Morgunblaðið - 20.06.1980, Side 23

Morgunblaðið - 20.06.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. JÚNÍ 1980 23 þess fyrirtækis vildi hann sem mestan og bestan. Fyrir störf hans í þágu þess stöndum við félagar hans í mikilli þakkarskuld. Eg sendi frú Önnu Vigdísi, Ólöfu dóttur hans og manni henn- ar Kristni Gunnarssyni apótekara innilegar samúðarkveðjur okkar allra í Pharmaco. Sverrir Magnússon. I dag kveðjum við hinzta sinn góðan starfsbróður, vin og félaga, Baldvin K. Sveinbjörnsson apótek- ara í Holts Apóteki í Reykjavík. Leiðir okkar Baldvins heitins lágu fyrst saman árið 1964, er ég tók sæti í stjórn Lífeyrissjóðs apótekara og lyfjafræðinga, en Baldvin var formaður stjórnar sjóðsins allt frá stofnun hans árið 1956 og til dauöadags eða í tæpan aldarfjorðung. Mér er minnisstæðast frá því samstarfi, hinn einlægi áhugi Baldvins á því að reyna ávallt að greiða úr vandræðum sérhvers lánsumsækjanda og hann beitti sér alltaf fyrir því að hverjum einstökum umsækjanda yrði veitt öll sú fyrirgreiðsla, sem reglur sjóðsins frekast leyfðu. Baldvin heitinn tók alla tíð virkan þátt í störfum Apótekara- félags Islands og átti sæti í stjórn þess um árabil svo og í samninga- nefndum. Mér þótti alltaf bjartara yfir þeim fundum er Baldvin sat, enda reyndi hann ávallt að sætta ólík sjónarmið manna, og að vanda- málin væru leyst á þann veg að sem flestir ef ekki allir mættu vel við una. Auk starfa Baldvins fyrir lífeyr- issjóðinn og Apótekarafélagið get ég ekki látið hjá líða að minnast á áratuga langa setu hans í stjórn fyrirtækisins Pharmaco HF, sem í mörg ár hefur verið í fararbroddi íslenzkra lyfjaframleiðenda. Baldvin heitinn bar ekki veik- indi sín á torg, en hann hafði fengið tvö alvarleg hjartaáföll, hið fyrsta fyrir um það bil sjö árum og hafði það nærri riðið honum að fullu. Aldrei urðum við sam- starfsmenn hans þess á nokkurn hátt varir í fari hans eða tali að hann gengi með svo alvarlegan sjúkdóm. Segja má að dag hvern hafi sverð dauðans hangið yfir honum, en hann virtist alltaf hress og kátur er við hittumst eða ræddum saman í síma. Ég, sem oft leitaði til Baldvins, varð þess aðeins var á því, að ekki var hægt að ná tali af honum milli kl. 12 og 3 á daginn. Þá hvíldi hann sig og hans góða kona, Anna Vigdís, leið okkur ekki að ónáða hann þessa lifsnauðsynlegu hvíldarstund hans. Það er sem betur fer svo, að enginn veit fyrir hvenær kallið kemur né hver verður kallaður næstur. Þegar við Baldvin heitinn skildum fyrir þrem vikum að afloknum stjórnarfundi í Pharm- aco HF hvarflaði það ekki að mér eitt andartak, að það yrði í seinasta sinn sem við ættum tal saman, en sú varð reyndin. Að leiðarlokum færi ég Baldvini K. Sveinbjörnssyni þakkir mínar fyrir mér auðsýnda vináttu og hjálpsemi. Ennfremur flyt ég honum þakk- ir og kveðju Apótekarafélags ís- lands fyrir unnin störf í þágu þess og stéttarinnar allrar. Ég votta eiginkonu, dóttur og öðrum ást- vinum hins látna einlæga samúð og hluttekningu. Hvil í friði. Werner Itasmusson. Aðfaranótt 9. júní lézt Baldvin K. Sveinbjörnsson, lyfsali, í Borg- arspítalanum. Baldvin var fæddur 8. febrúar 1909 á Patreksfirði. Hann hóf skólagöngu sína á Patreksfirði, en lauk gagnfræða- prófi í Menntaskóla Akureyrar. Hugur hans stefndi að lyfja- fræðinámi, og byrjaði hann verk- legt nám í Lyfjabúðinni Iðunni hjá Jóhönnu Magnúsdóttur, lyf- sala, árið 1930, og lauk fyrrihluta- prófi haustið 1933. Þá lagði Baldvin land undir fót, ásamt þeim Sverri Magnússyni og Sverri Sigurðssyni, og fóru þeir þeir til Kaupmannahafnar og hófu nám við Pharmaseutisk Lærean- stalt. Þaðan útskrifuðust þeir allir sem lyfjafræðingar haustið 1935. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Eg á þrjú börn, sem öll eru gift. Eignir á eg litlar. og eg er hræddur um, að eg muni iitið láta eftir mig handa börnum minum. Margir vina minna eiga mikiar eignir, sem börn þeirra munu erfa. En mér finnst eins og mér hafi ekki tekizt að afla börnum minum nægra efnisgæða. Hvað er til ráða? Mér finnst fátt hörmulegra en börn, sem bíða þess með óþreyju, að efnaðir foreldrar þeirra kveðji þennan heim, svo að þau geti tekið það, sem þau láta eftir sig. Henry Van Dyke sagði einhvern tíma: „Mundu, að það, sem þú átt í þessum heimi, tilheyrir öðrum, þegar þú deyrð, en það, sem þú ert, verður þitt að eilífu“. Vera má, að yður takizt ekki að safna miklum veraldarauði handa börnum yðar, en það er margt annað, sem þér getið ánafnað þeim. Þér getið skilið þeim eftir minningu um guðræki- legt líf.sem þér lifðuð í ljósi eilífðarinnar. Þér getið látið eftir yður mynd manns, sem mat heiðarleik meira en öflun efnisgæða, heilindi meira en lendur og lauseyri. Þér getið gefið þeim minninguna um óeigingjarnt líf, lifað Guði og öðrum mönnum. Góð börn mundu aldrei kvarta yfir því, að þó að þér skilduð ekki eftir neitt veraldargæði, ef þér gefið þeim trú til að lifa á, hugsjónir til að leiðbeina þeim og minningu um líf, fólgið í Kristi og Guði. Eg vildi óska, að margir þeirra, sem eru að safna handa börnunum sínum, gleymdu ekki gildi þessara hluta, því að þeir endast lengur en peningarnir, sem þeir kunna að ætla þeim að erfa. Baldvin byrjaði að vinna hjá Christian Havns Apotek á Amag- er, en flutti svo heim til íslands árið eftir og hóf aftur störf hjá Lyfjabúðinni Iðunni. Hann starf- aði þar í fjórtán ár, eða þar til hann stofnaði Holts Apótek þann 29. september 1950, og hafði hann því rekið það í tæp 30 ár er hann lézt. Hann starfaði mikið að félags- málum lyfsala, var í stjórn Apó- tekarafélags íslands í átján ár, og formaður Lífeyrissjóðs Apótekara og lyfjafræðinga frá stofnun hans 1955 til dauðadags. Árið 1956 tók hann þátt í stofnun Pharmaco hf. og var í stjórn og varastjórn frá upphafi. Kynni okkar Baldvins hófust árið 1963, er hann ásamt stjórn Apótekarafélags Islands fengu mig til að móta tillögur að reikni- grundvelli fyrir lyfjaverðlagningu í ört vaxandi verðbólgu. Ég gerði það að skilyrði að ein lyfjabúð væri notuð til rekstrar- tilrauna og viðmiðunar við þessa grunnvinnu og bauð Baldvin fram þjónustu sína. í þessu samstarfi kom strax fram hve jákvæður og framfara- sinnaður persónuleiki Baldvin var. Má segja að frá þessum tíma hafi Baldvin verið í stöðugum endurbótum á fyrirtæki sínu, og viidi hann ávallt tileinka sér nýjustu og beztu aðferðir á hverju sviði og sést árangur þess starfs áþreifanlega í dag í Holts Apóteki. Ekki hefur Baldvin talið sig vera að kveðja okkur, því hann pantaði þremur dögum áður en hann lézt viðbótar tölvubúnað. Baldvin fékk hjartaáfall fyrir átta árum, og fékk þannig aðvör- un, þannig að hann var þakklátur fyrir hvert ár sem hann bætti við, því hann taldi sig lifa á „tíma- frarnlengmgu". Baldvin var góður vinur og félagi og sá ætíð bjartari hliðarn- ar á verkefnum og umhverfi sínu. Hann starfaði af heilum hug sem félagi í Rotary-Austurbær frá árinu 1965. Eftirlifandi kona hans er Anna Vigdís Ólafsdóttir og áttu þau eina dóttur, Ólöfu Vigdísi, lyfja- fræðing. Ég bið góðum vini velfarnaðar við nýjar aðstæður og þakka honum langa vináttu og samstarf, og Önnu Vigdísi og Ólöfu og öðrum aðstandendum sendi ég samúðarkveðjur. Guðmundur Einarsson verkfræðingur Kveðja írá starfsfólki Holts Apóteks I dag kveðjum við góðan hús- bónda Baldvin K. Sveinbjörnsson apótekara. Kynni okkar af honum eru mislöng, en öll viljum við þakka honum ágætt samstarf. Við hið sviplega fráfall verður okkur litið til baka yfir langa starfsævi hans. Hann var áhugasamur um allar nýjungar, sem horfðu til framfara í rekstri apóteksins, og lagði áherslu á vinnuhagræðingu, svo sem fyrir- komulag á vörum með hagkvæm- um innréttingum og notkun ým- issa hjálpargagna við innkaup. Fyrir nokkrum árum varð hann fyrstur sinna stéttarbræðra til að nýta sér tölvuþjónustu við bók- hald og rekstur apóteksins. Þjónusta við viðskiptavinina var Baldvin hugleikin og hafði hann skilning á mikilvægi hennar. Honum var annt um að viðskipta- vinir fengju fljóta og góða þjón- ustu og að virðing væri borin fyrir tíma þeirra. Með deildaskiptingu og sérhæfðu starfsfólki er stuðlað að þessu. Einnig var hann hlynnt- ur skipulegri fræðslu og upplýs- ingamiðlun til starfsfólks í því skyni að auka þekkingu þess, en það er grundvöllur bættrar þjón- ustu. Baldvin lagði ríka áherslu á að viðskiptavinurinn gæti leitað beint til lyfjafræðingsins og feng- ið þá vitneskju, sem hann vanhag- aði um milliliðalaust. Baldvin var þægilegur vinnu- veitandi, jafnlyndur og gestrisinn við starfsfólk sitt. Við þökkum góða viðkynningu og sendum sam- úðarkveðjur til Önnu Vigdísar, Ólafar og fjölskyldu, og systra hans Guðrúnar og Sigríðar. SUMARHBMIUÐ BIFRÖST jT ÍTí)x Aðstaða jM 1 Maturogkaffi Á 2ja manna herb. með hand- laug og útvarpi. Bókasafn, verslun og setustofa. Sturtur, gufubað og íþróttasalur. Stutt í sund. Dagblöð og sími. Rómuð náttúrufegurð. ÍZEdl Fyrir einstaklinga, starfshópa, fjölskyldufagnaði og hópferðir. Pantið með fyrirvara. Ráðstefnur-fundir-námskeió Stakar máltíðir eða afsláttar matarkort, hálft eða fullt fœði{ Sjálfsafgreiðsla. Börn______________________ Frítt fæði með gistingu fyrir börn orlofsgesta til 8 ára aldurs. Matur á hálfvirði fyrir 8—12 ára. Fyrir allt að 150 manns. Leitið upplýsinga og verðtilboða. Pantanir og uppiysingar 93- 7500 Bifröst 2ja manna herb. fSLENSKUR ORtOFSSTAÐUR 26.6—30.6. 4 daga orlof 31.000.— 30.6— 7.7. viku orlof 54200,— 7.7.—14.7. viku orlof 58.400,— 14.7.—21.7. viku orlof 58.400,— 21.7.—28.7. viku orlof 58.400,— 28.7.— 4.8. viku orlof 58.400,— 5.8.—12.8. viku orlof 54.200,— 12.8.—19.8. viku orlof 54.200,— 20.8.—26.8. 6 daga orlof 46.600,—

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.