Morgunblaðið - 23.07.1980, Page 22

Morgunblaðið - 23.07.1980, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. JÚLÍ 1980 Minning: Ingi Garðar Einars- son húsgagnasmiður Fæddur 10. scptember 1952. Dáinn 13. júlí 1980. „Dáinn. hnrfinn’" — llnmafrrKn! Ilvillkt orð mÍK dynur yfir! Kn pk vrit. nA látinn lifir. l*aA rr huKKun harmi Krxn. (JH.) Mannsævin líkist að mörgu leyti hringrás náttúrunnar, eins og hún birtist okkur í sífelldri endurtekn- ingu. — Vorið, með hækkandi sól, byrjandi gróðri og vaxandi hlýju, minnir okkur á bernsku mannsins og æskuár. Sumarið, þegar sól er hæst á lofti og allur jarðargróði í mestum blóma, sýnir okkur full- orðinsárin, starfsárin. Síðan haustar að, bæði í reglubundinni hringrás náttúrunnar, sem í mannsævinni, og að því búnu koma endalokin í mynd vetrar- kulda og myrkurs, sem er algjör andstaða sumarsins, og dauðinn leggur líknandi hönd yfir allt, sem lífi lifir og það hverfur aftur þangað sem það kom. Þetta er eðlilegur gangur lífsins, og þar er raunar ekkert til að hryggjast yfir, samt er ekkert óeðlilegt að líta með söknuði til horfins sumars, þegar haústar að. Síst er ástæða til að hryggjast yfir eðli- legum endalokum fyrir þá, sem hafa æðra markmið að lifa fyrir en líðandi stund eða heimsins glaum, þá, sem trúa því og vita, að lífið heldur áfram, þó því virðist Ijúka. Það hverfur aftur til upp- hafs síns, til þess, sem skóp það. Þetta er sá eðlilegi gangur lífsins, en það gengur ekki alltaf sinn vanagang. Það geta komið vorhret eða rigningarsumur, það er alltaf hagalegt, en ekki óbætanlegt. — En þegar sól er hæst á lofti og skín í heiði og allt leikur í lyndi, og skyndilega dregur svo dimmt ský fyrir hana, að því er líkast að vetrarmyrkrið grúfi yfir og kulda- næðingur leiki um mann, þá finnur maður að voði er á ferðum, eðlileg framrás náttúrunnar hefur rofnað. Svo snögglega getur sól brugðið sumri, og hefur þegar gert það, að maður sér fyrst í stað ekkert nema myrkur, trúir ekki því, sem maður heyrir. Svo ægi- legar eru fréttirnar, að maður vill ekki trúa þeim, getur ekki trúað, fyrr en maður tekur á. Þannig varð okkur mörgum við, sem til þekktum, þegar við fréttum hið hryggilega andlát Inga Garðars Einarssonar sunnudagsmorgun- inn 13. júlí sl., en hann hafði látist af slysförum þá um nóttina. Að svo ungur og glæstur maður í blóma lífsins, skuli vera hrifinn brott frá miðju ævistarfi, það er þyngra en tárum taki, það er líkast því, að sólin hafi misst birtu sína. — En þegar mesti sársauk- inn er liðinn hjá og maður fer að athuga hlutina betur, þá kemur í Ijós að það fór ekki illa á því, að Ingi félli í valinn, meðan hann enn var í fuilu fjöri og raunverulega í miðri önn dagsins. Hann hafði alla ævi verið óvenjulega starf- samur, nánast aldrei fallið verk úr hendi. Þennan síðasta dag, sem hann lifði, hafði hann unnið meir en flesta aðra daga. Hann var að hamast við að endurbæta sumar- bústaðinn, sem hann hafði sjálfur byggt, og þar ætluðu þau að dveljast yfir helgina, fjölskyldan, Dagný, Ingi og Davíð litli. Góðir gestir, sem voru í heimsókn, hjálp- uðu honum við verkið, svo mikið var kappið. — Og ef maður lítur yfir ævidag Inga, þó ekki sé hann svo mjög langur í árum talið, þá er það með ólíkindum, hverju hann afkastaði á ekki lengri ævi, enda var hann með afbrigðum starf- sarnur og lifandi og áhugasamur í öllum athöfnum. Hann lifði lífinu af alefli, notaði hverja stund og eyddi engum tíma til ónýtis. Og þegar ævireikningur hans verður gerður upp, þá trúi ég að í ljós komi að hann hafi afkastað meiru á tæpum 28 árum, en margur sá, sem lifað hefur tvöfalt eða þrefalt lengur í árum talið. Ingi Garðar fæddist 10. sept- ember 1952, á æskuheimili sínu, Hofteigi 26, sonur hjónanna Stein- unnar Sigurgeirsdóttur og Einars Helgasonar, bókbindara. Hann var yngstur þriggja bræðra, en eldri bræðurnir eru Ragnar Gylfi, bókbindari og Helgi Rúnar, kenn- ari. Þarna lifði hann fyrstu árin í faðmi fjölskyldunnar, sem var óvenju samheldin, þar sem gest- risnin ríkti og glaðværð og hjálp- semi voru einkennandi eiginleikar. Það voru líka stórar fjölskyldur, sem stóðu að þeim báðum, foreldr- um hans. Allt var þetta fólk frændrækið og hélt vel saman. Þar var siður að allir sem áttu þess kost, kæmu saman hvenær sem tilefni gafst. Það var því oft fjölmennt og gestkvæmt á æsku- heimili Inga, og alltaf glatt á hjalla. Þegar bræðurnir fóru að vaxa úr grasi, var flutt í stærra húsnæði að Skeiðarvogi 5, og eftir að tengdadæturnar og barnabörn- in komu til sögunnar, þá áttu þau öll sitt annað heimili þar, svo rík var samheldnin. — Ingi var snemma handlaginn, eins og hann átti kyn til, og að loknu námi í verknámsdeild Ármúlaskóla, var hann ákveðinn í að taka fyrir iðnnám. Svo fjölbreytt voru áhugamálin, að hann gat vel hugsað sér að velja milli nokkurra iðngreina, þó að trésmíðar stæðu hjarta hans næst. Þá, eins og oft endranær, var ekki auðvelt að komast að í því námi, og varð nokkur dráttur á, að það hæfist. Þann tíma vann hann við ýmis- legt, sem til féll, en vinnusemin varð fljótt áberandi í fari hans, og sjálfsbjargarhvötin, að komast áfram og sjá sér farborða. — Atvikin höguðu því svo, að hann hóf nám í húsgagnasmíði, þegar Bragi Eggertsson, gamall vinur fjölskyldunnr, bauð honum náms- samning. Að námi loknu, vann hann áfram á verkstæðinu hjá Braga, og varð fljótt liðtækur og eftirsóttur smiður. Hann stofnaði síðan eigið húsgagnaverkstæði ár- ið 1977, ásamt vini sínum, og unnu þeir þar saman, þar til þeir hættu rekstrinum 1979. Mun þar bæði hafa ráðið vaxandi erfiðleikar í rekstri slíkra fyrirtækja, og einnig hitt, að Ingi kærði sig ekki um að verða mosavaxinn á neinum stað, hann vildi reyna fleira og breyta til. Hann hafði m.a. hug á að vinna um tíma á skipi, en það tókst ekki. Hann tók þá til starfa á trésmíða- deild SIS, og vann þar til dauða- dags. Þar með er talið ævistarfið, en það er ekki nema lítið brot af allri athafnasemi hans. Þessi saga verður samt ekki rakin lengur, án þess að nefna Dagnýju í sömu andránni og Inga. Svo nátengd voru þau hvort öðru, svo óaðskilj- anlegt var samband þeirra, svo samtvinnuð voru þau I hugum annarra, að það var aldrei talað um annaðhvort Dagnýju og Inga, það var alltaf sagt Dagný og Ingi, annað var ekki hugsanlegt. Það var því mikið lán, þegar þau felldu hugi saman, Dagný og Ingi, ekki aðeins fyrir hann sjálfan, og þau bæði, heldur einnig fyrir okkur aðstandendur hans, að fá að tengjast svo óvenjulega vel gerðri ungri stúlku, sem bæði var glæsi- ieg og gáfuð, dugleg og myndarleg til allra verka, prúð og stillt, lagði alltaf gott til allra mála og sást varla skipta skapi. Hún var dóttir hjónanna Jónínu Steingrímsdótt,- ur og Leifs Steinarssonar, vél- virkja, en hann er raunar þúsund- þjalasmiður, svo leikur allt í höndum hans, sem hann kemur nærri. Jónína lést, á besta aldri, frá 6 ungum dætrum, þegar Dag- ný var 11 ára. — Ég hygg, að það hafi ekki síður verið lán fyrir fjölskylduna á Hofteigi 14, að tengjast þessum gjörvulega, unga manni, sem var svo hraustur og sterkur og fastur fyrir eins og klettur, lagtækur, hjálpsamur og duglegur, úrræðagóður, alltaf kát- ur og hress, og brosið hans var svo undirhyggjulaust. Það var því nokkurt jafnræði með þessum föngulegu hjónaefnum, þegar þau voru vígð saman í Langholtskirkju 9. júní 1972, en þá höfðu þau verið heitbundin I 2 ár. Alllöngu fyrir brúðkaupið höfðu þau fest kaup á lítilli kjallaraíbúð á Fálkagötu 30, en þar hafði Línbjörg, amma hans, búið síðustu æviárin. Þarna hófu þau nú búskap sinn, þarna fæddist Davíð Örn 29. júlí 1973, og þarna fór hagur þeirra að blómg- ast, því að bæði voru þau ung og dugleg, bæði unnu þau að upp- byggingu heimilisins jafnt heima sem heiman, og þannig gekk það til hinstu stundar, að á hvorugt hallaði. Þegar efnahagur batnaði, seldu þau litlu íbúðina og festu kaup á annarri mikið stærri, sem var í smíðum að Flúðaseli 61. Meðan á þeirri byggingu stóð, fluttu þau að sjálfsögðu i Skeið- arvog 5. Dagný og Ingi unnu bæði að því að fullgera nýju íbúðina og sköpuðu sér þar saman fallegt og notalegt heimili. Má þar hvar sem litið er sjá merki um handlagni og listfengi Inga, bæði í innrétting- um og húsgögnum, enda var það á orði haft, að ekki væri hann fyrr kominn heim, en hann byrjaði að hamast við eitthvað, sem betur mátti fara. — Athafnaþrá Inga fékk því alltaf eðlilega útrás og það er með ólíkindum hvað hann afkastaði miklu, t.d. smíðaði hann í hjáverkum 3 báta og svo sumar- bústaðinn. Áhugamálin voru mörg og margvísleg. Ungur að árum fór hann að stunda líkamsrækt, aðal- lega fimleika, þar sem hann náði góðum árangri, einnig sund, judo o.fl. Hann var því alltaf í góðri þjálfun. Þá hafði hann yndi af skotveiðum og allri útiveru yfir- leitt, einnig ferðalögum. Þau voru nýkomin úr Ítalíuferð, Dagný, Ingi og Davíð. — Þá hafði Ingi mikla ánægju af allri tónlist, bæði sem hlustandi og einnig sem þátttakandi, því hann lék á hljóð- færi, seinni árin mest á gítar, og nú i vor var hann að búa sig undir að læra á fiðlu. — Þó fátt sé talið, má sjá að hugðarefnin voru mörg, og þau voru ekki bæld niður, heldur fengu eðlilega útrás. Ingi var því hamingjusamur i öllu lífi sínu. Hann bar það lika með sér, hann bókstaflega geislaði af ham- ingju. En á bak við glaðlegt yfirbragð leyndist samt alvarlega hugsandi maður og voru þau Dagný og Ingi samhent í þvi sem öðru. Þau hugsuðu mikið um trúmál og hinstu rök tilverunnar. Framhaldslífið var þeim ekkert vafamál, heldur örugg vissa. Fólk með slík viðhorf bugast síður í andstreymi lífsins, það hefur líka komið sér vel fyrir Dagnýju og fjölskyldu hennar, því að sorgin hefur oft barið þar að dyrum. Það er hreint ótrúlegt, hvað lifið getur stundum lagt á eina manneskju. Ingi var alla ævi heilsugóður, enda lifði hann heilbrigðu lífi og var reglusamur og hófsamur. Að- eins einu sinni varð honum mis- dægurt. Það var vorið 1971, að + Maöurinn minn lézt 21. júlí. GUÐMUNDUR KRISTJANSSON, fyrrv. skipstjóri, Safamýri 87, Lilý Kristjónsson. + Móöir okkar. tengdamóöir og amma, GUÐNÝ ÓLAFSDÓTTIR, lóst aö Sólvangí, Hafnarfiröi, mánudaginn 21. júlí. Minerva Jónsdóttir, Bsrgþór Jónsson, Jóhanna Sigurjónsdótii Rsgnar Jónsson, Guórún Bruun Madson og barnabörn. + Ástkæra dóttir mín og stjúpdóttir, GUDRUN HULDA ÞORMÓDSDÓTTIR, Háborgi 34, veröur jarösungin 24. júlí kl. 13.30 frá Fossvogskirkju. Fyrir hönd vandamanna, Sigrióur Vilhjálmsdóttír, Ásmundur Sigurösson. + Otför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, SIGRÍOAR ÞORBJÖRNSDÓTTUR, Framnasvagi 18, Raykjavik, fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. júlí kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hinnar látnu, láti líknarstofnanir njóta þess. borbjóm Sígurösson, Ásta Guóiaugsdóttír, Gunnar Sigurósson, Ingibjörg Stafánsdóttir, 8ígþór Sigurósson, Ingigaróur Guómundsdóttir, Sigríóur R. Siguróardóttir, Guóm. R. Guómundsson og bamabðrn. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, ÞORSTEINN HELGASON, Langholtsvegi 108, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 25. júlí kl. 15.00. Anna Sigurðardóttir, Siguróur Þorstainsson, Sasunn Þorstainsdóttir, Maria Þorstaínsdóttír, Elín Þorstainsdóttir, Bjðrfc Þorstainsdóttir, Sigríóur Svainbjörnsdóttir, Óiafur Ólafsson, Guómundur Guömundsson, Svarrir Vilbargsson, Magnús Arneson og barnabörn. + Hjartkær sonur okkar og bróöir, JÓN TRAUSTI TRAUSTASON, Klappsvegí 54, R. sem lést af slysförum 15. þ.m. veröur jarösunginn frá Fossvogs- kirkju fimmtudaginn 24. júlí kl. 3 e.h. Birna Óskarsdóttir. Ingvar Elísson, Trausti Tómasson, Guðrún Kristjánsdóttir og systkini. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginmanns míns, ADALBERGS STEFÁNSSONAR, starfsmannabústaó nr. 8, Kriatnashæli. Ragnheióur Gísladóttir. + Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö og hlýhug sem okkur hefur veriö sýnd viö andlát og útför systur okkar, ÖNNU ÞÓRDÍSAR SIGURDARDÓTTUR frá Pálsbss. Guólaug Siguröardóttir, Ólafur Sigurósson, Pátur Sigurósson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.