Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 1 1 „Mér fínnst möguleikamir á að efla sam- skipti Indverja og íslendinga ótæmandi.“ Eins og frá var sagt í biaðinu á dögunum hafa Indverjar i huga að festa kaup á togara frá íslandi og má eigna frumkvæði að því aðalræðismanni íslands i Nýju Delhi, Sashi B. Saran. sem var staddur hér í sl. viku og átti þá tal við f jöida manns um það hvernig efla mætti samskipti íslendinga og Ind- verja, sem honum finnst allt- of takmörkuð. Mbl átti sam- tal við Saran dagstund og hann sagði að hann liti svo á að sér fyndust möguleikarnir óteljandi á þeim sviðum, sem íslendingar og Indverjar gætu nálgast hvorir aðra. — Ég hef veitt því athygli að ykkur finnst fjarlægðin milli landa okkar mikii, sagði Saran. — En það er kannski vegna þess hve lítil samskiptin hafa verið. Mér er kunnugt um að þið verzlið við lönd fjarlægari Indlandi, svo að það sem við þurfum að gera er að draga Indland inn í myndina. Mér skilst líka að þið kaupið hráefni til álverksmiðjunnar alla leið frá Ástralíu. Á Indlandi geta íslend- ingar fengið þetta hráefni og síðan væru Indverjar reiðubúnir að kaupa álið fullunnið. Og það er styttra til Indlands en Ástralíu, svo að því ekki að athuga það. Við eigum einnig við það að etja að bátar okkar eru fáir og smáir og veiða einkum við strendur lands- ins. Ef við gætum fengið íslenzka togara, gjarnan notaða, til Ind- lands og síðan áhöfn með þeim í fyrstu til að kenna Indverjum að veiða dýpra úti, jafnvel í monsún- vindunum, væri miklum og góðum áfanga náð. íslenzkir sjómenn veiða í vondum veðrum, svo að ég er viss um að þeir myndu ekki víla fyrir sér að fara út á þessum ágætu skipum langtum lengra út og jafnvel meðan monsúnvindarn- Frá fréttaritara Mbl. SiglufirAi. 11. ágúnt VINNA hefst á ný í frystihúsun- um í fyrramálið og hefur heyrst, að þá sé von á togaranum Sólbak frá Akureyri með fisk. Sigurey var inni um helgina með 190 tonn og hélt til Englands með aflann. Stálvík kom inn í gærmorgun með 160—170 tonn, sem veiddist á 80 klukkutimum og hélt hún einnig Spjallað við S.B Saran, ræðis- mann Islands í Nýju Delhi ir blása. Ég hef sömuleiðis mikinn áhuga á að Indverjar og Islend- ingar kynnist meira á menning- arsviðinu. Ég hef átt tal við ýmsa aðila hér, t.d. varðandi það að fá bæði íslenzkar landkynningar myndir til sýningar á Indlandi og einnig einhverjar af þessum nýju islenzku myndum, sem þið hafið verið að framleiða og ég hef sömuleiðis komið á framfæri við indverska sjónvarpið íslenzkri landkynningarmynd, sem hefur þegar verið sýnd nokkrum sinnum og vakið áhuga og forvitni. Mig langar líka til að þið sýnið hér indverskar myndir, gerðar af Indverjum, en ekki bara erlendar heimildarmyndir, sem sýna kannski aðra hlið á indversku samfélagi en þá sem aðeins útlend augu sjá þegar þau horfa á okkur. Ég vonast til að geta beitt mér fyrir því að hópur indverskra listamanna komi hingað á næstu Listahátíð og enn eitt vil ég nefna sem við gætum haft samvinnu um og það er á sviði taflmennsku. ísland var mjög í sviðsljósinu í Indlandi þegar einvígi Spasskys og Fischers var hér um árið, því að Indverjar eru mjög áhugasamir um skák eins og þið. Við eigum ágæta skákmenn og því held ég það gæti verið mjög skemmtilegt ef skákmenn okkar gætu skipzt á heimsóknum. — Satt bezt að segja, heldur Saran áfram — finnst mér mögu- leikarnir ótæmandi. Margir segja að ég sé draumóramaður, þetta verði ekki allt framkvæmt. En hver maður verður að eiga sína drauma og hugsjónir. Ali ég með mér tíu drauma vonast ég til þess af stað til Englands í gærköldi. | Gullbergið frá Vestmannaeyjum var hér í morgun og var búið að fá 100 tonn á fjórum dögum. Gott færafiskerí er um þessar mundir. Goðafoss er staddur hér og er að taka freðfisk á Rússlandsmarkað. Þá má geta þess, að skipstjórinn á Gullberginu sagði, að geysimikið væri af loðnu á Skagagrunninu og Skagafjarðardýpi. — mj S.B. Saran. að að minnsta kosti einn þeirra rætist — Ég hef margsinnis komið til íslands, segir hann aðspurður, og mér finnst ísland vera næst mér allra landa að Indlandi frátöldu. Ég kynntist íslendingum þegar ég var við nám í Bandaríkjunum fyrir röskum þrjátíu árum og kom hingað fyrst fyrir tuttugu og fimm árum. Hér hef ég eignast mjög góða vini og til að byrja með kom ég hingað í þeim megintilgangi að heimsækja þá. Síðan fór ég eitt sinn að hitta Pétur Thorsteinsson sendiherra þegar ég vissi hann var í Delhi og lyktir urðu þær að hann bað mig að verða ræðismaður fyrir ísland og ég þá það með þökkum og lít á það sem mikinn heiður. — Mér finnst Indverjar og ís- lendingar eiga fjarska margt sam- eiginlegt, þótt ekki sé hægt að alhæfá um 800 milljón manna þjóð eins og Indverja. En í eðli sínu eru Indverjar friðelskandi þótt það kunni kannski stundum að horfa við öðruvísi fyrir útlend- ingum. En vegna trúarinnar kannski fyrst og fremst eru Ind- verjar í hugarjafnvægi — eða vilja helzt vera það. Aðspurður um málefni kvenna á Indlandi sem iðulega eru í sviðs- ljósinu, sagði Saran að það væri vissulega opinbert leyndarmál að ungar eiginkonur væru brenndar til bana af tengdafólki sinu. Þetta viðgengist ekki sízt í Nýju Delhi og minna úti á landsbyggðinni. Hann sagði að barizt væri gegn Texti: JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR þessu af stjórnvöldum og eins væri með lögum bannað að krefj- ast heimanmundar með stúlkum, þótt það væri líka vitað að það væri iðkað. Hann sagði það tæki langan tíma að uppræta þetta, svo fast sem það væri orðið í fólki. En í heild ættu stúlkur að hafa sama rétt bæði til náms og starfa og drengir. Skólaskylda er ekki lög- boðin, en hins vegar eru bæði kynin jafnrétthá. — Konur láta æ meira að sér kveða á Indlandi, sagði hann. — Við erum kannski íhaldssamir hvað það snertir, að okkur þykir það miklu skipta að konan sinni heimili sínu og börn- um sínum af alúð og kostgæfni. En það hefur líka orðið hjá okkur sama þróun og annars staðar, að konur leita út á atvinnumarkað- inn og gerast æ umsvifameiri á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Ég vil ekki meina að við Indverjar — þá á ég við karlmennina — vanvirð- um konur. Við höfum sams konar málvenju og þið: við köllum kon- una betri helming karlmannsins. Án konu er karlmaðurinn bara hálfur og ég fæ ekki annað séð en þetta bendi til að við virðum okkar konur. Aðspurður um stjórnmála- ástandið á Indlandi og þær getgát- ur að eldri sonur Indiru Gandhi, Rajiv Gandhi, hefji þátttöku í stjórnmálum að látnum yngri bróður sínum sagði Saran: — Það er meiri festa í indversku stjórn- málalífi en var. Þó verður að hafa í huga að Indira Gandhi vann vitanlega sigur sinn fyrst og fremst vegna óstjórnar og óein- ingar Janataflokksins sem nánast splundraðist í frumeindir sínar. En hins vegar eru enn auð nokkur mikilvæg ráðherraembætti og við vitum ekki hvað Indira hyggst fyrir. Hún er að bíða átekta. Við þekkjum þann eiginleika hennar. Svo þegar hún tekur ákvörðun verður henni ekki hnikað. Það er ekki vafi á því að indversk alþýða bindur miklar vonir við endur- komu Indiru Gandhi og treystir henni bezt til að leiða mál til lykta ekki sízt eftir þá reynslu sem fékkst af svokallaðri stjórn Jan- atabandalagsins. En hvað Rajiv son hennar snertir er hann óráðin gáta. Hann hefur verið flugmaður hjá indverska innanlandsflugfé- laginu, ákaflega hlédrægur maður og hógvær. Kona hans Sonja er ritstjóri vikurits sem var eitt af fáum, sem studdi Indiru Gandhi ötullega meðan hún var úti í kuldanum. Það gæti vel verið að hún yrði valin eða hún yrði tilleiðanlegri, öllu heldur. Þó er ómögulegt að spá í það. Indverjar virðast hafa ákveðna þörf fyrir að vald gangi að einhverju leyti í erfðir. Þó væri ekki rétt að segja að Indira Gandhi hafi orðið for- sætisráðherra af því að hún var dóttir Nehrus — enda var Shastri forsætisráðherra í millitíðinni — kannski varð hún forsætisráð- herra þrátt fyrir að hún var dóttir Nehrus, þótt það gæfi henni visst forskot og traust þjóðarinnar. Nú að Sanjay Gandhi látnum hefur myndast tómarúm, sem fólk vill fylla. Hvort Raijv Gandhi eða kona verða til þess þori ég nú ekki að segja til um. Það verður fyrst og fremst mál Indiru hvað hún gerir. Og hvað sem Indira Gandhi hefur verið gagnrýnd gegnum tíð- ina þá hygg ég að hún sé ákaflega heiðarlegur pólitíkus. Hún vill vissulega vald — en hún vill beita valdinu í hagsmunaskyni fyrir þjóð sína. Bíll brennur Bæjum, 9. áKÚst. f GÆR viídi það óhapp til. er Arnar Kristjánsson frá Ármúla var á leið til fsaljarðar, að allt i einu kviknar eldur í bil hans er hann var að fara yfir svokallaða Hestakleif milli Mjúafjarðar og ísafjarðar. Skipti engum togum að billinn varð á svipstundu aielda, og brann upp til agna allt það sem brunnið gat, en engin slys urðu þar sem Arnar gat i mesta skyndi snarað sér út úr bilnum. Var hann þarna einn á ferð í bil þessum, en brátt bar þar að aðra híla, en engu hægt að bjarga úr því sem komið var. Bíllinn var nýlegur af Datsun gerð, og mun hafa verið í kaskó- tryggingu, en tjón hans er engu að síður tilfinnanlegt. Bílhræið var svo flutt til ísafjarðar í dag með vörubíl, og er með öllu einskis nýtt. Grasspretta hér í Djúpi er mjög misjöfn, víða hafa stórkalin tún og þurrkar hamlað sprettu, einkum norðan Djúpsins, þar sem fjalla- skúrir duttu þó nokkrum sinnum niður vestanmegin, en síðan um verzlunarmannahelgina hefir ver- ið óþurrkasamt, og lítið hægt að aðhafast við heyskap. Á nokkrum stöðum er þó nokkuð á veg kominn heyskapur, sem notað gátu þurrk- inn í júlí, en á þó nokkrum stöðum beðið með slátt vegna lélegrar sprettu. Jens i Kaldalóni. Frystihúsin taka til starfa á ný „IPEX“ 1980 Alþjóöleg prentvörusýning 11. september til 19. september. PHOTOKINA ’80 Alþjóðleg Ijósmynda- vörusýning, 12. september til 18. september. KAUPMANNA HÖFN Scandinavia Fashion Week í Bella Center 11. sept. til 14. sept. Ferðamiðstöðin hf. seljum farseðla um allan Aðalstræti 9 — Símar 11255 - 12940 HEIM Á HAGSTÆÐASTA VERÐI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.