Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 32

Morgunblaðið - 17.07.1980, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 1980 Vel heppnað fjóróungsmót Eins ok áður hefur komið fram var fjórðuniesmót hestamanna á Vesturlandi haldió dat;ana 3.-6. júli sl. Var mótiö haldiö á nýlegu félagssvæöi Snæfellinxs. Kaldár- melum. Eftir mótið rómuóu menn mjoK þennan staó ok sOkóu um hann eins otj saKt var um mörK kynbótahrossin á sýninKunni, aö staðurinn væri efnileKur þ.e. að aóstaöan væri k«')Óí frá náttúrunnar hendi. en ýmisleKt þyrfti aö Kera til að Kera hann veruleKa KÓÖan s.s. að Kræöa upp melinn. hata húsakost . o.fl. Vollurinn sjálfur var ekki nóKU KÓöur cn hann á OruKKleKa eftir aö batna ok veröa töluvcrt KÓður ef vel vcrður huKsaö um hann. Ahorfendastæöin eru nánast fráhær. en þar hefur mannshendin ekki komiö nálæKt. þvi þau eru mynduö af hraunkanti. snarhrött- um. en meö KÓÖum stöllum. Þessi hraunkantur er kjarri vaxinn. þannÍK aö þarna er vel skjólKott. eða eins ok einhvcr saKÖi: „I>að besta viö þessi stæöi er kjarrið. því ef menn Kerast ofdrukknir ok loKnast út af i kjarrinu þaö hrein- ieKa hverfa þeir.“ Tjaldstæði voru ákafleKa dreifð, þannig að óvanalega lítið bar á hávaða og látum á nóttunni, einnig bar greinilega minna á ölvun en gerist og gengur á mótum sem þessum. Bera ummæli lögreglunnar þess greinilega vitni, aö hjá þeim var lítið um að vera. Veður var eins hagstætt eins og best verður á kosið flesta daga mótsins. Greinilegt var að fólki leið vel þessa daga sem mótið stóð yfir, bæði áhorfendur jafnt sem keppend- ur. Framfarir kynbótahrossa Mikil gróska virðist nú vera í kynbótastarfinu á Vesturlandi og er greinilegt að Vestlendingar hafa tekið sig saman í andlitinu í þeim efnum frá síðasta fjórðungsmóti í þessum landshluta. Aðspurður kvað Þorkell Bjarna- son hrossaræktarráðunautur að kynbótasýningin á Kaldármelum væri betri hvað við kæmi stóðhest- um, samanborið við fjórðungsmótið á Vindheimamelum í fyrra. Stóð- hestarnir voru bæði fleiri og betri nú en í fyrra. Af afkvæmasýndum hestum stóð efstur Ófeigur 818 frá Hvanneyri, en Ófeigur stóð efstur á landsmóti 1974 í flokki 6 vetra hesta og eldri ásamt Hrafni 802 frá Holtsmúla. Nú er búið að afkvæmasýna þá báða og í framhaldi af því var Þorkell spurður að því hvorn hann teldi koma betur út við afkvæmadóm, þar sem ekki er óeðlilegt að bera þessa tvo hesta saman. Kvað Þorkell hestana nokk- uð jafna enn sem áður, en þó hefði Ófeigur vinninginn ef einhver mun- ur væri. Aðrir hestar sem voru afkvæma- greindir voru: Bægifótur 840 frr Gullberastöðum með 7.89 stig og II verðlaun. Náttfari 817 frá Innri- Skeljabrekku mð 7.78 stig og II. verðlaun. Fróði 839 frá Hesti með 7.71 stig og II. verðlaun. Óvenju margar hryssur voru af- kvæmasýndar eða 8 alls og hlaut ein þeirra, Þota 3201 frá Innra-Leiti, 8.15 stig og I. heiðursverðlaun. I dómsorði hennar segir m.a. „Þota 3201 er 20 vetra og hefur eignast 14 afkvæmi sem flest hafa komist upp. Er það óvenju myndarleg frammi- staða og mikil frjósemi." Aðrar hryssur er voru afkvæmasýndar eru: Jörp 3581 frá Hoftúnum með 7.84 og I. verðlaun, Iða 3608 frá Skelja- brekku með 7.83 stig og II. verðlaun, Sóta 4859 frá Hallkelsstaðahlíð með 7.82 stig og II. verðlaun, Brynka 4884 frá Samtíni 7,80 stig og II verðlaun, Snælda 3578 frá Stakkhamri með 7.79 stig og II. verðlaun, Ösp 4852 frá Akranesi með 7.74 stig og II verð- laun og Ljónslöpp 3193 frá Beigalda með 7.65 stig og II. verðlaun. Alls voru sýndir og dæmdir 17 stóðhestar sem einstaklingar. Skipt- ust þannig í aldursfiokka: 6 vetra og eldri voru 7, í 5 vetra flokki voru 6 og í 4 vetra flokki voru þeir 4. Alls voru sýndar 63 hryssur sem einstaklingar og skiptust þær þannig milli aldurs- flokka: 6 vetra og eldri 44, í 5 vetra flokki voru þær 14 og 4 vetra hryssur voru 5. Aðeins 1 stóðhestur hlaut I. verð- laun sem einstaklingur, en hryssurn- ar voru aftur á móti 10 sem fengu I. verðlaun og þar af ein 5 vetra hryssa. Efstur af 6 vetra stóðhestum og eldri varð Gáski 915 frá Gullbera- stöðum, með einkunn 8.07 stig, annar varð Gustur 923 frá Sauðár- króki með 7.92 stig og þriðji Kveikur frá Nýja-Bæ einnig með 7.92 stig. Af 5 vetra stóðhestum var efstur Fífill 947 frá Flatey, hlaut hann í einkunn 7.94 stig, annar varð Funi 944 frá Stykkishólmi með 7.93 stig og þriðji Fjölnir 941 frá Sigmundar- stöðum með 7.91 stig. Af 4 vetra hestum varð efstur Stjarni frá Húsafelli með 7.79 stig, annar Freyr frá Blönduhlíð með 7.62 stig og þriðji Hrafn frá Kolkuósi, hlaut hann 7.56 stig. Af hryssum 6 vetra og eldri varð efst Sunna 4631 frá Fráskrúðar- bakka með 8.16, önnur Drottning 4270 frá Laxholti með 8.14 stig og þri'ðja varð Snörp 4907 með 8.11 stig. Hlutskörpust af 5 vetra hryssum varð Löpp 4848 frá Kirkjubæ með 8.00 stig, önnur Rjúpa 4881 frá Steðja með 7.94 stig og þriðja Dúkka 4918 frá Borg með 7.90. Af 4 vetra hryssum varð efst Dögg 4876 frá Gullberastöðum með 7.87 stig og í öðru sæti Táta 4937 frá Heydalsá með 7.83 stig og þriðja sætið skipaði Rjóð 4940 frá Smá- hömrum með 7.71 stig. Óhætt er að segja að Ófeigur 818 hafi verið hestur mótsins, því auk þess að fá góða dóma fyrir afkvæmi þá voru 13 kynbótahross sýnd undan honum sem einstaklingar og einnig má geta þess að efsti hestur í A-flokki gæðinga á mótinu var undan Ófeigi. Þegar svo Ófeigur var sýndur með afkvæmum, þá vakti það athygli hversu vel klárinn sjálfur komst frá sýningunni og er það mál manna að ekkert afkvæmanna hafi staðið hon- um snúning í sýningunni. Einnig er vert að minnast á Þotu 3201 frá Innra-Leiti, afkvæmi hennar vöktu athygli fyrir mikla fjölhæfni og getu, enda fær hún I. fieiðursverð- laun. Betri útkoma alhliða gæðinga Yfirleitt hafa B-flokks hestar, Iiragi Ásgeirs.son hefur hér nýlokiö við að afhenda fljótustu vekringunum verðlaun er þeir hlutu. Þeir eru frá vinstri: Funi og Gunnar Arnarsson, Frami og Erling Sigurðsson og þá sigurvegarinn Þór og Sigurðu”. Sæmundsson. klárhestar með tölti, hærri einkunn en A-flokks hestar á stærri mótum sem minni. Þessu var nú öðruvísi farið nú, því alhliða gæðingarnir voru töluvert hærri heldur en klár- hestarnir. Eftir forkeppni í A-flokki varð efstur Hrafn Jóns Árnasonar, knapi Reynir Aðalsteinsson með 8.75, ann- ar varð Ljúfur frá Samtúni, eigandi og knapi Jón Sigurðsson, Skipanesi, hann hlaut í einkunn 8.64 og þriðji var svo Valsi Gunnars Gunnarsson- ar, knapi Benedikt Þorbjörnsson með 8.38 í einkunn. Síðan var haldin úrslitakeppni á sunnudag eða endur- röðun, en hún breytti litlu um röð átta efstu hestanna sem tóku þátt í því. Það vekur athygli að allir þrír efstu hestarnir kepptu fyrir hönd Dreyra á mótinu. í B-flokki stóð efstur Erill Jónu Heslar Dísar Bragadóttur með Ragnar Hinriksson sem knapa og 8.37 í einkunn, annar varð Kópur eigandi og knapi Gísii Gíslason, Hofsstöðum með 8.33 í einkunn. Báðir þessir hestar kepptu fyrir hönd Faxa. í þriðja sæti varð svo Dreyrarhestur- inn Glampi, eigandi og knapi Jón Sigurðsson, Skipanesi með 8.32 L einkunn. Segja má að þeir hjá Dreyra hafi átt gæðingakeppnina eins og sagt er í fótboltanum. Því allir þeir hestar er sýndir voru á þeirra vegum komust í úrslit í báðum flokkum, en átta hestar fara í úrslit í hvorum flokki. Einnig komu Faxamenn vel út í B-flokki. Unglinga vantaði í skrá Samkvæmt auglýstri dagskrá átti að vera unglingakeppni, en þegar mótskráin var skoðuð var enginn unglingur á skrá þar. Einhverra hluta vegna hefur gleymst eða ekki verið hægt að skrá unglingana í skrána. En samt sem áður var nú haldin unglingakeppni kl. 10.00 á laugardag og átti hún að standa til kl. 12.15, en það fór allt úr skorðum, því þetta tók töluvert lengri tíma en reiknað hafði verið með. En eigi að síður tókst nú að ljúka unglinga- keppninni, og þar sigraði í eldri flokki Eyjólfur Gíslason, sem keppti fyrir Faxa með 8.50 í einkunn, önnur varð Elín Rósa Bjarnadóttir, sem keppti fyrir Kinnskæ m. 8.36 í þriðja sæti Kristín Ármannsdóttir Dreyra með 8.14. I yngri flokki sigraði Jóhann Ágústsson, sem keppti fyrir Faxa og fékk hann 8.36 í einkunn, annar varð Guðmundur Bæringsson, Snæfelling með 8.28 í einkunn og þriðja sætið skipaði Ásgeir Guð- mundsson, Snæfelling með 8.17. Knapaverðlaun Félags Tamn- ingamanna hlaut að þessu sinni Óíeigur 818 frá Hvanneyri kom vel út úr afkvæmadómi. Ilér sést hann (lengst til hægri) ásamt afkvæmum. ■ ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.