Morgunblaðið - 17.04.1980, Qupperneq 48
íslenzk togarasmíði
samkeppnishæf erlend-
is, en lánakjörin hamla
Stálvík og Slippstöðin buðu
í smíði fyrir Kanadamenn
TVÆR islenzkar skipasmíðastöðv-
ar huðu fyrir skömmu i smiði
tveKKja 500 tonna skuttosara fyrir
kanadískt fyrirta-ki sem hyKKst
síðan láta smíða fjóra togara i
viðbót. Reyndust íslenzku tiiboðin,
sem voru frá Stálvík og Slippstöð-
„Ein með
öllu“ hækk-
ar í 550 kr.
VERÐ á pyisum í söluturnum
hefur hækkað i kjölfar hækkun-
ar á unnum kjötvörum. Kostar
nú pylsa i brauði og með
venjulegu meðlæti 550 krónur
en kostaði áður 500 krónur. Er
hækkunin 10%.
inni á Akureyri, vera í hærri
kantinum á þeim tilboðum sem
bárust frá 20 stöðum, en hins
vegar þykja íslenzku tilboðin og
skipin fylliieKa samkeppnisfær og
tiiboðsupphæð svipuð ok í því
tilboði sem tekið var frá Kanda, en
þar réð úrslitum að iánakjör voru
mjög haRstæð.
Jón B. Hafsteinsson skipaverk-
fræðingur var ráðgjafi kanadíska
fyrirtækisins Fishery product við
þetta útboð, en fyrirtækið gerir út
40—50 togara og rekur 7 frystihús í
Nýfundnalandi. Lægsta tilboð í
smíði togaranna sem verða 53
metrar á lengd og 11 metrar á
breidd var 5,5 milljónir kanadískra
dollara eða 2 milljarðar ísl. kr., en
hæsta tilboðið var 8 millj. kanad.
dollara eða rétt tæpir 3 milljarðar
ísl. kr. Lægstu tilboðin voru frá
Spánverjum og Portúgölum, en það
„Áhugasamir fclagar“ innan BSRB farnir af staö:
hæsta var frá Þýzkalandi. Tilboðin
frá Stálvík voru upp á 7,3 milljónir
k. dollara eða 2,7 milljarða ísl. kr.
og tilboð Slippstöðvarinnar var upp
á 7,7 millj. k. dollara eða 2,8
milljarða ísl. kr. Tilboðið sem var
tekið var hins vegar 7,4 millj. k.
dollara og var það frá kanadískri
skipasmíðastöð í Marystown á Ný-
fundnalandi.
„Ástæðan fyrir því að kanadíska
tilboðinu var tekið,“ sagði Jón, „er
sú að lánakjörin þar eru mjög
hagstæð, til 10 ára, en hins vegar
eru lánakjörin hér mjög óhagstæð
þar sem ekki var hægt að gefa
vilyrði fyrir minna en 14% vöxtum
til 8 ára. Flestar Evrópuþjóðir lána
80% kaupverðs til 8V2 árs með 8%
vöxtum.
Menn frá kandíska fyrirtækinu
komu hingað og fóru út á okkar
skipum og svo mikinn áhuga fengu
þeir á þeim að þeir vildu helzt
semja beint við íslenzka aðila um
smíðina. Það er enginn vafi á því að
okkar skip eru fyllilega samkeppn-
isfær að allri gerð, en verð og
sérstaklega lánakjör rýra þá mögu-
leika sem eru á þessum markaði."
Undirskriftasöfnun
— kjaramálafunda krafizt
UNDIRSKRIFTASÖFNUN stendur nú yfir innan Bandaiags starfsmanna
ríkis og bæja á vcgum hreyfingarinnar „áhugasamir félagar“, sem mynduð var
vegna óánægju með samningamálin og framgang forystu BSRB á þeim
vettvangi. Mikiil hluti „áhugasamra féiaga“ eru félagar úr „Andófi ’79“, sem
vann gegn samþykkt samkomuiags Itirystu BSRB og fjármálaráðherra í fyrra
og hafði sigur.
í undirskriftasöfnun þessari er skor-
að á forystu BSRB að efna nú þegar til
fundahalda um samningamálin, svo að
almennum félagsmönnum gefist kost-
ur á að láta skoðanir ^ínar á þeim í
Ijós. Undirskriftasöfnunin er aðeins
afmörkuð við Stór-Reykjavíkursvæðið,
þar sem ekki hefur unnizt tími til þess
að fara með hana út á landi. Er þess
vænzt að Kristjáni Thorlacius for-
manni BSRB verði afhentir undir-
skriftalistarnir næstkomandi mánu-
dag.
Eins og áður hefur komið fram, hafa
þessi samtök innan BSRB gagnrýnt
forystuna fyrir seinagang. I frétta-
bréfi þeirra segir m.a.: „Við
„áhugasamir félagar", getum ekki ann-
að en gagnrýnt það sinnuleysi, sem
forystan hefur sýnt með því að undir-
búa ekki félagsmenn betur undir
fyrirsjáanleg kjaraátök eins og gert
var 1977. Við lítum á það sem hlutverk
okkar að efla umræður og baráttuand-
ann meðal félaga í komandi kjaraátök-
um. Við styðjum kröfugerð samtak-
anna, en lítum svo á að hún verði
aldrei annað en pappírsgagn, ef hún
verður ekki sameign félaganna."
Togararnir tveir verða reyndir í 6
mánuði áður en ákvörðun verður
tekin um það hvort fjórir verði
smíðaðir í viðbót.
Jan Mayenmálið:
Samkomu-
lagsdrögin
birt í heild
MORGUNBLAÐIÐ birtir i dag í
heild á bls. 33 drög þau að
samkomulagi milli íslands og Nor-
egs um Jan-Mayenmálið, sem fjall-
að var um á fundum aðila fyrr í
vikunni. Drög þessi voru að hluta
til kynnt skriflega á fundum
þingflokkanna sl. þriðjudag en að
hluta munnlega. Þeim var hafnað
svo sem kunnugt er.
Fjármálaráðherra vill
frestun á útvarpsumræðu
RAGNAR ARNALDS fjármálaráðherra óskaði í gærkvöldi eftir því að
útvarpsumræðu um skattamál. scm samþykkt var í gær að yrði í kvöld. yrði
frestað fram yfir helgi. Ragnar sagði í samtali við Mbl., að hann hefði óskað
eftir frestinum vegna nýrra útreikninga frá ríkisskattstjóra. en niðurstöður
þeirra væru ckki í samræmi við þá mynd. sem fyrri útreikningar hafa gefið
varðandi áhrifin af tekjuskattstillögum stjórnarliðsins á Alþingi. Mbl. hafði
í gærkvöldi samband við Þorvald Garðar Kristjánsson forseta efri deildar í
fjarveru Ilelga Seljan og sagði hann, að úrskurður sinn myndi liggja fyrir
árdegis í dag. Mbl. spurði Þorvald þá. hvort hann myndi dæmi þess frá
forsetaferli hans á Alþingi. að óskum um frestun á umræðum hcfði verið
hafnað. Kvað Þorvaldur nei við. en kvaðst hins vegar ekki minnast þess, að
frcstunarbeiðni hefði komið fram cftir að búið hefði verið að ákveða
útvarpsumræðu um mál.
Þriðja umræða um tekjuskattstig-
ann í efri deild átti að fara fram í
kvöld og óskaði Alþýðuflokkurinn
eftir því, að henni yrði útvarpað.
Mbl. spurði Ragnar, hvort þessar
nýju upplýsingar myndu leiða til
breytinga á tillögum stjórnarliðsins
um skattstiga, en hann sagðist ekki
vilja fullyrða neitt um það að svo
stöddu. Hins vegar bentu útreikn-
ingar ríkisskattstjóra, sem byggðust
á einstökum dæmum og væru því
nákvæmari en meðaltalsútreikningar
þeir, sem framkvæmdir hafa verið i
tölvum, til þess að „veikir punktar"
væru í tillögunum. Til dæmis hefði
neðsta skattþrepið verið hækkað úr
20 í 25%. og þótt persónuafslátturinn
hefði verið hækkaður á móti, þá gæti
niðurstaðan orðið „óeðlileg”. „Þótt
dæmið komi vel út hjá hjónum, giidir
ekki það sama um einstaklinga,”
sagði fjármálaráðherra, en kvaðst
ekki vilja fara nánar út í málin að svo
stöddu.
Eldspýturnar í
1,56 krónur stykkið
EFTIR síðustu hækkun á eidspýtum
kostar stokkur af dýrustu eldspýtun-
um 70 krónur og kostar því hver spýta
eina krónu og 56 aura.
Þrjár gerðir af eldspýtum cru á
markaðnum. Morgunblaðið gerði í
gær verðsamanburð á eldspýtunum.
Odýrastar reyndust „Öryggiseldspýt-
ur“, sem eru rússneskar. Stokkurinn
kostar 55 krónur og reyndust 55
spýtur vera i stokknum og verð
hverrar eldspýtu því ein króna. Næst-
ar komu kinvcrskar eldspýtur af
gerðinni „Tvöföld hamingja“. Þær
kosta 45 krónur stokkurinn og var 41
spýta i stokknum, verð hverrar spýtu
1,10 krónur. Dýrastar voru eldspýtur
af gerðinni „Þrjár stjörnur“ en þær
eru sænskar. Kostar stokkurinn af
þcim 70 krónur og voru í honum 45
eldspýtur. Verð hverrar eldspýtu var
1,56 krónur.
Útreikningar FÍB:
Kostar nær 300 þúsund
kr. að aka hringveginn
— þar af 65—130 þúsund í bensínkostnað
EF HRINGVEGURINN er ekinn á eyðslufrekum bíl kostar
bensínið 130 þúsund krónur eftir nýjustu hækkun og er þá miðað
við að bíilinn eyði rúmlega 20 lítrum á hundraðið. Hringvegurinn
er 1424 kílómetrar að lengd. Ef bifreiðin eyðir 10 lítrum á
hundraðið kostar bensinið 65 þúsund krónur.
Ef farið er til Akureyrar frá und krónur á bíl sem eyðir 20
Reykjavík og til baka aftur
kostar bensínið 77 þúsund krón-
ur á bíl sem eyðir 20 lítrum og
38.500 krónur á bíl, sem eyðir 10
lítrum. Vegalengdin er 900
kílómetrar.
Ef Þingvallahringurinn svo-
kallaði er ekinn frá Reykjavík og
til baka kostar bensínið 13 þús-
lítrum og 6500 krónur á bíl, sem
eyðir 10 lítrum. Þingvallahring-
urinn er um 150 km að lengd.
Ef skroppið er frá Reykjavík
til Hveragerðis og til baka aftur
kostar bensínið 8.200 krónur á
bíl sem eyðir 20 lítrum og 4.100
krónur á bíl sem eyðir 10 lítrum,
en vegalengdin er um 95 km.
Samkvæmt útreikningum Fé-
lags íslenzkra bifreiðaeigenda er
raunkostnaður á hvern ekinn km
eftir bensínhækkunina 190.70
krónur hjá bíl, sem eyðir 10
lítrum á hundraði og ekið er 10
þúsund km á ári. Er þá reiknað
með bensínkostnaði, trygg-
ingagjöldum, viðhaldi, hjólbörð-
um, afskriftum, vaxtakostnaði
o.fl. Ef miðað er við þessa tölu
kostar 286 þúsund krónur að aka
hringveginn á slíkum bíl og
rúmlega 28 þúsund krónur að
aka Þingvallahringinn.