Morgunblaðið - 20.06.1980, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1980
21
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
l
þjónusta
j^jlA A—A—A-j'-
Lögg. skjalaþýð.
Bodil Sahn, Lækjargötu 10, s.
10245.
Múrviögeröir sími 84736.
Traktorspressa
Vantar til kaups traktorspressu
meö skotholubor, fleyg og
vatnsdælu. hringiö í síma 95-
2229, eöa Bílavélasöluna Ás
Reykjavík, síma 24860.
Keflavík
Tll sölu nýstandsett 3ja herb.
íbúð meö sér inngangi í tvíbýlis-
húsi. Laus strax.
Fasteignasalan Hafnargötu 27,
Kaflavik, aimi 1420.
Einbýlishús eöa minni íbúö
óskast á leigu í 6 til 12 mánuöi
frá 1. júlí. í Garöabæ, Hafnarfiröi
eöa annarstaöar á stór Reykja-
víkursvæöi. Upplýsingar í síma
18614.
Frá Guötpeki-
félaginu
Áskrittarsimi
Ganglara sr
39573.
Indverjinn dr B. Mullik heldur
fyrirlestur um hugleiöingu kl. 21
í kvöld í húsi félagsins Ingólfs-
stræti. Öllum opið.
Sumarskóli félagsins veröur aö
Flúöum 24.—29. júní. Þátttak-
endur hringi í síma 39573.
ferö nr. 2 Þjórsárdalur — Hekla
Laugardaginn 21. júní nætur-
ganga á Esju um sólstööur.
Brottför kl. 20 frá Umferöa-
miöstööinni.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
___ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 Ofl 19533.
Helgarferðir:
20.—22. júní
1. Kl. 20 föstudag: Þórsmörk —
gist í skála.
2. Kl. 8 laugardag: Þjórsárdalur
— Hekla. Gist í húsi.
Ath. breyttan brottfarartíma (
FERDAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3
SÍMAR 11798 Ofl 19533.
Dagsferöir:
1. Laugardag 21. júní kl. 20:
Næturganga á Esju um sólstöö-
ur. Skoöiö miönætursólina á
Kerhólakambi,
2. Sunnudag 22. júní kl. 10:
Sögustaöir Njálu. Leiösögumaö-
ur Dr. Haraldur Matthíasson.
3. Sunnudag 22. júní kl. 10:
Hrafnabjörg (891m).
4. Sunnudag 22. júní kl. 13:
Gengiö um eyðibýlin á Þingvöll-
um. Létt ganga.
Sumarleyfisferöir:
1. 26.-29. júní (4 dagar):
Skagafjöröur — Drangey —
Málmey.
2. 26.-29. júní (4 dagarj: Þing-
vellir — Hlööuvellir — Geysir,
gönguferö gist í tjöldum og
húsum.
Allar nánari upplýsingar á
skrifstofunni, Öldugötu 3, s.
19533 og 11798.
radauglýsingar — radauglýsingar — raöauglýsingar
| feróir — feröaiög
Stokkseyringafélagiö
í Reykjavík
gengst fyrir Jónsmessumóti á Stokkseyri,
sunnudaginn 22.6 n.k. Lagt verður af stað frá
Hlemmtorgi kl. 12 á hádegi. Mótið hefst með
messu kl. 1.30 og að henni lokinni verður
ísólfsskáli heimsóttur og staldraö þar viö litla
stund, síðan verður Þuríðarbúð skoðuð, á
eftir verða veitingar í Samkomuhúsinu.
Áríðandi: Látiö vita um þátttöku til stjórnar-
innar strax í dag í síma 16382, 12120 eða
23555.
Stjórnin.
tilboö — útboö
Útboð
Tilboö óskast í lagningu á 1. áfanga
hitaveitukerfis á Patreksfirði. Útboðsgögn
fást hjá Tæknideild Orkubús Vestfjarða,
ísafirði, sími 94-3900, gegn 50.000 kr.
skilatryggingu. Tilboðum skal skilaö til
Orkubús Vestfjarða, Stakkanesi, ísafirði
merkt: „Tilboð 1080.“ Tilboðin verða opnuð
mánudaginn 30. júní kl. 14.00.
Orkubú Vestfjarða.
Málarar
Tilboð óskast í aö mála utanhúss að
Hagamel 51—53. Mála skal allt tréverk og
þann hluta steins, sem nú er rauðmálaður.
Nánari upplýsingar gefa Arndís í síma 21868
eða Gísli Steinar í síma 27556.
þjónusta
Vökvakranar
fyrir
hafnarbakka
Við getum útvegað eftirfarandi:
SWL 500 kg vökvakrana meö eöa á
snúningsbúnaöar.
SWL 1000 kg. vökvakrana meö snúning:
búnaöi.
SWL 1500 kg vökvakrana meö snúning:
búnaöi og húsi fyrir kranastjóra.
Kranarnir eru afhentir tilbúnir til notkun;
meö skoöunarvottoröi, samkvæmt kröfut
þeim sem til slíkra tækja eru geröar.
Tilboö meö teikningum og lýsingur
sendist til þeirra sem þess óska.
A MEK.
í TROMS0\sKIBSVERFT
VERKSTED
Siglufjörður —
Sauðárkrókur
Pálmi Jónsson landbúnaðarráöherra og
Eyjólfur Konráö Jónsson alþingismaöur.
veröa til viötals í Sjálfstæöishúsinu. Siglu-
firöi, laugardaginn 21. núní kl. 15—17 og í
Sæborg, Sauöárkróki, sunnudaginn 22.
júníkl. 15—17.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
AUGLYSINGA-
SÍMINN KR:
22480
Ingibjörg Jónas-
dóttir - Minning
Fædd 27. ágúst 1906.
Dáin 14. júní 1980.
Að morgni síðastliðins laugar-
dags andaðist í Landspítalanum
Ingibjörg Jónasdóttir frá Brautar-
holti í Reykjavík, ekkja Guðmund-
ar Péturssonar loftskeytamanns,
er lést 29. febrúar 1972. Ingibjörg
var dóttir hjónanna Sigríðar
Oddsdóttur og Jónasar Helgason-
ar verslunarmanns, er bjuggu
allan sinn búskap í Brautarholti,
sem þau keyptu af móður Sigríðar,
Guðrúnu Árnadóttur, ekkju Odds
Jónssonar formanns, sem byggðu
bæinn, en Oddur fórst í róðri
ásamt skipshöfn sinni 1902, aðeins
45 ára gamall. Jónas Helgason,
faðir Ingibjargar, var frá Litlu
Giljá í Húnaþingi, var á skútum á
yngri árum en starfaði lengst af
hjá Verslun Jes Zimsen. Ingibjörg
var næstelst af fimm systkinum
og eru þrjú þeirra á lífi: Oddur,
kvæntur Elísabetu Jónsdóttur frá
Ballará, Guðrún, gift undirrituð-
um og Gyða, sem nú býr í
Brautarholti, sem forfeður þeirra
byggðu og bjuggu í til æviloka.
Látin er fyrir skömmu Sigríður,
ekkja Sigurðar Halldórssonar
verslunarstjóra, sem einnig lést á
þessu ári. Má því segja, að
skammt er högga milli.
Að loknu barnaskólanámi vann
Ingibjörg við margvísleg störf uns
hún giftist Guðmundi, syni Péturs
skólastjóra á Eyrarbakka, Guð-
mundssonar, Sigurðssonar bónda
að Votumýri á Skeiðum og konu
hans Elísabetar Jónsdóttur al-
þingismanns, Þórðarsonar, bónda
að Eyvindarmúla í Fljótshlíð.
Guðmundur var fæddur 10. sept.
1904 á Eyrarbakka. Þau Ingibjörg
voru gefin saman í hjónaband
hinn 26. maí 1928. Börn þeirra eru
öll á lífi og hinir mannvænlegustu
þjóðfélagsþegnar. Þau eru: Pétur,
flugvallarstjóri á Keflavíkurflug-
velli, kvæntur Hrafnhildi Héðins-
dóttur, Jónas rithöfundur og fyrr-
um sjóliðsforingi, kvæntur Jónínu
H. Jónsdóttur, Þórir Atli skip-
stjóri, kvæntur Ólaftu Jónatans-
dóttur, Gústaf Axel matreiðslu-
maður, kvæntur Ernu Einarsdótt-
ur, Sigríður Guðmundsdóttir, gift
James McLean, verkfræðingi og
skrifstofustjóra I varnarmála-
ráðuneyti U.S.A., og yngstur
Steindór Guðmundsson verkfræð-
ingur, kvæntur Bjarndísi Harðar-
dóttur.
Ingibjörg og Guðmundur voru
óvenju glæsileg og falleg brúðhjón
og hafa öll börnin erft geðþekkt
svipmót þeirra. Seinni hluta ævi
sinnar átti Ingibjörg við vaxandi
vanheilsu að stríða og má segja að
hún gengi sjaldan heil til verka
síðasta aldarfjórðunginn, sem hún
lifði, en þegar af henni bráði og og
stund gafst milli stríða, var hún
flestum viðræðubetri og nutu þá
óvenju góðar guðsgjafir hennar
sín vel. En stærst var hún í
móðurhlutverkinu og gott þótti
hinum stóra hópi barnabarnanna
að fá að njóta samvista við ömmu
sína, þegar heilsa hennar leyfði.
Seinustu árin var hún svo að
segja með annan fótinn á sjúkra-
húsum, en heimili sitt hélt hún af
sömu reisninni til æviloka og því
er nú tómlegt á Hringbraut 47. Nú
skiljast leiðir um sinn og ekki um
annað að ræða en óska henni
fararheilla á fund genginna ást-
vina. Samúðarkveðjur til eftirlif-
andi ástvina fylgja þessum línum
frá mér og systkinum mínum.
Tryggvi Pétursson.
í dag kveðjum við frá Dómkirkj-
unni Ingibjörgu Jónasdóttur,
ekkju Guðmundar Péturssonar,
símritara og loftskeytamanns, en
hann lést fyrir nokkrum árum upp
úr slysi er hann varð fyrir á
togara í vonskuveðri í Norðursjó.
Hún var því ekkja seinustu árin
sem hún lifði.
Ég kynntist Ingibjörgu á henn-
ar efri árum, er ég giftist syni
hennar, en samskipti okkar urðu
þó náin, þvi bæði áttum við lund
saman og eins var fremur skammt
milli heimila okkar.
Hún hlaut í vöggugjöf marga
góða lífseiginleika, en átti við
mikið heilsuleysi að stríða í allt að
þrjá áratugi. Þetta kann að
hljóma sem þversögn, en það er nú
einu sinni svo að í örðugum
veikindum koma eðliskostir
manna oft best í ljós.
Hún fékk fáa góða heilsudaga
seinustu árin, en þá notaði hún vel
og heimili hélt hún til hinstu
stundar, fyrst fyrir sig og stóra
fjölskyldu, seinast fyrir sig eina,
og naut þá aðstoðar barna og ekki
síður barnabarna, er tóku af henni
ómak á mörgum sviðum, fóru fyrir
hana í búðir og sóttu lyf, þegar
þess þurfti. Þar ríkti kærleikur og
það hyldýpi er við nefnum stund-
um kynslóðabil, þekktist ekki.
Oft undrast menn þrautseigju
lækna og sjúklinga, og stundum
fyllist hugurinn efa, og maður
veltir því fyrir sér hvort til
nokkurs sé raunverulega barist?
Ég hefi heyrt því svarað þannig,
að meðan vonin lifi, og einn og
einn dagur fæðist án þrauta, þá sé
unninn lítill sigur, þótt orrustan
sjálf sé raunar töpuð.
Við áttum marga góða daga
saman, og hún átti einnig góða
daga með börnum sínum og vin-
um, þegar hlé varð á. Fyrir þá
daga er nú þakkað.
Ingibjörg Jónasdóttir bjó alla
sína ævi í Reykjavík.
Hún þekkti bæinn og fjölda
manns, og hún hafði ágæta frá-
sagnargáfu. Þannig að ég fræddist
mikið, og ekki síst er mér hugstæð
góðlátleg gamansemi hennar, þeg-
ar það átti við.
Hún var sjómannskona og átti
líka syni á sjó. Þær konur mótast
á sérstakan hátt. Eru með sínum í
fjarlægð, njóta minni návistar
ástvina sinna. Sætta sig við það og
meta fagnaðarfundi. Það mun ég
einnig gjöra og við hin, þegar
leiðir nú skilja.
Jónína H. Jónsdóttir.