Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 Fengu 20 sekúndulítra af 90 stiga heitu vatni við borun á Laugalandi Hitaveita á Hellu? GÓÐUR áranKur hefur náðst við borun eftir heitu vatni við Lauga- land í Holtum. Að sögn ísleifs Jónssonar hjá Jarðborunum ríkis- ins kom borinn i byrjun vikunnar niður á heitavatnsaeð. sem gefur 12 litra á sekúndu af sjálfrennandi vatni ok með loftdælinffu koma úr holunni um 20 litrar. Er vatnið yfir 90 gráðu heitt og sagði ísleifur að þetta væri mjoK góður árangur og ætti að skapa móguleika á að leggja hitaveitu til Hellu, en þangað eru um 10 kilómetrar frá Laugalandi. Einnig er hugsanlegt að leggja hitaveitu á þá sveitabæi, sem eru i nágrenni lagnarinnar. Meira vatn þarf hins vegar til að unnt sé að leggja hitaveitu til Ilvolsvallar. Á Laugalandi er skóli, sundlaug og samkomuhús og reka þrír hreppar Kristián Ragnarsson um kvótaskiptinguna: Meiri hagkvæmni við veiðar en þrengt að aflakóngunum ÁKVEÐIÐ hefur verið að skipta þeim 658 þúsund tonnum af loðnu, scm leyft hefur verið að veiða i haust og næsta vetur á milli þeirra 52 skipa, sem stunda munu veið- arnar. Er þetta i fyrsta skipti. sem svo miklu magni er deilt niður á veiðiskipin. en i vor var gerð tilraun með kvótaskiptingu á loðnuskipin við veiðar á loðnu til frystingar og hrognaloðnu i lok vertíðar. Þetta fyrirkomulag er tekið upp samkvæmt ósk Lands- sambands íslenzkra útvegsmanna og ræddi Mbl. við Kristjánn Ragn- arsson um þetta mál í gær. — Á fundum með útgerðar- mönnum loðnuveiðiskipa var sam- þykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að hafa þetta fyrirkomulag á, sagði Kristján. — Ástæðan fyrir þessu er sú, að menn telja að með þessu fyrirkomulagi á veiðunum geti menn komið meiri sparnaði og hagkvæmni við í rekstrinum. Ekki verði um það kapp að ræða, sem oft hefur verið á milli einstakra skipa, menn verði ekki að veiðum í eins vondum veðrum og ekki þurfi að leggja eins mikla áherzlu á siglinga- hraða og áður. — Annmarkinn sem fylgir þessu og er mikill að mínum dómi, er sá að með þessari aðferð er mjög þrengt að þeim, sem fram úr hafa skarað. Þeir njóta þess ekki, sem þeir hafa aflað umfram meðaltal undanfarin ár, en nú er aðeins skipsstærðin tekin til greina að hálfu leyti. — Þetta er hins vegar athyglis- verð tilraun og fróðlegt verður að sjá hver reynslan verður af þessu. Hins vegar gerum við okkur vonir um, að leyft verði að veiða meira en 658 þúsund tonn þegar stofnstærð- armælingar liggja fyrir í haust. Þá yrði skammtur á skip aukinn eftir sömu hlutföllum, sagði Kristján. Hann var að lokum spurður hvort það væri í augsýn að sambærileg skipting yrði tekin upp við þorsk- veiðar. — Því er ekki að leyna, að um kvótaskiptingu á þorskveiðum hefur lengi verið talað og margir telja hana heppilega. Fyrir því hefur þó ekki verið meirihluti og margir talið það fyrirkomulag of neikvætt fyrir sóknina. Menn hafa því ekki viljað leggja út á þá braut, en hvað reynslan kennir mönnum af þessum veiðiskap læt ég ósagt, sagði Krist- ján Ragnarsson. skólann en það eru Holtahreppur, Ásahreppur og Landmannahreppur. Þessir þrír hreppar standa einnig að boruninni nú. Fram að þessu hefur verið til staðar á Laugalandi 40 stiga heitt vatn, sem komið hefur úr gamalli borholu á staðnum en það hefur ekki dugað til að hita upp öll húsin á Laugalandi. Borun á Laugalandi er nú að ljúka og er verið að ganga frá holunni en óvíst er enn hvort hún verði fóðruð nú eða síðar, þar sem óþarft á að vera að dæla úr holunni meðan vatnið er aðeins notað á Laugalandi. Kost.naður við holuna nemur nú að sögn ísleifs milli 50 og 60 milljónum króna en með fóðrun verður kostnað- urinn milli 70 og 80 milljónir. Jón Þorgilsson, sveitarstjóri á Hellu sagði, að þessi góði árangur af boruninni á Laugalandi væri vissu- lega ánægjuleg tíðindi fyrir Hellu- búa. Sveitarfélagið á Hellu stæði hins vegar ekki að boruninni á Laugalandi og því hefði verið óskað eftir viðræðum við hreppanna þrjá, sem að boruninni standa. „Við hugs- um gott til þess að fá hitaveitu frá Laugalandi, enda hefur verið gert ráð fyrir því ef nægjanlegt vatn kæmi upp á Laugalandi. Einnig hefur verið gerð kostnaðaráætlun um hitavatns- lögn frá Laugalandi að Hellu og hún sýndi að það væri jákvætt að leggja þessa lögn miðað við olíuverðið," sagði Jón. Frá upphafi ráðstefnu dularsálarfræðinga í Hátíðasal H.í. í gærmorgun, en þar þinga nú um 100 visindamenn frá mörgum löndum og bera saman bækur sínar um rannsóknir á dulrænum fyrirbærum. Fjarhrif voru eitt fyrsta málið á dagskrá og hér er Marilyn Schlitz frá Bandaríkjunum i ræðustól. Alþjóðleg ráðstefna dulsálfræðinga sett í Reykjavík ÞING alþjóðasamtaka visinda- manna. sem fást við rannsóknir á dulrænum efnum. „Para- psychological Association“, var sett i Hátiðasal Háskóla íslands í gærmorgun. Guðmundur Magnússon, rektor. setti ráð- stefnuna og einnig tók til máls ólafur Ragnar Grímsson, próf- essor og minntist m.a. forgöngu- manna um rannsóknir á dul- rænum fyrirbærum hér á landi. s.s. Haraldar Níelssonar. Þátttakendur á ráðstefnunni eru um 100 talsins, frá ýmsum þjóðum. Undirbúning hér á landi hefur dr. Erlendur Haraldsson annast, en dr. Erlendur er eini íslenski meðlimur Alþjóða sam- taka dulsálarfræðinga. Honum til aðstoðar við undirbúning voru Arnór Hannibalsson og dr. Þór Jakobsson. Þingið stendur til laugardags og er aðgangur öllum heimill. DROTTNINGAR ROKK Loksins, loksins, er nýja QUEEN platan komin út. Óhætt er aö fullyrða aö þeim félögum hafi aldrei tekist jafnvel upp en einmitt nú. Nokkur lög af þessari frá- j bæru plötu hafa nú þegar náö miklum vinsældum og má þar nefna Play The Game, Save Me og Crazy Little Thing Called Love sem án efa er eitt vinsæl- asta rokklag allra tíma. Ef þú vilt fá þér virkilega vandaöa og skemmti- lega rokkplötu ætti val- iö ekki aö vera erfitt. Qt/EEAf *ajue AKiLVSIM.A- SÍMINN KH: The Game, kvínandi góö plata meö QUEEN. Fæst í hljómplötuverslun- um um land allt. FALKIN N Suðurlandsbraut 8 — Sími 84670. Laugavegi 24 — Sími 18670. Austurveri — Sími 33360.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.