Morgunblaðið - 23.07.1980, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR
163. tbl. 67. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Brezkir þingmenn:
Takmarka launa-
hækkanir sínar
Lundúnum. 22. júli — AP.
BREZKIR þingmenn sam-
þykktu í morgun að tak-
marka launahækkanir sín-
ar í ár við 9.5%. í atkvæða-
Afganistan:
Sovéskar hersveit-
ir umkringdar
Islamabad. 22. júli — AP.
FRELSISSVEITIR Afgana hafk
umkringt sovéskar og afxanskar
hersveitir i Heimunddai i Kandhar-
héraði. Bardagar hafa geisað á
svæðinu i rúma viku. Að sogn
frelsissveitanna hafa 50 sovéskir
hermenn og stjórnarhermenn fall-
ið. Auk þess hefur hermönnum
frelsissveitanna tekist að eyði-
leKgja nokkurt magn hernaKna.
þar á meðal nokkra skriðdreka.
Þá réðust frelsissveitir á flugvöll-
inn í Jalalabad í Nangaraharhéraði
á sunnudag. Þrjár þyrlur voru eyði-
lagðar og sex skriðdrekar. Öryggis-
gæzla var hert við alla helstu
flugvelli Iandsins í kjölfar árásar-
innar á flugvöllinn í Jalalabad.
Sovétmenn svöruðu árásinni með því
að leita í húsum í nágrenninu og að
sögn fundu þeir vopn og skotfæri.
greiðslu í brezka þinginu
var yfirgnæfandi meiri-
hluti þingmanna sam-
þykkur takmorkun launa-
hækkana. — 231 greiddu
tillögunni atkvæði en 137
voru á móti. Með þessu
vilja þingmenn sýna vilja
sinn í verki í baráttunni
við verðbólguna og vax-
andi efnahagsvanda lands-
ins.
I tölum sem birtar voru í
Lundúnum í dag eru 1.9 milljón
Breta atvinnulausir, eða 7,8%
vinnufærra manna. Verðbólgan
stefnir í 21% á árinu. Brezkir
þingmenn eru meðal hinna lægst-
launuðu í hinum vestræna heimi.
Ráðherrar í stjórn Margrétar
Thathcer, forsætisráðherra, fá
enn minni launahækkanir í ár en
þingmenn, — eða 5%. Hvort
brezkur almenningur vill fylgja
þingmönnum sínum og takmarka
launakröfur sínar skal ósagt látið
en námamenn hafa farið fram á
35% launahækkanir og samtök
iðnaðarins segja að launahækkan-
ir í samningum undanfarið séu að
meðaltali 17 til 21%.
Thorn fer í friðar-
ferð á vegum EBE
Brussels, 22. júlí — AP.
EFNAHAGSBANDALAG Evrópu
mun gera út af örkinni sérstaka
nefnd til Miðausturlanda til að
freista þess að finna lausn á deilu
ísraels og Araba. Gaston Thorn.
utanríkisráðherra Luxembourg
og formaður utanrikisráðherra-
nefndar bandalagsins mun verða i
forsæti nefndarinnar. Skýrt var
tekið fram i Brussel að Banda-
rikjamenn yrðu látnir vita um
framvindu mála í ferð Thorns.
Gaston Thorn mun ræða við
leiðtoga Israels og Arabaríkja og
hann mun skýra kollegum sínum
frá niðurstöðum ferðar sinnar á
utanríkisráðherrafundi EBE í
september. Ekki var skýrt frá því
hvaða lönd Thorn mun heimsækja
en heimildir í Brussels segja að
hann muni fara til ísraels, Egypta-
lands, Sýrlands, Líbanons, Ku-
waits, Jórdaníu, íraks og Saudi-
Arabíu auk þess að hann mun ræða
við leiðtoga palestínumanna, vænt-
anlega Yasser Arafat.
Palestínumálið var til umræðu í
Allherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna í gærkvöldi. Búist er við, að
tillaga verði samþykkt um myndun
palestínsks ríkis á herteknu svæð-
unum.
mm íúa'w-1*
Friðunarsinnar hafa haft sig talsvert i frammi i Brighton og hvatt til algers banns við hvalveiðum undir
kjörorðinu, „Bjargið hvölunum.“ simamynd ap.
Fleiri ríki hlynnt
hvalveiðum en áður
Briiíhton, 22. júli. AP.
TILLAGA UM bann við iðnaðar hval-
veiðum á heimshöfunum var í dag felld í
alþjóðahvalveiðiráðinu. Þrettán þjóðir
voru fylgjandi banni, — Argentína,
Austurríki, Bretland, Danmörk, Frakk-
land, Mexikó, Holland, Nýja Sjáland,
Oman, Seychelleseyjar, Svíþjóð, Sviss og
Bandaríkin. Níu þjóðir greiddu atkvæði
gegn allsherjar hvalv°iðibanni, — Kan-
ada, Chile, ísland, Japan, S-Kórea, Perú,
S-Afríka, Spánn og Sovétríkin. Tvö ríki
sátu hjá, Brazilía og Noregur. Tækni-
nefndin mælti með allsherjar banni, þar
greiddu 14 atkvæði með banni en 9 voru
á móti. % hluta atkvæða þurfti til að
samþykkja bannið.
Þórður Ásgeirsson, formaður
Alþjóðahvalveiðiráðsins sagði í
gærkvöldi í samtali við blaða-
mann Mbl. að fleiri ríki hefðu nú
greitt atkvæði með hvalveiðum en
áður. Þannig hefðu Kanada og
S-Afríka greitt atkvæði með
áframhaldandi hvalveiðum en þau
sátu hjá síðast þegar gengið var
til atkvæða um bann við hvalveið-
um.
„Fleiri ríki eru okkur sam-
mála um, að stunda beri hvalveið-
ar og að skynsamleg nýting hvala-
stofna sé eðlileg og rétt,“ sagði
Þórður Ásgeirsson.
Svíar lögðu fram málamiðlun-
artillögu þar sem gert var ráð
fyrir því að bann yrði samþykkt
en það tæki ekki gildi fyrr en að
tveimur árum liðnum. Sú tillaga
náði ekki fram að ganga. Richard
Frank, formaður bandarísku
nefndarinnar sagði að úrslit hefðu
orðið eins og hann bjóst við. Hann
sagði, að friðunarsinnar þyrftu
tvö ár til viðbótar til að ná fram
allsherjar hvalveiðibanni.
Þá mistókst að ná samkomulagi
um hvalveiðar eskimóa í Alaska.
Bandaríkjamenn lögðu til að þeir
fengju að veiða 18 hvali og færa þá
að landi. Bandaríkjamenn segja.
að veiðar eskimóa séu ekki iðnað-
arveiðar, heldur sé hér um að
ræða menningarlega arfleifð. Vís-
indamenn segja að stofninn sé í
mikilli hættu. Richard Frank
sagði við blaðamenn, að ef ekki
næðist samkomulag um veiðar
eskimóa myndu Bandaríkjamenn
grípa til einhliða ráðstafana og
úthluta eskimóum veiðikvóta.
Dimmviðri í Kanada haml-
aði áætlaðri för svifdrekans
Baie Comeau, Kanada, 22. júlí. AP.
KALIFORNÍUBÚINN Joseph Whitmore varð að lenda svifdreka
sínum í útjaðri Baie Comeau, litlum bæ norðaustur af Quebec
vegna dimmviðris, tæplega 100 kilómetra frá ákvörðunarstað
sinum. Whitmore ætlar að freista þess, að svífa i svifdreka sinum
yfir Atiantshafið til Parisar. Hann hyggur á viðkomu i Reykjavík.
Whitmore lagði upp frá Montmagny i dag, og komst hann tæpa 400
kilómetra.
Þegar hann lenti í útjaðri Baie
Comeau tók kanadíska riddara-
lögreglan hann fastan en honum
var sleppt þremur klukkustund-
um síðar. Ekki var alveg ljóst af
hverju Whitmore var tekinn
fastur en svo virðist vera, sem
það hafi verið í tengslum við
tollskoðun í Montmagny, þaðan
sem hann lagði upp. Þá mun
samgönguráðuneytið kanadíska
eitthvað hafa að athuga við
hreyfil þann, sem knýr svifdreka
Whitmores, sem virtist þreyttur
þegar hann fór út úr lögreglu-
stöðinni í dag. Svifdreki Whit-
mores er knúinn hreyfli og hann
getur náð mest 88 kílómetra
hraða á klukkustund. Þegar
vindar eru hagstæðir lætur
Whitmore svifdreka sinn svífa.
Joseph Whithmore á svifdreka sinum skömmu eftir brottförina frá
Montmagny. sim»mynd ap.
Hitabylgjan:
Fórnarlömb
nú yfir 1200
New York. 22. júlí - AP
JIMMY Carter, forseti Bandarikj-
anna hét bændum í dag i Texas
aðstoð rikisins vegna hitabylgjunn-
ar, sem gengið hefur yfir suður-
hluta Bandaríkjanna. Þegar er séð
fram á stórfelldan uppskerubrest i
Texas vegna þurrka. Nokkuð
rigndi i Texas i dag en hvergi nærri
nóg. Carter hvatti stjórnarstofnan-
ir til þess að gera allt í þeirra valdi
til að draga úr áhrifum hitabylgj-
unnar. Þá sagðist Carter ætla að
biðja i bænum sinum um regn og
svalara veður.
Hitabylgjan hefur þokast til
norð-austurhéraða landsins. Þannig
mældist hiti í New York í dag 39
stig, sem er nýtt met. Borgaryfirvöld
hafa gert ráðstafanir til þess, að
takmarka vatnsneyslu borgarbúa. í
gær rigndi í Missisippi. Um 100
manns urðu að yfirgefa heimili sín
vegna flóða. Hiti iækkaði nokkuð í
Arkansas og Missouri en náði há-
marki í Oregon. Veðurfræðingar spá
því, að hiti fari hækkandi síðar í
vikunni. Að minnsta kosti 1211 hafa
látist í 23 ríkjum vegna hitabylgj-
unnar.