Morgunblaðið - 17.07.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980
7
Ókyrrö hjá
kommum
í Svarthöfða Vísis i gær
er fjallaö um stöðuna á
stjórnarheimilinu. Þar
segir:
„Menn tala um það, án
sýnilegra ástæðna, að
svo geti farið að efnt
verði til þingkosninga í
haust og þá að tilhlutan
Alþýðubandalagsins. Þeir
hjá bandalaginu hafa
hins vegar haldið því
fram kosningar eftir
kosníngar, að þeir hafi
aldrei rofið vinstri stjórn-
ir. Orðrómurinn gengur
þvert á þessar yfirlýs-
ingar. Gunnar Thorodd-
sen er sagður áhyggju-
fullur, enda virðist hann
ekki hafa þau tök á þeim,
sem hann telur „sína
menn“, sem við hefði
mátt búast. Nýlega var
kosið í húsnæöismála-
stjórn, og valdi Gunnar
þar sérstakan fulltrúa
sinn, sem ekki hafði fyrr
verið kosinn en hann lýsti
því yfir að hann styddi
ekki Gunnar Thoroddsen
og myndi aldrei gera. Slík
mistök verða ekki til að
auka traustið á hinum
klóka stjórnmálaref,
einkum þegar ekki var
skortur á traustum aöil-
um með sórþekkingu í
byggingarmálum.
Forsetakosningarnar
eru sagðar ýta mjög und-
ir þá skoðun hjá Alþýöu-
bandalaginu aö efna beri
til þingkosninga með
haustinu. Jafnframt má
sjá fram á mikla erfið-
leika þeirra bandalags-
manna innan launþega-
hreyfingarinnar, sem þeir
eru vanir að siga eins og
hundi, hvenær sem þeir
eru í stjórnarandstöðu.
Nú geta ráðherrar Al-
þýðubandalagsins alls
ekki fellt sig við launa-
kröfur, sem eru þó mikiö
kurteisari en þegar and-
stæðingar bandalagsins
sitja í ríkisstjórn. Laun-
þegahreyfing virðist ekki
átta sig á því að nú á hún
að þegja, og fer þar eins
og stundum í smala-
mennsku að þegar allt
hefur verið rekið inn í rétt
láta hundarnir ekki af
geltinu. Blekkingar Al-
þýðubandalagsins I
launamálum geta orðið
það þungar á metunum,
að ekki verði lengur setið
í ríkisstjórn við aögerða-
leysi. Til viðbótar stefnir
svo ( atvinnukreppu um
sama leyti og sósíalskatt-
ar Alþýðubandalagsins
verða birtir almenningi.
Mun þá setja hroll að
mörgum, sem hingað til
hafa talið að sósíalskatt-
ar skyldu vera óheftir.“
Vond staöa
fr^msóknar
Og Svarthöfði heldur
áfram:
„Forsetakosningarnar
hafa vakið alþýðubanda-
lagsmönnum vonir um,
að þeir muni koma vel út
úr kosningum, veröi efnt
til þeirra fljótlega. Þeir
sitja nú uppi með marg-
víslegar skrár fylg-
ismanna þess frambjóð-
anda, sem þeir telja sínn
mann öðrum fremur. Þeir
sem þekkja til dugnaðar
þeirra og frekju munu
ekki vera í vafa um til
hvers þær skrár verða
notaðar. Þannig segja
menn, að líði mikið fram
yfir haustið áður en til
kosninga veröi blásið,
missi Alþýðubandalagið
kæra möguleika til ávinn-
ings af völdum forseta-
kjörs og sitji óheyrilega
lengi uppi með ófull-
nægða launþegastétt.
Ekki verður með góðu
móti séð hvar Gunnar
Thoroddsen og félagar
lenda komi til kosninga.
Kannski tekst þeim að
semja sig í sátt viö flokk-
inn að nýju, en þar kemur
við sögu bændafylgi og
vitlaus kosningalög, þar
sem jafnvel fámennustu
kjördæmin geta fengið
upp í fimm til sex þing-
menn.
Framsóknarflokkurinn
færi verst út úr kosning-
um í haust. Þaðan yrði
stóran vinning að fá fyrir
Alþýðubandalagið, en
þessir tveir flokkar velta
nú orðið fylginu á milli
sín eftir náið samstarf
lengst af liöins áratugar.
Jafnframt hefur sú breyt-
ing orðið á framsókn, að
mikill hópur almennra
kjósenda flokksins telur
ekkert athugavert við að
hverfa frá honum til
vinstri í kosningum, ef
það mætti verða til þess
að halda Alþýðubanda-
laginu við völd í þjóðmál-
um. Þetta stafar af póli-
tískri veiklun forustu-
manna framsóknar og
hugsjónaskorti. Á þeim
bæ er fyrst og fremst
verið að reyna að leysa úr
daglegum vanda frekustu
þrýstihópanna viö vax-
andi fyrirlitningu þessara
hópa og alls almennings í
landinu. Verði kosningar
( haust er vonandi aö
einhverjir komi fram á
sjónarsviðið sem þora.“
tIzkuverzlun unga fólksins
imuWAUfjia
Glæsibæ — Laugavegi 66. — Austurstræti 22.
Lsugavcgi 20. Sími tré skiptiborOi »5055.
Innilegt þakklæti sendi ég börnum mínum, tengda-
börnum svo og vinum og kunningjum fyrir
heimsóknir og höfðinglegar gjafir á 70 ára afmæli
mínu.
Magnús Magnússon,
Reynihvammi 27, Kópavogi.
Vefnaðarvörulager
Af sérstökum ástæöum er til sölu stór og
góöur lager úr þekktri vefnaöarvöruverzlun í
Reykjavík.
Þar eru meðal annars:
Loðefni, Terylene, buxnaefni, kjóla-
efni, úlpuefni, rennilásar, tvinni, tölur
og fl.
Upplýsingar í síma 14485 á skrifstofu-
tíma.
Bréf til
fyrirtækja
H. -^r í gegnum 02.
iak
Njótið
qóðra
veitinga —
í fögru —)
umhverfi. —
aöi.
3
Starfsmanna-
félög—fyrirtæki j
- stofnanir njj
Viö bjóðum nú hópum fólks í
glæsilegar veitingar í grillinu í
Snorra Goóa garði.
Einnig bendum við á okkar hag-
stæðu sérverð á mánudögum,
þriðjudögum og miðvikudögum.
Gisting í 2ja manna herbergjum. 3
máltíðir fyrir aðeins kr. 39.000.-
fyrir 2.
Látið fagmenn sjó um veit-
ingarnar og þjónustuna í Hótel
Valhöll.
Gerum verðtilboð í hvers
konar veislur og mannfagn- ^"4
Nýbakaðar kökur á
sunnudögum.