Morgunblaðið - 17.04.1980, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRIL 1980
45
jd /•*
VELVAKANDI
% SVARAR í SÍMA
10100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
ay i/jsurm-ujj'Li ir
vegna allir viðstaddir, eða þeir,
sem yfirleitt geta sungið, skuli
ekki gera það. Sálmabækur gætu
verið við höndina fyrir alla eins og
við venjulegar guðsþjónustur.
Jafnvel, þegar versið „Son Guðs
ertu með sanni“ er sungið standa
að vísu allir upp, en sem tungu-
lausir væru, hversu heitt sem þeir
annars kunna að þrá að taka undir
með kórnum, en það mundi brjóta
í bága við hið venjulega. Á mig
persónulega hafa jarðarfarir allt-
af verkað fremur lamandi, það er
eins og skuggi dauðans hvíli yfir
höfðum okkar tímans barna af
meiri þunga en ella, því þá ekki að
lyfta huganum í hæðir með heilög-
um söng. Ekkert hefur sálina
betur yfir skugga dauðans en
söngur og bæn. Eg hef oft fundið
sannleiksgildi þessara ljóðlína:
„Ef að dimma og sorg að mér
sækir, fyrir sönginn ég mesta hef
þörf.“
Ég minnist atburðar, sem átti
sér stað fyrir nokkrum árum. Það
var verið að jarðsyngja 11 ára
dreng, sem dáið hafði af slysför-
um. Ég sat næstum frammi við
dyr. Þegar einn sálmur hafði verið
sunginn kom inn í kirkjuna telpa á
að giska 10—11 ára. Hún settist
hjá mér. Ég sá að hún var hrygg.
Annað slagið teygði hún úr hálsin-
um til að horfa þangað sem kista
leikfélagans eða skólabróðurins
stóð. Svo þegar sálmurinn „Á
hendur fel þú honum" var sung-
inn, hóf litla stúlkan upp röddina
og söng allan sálminn til enda með
sinni hreinu og skæru barnsrödd,
sem þó var full af trega. Hún var
ekkert að hugsa um hvað aðrir
gerðu, en hún létti á litlu hjarta,
sem grét með því að syngja. Áður
en síðasti sálmurinn var sunginn
hvarf hún út úr kirkjunni eins
hljóðlega og hún kom. Hún hafði
afrekað tvennt, sungið bernskuvin
sinn inn í himininn og eftir skilið
mér fagra minningu, sem mér
mun seint gleymast.
Sigurborg Eyjólfsdóttir.
• Hver velur leikrit
útvarpsins?
Velvakandi góður
Hver er það sem velur leikrit,
sem flutt eru á fimmtudagskvöld-
um í ríkisútvarpinu?
Þegar ég settist niður fimmtu-
dagskvöldið 10. apríl til að hlusta
á leikritið „Börn mánans", gekk
svo yfir mig, að ég átti ekki nógu
sterk orð til að lýsa óánægju
minni með hvað þeir hjá útvarp-
inu bjóða fólki upp á. Ekkert nema
bölv og klám. Hver getur haft
gaman af slíku.
Geta þeir virkilega ekki fundið
eitthvað uppbyggilegra til að
flytja hjá þessu menningartæki?
Sárreið sveitakona.
Þessir hringdu . . .
• Ekki er öll
vitleysan eins
Maður sem óskar að kalia
sig skattpíndan þjóðfélagsþegn
hringdi:
Ekki er öll vitleysan eins hjá
þessu blessaða ríkisútvarpi okkar.
Útsendingar þessa dæmalausa,
forna gufuradíós hafa verið þann-
ig í gegnum árin, að ekki hefur
verið nokkur leið að hlusta á
nokkurt tónverk. Þó hef ég aldrei
gefið upp vonina um að útsend-
ingar hæfust í steríó og reyndar er
ég sá eini í stórum kunningjahópi,
því allir þeir sem ég þekki og unna
tónlist hafa fyrir löngu fjárfest í
dýrum hljómburðar-„græjum“.
Nú berast þær fréttir að hefja
eigi útsendingar á stuttbylgju. Til
hvers? Jú, til að senda út á kvöldin
stuttar fréttir og fréttaskýringar
til útlanda. Fyrir hverja? Jú,
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlega skákmótinu í
Buenos Áires í Argentínu í fyrra
kom þessi staða upp í skák þeirra
Bent Larsens, Danmörku, sem
hafði hvítt og átti leik, og Franco,
Paraguay.
19. f4! - gxf4, 20. e5! - Df5,
21. Hxg7 — fxe3, 22. Dxe3 —
Dxh5, 23. Dg3 og svartur gafst
upp. Hvítur hótar einfaldlega 24.
Hh7+!
Larsen var í banastuði á þessu
móti og sigraði með miklum yfir-
burðum, hlaut 11 vinninga af 13
mögulegum. Hvorki meira né
minna en þrem vinningum minna
hlutu næstu menn, þeir Anders-
son, Miles, Spassky og Najdorf.
áreiðanlega til íslenzkra náms-
manna, sem lifa á okkur skatt-
borgurunum á erlendri grund.
Það skulu forráðamenn ríkis-
útvarpsins vita, að áreiðanlega er
ekki einn einasti námsmaður
heima við til að umsnúa öllum
skífum og tökkum í von um að
heyra' fréttir „að heiman". Nei,
þeir eru örugglega allir á næstu
bjórkrá til að nýta vel dvalar-
tímann erlendis til að njóta þess,
sem ekki er hægt að njóta á Fróni.
Afsökunin fyrir að ekki hefur
verið hægt að fjárfesta í steríó-
tækjum hefur löngum verið að
ríkisútvarpið sé fjársvelt. En það
er ekki furða, ef peningarnir eru
notaðir í slíka vitleysu.
Kassettur
beztu kaup landsins
CONCERTONE 1
■- ia
IClY ttóÚf
*
1 spóla 5 spólur
60 mínútur kr. 900 kr. 4000 Heildsölu
90 mínútur kr. 1100 kr. 5000 birgðir
Versliðíaérverslunmeð +S) ( ^ j
UTASJÓNVÖRPog HUÓMTÆKI AxWfXCC. 29800
VbÚÐIN Skipholti19
RAUSA
FJÖÐRIN
til hjálpar
heymarskertum
Söludagar:
18., 19. og 20. april