Morgunblaðið - 20.06.1980, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ1980
Tvær glæ-
nýjar ís-
lenzkar
ÞRYMSKVIÐA
Handrit og teikningar. Sigurður Ö. Brynjólfsson.
Kvikmyndun og klipping: Óli Ö. Andreassen og
S.Ö.B.
Lesari: Erlingur Gíslason.
MÖRG ERU DAGS AUGU
Handrit texti og stjórn: Guðmundur P. ólafsson.
Kvikmyndun og klipping: óli Örn Andreassen.
Tónlist: Ketil Hvoslef/ Jón Yngvi Yngvarsson.
Lesarar: Þorleifur Ilauksson/ Elínborg Stefánsdótt-
ir/ óskar Halldórsson.
Kvlkmyndlr
eftir ÓLAF M.
JÓHANNESSON
Tvær nýjar íslenskar kvikmynd-
ir eru núna sýndar í Regnbogan-
um. í forrétt fáum við að sjá
fyrstu íslensku teiknimyndina
ÞRYMSKVIÐU gerða af Sigurði
Ö. Brynjólfssyni. Mynd þessi er
um 17 mínútur á lengd tekin á 16
mm filmu og í lit. Fyrir utan að
vera „sú fyrsta sinnar tegundar"
er mynd þessi haganlega gerð.
Lipurlega teiknuð í persónulegum
stíl Sigurðar, litasamsetningar
smekklegar með nokkrum auglýs-
ingablæ (gætir jafnvel áhrifa frá
Bacon). Þá er myndin kímin og
meinfyndin á stundum. Þetta er
mikið hól en það þýðir ekki að
myndi sé gallalaus, hún er „til-
raunaverk" eins og segir í
leikskrá. Og sé hún borin saman
við teiknimyndir frá ríkjum þar
sem þessi tegund kvikmyndagerð-
ar hefur náð nokkrum þroska þá
sést hennar helsti veikleiki sá að,
hver einstök mynd fer of fljótt
fyrir og textinn er ekki tjáður með
nægilega fjölbreyttu myndmáli.
En þetta eru byrjandaörðugleikar
og ég óska Sigurði 0. Brynjólfs-
syni til hamingju með þetta þolin-
mæðisverk. íslenska ríkið ætti að
hafa manndóm í sér til að fá menn
á borð við hann til að festa
íslendingasögurnar með þessum
hætti á filmu og blað. í breyttum
heimi er slíkt eina færa leiðin til
að bjarga þeim frá gleymsku.
Nú er heilinn hafði með hjálp
augnanna snætt forréttin hófst
aðalmyndin MÖRG ERU DAGS
AUGU. Þessi mynd er mun lengri,
en á engan hátt merkilegri en
mynd Sigurðar. Hún er hefðbund-
in náttúrumynd sem lýsir lífinu í
Vestureyjum á Breiðafirði. Óvenju
innileg og gerð af mönnum sem
unna þessari sérstæðu náttúru-
perlu. Enda er líkt og myndin sé
tekin innan úr hjúpi — svona eins
og vélinni stýri sjálf náttúran. Er
alltaf notalegt að sitja í bíó og
komast í snertingu við frumöflin
án þess svo mikið sem dýfa hendi í
saltan sjó eða rífa sig á bergnibbu.
Slík eru forréttindin við að vera
maður, að geta ferðast með hjálp
annarra manna um ókunn lönd.
Vestureyjar á Breiðafirði, eru ekki
ókunnur heimur flestum íslend-
ingum svo er Ómari Ragnarssyni
fyrir að þakka, en hann virðist
hafa sérhæft sig í þessum hluta
landsins. Er það vel en mættum
við fá meir að heyra. Nú, en
myndin MÖRG ERU DAGS
AUGU býr ekki aðeins yfir sjón-
rænum þokka. Textinn sem er
fluttur með myndinni er hreint út
sagt: afbragð. Málið kjarnyrt,
framsögn lesara skýr og hljómfög-
ur. Hljóðupptaka aldrei þessu
vant skammlaus. Það mætti ætla
af þessari lýsingu að myndin væri
öll hin ljúfasta svona líkt og
póstkort með tali. Nei í myndinni
eru andstyggilegar senur, þar
kemur fyrir kópadráp og skarfa-
dráp sem er stundað af hálfstálp-
uðum unglingum jafnt og fullorð-
num af slíku offorsi að fer um
kaupstaðarbörnin. MÖRG ERU
DAGS AUGU er þannig raunsönn
lýsing á lífinu í Vestureyjum þar
sem ekkert er dregið undan. Lýs-
ing sem á erindi inn á heimili
landsmanna í gegn um sjónvarpið.
ÞRYMSKVIÐU má svo sýna í
staðinn fyrir Tomma og Jenna
eitthvert kvöldið. Það eru fleiri
stjörnur en í Hollywood.
Kypnir á Fæðis og klæðiskvöldunum á Sögu er Birna Bjarnadóttir,
klædd glæsilegum upphlut, en hún kynnir það sem fram fer bæði á
islenzku og eriendum málum.
Sýningar-
stúlkur úr Kar-
on sýna fatnað
úr islenzkri ull
á Fæðis- og
klæðiskvöldun-
um.
HEFÐBUNDNA sunnu-
dagssteikin er mörgum
hugstæð, en á skemmti-
kvöldunum Fæði og klæði í
Súlnasal Hótel Sögu á
föstudögum er búið að út-
víkka landhelgi iamba-
kjötsins í framleiðslu, því
þar er boðið upp á 30 rétti
úr íslenzku lambakjöti og
sækja gestir réttina á borð
hlaðið kjötréttum og
ostum, og einnig er boðið
upp á nokkra sjávarrétti.
Saga hefur áður verið með
slík fæðis- og klæðiskvöld,
en svo er skemmtunin
nefnd vegna réttanna sem
boðið er upp á og einnig er
tízkusýning á fatnaði úr
íslenzkri ull, sýning á ís-
lenzku keramik og skart-
gripum.
Konráð Guðmundsson, hótel-
stjóri Hótel Sögu, sagði í samtali
við Mbl., að bæði innlendir og
erlendir kæmu á fæðiskvöldin og
reyndar væri það algengt að
íslendingarnir lýstu undrun
sinni á hinum fjölbreyttu réttum
úr lambakjötinu. Kvað Konráð
það óalgengt áður að menn bæðu
um lambakjöt þegar þeir færu út
að borða við hátíðleg tækifæri,
en nú væri það sífellt algengara,
enda aukið úrval rétta. Þá kvað
Konráð fólk gjarnan vilja kynn-
ast nýjum aðferðum á umrædd-
Sýnishorn af matborðinu,
hlöðnu öllum hugsanlegum rétt-
um úr islenzku lambakjöti,
brauðum, ostum og fiskréttum.
Konráð Guðmundsson hótel-
stjóri kannar stöðuna fyrir
miðju. Ljósmynd Mbl. Kristján.
Lambakjöt
í nýju ljósi
Fæði og klæði á föstudags-
kvöldum á Hótel Sögu