Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 22

Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ1980 fltargMiiftffifrft Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 250 kr. eintakiö. Heiður íslands og Ólympíuleikarnir Ef til vill hafa ýmsir verið til þess búnir að sjá í geiínum finjíur við íslenska íþróttamenn ok fallast á það sjónarmið þeirra að til bjarjíar ólympíuhugsjóninni mætti sigla með hálfum seglum til Moskvu. En enginn frjálshuga maður getur samþykkt, að gengið sé til þátttöku í Ólympíuleikunum til dýrðar Kremlvaldinu með því hugarf- ari, sem fram kemur í ummælum Gísla Halldórssonar formanns íslensku ólympíunefndarinnar í Morgunblaðinu í gær. Það er einkennilegt geðslag að finna sig knúinn til að segja, að það þurfi „meira til en innrás í eitt land til að ástæða sé til að hætta þátttöku“ í Olympíuleikunum. Og það er óvirðing við sjálfstæðisbaráttu íslendinga að minnast í sambandi við Moskvuleikana á baráttu okkar fyrir viður- kenningu á eigin þjóðfána. I þeirri ákvörðun aö láta íslenska íþróttamenn ganga undir íslenska fánanum inn á leikana í Moskvu felst yfirlýsing um þjónkun við sovéskt veld. Slík þjónkun er í hróplegri andstöðu við sjálfstæði Islands. Hvers vegna finna íslenskir íþróttafrömuðir sig"knúna til að sýna einvörðungu auðsveipni gagnvart Sovétmönnum? Eru þeir að vonast eftir betri þjónustu í „superfínu“ gúlagi ólympíuþorpsins? Eru þeir að koma sér í mjúkinn hjá KGB í von um að þurfa ekki eins oft að halda skilríkjum sínum á loftí? Ekki þarf að efa, að vel mun fara um fararstjórn og keppendur í plastikmarmarahöllinni, sem sýna á fínheit sovéska kerfisins. Og sérstök ánægja verður fyrir íslensku íþróttafrömuðina að ferðast um götur Moskvu fullvissir um það, að vegna komu þeirra séu tæplega nokkrir innfæddir á ferli fyrir utan lögreglumennina. Þótt innrásin í Afganistan trufli ekki för þeirra, mættu þeir þó minnast þess, að hún var afsökuð með því, að erlendar leyniþjónustur væru að grafa undan stjórnvöldum. I tilefni af Olympíuleikunum hefur það verið brýnt fyrir Moskvubúum, að erlendar leyniþjónustur muni nota leikana til undirróðurs í höfuðborginni. Séu þeir hættulegastir, sem bjóði tyggigúmmí og annað slikkirí. Röksemdin fyrir innrásinni í Afganistan er þannig notuð nú til að réttlæta hernám sovésku valdavélarinnar á sjálfri höfuðborginni og brottflutningi mikils hluta borgarbúa til afskekktra staða. Varla mun þeim úr íslensku sendinefnd- inni, sem dvelst í Moskvu á vegum Novosti, upplýsingastofn- unar KGB, reynast erfitt að lýsa borgarlífinu. En hvað með íslensku ríkisstjórnina? Veit hún ekki, að með því að láta opinbera fulltrúa sína í sendiráði íslands í Moskvu taka þátt í fundum með sovéska ólympíuvaldinu er hún að blanda saman stjórnmálum og íþróttum? íslenskir stjórnmálamenn, þar á meðal utanríkisráðherra, hafa fjálglega forðast Olympíuleikana með það að skálkaskjóli, að þeir hlutist ekki til um íþróttamál. Veit íslenska ríkisstjórn- in ekki, að fulltrúi hennar og hins stranghlutlausa Sviss eru líklega þeir einu úr hópi Vesturlandaþjóða, sem sótt hafa þessa fundi? A sendiherra Islands að vera eini sendimaður vestræns ríkis, sem verður viðstaddur setningu Ólympíuleik- ana? Þessum spurningum verður ríkisstjórnin að svara tafarlaust og gera opinberlega grein fyrir afstöðu sinni til Ólympíuleikanna. Hér er um brýnt utanríkismál að ræða og afstaða íslenskra stjórnvalda til þess skiptir máli bæði út á við og inn á við. Það er óþolandi, að ríkisstjórnin leiki eitthvert laumuspil i þessu máli, er snertir heiður lands og þjóðar. Um það er að ræða, hvort litið er á okkur sem einhverja aftaníossa, eða upprétta menn. Lesendur eru beðnir að ímynda sér þá hræsnisfullu móðursýki, sem væri búin að grípa um sig meðal ákveðinna þjóðfélagshópa, ef í stað Sovétríkjanna væri um Bandaríkin að ræða, þótt þar á milli sé aldrei unnt að setja neitt jafnaðarmerki. Sjaldan hefur almenningsálitinu á Islandi verið sýnd jafn mikil lítilsvirðing og í meðferð íþróttafrömuða og stjórn- valda á þeim málefnum, sem snerta þátttöku í þessum Moskvuleikum. Nú er mælirinn fullur og nóg að gert af hendi þessara aðila. Þjóðin á kröfu til þess að hvorki sendiherra Islands í Moskvu né íslenski fáninn verði notaðir til að bæta gráu ofan á svart. Ronald Funk með konu sinni og dóttur. Systurnar Sigrún og Auður Gunnlaugsdætur ásamt þeim Kristni Bjarna og Sigurði, sem eru í sveit á Geitafelli. Einar G. Þórhallsson Ingólfur Jónasson Unnur Björnsdóttir Malcolm Bolton BöövarJónsson Snagi var ákjósanlegui Bjóst ekki við neinu í líkingu við þetta • „Þetta er ótrúlegt, ég hef aldrei séð svona lagað áðu[“, sagði Mal- colm Bolton frá Skotlandi, er við hittum hann við gosstöðvarnar. „í Skotlandi eru engin eldfjöll, ég veit aðeins um eitt þar, sem er löngu orðið óvirkt. Það er löng og erfið ferð að komast hingað og merkilegast við hana þótti mér að hægt skyldi vera að ganga svona snemma á nýja hrauninu, en ég sé alls ekki eftir því að hafa lagt þetta á mig. Þetta er svo stófeng- legt að maður stendur bara og starir, það er alveg ólýsanlegt að sjá hraunið flæða svona yfir landið eins og stórfljót og mér finnst hávaðinn ótrúlegur, ég hafði alls ekki búizt við að sjá neitt í líkingu við þetta". Stórkost- legt að sjá • „Það hafa orðið miklar breyt- ingar á gosstöðvunum, siðan ég sá þær fyrst á fimmtudagskvöldið," sagði Ingólfur Jónasson úr Mý- vatnssveit. „Á fimmtudaginn gaus á fteiri stöðum og minnst þar, sem mesta virknin er nú. Það var alveg stórkostlegt að sjá um helgina, þegar hraunstraumurinn rann til vesturs og braut sér leið undir hraun sem runnið hafði í upphafi gossins, með ótrúlegum látum og hávaða. Þá sá ég einnig er hraunið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.