Morgunblaðið - 23.07.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1980 3
Framkvæmdir hefjast við
sundlaug fyrir hreyfihamlaða
FYRSTA .skóflustungan að sundlauKarbyggingu við Grensásdeild
Borgarspítalans var tekin kl. 14 i gær. I>að gerði Ágústa
Guðmundsdóttir. 17 ára stúlka sem nýlega slasaðist í bílslysi og er
i meðferð á endurhæfingardeildinni.
Albert Guðmundsson. Eggert G. Þorsteinsson og Magnús Kjart-
ansson voru viðstaddir þegar fyrsta skóflustungan var tekin. Þeir
hafa allir unnið að þessu máli.
Dr. Ásgeir B. Ellertsson yfir-
læknir, hélt ræðu þar sem hann
þakkaði öllum sem lagt hafa mál-
inu lið og fagnaði þvi að hafist
hefði verið handa við þetta verk.
Sérstaklega vildi hann þakka
Magnúsi Kjartanssyni, fyrrver-
andi ráðherra, fyrir hans hlut, en
tók fram að fjölmargir aðrir hefðu
lagt hönd á plóginn.
Að athöfninni lokinni afhenti
Magnús Kjartansson Ásgeiri B.
Ellertssyni gjafabréf frá Guð-
mundi Kr. Guðmundssyni skrif-
stofustjóra, sem er látinn fyrir
skömmu. í bréfinu voru 570 þús.
kr. í verðtryggðum spariskirtein-
um frá ’74 og ’78. Guðmundur
dvaldi á Grensásdeildinni síðustu
árin og hafði mikinn áhuga á að
þessari sundlaug yrði komið upp.
Dr. Ásgeir B. Ellertsson hélt
stutta ræðu þar sem hann þakkaði
þessa höfðinglegu gjöf og gat þess
jafnframt að mikið hefði verið um
að gjafir hefðu borist til þessa
verkefnis. Gefendur hefðu verið á
öllum aldri, allt frá börnum uppí
roskið fólk. Til dæmis hefði eldri
kona úr Borgarfirði, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, nýlega gefið
háa fjárupphæð. Ættingjar henn-
ar vildu að hún notaði þessa
peninga í sólarlandaferð en gamla
konan áleit að fénu væri betur
varið á þennan hátt.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi stuttlega við dr. Ásgeir B.
Ellertsson, yfirlækni á Endurhæf-
ingardeild Borgarspítalans í
Grensási og sagði hann m.a.:
„Endurhæfingardeildin tók til
starfa 1973. Þá var strax ljóst að
mikil þörf var á endurhæfingar-
sundlaug þar sem hægt væri að
sinna læknisfræðilegri endurhæf-
ingu.
Það var svo Albert Guðmundson
sem fyrstur bar fram tillögu um
málið í borgarráði og samþykkt í
borgarráð viljayfirlýsingu um það
árið 1976. Á sama ári báru fjórir
þingmenn úr öllum flokkum fram
tillögu á alþingi um málið, þeir:
Eggert G. Þorsteinsson, Einar
Ágústsson, Jóhann Hafstein og
Magnús Kjartansson. Þingsálykt-
un um að sundlaugin yröi byggð
var samþykkt 1977 og gerð áætlun
um kostnað við verkið. Ákveðið var
að Framkvæmdadeild Innkaupa-
stofnunar ríkisins sæi um bygging-
una og greiddi ríkið 85% en borgin
15%. Hönnun var lokið í desember
1979 og verkið boðið út á þessu ári.
Tilboð bárust frá átta aðilum.
Lægsta tilboðið var frá Sigurði og
Júlíusi, kr. 355.759.574.- og var því
tekið 16. júlí sl. í tilboðinu felst að
húsinu verði skilað fokheldu með
gleri og frágenginni lóð. Þessum
fyrsta áfanga á að vera lokið 1. okt.
1981 og standa vonir til að næsta
áfanga verði hægt að bjóða út á
miöju næsta ári, — það ætti vel við
þvi það er ár hins lamaða og
fatlaða manns.
Fyrir okkur sem fáumst við
endurhæfingu er þessi sundlaug
jafn nauðsynleg og skurðstofa
fyrir skurðlækni. Þeir sem eiga við
hreyfihömlun að stríða geta í
mörgum tilfellum hreyft ýmsa limi
í vatni sem þeir geta ómögulega
hreyft undir öðrum kringumstæð-
um. Sundlaugin flýtir þannig mjög
fyrir endurhæfingu, — styttir
endurhæfingartímann og þannig
þær þjáningar sem sjúklingurinn
verður fyrir. Sundlaugin mun
einnig spara þjóðinni fé, — endur-
hæfing mun taka styttri tíma eftir
að hún er komin og fólk mun fyrr
komast út af sjúkrahúsinu. Þannig
munu fleiri komast hér að en áður.
Þessi sundlaug er fyrst og
fremst ætluð sjúklingunum hér en
einnig öllum hreyfihömluðum
sjúklingum í Reykjavík. Þeim
verður ekið hingað frá hinum
sjúkrahúsunum eða koma sem
göngusjúklingar.
Við höfum áhuga á að við hliðina
á sundlaugarbyggingunni verði
komið upp útivelli þar sem hreyfi-
hamlaðir gætu stundað iþróttir.
Það bíður þó síns tíma og sund-
laugin leysir brýnasta vandann.
Nú er okkur efst í huga þakklæti
til þeirra sem unnið hafa að því að
þessar framkvæmdir geta hafist."
Albert Guðmundsson sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær, að
eftir að hann hafi flutt tillögu um
byggingu sundlaugarinnar í borg-
arráði hafi borgarstjórnarflokkur
sjálfstæðismanna flutt tillögu um
að hafizt skyldi handa við bygg-
ingu sundlaugarinnar. Var hún
samþykkt. Það ásamt þingsálykt-
unartillögunni hafi vakið málið og
orðið til þess að frumkönnun fór
fram og gerðar voru kostnaðar-
áætlanir um málið.
Ágústa Guðmundsdóttir tók fyrstu skóflustunguna að sundlaugar-
byggingunni. Til hliðar við hana stendur dr. Ásgeir B. EUertsson,
yfirlæknir.
Margeir varð
í 2.-3. sæti
ALÞJÓÐA skákmótinu í New
York er lokið og hafnaði Margeir
Pétursson i 2—3 sæti ásamt
stórmeistaranum Benkö með átta
og hálfan vinning. Sigurvegari
varð Bandaríkjamaðurinn Wat-
son með átta og hálfan vinning.
—Ég tefldi við Watson í síðustu
umferðinni og varð að sætta mig
við jafntefli, sagði Margeir í
samtali við Mbl. í gær. Watson er
mikill sérfræðingur í byrjunum þó
hann hafi ekki teflt mikið og hann
tefldi eitthvað heimabrugg sem ég
þurfti langan tíma til þess að átta
mig á. Ég fékk betri stöðu en lenti
í tímahraki og jafntefli var samið.
Þátttakendur í mótinu voru 60
að tölu, þar af þrír stórmeistarar,
Benkö, Alburt og Dzindzindhasvili
og fjórir alþjóðlegir meistarar.
Jóhann Hjartarson, íslandsmeist-
arinn ungi gerði jafntefli í síðustu
umferðinni og hlaut sex og hálfan
vinning og vantaði aðeins hálfan
vinning í áfanga að titli alþjóðlegs
meistara. Árni Árnason vann sina
skák og hlaut fjóra vinninga, sem
er góður árangur hjá svo ungum
skákmanni.
Rannsókn Svifflugslyssins:
Flugan spannst
til jarðar
LOFTFERÐAEFTIRLITIÐ vinnur
nú að rannsókn svifflugslyssins á
Sandskeiði á mánudagskvöldið og
leitar orsakanna fyrir slysinu.
Ungi maðurinn, sem flaug svifflug-
unni gekk undir aðgerð á Borg-
arspitalanum i gær. Hann er mikið
slasaður eins og fram kom í Mbl. i
gær en ekki talinn i lifshættu. Var
líðan hans eftir atvikum góð, sam-
kvæmt þvi sem hlaðið fregnaði i
gær.
Skúli Jón Sigurðsson hjá Loft-
ferðaeftirlitinu tjáði Mbl. í gær að
ekki væri hægt að fullyrða neitt um
orsakir slyssins, þar sem ekki væri
búið að ræða við flugmanninn. Þó
virtist líklegt, samkvæmt frásögn-
um sjónarvotta, að flugan hafi farið
inn í spinn og hún spunnið til
jarðar. Spinn er það kallað er annar
vængurinn ofrís en hinn flýgur.
Skrúfast flugan þá til jarðar í
kröppum beygjum. Ekkert hefur
komið fram við rannsóknina, sem
bendir til bilunar í vélinni. Að sögn
sjónarvotta var flugan í 200—250
metra hæð þegar hún byrjaði að
spinna og tókst flugmanninum ekki
að rétta hana við á leiðinni niður.
Flugmaðurinn er vanur svifflugum
en hafði aldrei áður flogið þessari
flugu.
roðnar af stolti
HEMPECs
þakmálning
þegarhannlíturnidurá HEMPEEs
þökin og sér hve fallegum Hæbrigöum
mánáúrlitumhans
Nú eru tyrirliggjandi 14 gullfallegir litir af HEMPEL’S þakmálningu.
Um gæði HEMPEL'S þakmálningar þarf ekki að efast.
HEMPEL’S er einn stærsti framleiðandi skipamálningar i heiminum.
Seltan og umhleypingarnir hér eru þvl engin vandamál fyrir sérfræðinga
HEMPEL’S MARINE PAINTS.
Framleiðandi á Islandi
Slippfélagið íReykjavík hf
Málningarverksmiðjan Dugguvogi—Simar 33433 og 33414