Morgunblaðið - 20.06.1980, Side 30

Morgunblaðið - 20.06.1980, Side 30
fcrt* t/iAdptt d*tx nujsrdtip Mdtar trutJ Cytdn /w«c/# rvc . Sdtttttf i/Vy/t : „ Þeotttx /rtrtu/t ■Jtt/t/r/i r/,«;r/"<WA etttu/xt Sltf»t Aé et/trt dtx. /td/r, irrttt/t SJt/lSMddd . C MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1980 Guðrún Ingólfsdóttir var sterk- ust í kúluvarpi kvenna, hún varp- aði kúlunni lengst 12,60 metra. Það var helst Helga Unnarsdóttir sem veitti henni keppni að ein- hverju marki. Helga varpaði lengst 11,28 metra. Þriðja varð íris Grönfeldt með 10,28 metra kast. Birgitta Guðjónsdóttir varð hlutskörpust í 800 metra hlaupi kvenna og var sigur hennar nokk- uð öruggur. Tími Birgittu var 2:29,4 mínútur en tími næsta keppanda, Lindu Loftsdóttur, var 2:33,3 mínútur. Þriðja í 800 metra hlaupinu var Hjördís Árnadóttir, hún fékk tímann 2:37,7 mínútur, sama tíma og Rakel Gylfadóttir fékk. Óskar Jakobsson sigraði örugg- lega í kringlukasti. Hann átti tvö köst yfir 60 metra, það lengra 61,44 metra. Það dugði til sigurs. Vésteinn Hafsteinsson varð ann- ar, hann kastaði lengst 54,02 metra. Pétur Pétursson varð þriðji, lengsta kast hans var 41,94 metrar. Erlendur Valdimarsson gerði öll köst sín ógild, en sum þeirra fóru vel yfir 60 metra. Stefán Friðleifsson sigraði í hástökki karla eftir mikla baráttu. Stefán vippaði sér yfir 1,95 metra og lék það enginn eftir honum. En upp undir 1,90 fóru fjórir kepp- endur. Elías Sveinsson felldi 1,95, en fór yfir 1,90 metra. Þeir Stefán Stefánsson og Unnar Vilhjálms- son felldu hins vegar 1,90, en fóru báðir yfir 1,85 metra. Mikil forföll urðu í 400 metra hlaupi karla, en þar kepptu ekki fimm þeirra sem skráðir voru. Oddur Sigurðsson var hér kóngur í ríki sínu, sigraði örugglega og fékk tímann 47,91 sekúndur. Aðal- steinn Bernharðsson varð annar, hljóp á 49,08 sekúndum og Gunnar Páll Jóakimsson varð þriðji á 49,82 sekúndum. Þá er loks komið að 5000 metra hlaupi karla. Gunnar Snorrason var öruggur sigurvegari, hljóp á 16:20,5. Annar varð Benedikt Björgvinsson á 17:3,03 mínútum og þriðji varð Magnús Haraldsson á 17:13,7 mínútum. -gg- Bryne með 3 stiga forskot BRYNE hefur náð þriggja stiga . forystu i norsku deildarkeppn- inni, en þar er nú 9 umferðum lokið. Úrslit leikja i 9. umferð- inni urðu sem hér segir. Bodö — Bryne 1—2 Fredrikstad — Skeid 0—2 Mo88 — Lyn 3—1 Rossenborg — Molde 2—5 Vaalerengen — Liileström 2—2 Viking — Start 1—0 Sem fyrr segir hefur Bryne hlotið þremur stigum meira held- ur en næstu lið. Bryne hefur 14 stig, en bæði Start og Lilleström hafa 11 stig. Rosenborg og Moss hafa hlotið 10 stig hvort félag. Meistararnir frá síðasta keppn- istimabili. Viking, hafa 9 stig. Þrír leikir í 2. deild í KVÖLD fara fram þrír leikir i íslandsmótinu i 2. deild. Á Akur- eyrarvelli leika Þór og Selfoss, á Kaplakrikavelli llaukar og Árm- ann og á ísafirði ÍBÍ og KA. Allir leikirnir hefjast kl. 20.00. Asgeir orðaður við Avellino! Knattspyrnukappinn kunni, Ásgeir Sigurvinsson, hefur leikið i Belgiu i mörg ár. Állan timann með sama liðinu, Standard Liege. Margsinnis hefur hann verið orð- aður við hin ýmsu félög og má þar nefna stórveldi á borð við Bayern Munchen, Borussia Mönchengladbach og Anderlecht. Aldrei hefur orðið úr búferla- flutningum hjá Ásgeiri, fyrst og fremst vegna þess að Standard hefur ómögulega viljað sjá af honum og fælt umrædd félög burt með þvi að setja svimandi upp- hæðir á Ásgeir. Ásgeir hefur hins vegar tekið öllu með jafnaðargeði og reynir að hugsa sem minnst um þetta. Meðfylgjandi úrklippa fannst í danska tímaritinu Alt om sport og svo sem sjá má, er Ásgeir þarna orðaður við ítalska félagið Avell- ino. Nýlega lýsti Ásgeir því yfir í viðtali við Morgunblaðið, að næsta víst væri að hann myndi vera a.m.k. einn vetur enn með Stand- ard, þannig að þetta er líklega enn ein fiskisagan sem ekkert verður síðan úr. Steindór Tryggvason vann góð- an sigur í 1500 metra hlaupi, og kom þar í mark nokkrum skrefum á undan Ágústi Þorsteinssyni. Timi Steindórs var 4:3,03 mínútur, en tími Ágústar var 4:6,01 mínúta. Þriðji í 1500 metra hlaupinu varð Guðmundur Sigurðsson, en hann hljóp á 4:14,02 mínútum. • Hreinn Halldórsson óskar Pauletto til hamingju með sigurinn. Ljú*m. Emilfa. Ragnar Hilmarsson á förum til Saab RAGNAR Hilmarsson, hand- þar með einn af helstu mátt- knattleiksmaðurinn kunni hjá arstólpunum. En úr þvi kann Þór i Vestmannaeyjum og áður þó að rætast, það hefur nefni- með Fram, er á förum til lega heyrst, að Andrés Bridde, Sviþjóðar. Að eigin sögn hefur Framari og áður leikmaður hann fengið boð frá sænska með Þór, hafi i hyggju að fara liðinu Saab um að koma til aftur til Vestmannaeyja. æfinga og viðræðna. Missir Þór Se?atSigurdvin?| Slandard efter deI'', or at spille for AvelJ lienske liga Olympíumaðurinn tdJd pttcren /ne<Y KAdt) JOtU/ýdti SrjJidA.' S//fttf~/D - Idf/t ar*t/< fiftttAA dórírJ A'f/ms - Pr//reit . £Wtdm rod.ro o+rr / UJ& /r* rAcdgtx /trr/ //töcdcetJ/t U S/t</ , /íd./t/tmO/A eoom dldJn. fd /rjtj S/t/t /t /t/jtJA/tr. t rjoidj. wJv oe/to, /oet/tA ed S'saa . //Jtd eerrt otrtn/t ’/tj/rtsr 4>C/ f/*> Ct . /tA*/t> t/4/t ípAf) s/(st/ / /to/1 /9io C* / O4%t/r4/rt/0\ /*!*TÓt<iT Mfs/*// /CCA / roo//ry t//t. fTOUt/O/l r/CMCA J?/* ScAt/*r '/ M/sSu Jb/t/ðJ’A . //ósj t/A/X 4>/c irf/M . f’Y/l/zt T~Oé<'t OCG./MA st/4 fsHCfif //JsJ : eftsst. ///€*•<fAt//t. /rt/s/A/t. ' ~°fr' '4 JfToé /M/M SU/o/£> 40 £(r G-g«. I rr O€0.r/* .X* m/~/ 4T4-4//A A0 /**f/r> €r/ o& q-qcc u*/*.**./4U/+t/s*\ • 06/ þfr/A Wf.TT- i*r. At4/iV ro« roAOSTd, Sco OCY/U iomCT/P ' H/CA. xJ A4 4/MUsn STO Hé/om O C sern n</rr, t/C/AiS/rCr / 44» /O//*«// Reykjavíkurleikarnir voru fremur sviplitlir HINIR árlegu Reykjavíkurleikar í frjálsum iþróttum voru frekar sviplitlir að þessu sinni. Það var kannski vegna þess að aldrei varð neitt úr hinni hörðu keppni í kúluvarpinu, sem menn höfðu vonað að yrði. í fyrsta lagi mætti ekki Doligiewic. I öðru lagi nóði landi hans Pauletto sínum langbesta árangri i greininni, 20,44 metrum, og i þriðja lagi voru bæði óskar Jakobsson og Hreinn Halldórsson nokkuð frá sinu besta. En nokkur góð afrek voru unnin. Helga Halldórsdóttir, hin efnilega hlaupakona úr KR, náði betri árangri heldur en gildandi íslandsmet bæði i 100 metra grindahlaupi og i 200 metra hlaupi. Meðvindur var hins vegar svo mikill, að metin fengust ekki staðfest. Einnig má geta þess, að Sigurður Einarsson sigraði í spjótkastinu og náði sinum besta árangri fyrr og siðar, 74,42 metrum. Rennum nú yfir helstu úrslit í hverri grein í þeirri röð sem þær fóru fram. Helga Halldórsdóttir sigraði ör- ugglega í 100 metra grindahlaupi, hljóp á 14,22 sekúndum. Þetta var betri tími en gildandi Islandsmet, en eins og fyrr segir, var meðvind- ur of mikill. Þórdís Gísladóttir sigraði ör- ugglega í hástökki kvenna. Hún stökk 1,72 metra, sem er átta sentimetrum lakara en hún á best. Sigríður Valgeirsdóttir varð önn- ur, stökk hæst 1,60 metra, og þær Nanna Sif Gísladóttir og Krist- björg Helgadóttir stukku báðar yfir 1,45 metra. 16 ára gamall bráðefnilegur langstökkvari, Kristján Harðar- son HSH, sigraðí örugglega í langstökki karla. Sigurstökkið var 6,96 metrar. í öðru sæti varð Stefán Þ. Stefánsson með 6,76 metra stökk. Friðrik Þór Óskars- son stökk lengst 6,70 metra. Sigurður Einarsson náði sínum besta árangri er hann sigraði örugglega i spjótkasti karla. Sig- urkast Sigurðar var 74,42 metrar og Sigurður nálgast óðfluga ís- landsmet Óskars Jakobssonar, sem er 76,32 metrar. Norski meist- arinn Reidar Lorenzen gerði ekki betur en að kasta 70,08 metra og hafnaði því í öðru sæti. Þriðji varð Einar Vilhjálmsson, hann kastaði lengst 63,90 metra. Bruno Pauletto frá Kanada sigraði örugglega í kúluvarpi. Hann náði sínum besta árangri fyrr og síðar, varpaði kúlunni 20,44 metra og átti auk þess annað kast sem var 20,15 metrar. Hreinn Halldórsson varð annar, hans besta kast var 19,96 metrar. Óskar Jakobsson varð þriðji að þessu sinni, kastaði lengst 19,35 metra. í 100 metra hlaupi karla var keppt í tveimur riðlum. Þrír efstu keppendurnir komu allir úr hinu svokallaða A-hláupi. Oddur Sig- urðsson sigraði léttilega á 10,77 sekúndum. Þorvaldur Þórsson varð annar á 11,10 sekúndum og Aðalsteinn Bernharðsson hafnaði í þriðja sæti á 11,27 sekúndum. í 200 metra hlaupi kvenna var einnig keppt i tveimur riðlum. Helga Halldórsdóttir var hér hinn öruggi sigurvegari og hljóp á tíma sem er betri en gildandi met. En metið var ekki staðfest vegna of mikils meðvinds eins og áður er sagt. Tími Helgu var 25 sekúndur sléttar. Hólmfríður Erlingsdóttir varð önnur á 26,04 sekúndum og Oddný Árnadóttir varð þriðja á 26,05 sekúndum. Teitur með gegn Finnum! LJÓST er, að Teitur Þórðarson, miðherjinn harðskeytti, leikur með islenska landsliðinu sem mætir Finnum á Laugardalsvell- inum laugardaginn 28. júni. Ísland teflir þvi fram öflugri framlínu gegn Finnum, því að þeir Arnór Guðjohnsen og Pétur Pétursson verða að öllum likind- um einnig með. Fjórði atvinnu- maðurinn sem væntanlega verð- ur með, er Janus Guðlaugsson. Það ætti þvi að vera möguleiki á þvi að velgja Finnum undir uggum, svo ekki sé meira sagt. Verður her látið vera að tala um sigurmöguieika.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.