Morgunblaðið - 17.04.1980, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1980
43
Frá undankeppni íslandsmótsins í sveitakeppni. óli Már Guðmundsson og Þórarinn Sigþórsson spila
gegn Ríkharði Steinbergssyni og Braga Erlendssyni.
Ljósm. Arnór
Barðstrendingafé-
lagið i Reykjavik
Þann 11.—13. apríl var farin
ferð til Patreksfjarðar. Þar á
staðnum sér Taflfélag Patreks-
fjarðar um starfsemina, formað-
ur þess er Birgir Ágústsson.
Á föstudagskvöldið var spil-
aður tvímenningur í tveimur 14
para riðlum, árangur efstu para
þar varð þessi:
A—riðill stig
Sigurjón Valdimarsson
— Halldór Kristinsson 212
Þórarinn Árnason
— Ragnar Björnsson 183
Sigurður Kristjánsson
— Hermann Ólafsson 170
B—riðill stig
Ingveldur Magnúsdóttir
Kristinn Jónsson 189
Einar Jónsson
—Kristján Þorsteinsson 183
Ágúst Pétursson
— Birgir Pétursson 168
Á laugardag var spiluð sveit-
arkeppni og bar Barðstrend-
ingafélagið sigur úr býtum með
talsverðum mun. Svo um kvöldið
var spiluð hraðsveitarkeppni og
þar urðu efstar:
Sveit stig
Sigurðar Kristjánssonar 253
Ragnars Þorsteinssonar 240
Sigurjóns Valdimarssonar 234
Viðtökur þeirra Patreksfirð-
inga voru einstaklega glæsi-
legar, ánægjan og skemmtunin
af þessari ferð verða vel geymd-
ar í hugum okkar um aldur og
ævi.
Vonandi hittumst við hérna
megin heiða að ári. Innilegar
þakkir fyrir Patreksfirðingar.
Lifið heil.
Bridgefélag
Vestmannaeyja
Fyrir skömmu lauk Martins-
mótinu svonefnda,en það var
tvímenningskeppni, haldin til
minningar um Martin heitinn
Tómasson, sem um áraraðir var
einn af bestu félagsmönnum
bridgefélagsins hér í
Vestmannaeyjum. ísfélag Vest-
mannaeyja sýndi félaginu þann
sóma að gefa tvo veglega bikara
til handa því pari sem efst yrði í
keppninni. Ætlunin er, að þessi
keppni verði árlegur viðburður
hjá félaginu og eru bikararnir
farandgripir, sem ekki vinnast
til eignar.
Þessi keppni var mjög
skemmtileg allt frá byrjun. Tólf
pör skráðu sig til keppni og luku
öll keppni þrátt fyrir mikla
vinnu á tímabilinu. Að vísu
Bridge
Umsjóni ARNÓR
RAGNARSSON
þurfti að grípa til varamanna
kvöld og kvöld, en uppistaðan í
liðinu var alltaf hin sama.
Þegar upp var staðið að lokn-
um fimm kvöldum, kom Ijós að
eitt par bar höfuð og herðar yfir
alla aðra í stigatölu. Það voru
þeir Haukur Guðjónsson og
Þorleifur Sigurlásson, sem raun-
ar höfðu tekið forystuna um
miðbik keppninnar og voru með
vænt forskot fyrir síðustu um-
ferð. Svo fóru leikar í síðustu
umferð, að þeir breikkuðu heldur
bilið en hitt og fengu hæstu skor
yfir kvöldin eða 194 stig og
gulltryggðu sér þar með efsta
sætið, heilum 42 stigum á undan
þeim sem næstir komu. Það er
óvenju mikill munur á fyrsta og
öðru sæti og eru þeir Haukur og
Þorleifur vel að þessum sigri
komnir.
í öðru sæti urðu þeir bræður
Guðlaugur og Jóhannes Gísla-
synir, ásamt Guðlaugi Stefáns-
syni, en þeir þrír hafa skipt
spilamennskunni bróðurlega á
milli sín.
í þriðja sæti urðu þeir frænd-
ur Friðþjófur Másson og Rich-
ard Þorgeirsson, en þeir höfðu
haldið sig við miðjuna alla
keppnina þar til siðasta kvöldið
að þeir náðu góðri skor og
hrepptu þriðju verðlaun fyrir.
En lokaúrslit urðu sem sem
sagt þessi:
stig
.1. Haukur-Þorleifur 939
2. Guðlaugur-Jóhannes 897
3. Friðþjófur-Richard 856
4. Jakobína-Jón 849
5. Magnús-Ragnar 839
6. Anton-Gunnar 833
7. Sveinn-Benedikt 818
8. Kristján Þór-Sigurgeir 794
9. Gísli-Ólafur 775
10. Ingvar-Jón Ingi 773
11. Bjarnhéðinn-Leifur 767
12. Helgi-Hjálmar 760
meðalskor er 825 stig.
Bridgefélag
Kópavogs
Síðasta fimmtudag voru spil-
aðar 5 umferðir í barometertví-
menningskeppni Bridgefélags
Kópavogs. Hafa nú verið spilað-
ar 25 umferðir og er eitt kvöld
eftir í keppninni.
Besta árangri kvöldsins náðu:
stig
Guðbrandur Sigurbergson
—Jón Páll Sigurjónsson 116
Ragnar Björnsson
—Sævin Bjarnason 111
Guðmundur Arnarsson
— Sverrir Ármannsson 63
Karl Stefánsson
— Birgir ísleifsson 59
Haukur Margeirsson
Sverrir Þórisson 44
Matthías Andrésson
— Árni Jónasson 44
Þessir eru nú efstir:
stig
Guðmundur Arnarson
— Sverrir Ármannsson 312
Ragnar Björnsson
— Sævin Bjarnason 299
Vilhjálmur Sigurðsson
— Sigurður Vilhjálmsson 190
Karl Stefánsson
— Birgir ísleifsson 173
Sigrún Pétursdóttir
— Valdimar Ásmundsson 164
Jón Andrésson
— Valdimar Þórðarson 130
Keppninni lýkur næstkomandi
fimmtudag.
Discótek og lifandi músik á fjórum hæðum..
h kiúbbutinn B)
Fimmtudagur takk... \
Opid á öllum hæðum hjá okkur í kvöld. Enda veitir ekki
af — Allir þrælhressir eftir gott páskafrí og tilbúnir i
fjörið á nýjan leik. Já, og svo eru skólarnir ekki byrjaðir.
Hljómsveitin Goðgá sér um lifandi músik á fjórðu hæð.
W
Að venju fáum við
Módelsamtökin i
heimsókn með
frábæra tisku-
sýningu.
Módelsamtökin
bregðast aldrei.
Takið eftirl
Munið parakeppni Klúbbsins, sem hefst 20. apríl. Skráningar
hjá plötusnúðum Klúbbsins og einnig á skrifstofu í síma 35335
kl. 13—17 virka daga.
Munið svo að koma í betri gallanum og hafið með
ykkur nafnskirteini — Klossar ganga ekki hjá okkur
Þrumudansleikur
Dansleikur veröur haldin að Brautar-
holti 6, 3. hæð föstudaginn 18. apríl kl.
9—3.
Diskótekiö Donna sér um fjöriö.
Mætum öll hress og kát.
Skemmtinefnd
Rokkótek - Rokkótek - Rokkótek - Rokkótek
l a> Bubbi Morthens I J4 0>
44 44 o cc og Utangarðsmenn vo 44 44 O oc
I leika nýtt og hressilegt rokk í kvöld kl. 10—11.30. Björn Valdimarsson velur þess á milli rokk úr ýmsum áttum á bilinu milli kl. 9 og 1. I
44 44 a>
-O 44 44 18 ára aldurstakmark. Persónuskilríki og snyrtilegur klæönaöur. 'O 44
O oc Hótel Borg í miðborginni 44 O oc
Rokkótek - Rokkótek - Rokkótek - Rokkótek
Félag tamningamanna
10 ára afmælishátíð félagsins verður haldin 25. apríl
í Veitingahúsinu Ártúni, og hefst kl. 20.00.
Boröhald, skemmtiatriöi og dans.
Miðapantanir þurfa aö hafa borist fyrir mánudaginn
21. apríl, í síma 83747.
Félagar fjölmennið og takið meö ykkur gesti.
Nefndin
Ungmennafélag Reykdæla:
Þið munið hann Jör-
und að Logalandi
UNGMENNAFÉLAG Rcykdæla
sýnir þessa dagana „Þið munið
hann Jörund“ cftir Jónas Árnason.
Leikstjóri er Nigel Watson, en hann
kom fyrst til landsins árið 1975 og
færði þá upp „IIamlet“ á vegum
Háskóla íslands, en hcfur síðan
leikstvrt á vegum Þjóðleikhússins
AUG1.YSINGASÍMINN ER: i'pS.
3&« !!,,D °
3n«rðunbl«)bit>
og hjá Saga-leikflokknum, einnig í
útvarpi.
Verkið er sýnt að Logalandi í
Reykholtsdal. Það var frumsýnt á
skírdag, en næsta sýning er í kvöld,
fimmtudagskvöld. Þá verður einnig
sýning n.k. laugardag, 19. apríl.
Væntanlegum áhorfendum skal bent
á, að óvíst er, hversu lengi verkið
verður sýnt, þar sem sauðburður og
vorannir eru á næsta leiti.
Leikendur eru fjölmargir, en
söngtríóið skipa þau Þórunn Reykdal,
Þórður Strefánsson og Þorvaldur
Jónsson.
Þessi mynd er tekin á sýningu
Ungmennafélagsins að Logalandi.
Á myndinni eru þau Jón Pétursson.
sem leikur Laddie. og Dagný Emils-
dóttir, en hún leikur íslenzka hnátu.
Þróun innri möguleika
Nýleg rannsókn gerö af þeim sem iöka
Innhverfa íhugun, sýnir aö þeir hafa
lægri líffræðilegan aldur, miöaö viö
venjulegt meöaltal hjá fólki. Viö iökun
Innhverfrar íhugunar byrjar einstakling-
urinn aö losa um streitu og þróa meö
sér innri möguleika sína að fullu.
600 rannsóknarskýrslur, sem fyrir
liggja, sýna að Innhverf íhugun hefur
jákvæð áhrif á einstaklinginn og samfé-
lagið. Fjölmargir læknar víöa um lönd
hafa hvatt stjórnvöld til aö taka upp
kennslu á Innhverfri íhugun.
Fimmtudaginn 17. apríl kl. 20.00 veröur
haldinn almennur kynningarfyrirlestur
um tæknina, að Hverfisgötu 18,
Reykjavík (gegnt Þjóðleikhúsinu). Allir
velkomnir.
Maharishi Maheah Yogi
ísienska íhugunarfélagið
Símar: 16662 og 35646.