Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 19 Þetta geröist 14. ágúst 1979 — Átján farast í mesta slysi í sögu kappsiglinga við Englands- strendur. 1976 — Harðir bardagar kristinna manna og múhameðstrúarmanna í Beirút. 1975 — Forseti Bangladesh myrtur í herbyltingu. 1974 — Grikkir draga her sinn út úr NATO. 1973 — Bandaríkjamenn hætta loft- árásum á Kambódiu. 1972 — 156 farast með a-þýzkri farþegaflugvél í A-Berlín. 1969 — Brezkt herlið sent til Londonderry til að skilja sundur kaþólska og mótmælendur. 1968 — Rúmlega 1.000 farast í flóðum á Indlandi. 1947 — Bandaríkin afskrifa skuld Ítalíu að upphæð 1 milljarður doll- ara. 1945 — Síðari heimsstyrjöldinni lýkur með uppgjöf Japana — Rússar gera friðarsamning við kínverska þjóðernissinna og viðurkenna sjálf- stæði Ytri-Mongólíu — Pétain marskálkur dæmdur tii dauða í Frakklandi. 1941 — Atlantshafsyfirlýsingin kunngerð. 1920 — Litla bandalagið stofnað. 1811 — Paraguay lýsir yfir sjálf- stæði. 1784 — Fyrsta rússneska nýlendan í Alaska stofnuð á Kodiak-eyju. 1733 — Pólska erfðastríðið hefst (Rússar og Austurríkismenn styðja Ágúst III af Saxlandi, en Frakkar Stanislaus Lesczcynski). 1598 — Jarlinn af Tyrone sigrar Englendinga á írlandi. 1551 — Tyrkneskur her tekur Trip- oli. 1385 — Orrustan um Aljubarrotta (Portúgalar sigra Kastilíumenn og tryggja sjálfstæði sitt). Afmæli — John Galsworthy, brezk- ur rithöfundur (1867—1933) — Rich- ard von Krafft-Ebing, þýzkur læknir (1840-1902). Andlát — 1040 d. Duncan I Skota- konungur (myrtur) — 1870 d. David Farragut, sjóliðsforingi — 1951 d. William Randolph Hearst, blaðaút- gefandi. Innlent — 1784 Biskupssetrið í Skálholti hrynur í jarðskjálfta — 1237 d. Magnús bp Gizurarson — 1637 d. Þórður bp Þorláksson — 1769 f. Steingrímur bp Jónsson — 1833 Franska eftirlitsskipið „La Lilloise" týnist við ísland — 1912 d. Ásg. Ásgss. kpm — 1959 Kjördæmabreyt- ingin endanlega samþykkt — 1902 f. Einar Olgeirsson — 1895 f. Ólafur Ólafsson kristniboði. Orð dagsins — Hermennirnir vinna venjulega orrusturnar og hershöfð- ingjarnir fá svo heiðurinn — Napol- eon Bonaparte, franskur hershöfð- ingi (1769-1821). Sím»mynd AP. Ungfrú vinátta Ungfrú ísland. Unnur Steinsson, íagnar þegar hún heyrir að hún hafi verið kjörin ungfrú Vinátta i samkeppni um fegurðardrottn- ingu ungu kynslóðarinnar sem fram fer í Manila á Filipseyjum. Á þriðjudag vann hún til annarra verðlauna en þá var hún kjörin ungfrú Stundvísi. Sadat biður Begin að slá af kröfunum Kaíró, 13. áffúst. AP. SADAT Egyptalandsforseti sagði i fyrstu yfirlýsingunni siðan um- ræðum um sjálfsstjórn Palestinu var frestað, að ísraelsmenn hefðu í raun gert að engu möguleikana á að samkomulag næðist, með þvi að gera tilkall til allrar Jerúsal- emborgar og leyfa ísraels- mönnum að nema land á her- teknu svæðunum. Hann sagði einnig að möguleik- Blaðakona látin laus í La Paz La Paz, 13. ágúxt. AP. NÝJA herforingjastjórnin i Bóliviu hefur samþykkt að sleppa úr haldi bandarisku blaðakonunni Mary Helen Spooner, þar sem tveir brezk- ir ritstjórar hörmuðu framkomu hennar persónulega við stjórnina. Ungfrú Spooner var handtekin 6. ágúst og sökuð um að skrifa greinar með „óhróðri" um hershöfðingjana, sem tóku völdin í byltingu í síðasta mánuði. Hún skrifaði fyrir brezku blöðin Financial Times og Econom- ist og blað í Kansas í Bandaríkjun- um. Ritstjórarnir J.D.F. Jones frá Fin- ancial Times og Robert Harvey frá Economist fóru til Bólivíu á sunnu- daginn til að reyna að fá ungfrú Spooner leysta úr haidi. Herfor- ingjastjórnin undir forystu Luis Garcia Meza hershöfðingja hafði hótað að leiða hana fyrir rétt. Luis Arce ofursti, innanríkisráð- herra stjórnarinnar, sagði á blaða- mannafundi, að ungfrú Spooner yrði látin laus þegar í stað. Harvey las yfirlýsingu, sem hann og Jones höfðu undirritað, og þar var bent á að greinarnar, sem hefðu þótt móðg- andi, hefðu hvorki birzt í Financial Times né Economist. Andstæðingar herforingjastjórn- arinnar segja, að allt að 2.000 manns hafi verið handteknir síðan bylting- in var gerð 17. júlí, þar á meðal prestar, blaðamenn, verkalýðsleið- togar og stjórnmálamenn. Veður víða um heim Akurcyri 8 alskýjaó Amatsrdam 19 skýjaó Aþena 32 heióskírt Barcalona 29 léttskýjaó Berlín 18 skýjaó BrOssel 23 rigníng Chicago 25 rigning Feneyjar 26 skýjaó Frankfurt 22 rigning Fasreyjar 13 skýjaó Genf 24 skýjaó Helsinki 20 heióskfrt Jerúsalem 30 skýjaó Jóhannesarborg 18 heiðskirt Kaupmannahöfn 18 heiöskírt Las Palmas 24 léttskýjaó Lissabon 29 heiöskirt London 23 rigning Los Angeles 32 heióskirt Madrid 32 heióskírt Malaga 27 þokumóóa Mallorca 28 léttskýjað Miami 30 rigning Moskva 17 skýjaó New York 31 heióskfrt Osló 19 heióskirt Paris 21 skýjaó Reykjavík 14 skýjaó Río die Janeiro 27 skýjaó Róm 28 heióskfrt San Fransisco 14 heióskirt Stokkhólmur 18 skýjaó Tel Aviv 35 heióskírt Tókýó 31 heióskírt Vancouver 21 heiðskfrt Vinarborg 24 skýjaó Guðlast í auglýsingu London. 13.ágúst. AP. SAAB-bilaverksmiðjurnar i Sviþjóð hafa íengið ákúrur fyrir að nota i auglýsingu fyrir framleiðslu sína tilvitnum úr „Faðirvorinu“. Siða- nefnd. sem hefur eftirlit með að velsæmis sé gætt i auglýsingum. kom kvörtununum á framfæri eftir að hafa fengið hringingar frá fjölda fólks. Talsmenn siðanefndarinnar sögðu að notkun orðanna „eigi leið þú oss í freistni", bryti í bága við reglu, sem segir að ekki skuli viðhafa það í auglýsingu, sem miðað við ríkjandi gildismat, sé líklegt til að misbjóða eða hneyksla fjölda fólks. Reglugerðin er þó aðeins leiðbein- andi og nefndin hefur ekki vald til þess að beita þá viðurlögum, sem gerast brotlegir. Taismaður Saab-verksmiðjanna sagðist leiður yfir því, að auglýsing- in hefði komið illa við fólk, en bætti því við að tilvitnunin hefði átt vel við, því fólk verður að reyna bílinn til þess að sannfærast um kosti hans og eftir reynsluferðina „fellur það í freistni" til að kaupa hann. inn á að friður næðist á Gaza- svæðinu og vesturbakka Jórdanár kynni að vera glataður að eilífu nema Israelsmenn breyttu afstöðu sinni. Athugasemdir Sadats komu fram í bréfi, sem Sadat sendi Begin skömmu eftir að Sadat aflýsti síðustu samningafundun- um, sem áttu að fara fram um málið. í svarbréfi sakaði Begin Sadat um að tefja framgang viðræðn- anna um sjálfsstjórn Palestínu og hét því að ísraelsmenn myndu aldrei sleppa yfirráðum sínum yfir Jerúsalem. Sadat sakaði Begin um að gera tilkall til Jerúsalemborgar og fyrirskipa landnám á herteknu svæðunum, þrátt fyrir að ákveðið hefði verið að ræða þessi mál nánar á grundvelli samningsins, sem ísraelsmenn, Egyptar og Bandaríkjamenn undirrituðu í mars á síðasta ári. Þrem dögum áður en Sadat sendi bréf sitt, samþykkti ísraels- þing með yfirgnæfandi meiri- hluta, að Jerúsalem skyldi öll tilheyra Ísraelsríki og vera höfuð- borg landsins um ókomna framtíð. Helen Hagnes. operunm New York, 12. ágút*t. AP. ÖRYGGI var hert í Metro- politan-óperunni í New York í gærkvöldi, þegar sýningar hófust aftur eftir 17 daga hlé, vegna uggs, sem óleyst morðgáta hefur vakið. Óperunni var lokað þrem- ur dögum eftir að fiðluleik- arinn Helen Hagnes Mintik- is hvarf í hléi á sýningu Berlínar-ballettsins. Ekkert hefur komið fram í rannsókn málsins. Fólk var mjög taugaó- styrkt við sýningu Peking- óperunnar í gærkvöldi og þorði varla að fara úr sætum sínum meðan á henni stóð. Fjórtán verðir verða í bygg- ingunni meðan á sýningu Peking-óperunnar stendur til 14. ágúst. Þrælahald á börnum stundað í Thailandi Hangkok. 13. ágú.st. AP. STJORNIN í Thailandi mun hcfja haráttu gegn bændum. sem hafa brotið gegn lögum um vinnu barna, vegna skýrslu um hálfgert þræla- hald á miklum fjölda barna i landinu að sögn yfirvalda i Bangkok i dag. Talsmaður vinnumálaráðu- neytisins viðurkenndi að barna- þrælkun væri alvarlegt vanda- mál í Thailandi. Embættis- menn segja að 5—6.000 börn undir 12 ára aldri stundi vinnu í Bangkok án leyfis stjórn- valda, flest þeirra samkvæmt samkomulagi foreldra og at- vinnurekenda. Hann sagði þetta í tilefni skýrslu frá félagi í London sem berst gegn þrælahaldi. Þar var haft eftir thailenzkum emb- ættismanni að 3,5 milljónir barna undir 14 ára aldri stund- uðu vinnuí Thailandi, flest þeirra með fjölskyldum sínum á bændabýlum. í annarri skýrslu frá nefnd á vegum mannréttindanefndar SÞ er því haldið fram, að þúsundir thailenzkra barna gangi kaupum og sölum á hverju ári á umfangsmiklum markaði atvinnumanna, sem útvegi börn í verksmiðjur, vændishús og nuddstofur. Birtar hafa verið skýrslur um að börn séu seld verk- smiðjueigendum á 100 dollara og að þau séu neydd til að vinna kauplaust. GENERAL ELECTRIC Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.