedrich A. Hayek, í bókinni ESSAYS ON HAYEK. Hún segir, að hann sé manna ljúfastur í viðmóti, fræðilegur án þess að vera óskýr, hlutlaus án þess að vera kuldalegur — maður, sem hefur umfram allt lifandi áhuga á hugmyndum. Þeir, sem ræða við Hayek og kynnast honum, komast að því, að þessi lýsing er sönn. Hann er hrumur við fyrstu sýn, enda að verða 81 árs, en lifnar allur við, þegar minnzt er á hugmyndir hans og annarra, þannig að aldurinn gleymist áhorfandanum. Það er lögmál í heimi hug- myndanna, að andinn lifir, þótt líkaminn hrörni og deyi að lokum. Áhugamál hans eru óteljandi, hann hefur skrifað bækur um hreina hagfræði og fengið fyrir nóbelsverðlaun í þeirri grein, um einstaka menn, stjórnmál, aðferðir mannvísindanna (social sciences), lögfræði og jafnvel sálfræði. En kunnasta bók hans er LEIÐIN TIL ÁNAUÐAR ( The Road to Serfdom), sem kom út 1944 og höfundurinn varð í einu vetfangi heimsfrægur af. Almenna bókafélagið og Félag frjálshyggjumanna gáfu bókina út saman 2. apríl sl. í tilefni komu Hayeks til landsins, og viðræður blaðamanns Morgunblaðsins við Hayek hófust á spurningu um tildrög hennar. Hayek sagði, að sér hefði komið mjög á óvart, hversu vel bókin seldist á sínum tíma í Bretlandi og Bandaríkjunum, en hún hefði síðan komið út á fjölda mála, og hann hefði frétt, að henni væri dreift í ólöglegri útgáfu í Póllandi. Hann hefði skrifað hana fyrir menntamenn í Bretlandi, sem hefðu að sínum dómi misskilið hreyfingu Hitlers í Þýzkalandi og Mússólínis á Ítalíu. Þeir hefðu ekki skilið, að þýzku og ítölsku þjóðirnar hefðu villzt af leið frjálshyggjunnar og að þjóðern- isstefnan (nasjónalsósíalisminn) væri grein af sama meiði og sameignarstefnan (kommúnism- inn). Bókin hefði orðið tilefni til alvarlegra rökræðna í Bretlandi um vanda skipulagningar í lýð- ræðisríki og margir sósíalistar eða samhyggjumenn hefðu skilið, að ríkisvaldið gæti verið frelsinu hættulegt. Hann hefði verið ánægður með móttökurnar í Bretlandi, en þær hefðu verið með öðrum hætti í Bandaríkjunum. Þar hefðu menn skipzt í tvo hópa, róttæklinga, sem hefðu hellt yfir hann svívirðingum, og íhalds- menn, sem hefðu ausið yfir hann lofi, þótt hann hefði þá marga grunaða um að hafa ekki lesið bókina! Umræðurnar hefðu ekki komið eins að kjarna málsins í Bandaríkjunum og í Bretlandi. En þakka mætti tímaritinu Reader's Digest fyrir það, hversu vel bókin náði til bandarísks almennings, því að ágætur útdráttur úr bók-1 inni hefði birzt í einu hefti þess (en þessi útdráttur var íslenzk- aður 1945 af Ólafi Björnssyni, sem var þá dósent við Háskóla Islands, birtur sem framhaldsgrein í Morgunblaðinu og gefinn út 1946 í bæklingi). Róttækir menntamenn hefðu ráðizt á sig, því að hann hefði ieitt rök gegn þeim hug- myndum, sem þeim voru kærast- ar, og varað við þeim vonum, sem þeir hefðu gert sér um skjótar framfarir með notkun ríkisvalds- ins. En þá vaknar spurningin, hvort bók, sem gefin var út 1944 til þess að andmæla þeim skoðunum, sem þá voru almennastar, sé nú tíma- bær. Hayek skýrði frá því bros- andi, áður en hann svaraði þessari spurningu, að tala yrði í hægra eyra sitt, því að hann væri heyrn- arlaus á hinu vinstra, og hefði það ósjaldan orðið vinum sínum tilefni til gamanmála! Hayek sagðist búast við, að hann hefði haft einhver áhrif á þróunina með bók sinni. Nú ætti „heitur" sósíalismi, sem fælist í allsherjarskipulagningu atvinnu- lífsins og þjóðnýtingu, sér formæl- endur fáa. En margir fylgdu enn „volgum“ sósíalisma. Þeir teldu, að ríkið (eða öllu heldur ríkis- stjórnin, því að hugtakið ríki væri auðvitað ekki sjálfstæður gerandi) ætti að skipta sér af tekjuskipt- ingunni, þó að framleiðslutækin ættu eftir sem áður að vera í séreign. En þessi afskipti trufluðu starfsemina á markaðnum, ein- staklingarnir skiluðu því ekki þeim árangri, sem vænzt væri af þeim. Krafizt væri frekari af- skipta ríkisstjórnar til að leiðrétta ranglæti eða fullnægja vonum manna. Því erfiðara yrði að snúa við af þessari leið sem lengra væri farið. Og þannig stefndu „volgu" sósíalistarnir eða samhyggju- mennirnir óafvitandi að hinu sama og „heitu“ sósíalistarnir höfðu gert af ráðnum hug — að alræðisríkinu. Hayek sagðist vondaufur um stjórnmálaþróun- ina næsta áratuginn, en þó væri gleðilegt, að æskan skildi betur gildi einstaklings- og atvinnu- frelsis en þeir, sem miðaldra væru eða eldri. Hayek gaf með þessari grein- ingu sinni á stjórnmálavanda nútímamanna tilefni til fjölda spurninga. Hvað veldur þessari þróun? Með öðrum orðum: hvaða mein þarf að fjarlægja til að geta snúið henni við? Og hvernig ætlar Hayek að leysa úr málum þeirra, um til að koma í veg fyrir samkeppni. Þetta leyfðist engum öðrum í venjulegu vestrænu lýð- ræðisríki. Launþegar hefðu, sagði Hayek, mestan hag af þeim vexti atvinnulífsins, sem virkt inark- aðskerfi sé skilyrði fyrir, en verkalýðsfélögin torvelduðu þenn- an vöxt og ynnu þannig í raun gegn hag launþega. Arðrán á vinnumarkaðnum væri umfram allt arðrán eins hóps launþega, sem betur sé skipulagður, á öðr- um, sem verr sé skipulagður. Hayek bætti því við, að hann væri ekki viss um, hvort Margréti Thatcher tækist að ráða við verka- lýðsforingjana. Hann benti þó á eitt ráð — að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um það, hvort verkalýðsfélögin ættu að njóta þeirra forréttinda að lög um, sem þau hafa notið síðustu þrjá aldarfjórðunga. Sannleikurinn væri sá, að fátt væri óvinsælla með öllum almenn- ingi en misnotkun verkalýðsfor- ingjanna á valdi sínu. Hvað er „félagslegt réttlæti“? Annarri spurningunni — um lítilmagnann á markaðnum — svaraði Hayek svo, að hann væri síður en svo á móti því, að þeim yrði hjálpað, sem hjálpar væru þurfi og gætu ekki bjargað sér á markaðnum. En sú hjálp yrði að vera ulan markaðarins, ef svo mætti segja, hún yrði að vera í því fólgin, að sett yrði tekjulágmark, lágmark mannsæmandi afkomu, og þeir, sem ekki gætu aflað sér slíkra lágmarkstekna, fengju hjálp. Þessu mætti líkja við að strengja „öryggisnet" um þjóð- lífið. Þeir, sem gætu ekki keppt, lentu í öryggisnetinu, en féllu ekki niður. En Hayek kvaðst andvígur því, að ríkisstjórnir hefðu önnur afskipti af tekjuskiptingunni en að strengja „öryggisnetið". Hann væri á móti því, að valdsmenn reyndu að sníða tekjuskiptinguna að einhverjum hugmyndum sínum ( um „félagslegt réttlæti". Hugtakið félagslegt réttlæti væri ónothæft, enda hefði engum tekizt að skil- greina það, svo að viðunandi væri. Tekjuskiptingin yrði að vera sam- kvæmt markaðslögmálunum. munandi vinnu, fengju mishátt kaup, vegna þess að meiri eftir- spurn væri eftir manni í aðra vinnuna en í hina. Tekjumunurinn fæli í sér upplýsingar um þetta, og þær upplýsingar væru nauðsyn- legar. Verðlagið væri viðmiðun eða leiðarvísir einstaklinganna og kæmi engu réttlæti við fremur en áttaviti, sem notaður væri til siglinga á hafi. Þetta upplýs- ingastreymi mættu ríkisstjórnir ekki stöðva, og því væru öll verðlagshöft óæskileg, ekki sízt afskipti ríkisstjórna af tekjuskipt- ingunni. Hayek sagðist kalla kenningar þeirra, sem skildu þetta ekki og berðust því fyrir „blönd- uðu“ hagkerfi og „félagslegu rétt- læti" og öðru þvíumlíku, „miðju- moðið" eða „the muddle of the middle". Leiðin til velmegunar Hayek var sagt, að margir hneyksluðust á þeim ummælum hans, að hinir ríku hefðu gefið hinum snauðu tækifæri. Hann brosti og sagði, að hann þekkti þessa hneykslun af langri reynslu. En sannleikurinn væri sá, að öreigastéttin, sem svo væri kölluð, hefði aldrei orðið til — sá fjöldi, sem lifði á jörðinni, hefði aldrei komizt af — ef hinar miklu framfarir hefðu ekki orðið, sem stundum væru nefndar einu nafni „iðnbyltingin", þegar skipulag sér- eignar og samkeppni eða „kapítal- ismi“ hefði sprottið upp. í þeim skilningi væri það rétt, sem Marx hefði sagt, að borgarastéttin hefði skapað öreigastéttina. Vestur- landabúar hefðu óvart ratað á réttu leiðina til velmegunar, þegar þeir hefðu leyst fjötra af atvinnu- lífinu á seytjándu og átjándu öld í baráttu sinni gegn konungsvald- Marx hefði snúið öllu við, þegar hann hefði sagt, að tækniþróunin hefði skapað skipulag viðskipta og samkeppni og skipulagið skapað frjálshyggjuna eða hugmyndina um atvinnufrelsið. Reyndin væri sú, að baráttan við konungsvaldið hefði getið af sér hugmyndina um einstaklingsfrelsið og atvinnu- frelsið, með takmörkun ríkisvalds- ins hefðu orðið vaxtarskilyrði fyrir atvinnulífinu og vöxtur at- vinnulífsins krafizt tækniþróunar. Menn hefðu haft sama hugvitið fyrir tvö þúsund árum og á nítjándu öld og þeir hefðu ekki síður erfiðað þá en nú, en munur- inn væri sá, að i hinu opna kerfi tilrauna, sem markaðskerfið væri, nýttist hugvitið og erfiðið bæri ávöxt, sem ekki yrði í lokuðu kerfi tilskipana. Adam Smith og hugsuðir og stjórnmálaskörungar nítjándu aldar hefðu verið frjálshyggju- menn, því að þeir hefðu orðið vitni að því, að stefna einstaklingsfrels- isins væri eina stefnan fram á við. Enginn hefði grætt eins mikið á þessari þróun, á þessum vexti atvinnulífsins og launþegar.Én á tuttugustu öld hefðu vesturlanda- menn villzt af leið og ætlað sér um of, kastað trúnni á einstaklings- frelsið og tekið trú á ríkisvaldið sem bót allra meina. Hayek kvaðst sjálfur vera nítjándu aldar frjáls- hyggjumaður í þeim skilningi, að hann aðhylltist sömu skoðanir í eðlilegri verkaskiptingu ríkis- stjórnar og einstaklinga og frjlslyndir menn nítj.ándu aldar: Einstaklingarnir ættu að hafa frelsi til að keppa að markmiðum sínum innan almennra leikreglna réttarríkisins. Askorun á sósíalista Hayek var að lokum spurður, hvað hann hygðist fyrir í næstu framtíð. Það þykir sennilega með ólíkindum að spyrja mann, sem er að verða 81 árs um slíkt — en ekki Hayek, sem flutti tvo langa fyrir- lestra hér á landi (blaðlaust) og sat hverja veizluna af annarri án þess að láta sér bregða, snæddi sjávarrétti í Nausti og Hótél Holti af beztu lyst og drakk ljúfar veigar á við hvern íslending, ók til Þingvalla og flaug til ísafjarðar og notaði morgnana til ritstarfa! Hayek svaraði því til, að hann hefði líklega gert eina uppgötvun um ævina og flutt tvö nýmæli. Uppgötvunin væri, að verðlagið samhæfði starfsemi á markaðnum og flytti þekkingu á milli manna, en með því að í hagkerfi sósíalista gæti verðlagið ekki orðið til við samkeppni á markaði, yrðu allar ákvarðanir valdsmanna um fram- leiðsluna því út í loftið. Þessa hugmynd, sem hinn ágæti kennari sinn, Ludwig von Mises, hefði fyrstur komið til skila, hefði hann reynt að skýra og þróa. Annað nýmælið væri samkeppni í útgáfu peninga til að koma í veg fyrir þá misnotkun stjórnmála- manna lýðræðisríkjanna á valdi sínu yfir peningamagninu, sem hefði valdið verðbólgu síðustu ára. Fyrir þessu gerir Hayek nánari grein í bókinni The Denationaliza- tion of Money. Hitt nýmælið væri betri aðskilnaður hins hreina lagasetn- ingarvalds og valdsins yfir rekstri ríkisins til að koma í veg fyrir, að stjórnmálamenn gætu við atkvæðakaup sín truflað markaðs- öflin. Um þetta ræðir Hayek í 3. bindi ritsins Law, Legislation and Liberty, sem kom út 1979. Hayek sagði, að hann ætlaði að reyna að þróa þessar hugmyndir betur næstu árin. Hann væri að skrifa bók, sem ætti að heita „The Immense Conceit" (Ofmetnaður- inn óskaplegi), þar sem hann leiddi rök að því að sósíalisminn væri rökvilla, mistök, eitt af víxlsporum mannkynsins, en ekki aðeins önnur stjórnmálastefna en frjálshyggja, hann væri rangur frá fræðilegu sjónarmiði. Bókin ætti að koma út samtímis á nokkrum höfuðtungum Vestur- landa á næsta ári, og hann ætlaði að skora á sósíalista að reyna að svara rökum sínum. Hann sagði, að hann hefði misst vinnuþrekið eftir 70 ára aldur, en fengið það allt aftur um 75 ára og væri nú önnum kafinn að glíma við fræði- leg viðfangsefni. Hann sagði í gamni um þetta, að hann hefði reynt ellina, en ekki geðjazt að henni og því hætt við hana! u 8 S:f s I Óskar Jóhannsson, kaupmaður: Hvar er réttlætiö? Til ritstjóra Morgun- blaðsins: Fórmáli Mánudaginn 14. apríl komu tveir kunningjar mínir til mín með þessa sakleysislegu nótu, sem þó virtist vera að breýta margra ára vináttu þeirra í fullan fjandskap. Þrátt fyrir æsinginn hafði þeim komið saman um að leita álits míns, þar eð ég stunda verslunarstörf og ætti því að hafa þekk- ingu á þessum málum. Eft- ir að hafa hlustað á mála- vexti, taldi ég álit mitt ekki duga í þessu máli, það ætti sér dýpri rætur og snerti fleiri aðila en þá tvo. Ég ákvað því að biðja Morgunblaðið að birta hina hörmulegu sögu vina minna og fá svör ábyrgra aðila við spurningunni. „Hver á að borga brúsann?" Ég vil ekki auka á hugarangur vina minna með því. að nafn- greina þá, og nota í þess stað gömlu góðu nöfnin Pétur og Páll. Málavextir eru þessir — Bíll Péturs bilaði fyrir helgi. Honum var boðið í fermingarveislu til Kefla- víkur á sunnudaginn. Pétur bað vin sinn Pál að lána sér hans bíl til að skreppa á suðureftir og bauðst að sjálfsögðu til að borga bensínið. Páll sagði vel- komið að lána honum bíl- inn, hann væri nýbúinn að fylla tankinn, því bensínið ætti víst að fara að hækka. Á sunnudagskvöld skilaði Pétur bílnum og bað Pál að fylla tankinn um leið og hann færi til vinnu á mánu- degi. Það gerði Páll, en þá um morguninn hafði bens- ínlítrinn hækkað úr 370 kr. í 430 kr. Þegar Páll kom með reikninginn til Péturs, dundu ósköpin yfir. Pétur sagði: „Bensínið sem ég eyddi í ferðalaginu kostaði 370 kr. lítrinn. Eg borga þér þess vegna 3.700 kr. fyrir þessa 10 lítra sem ég eyddi." Páll sagði hins vegar: „Hefði ég ekki lánað þér bílinn ætti ég fullan tank á mánudagsmorgni. Það kostar kr. 4.300 að láta í hann það magn sem þú eyddir, og þú átt að borga það, en ekki ég.“ Þær 600 óskar Jóhannsson kaupmaður. krónur sem þarna ber á milli skipta í raun litlu máli, heldur spurningin: Hvar er réttlætið í þessu máli? Nú bið ég Morgunblaðið að beina þeirri spurningu til eftirtalinna aðila: 1. Viðskiptaráðherra 2. Formanns verðlags- nefndar . 3. Hæstaréttardómara og birta svör þeirra hvers og eins sem allra fyrst, því það eru fleiri en vinir mínir fyrrnefndu sem eiga fullan rétt á að vita hvar réttlætið er í þessum málum sem öðrum. í von um fljót og skýr svör og að fyrrnefndir heið- ursmenn megi sem allra fyrst taka gleði sína aftur, þakka ég fyrir hjálpina. óskar Jóhannsson, kaupmaður

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.