Morgunblaðið - 20.06.1980, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, FöfSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1980
31
Gróttumenn
komu á óvart
á Isafirði
GRÓTTA kom heLdur betur á
óvart i bikarkeppni KSÍ á mið-
vikudagskvöldið er liðið vann
ísfirðinga verðskuldað 2-0 á ísaf-
irði. ísfirðingar voru sterkari
aðilinn úti á vellinum allan tím-
ann, en Gróttumenn vörðust
mjög skynsamlega og tækifæri
heimamanna voru ekki mörg né
merkileg. Grótta náði hins vegar
góðum sóknarlotum og áttu fleiri
færi en þau, sem gáfu mörkin tvö.
Á fyrstu 5 mínútum leiksins
fengu ísfirðingar 2 góð færi, sem
ekki nýttust og Grótta kom síðan
smátt og smátt inn í myndina.
Fyrra mark Gróttu skoraði Gunn-
ar Páll Þórisson þegar um 5
mínútur lifðu af fyrri hálfleiknum
og var snaggaralega að því staðið
hjá þessum unga leikmanni, en
hann fékk knöttinn inn í miðjum
teig ÍBÍ eftir aukaspyrnu Gísla
Gíslasonar. í síðari hálfleiknum
bætti Grótta svo um betur og
skoraði Gísli Gíslason úr vítasp-
yrnu á 36. mínútu hálfleiksins.
Grótta hafði þá fengið auka-
spyrnu nokkuð fyrir utan vítateig
ÍBÍ og góð sókn endaði með
hörkuskoti Halldórs bakvarðar,
sem fór í hendi eins varnarmanna
ÍBÍ. Ekki var um annað að ræða
en að dæma vítaspyrnu. Markv-
örður ÍBÍ varði frá Ágústi Jónss-
yni, en dómarinn lét endurtaka
spyrnuna, þar sem markvörðurinn
hafði hreyft sig of fljótt. Gísla
urðu ekki á nein mistök er hann
fékk tækifæri til að spreyta sig,
sjálfsagt hefur hann verið minn-
ugur þess er markvörður ÍBÍ varði
frá honum vítaspyrnu fyrir réttu
ári síðan, en þá slógu ísfirðingar
lið Gróttu út úr bikarnum.
Beztu menn Gróttu voru Steinar
markvörður, Gísli Gíslason og
Rúnar bakvörður, en í heild barð-
ist liðið vel. Lítll broddur var í leik
ísfirðinga, en Halldór Ólafsson
hleypti þó lífi í sókn þeirra er
hann kom inn á um miðjan seinni
hálfleik.
í Knattspyrna |
Unglingameistaramót
GSI fer fram um helgina
GOLFKLÚBBUR Reykjavíkur
býður ungum kylfingum á opið
golfmót á Grafarholtsvelli,
sunnudaginn 22. júni n.k.
Aldursmark er, að verða ekki
22ja ára fyrir 1. september n.k.
Ræst verður út frá kl. 10.00 og
þeir ræstir út fyrst sem hafa
hærri forgjöf. Leikið verður af
„hvítum“ teigum. Verðlaun verða
veitt fyrir árangur bæði með og
án forgjafar.
Æfingadagar fyrir þá sem hafa
skráð sig í mótið eru á fimmtu-
dag og föstudag 19. og 20.
Unglingameistaramót GSÍ verð-
ur haldið á Hvaleyrarvelli 28. og
29. júní n.k. Eftir mótið verður
valið í unglingalandsliö íslands,
sem keppir í Þýzkalandi á Evrópu-
móti unglinga 20. til 27. júlí n.k.
Opna mótið á Grafarholtsvelli
er kjörinn vettvangur fyrir undir-
búning fyrir Unglingameistara-
mótið og árangur í báðum þessum
mótum verður hafður til hliðsjón-
ar, þegar landsliðið verður valið.
Þá fer fram hjóna- og para-
keppni og Jónsmessumót í golfi á
Grafarholtsvellinum um helgina.
Álafosshlaupið
Á LOKADEGI íþróttahátídar
Í.S.Í nk. sumar, sunnudaginn 29.
júní 1980, fer fram almennings-
hlaup frá Álafossi í Mosfellssveit
til Laugardalsvallar i Reykjavik.
Vegalengdin er um það bil 14
kílómetrar. Lagt verður af stað
frá Álafossi stundvislega kl.
19:45.
Álafosshlaup verður í senn
kapphlaup íþróttamanna og
heilsubótarskokk trimmarar á öll-
um aldri. Allir sem koma í mark
fá vottorð um unnið afrek og
ennfremur verða 1., 2. og 3.
verðlaun (karla og kvenna) veitt í
hverjum aldursflokki samkvæmt
eftirfarandi skiptingu: yngri en 16
ára, 16-19, 20-29, 30-39, 40-
49, 50 ára og eldri. Sigurvegari
hlaupsins hlýtur veglegan far-
andbikar sem gefinn er af Álafossi
hf. og er ætlunin, að keppt verði
um hann árlega.
Tilkynnið þátttöku með nafni,
heimilisfangi og aldri. Póstfang:
Álafosshlaup, FRÍ, íþróttamiðst-
öðin, Laugardal, Pósthólf 1099,121
Reykjavík.
Knattspyrnuskóli Fylkis
í SUMAR mun knattspyrnudeild Fylkis halda knattspyrnunámskeið á
Árbæjarvelli. betta er í fyrsta skipti sem Fylkir heldur námskeið sem
þessi og er það von okkar að sem flestir komi.
Hvert námskeið verður í hálfan mánuð og er miðað við 22 pilta í
hvern hóp. Námskeiðin verða opin öllum á aldrinum 7—12 ára
fæddum 1968—1973.
Námskeiðin verða kl. 10—12 og 13—15 alla virka daga. Eldri hópurinn
fyrir hádegi og yngri eftir hádegi.
Námskeiðin verða sem hér segir: 23. júní til 4. júlí. 7. júlí til 18. júlí. 21.
júlí til 1. ágúst. 5. ágúst til 18. ágúst.
Umsjónarmenn og leiðbeinendur verða, Ólafur Magnússon leikfimi-
kennari, leikmaður í Val, landsliðsmaður í knattsp. og Sigurður
Helgason leikfimikennari, leikmaður í Fylki. Munu þeir kenna
undirstöðuatriðin í knattspyrnu og leikreglur.
Þátttökugjald verður kr. 8.000.00 og greiðist við innritun, sem verður í
Félagsheimili Fylkis v/Árbæjarvöll. Föstudaginn 20. juní frá kl. 18.30 til
19.30. Laugardaginn 21. júní frá kl. 10.00 til 12.00.
• Um siðustu helgi fór fram á Hólmsvelli i Leiru, opna Dunlop-mótið i golfi. Vegna þrengsla gátum við
ekki birt mynd af sigurvegurunum fyrr en nú. Glæsileg verðlaun voru veitt á mótinu og hlaut
sigurvegarinn Þorbjörn Kjærbo sem er lengst til vinstri ferð á Dunlop-mótið í Englandi auk annarra
verðlauna. Næstur honum á myndinni er Árni Árnason framkvæmdastjóri Austurbakka hf. sem veitti
verðlaunin. Þá Gunnar Schram sem hlaut 1. sæti með forgj. Síðan koma Hilmar Björgvinsson er jafnaði
vallarmetið og Sveinn Sigurbergsson. Ljósm. rtskar s.