Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 181. tbl. 68. árg. FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Hvetur til Jieilags striðs við Israela Kiyadh. Saudi Arahiu. 13. ájcúst. AP. FAHD, krónprins i Saudi-Arabíu, hvatti i dag til heilags striðs við ísraelsmenn og sagði að friður við þá væri „nokkurs konar blekking." Fahd lýsti þessu yfir við hina opinberu s-arabisku fréttastofu i tilefni af Ramadan, hátiðisdegi múhameðstrúarmanna. Yfirlýsintfin var seinna lesin i s-arabíska útvarpinu Fahd krónprins sagði, að það sem Aröbum riði nú mest á væri algjör samstaða og að friðarvið- ræður væru með öllu vonlausar. „Nú er um það að ræða að vera eða ekki vera ... friðarviðræðurnar við ísraelsmenn eru orðnar að nokkurs konar blekkingu," sagði hann. Fahd hvatti Egypta á óbein- an hátt til að viðurkenna mistök sín og hætta viðræðunum um sjálfsstjórnarmál Palestínu- manna. Krónprinsinn gaf í skyn, að Saudi-Arabar ynnu að því bak við tjöldin að koma á ráðstefnu allra Arabaríkja til að koma á sáttum pg samræma aðgerðir gegn Israelsmönnum vegna innlimunar A-Jerúsalem. Þessi yfirlýsing, sem er sú harðorðasta sem enn hefur komið frá Saudi-Aröbum, þykir merki um vaxandi hörku af þeirra hálfu /egna þeirrar ákvörðunar ísraels- manna að innlima A-Jerúsalem. Sannfærði 13 um dvöl á himnum og drap þau PekinK. 13. áKÚxt. AP. MAÐUR i kommúnu i Guizhou, afskekktu héraði i Mið-Kina hefur verið tekinn af lífi fyrir að myrða 13 manns, sem hann sannfærði um að færu til himna og yrðu ódauð- leg að sögn Dagblaðs alþýðunnar i dag. Maðurinn, Xie Xanji, drap átta börn i fjallahelli og drekkti fimm manns, sem létu hann festa steina við sig. Tvennt fór út í á með börn í fanginu. Xie Xanji lærði töfrabrögð á yngri árum og sannfærði fáfróða smábændur um að hann væri yfirnáttúruleg vera, sem ferðaðist milli himins og jarðar til að fylgjast með góðu og illu. Hann var dæmdur til dauða og tekinn af lífi á fjöldafundi sem 10.000 manns sóttu 12. ágúst. Fund- urinn var liður í herferð gegn miðaldarhugsunarhætti og hjátrú sem er enn algeng til sveita í Kína. (AP-símamynd) Bjartsýnn á sigur demókrata Edward Kennedy öldungadeildarþingmaður ávarpar landsþing demó- krata i New York sl. þriöjudagskvöld. Kennedy sagði fulltrúum á þinginu. að hann tryði þvi að flokkurinn sameinaðist og að „saman munum við ganga til sigurs demókrata árið 1980“. Carter spáir flokki sínum sigri í haust ^ New Yurk. 13. áKÚst. AP. í KVÖLD mátti telja fullvíst að Jimmy Carter yrði í nótt útnefndur forsetaefni Demókrataflokksins á flokks- þinginu í New York. Nokkrum stundum fyrir útnefn- inguna var staðan þannig að fulltrúar Carters voru 2009 en Kennedys 1240. Carter mun verða útnefndur þegar hann hefur hlotið atkvæði 1666 fulltrúa. Við komuna til New York í dag spáði hann því, að hann myndi leiða sameinaðan flokk til sigurs yfir repúblikön- um í kosningunum í nóvember. Á landsþinginu ríkti þó mikil óvissa um sættir á milli Carters og helsta keppinauts hans, Edwards Kennedys öldunga- deildarþingmanns, og forsetinn sagði að hann vissi ekki enn hvort hann hitti Kennedy að máli. „Ég talaði við hann í gærkvöldi eftir að hann hafði flutt ræðuna og óskaði honum til hamingju með hana,“ sagði Cart- er. Við komuna til aðalstöðva fylgismanna hans í New York sagði Carter frammi fyrir 200 stuðningsmönnum sínum, að hann væri „þakklátur fyrir flokk sem í lok þessarar ráðstefnu mun vera sameinaður... og ég og Mondale varaforseti erum fúsir til að þjóna þjóðinni í fjögur ár enn.“ Meginviðfangsefni Carters á flokksþinginu er að fá Kennedy til að hvetja stuðningsmenn sína til að standa sameinaðir um forsetaefni flokksins en margir þeirra hafa haft við orð að taka engan þátt í kosningunum eða jafnvel að fylkja sér um John Anderson sem býður sig fram utan flokka. í áhrifamikilli ræðu, sem Kennedy hélt á flokksþinginu sl. þriðjudag, hvatti hann þingheim til að stuðla að sigri flokksins í kosningunum á hausti komanda en lýsti ekki yfir beinum stuðn- ingi við Carter. Að ræðunni lokinni brutust út mikil fagnað- arlæti meðal þingfulltrúa og voru mörg spjöld á lofti þar sem á stóð „Kennedy ’80“ og á bakhlið annarra hafði verið skrifað „’84“. Verkalýðsleiðtogar sögðu í dag, að þeir væru ófúsir til að styðja Carter ef hann hafnaði þeim tillögum Kennedys, að 12 milljörð- um dollara yrði varið til að auka atvinnuna. Úr herbúðum Kenne- dys hefur heyrst, að það muni velta á afstöðu Carters til þessara tillagna hvort Kennedy muni koma fram með Carter annað kvöld til að sýna að Demókrata- flokkurinn gengur heill og óskipt ur til kosninganna. Sjá nánar á bls. 18. íranir óttast gíslabjörgun Teheran, 13. áKÚst. AP. iRANSKUR trúarleiðtogi hélt þvi fram i dag, að Bandarikja- menn hefðu á sínum snærum 30.000 „skæruliða“ i Egypta- landi sem biðu þess eins að ráðast inn í íran til að frelsa bandarisku gislana. íranskir ráðamenn hafa einnig aukið aðgerðir sínar gegn Bretum vegna handtöku iranskra mót- mælenda i London i siðustu viku. Ásakanirnar um samsæri Bandaríkjamanna gegn írönum eru hafðar eftir ónefndum trú- arleiðtoga í borginni Ahwaz. Hann sagði að 30.000 skæruliðar, þjálfaðir í Egyptalandi, biðu tækifæris til að ráðast inn í íran um Khuzestan, sem liggur að Persaflóa, og væri tilgangurinn sá að frelsa gíslana. í fréttum frá London segir, að rúmlega helmingur þeirra 68 írana, sem handteknir voru í síðustu viku eftir mótmælaað- gerðir fyrir framan bandaríska sendiráðið í London, hafi farið í hungurverkfall á nýjan leik. Þrír breskir blindrakennarar eru nú komnir til Englands frá Iran en þeim hafði verið gefinn 72ja stunda frestur til að koma sér úr landi. Talsmaður breska utanríkis- ráðuneytisins sagði í dag, að það væri nú að kanna fréttir þess efnis, að breskur læknir og kona hans hefðu verið handtekin í Iran. Fréttir herma að þau hafi verið sökuð um njósnir og hafa bresk stjórnvöld áhyggjur af því að það sé gert í hefndarskyni vegna handtöku Irananna 68 í London. Hua hvetur vestur- veldin og Japani til samstöðu PekinK, 13. áinist. AP. 1 VIÐRÆÐUM, sem þeir áttu með sér í dag, Hua Guo-feng forsætisráðherra í Kína, og dr. Lambsdorff, efnahagsmálaráö- herra Vestur-Þjóðverja, sagði Hua, að Kínverjar væru því mjög hlynntir að Vestur-Evr- ópumenn hefðu sem nánast sam- band við Japani og Bandarikja- menn. Hua. sem einnig er for- maður Kinverska kommúnist- aflokksins, sagði þetta á fundi í Alþýðuhöllinni í Peking með vestur-þýzkri viðskiptasendi- nefnd undir forystu Lambs- dorffs. Hua Guo-feng sagði ennfrem- ur, að Kínverjar ætluðu að hafa náin samráð við Japani og Banda- ríkjamenn. í umræðum um alþjóð- leg málefni sagði hann, að óhjá- kvæmilegt væri að til styrjaldar drægi vegna útþenslustefnu Rússa og bætti því við, að þrátt fyrir að þeir hefðu milljón manns undir vopnum á landamærum Rússlands og Kína myndi það ekki hrökkva til gegn Kínverjum. Hua sagði, að innrás Rússa í Afganistan væri liður í langtímaáætlunum þeirra um að þrengja að olíuríkjunum í Mið-Austurlöndum. • Vestur-þýzka viðskiptasendi- nefndin er í 12 daga heimsókn í Kína til að ræða um samstarf þjóðanna í efnahagsmálum. Kom- ið hefur verið á fót samstarfs- nefnd um þau mál og vænta Vestur-Þjóðverjar sér mikils af störfum hennar. Það eru einkum ýmis hráefni sem V-Þjóðverjar sækjast eftir. Rændu flug- vél og sneru til Havana Miami. 13. ágÚ8t. AP. FLUGVÉL frá flugfélaginu Air Florida. með 74 manns innan- borðs, var rænt í dag og snúið til Kúbu. Við komuna til Hav- ana voru handteknir sjö menn, sem taldir eru vera kúbanskir flóttamenn. Áttundi maðurinn var handtekinn áður en flug- vélin fór írá Key West þegar hann reyndi að smygla leik- fangabyssu fram hjá öryggis- vörðunum. Talsmaður flugmálayfirvalda sagði, að flugvélinni hefði verið rænt tíu mínútum eftir að hún hóf sig á loft í Key West og hefði hún lent heilu og höldnu 25 mín. síðar í Havana á Kúbu. Hann sagði að flugræninginn hefði verið með brúsa fullan af bensíni og hótað því að sprengja vélina í loft upp. Búist var við vélinni aftur til Miami í kvöld. Sl. sunnudag rændi spænsku- mælandi maður flugvél á sömu flugleið og sneri henni til Kúbu. Hann hótaði að sprengja sprengju sem hann sagðist hafa í fórum sínum en reyndist seinna vera sápustykki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.