Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 31 Atli Þór Helga- son - Minning hans og systkini enn fyrir austan. Þangað heldur hann fótgangandi frá Akureyri, kemur við hjá Ár- nýju systur sinni, er þá var gift og farin að búa í Aðaldal. Sagði hann oft skemmtilega frá þeirri för er hann í fylgd með póstinum barðist gegn hríðinni og fannferginu yfir Axarfjarðarheiði. Þegar að Hrauntungu kom ákvað pósturinn að stöðva för og bíða þess að létti, en Jóhann var löngum sjálfráður og lét fátt tefja för sína og lagði aleinn áfram niður í Þistilfjörð og komst alla leið heilu og höldnu og síðan til fjölskyldu sinnar á Skálum. Þar dvaldi hann svo fram á árið 1918 og var þar frostaveturinn mikla. Fraus þá allt úti og inni, meðal annars lýsti Jóhann því að klakinn hefði verið þverhandarþykkur innan á súðinni á svefnlofti því er þeir bræður Guðjón sváfu á. Fannfergi og ísalög voru mikil og gengu ísbirnir á land og voru felldir á Langanesinu þennan vet- ur. Fjölskyldan mun hafa að öðru leyti komist vel af, enda fiskafli mikill við Langanes á þessum árum. Jóhann fór nú til Akureyrar á mótornámskeið, eins og það var þá nefnt og lauk mótoristaprófi. Síðan lá leið hans suður á land og réði hann sig þar á báta næstu árin. Hann var við útveg Auðuns á Vatnsleysu, sem gerði út frá Sandgerði. Árið 1921 var ung stúlka, Guðrún Pétursdóttir ráðskona við sömu verkstöð og tókust með þeim Jóhanni þau kynni, sem leiddu til giftingar þeirra 5. nóvember 1921. Guðrún, sem nú lifir mann sinn, er dóttir Péturs Jóakimssonar frá Auðnum á Vatnsleysuströnd og Agnesar Felixdóttur frá Tungu í Út-Landeyjum, en þau hjón bjuggu á einu býlanna við Stóru- Vatnsleysu. Þar var Guðrún fædd 23. janúar 1899. Þau Jóhann bjuggu í ástríku hjónabandi í nær 59 ár. Þau voru að mörgu leyti ólík en bættu hvort annað upp. Hann var kátur og léttur í lund að jafnaði en skipti ört skapi, hún er blíðari og hægari og heldur sínu jafnaðargeði hvað sem á dynur. Bæði dugnaðarforkar í lífsbarátt- unni og þurftu oft að leggja sig öll fram á hinum fyrstu búskaparár- um, þegar börnin voru í ómegð og efnin lítil. Vann þá Guðrún oft úti við fiskverkun og lagði mikið til heimilisins. Jóhann var mjög eftirsóttur sem vélamaður á bátum og þótti snillingur að halda gangfærum, slitnum og erfiðum vélum. Stund- um tók hann þá áhættu að bera ábyrgð á að vélin gengi, gegn því að fá aukinn hlut. Er fram yfir 1930 kom fór Jóhann að leggja fé í kaup á bátum, í fyrstu í samlagi við aðra, en síðan einn sér. Hann eignaðist marga smærri vélbáta keypti þá gjarnan í lélegu ástandi, var duglegur og útsjónar- samur að koma þeim í gott lag, gerði þá út í stuttan tíma og seldi síðan. Þegar kom fram yfir 1940 fór hagur hans að vænkast, eins og fleirra er við útgerð fengust. Hann var áræðiiin eftir stríðslok- in, að festa kaup á bát frá Svíþjóð þegar haustið 1945 og fór með syni sínum er þá var uppkominn og gekk frá kaupunum í Smögen og kom með bátinn, er hét „Dúx“, til Keflavíkur þá í september. Þetta var 75 tonna eikarbátur og reynd- ist mjög vel, og varð útgerð Jóhanns hin mesta lyftistöng. Fleiri báta eignaðist Jóhann, en er kom fram yfir árið 1960 dró hann sig í hlé og hætti útgerð enda orðinn slitinn maður og búinn að leggja sitt fram til þjóðarbúsins. Jóhann og Guðrún hófu sinn búskap í Keflavík, bjuggu síðan eitt ár í Hafnarfirði, fluttu svo aftur til Keflavíkur og bjuggu þar alla tíð síðan, fyrst í leiguhúsnæði, en byggðu myndarlegt íbúðarhús að Vesturbraut 3 árið 1942 sem þau dvöldu í allt þar til þau fluttu að Hrafnistu í Reykjavík nokkrum vikum fyrir andlát Jóhanns. Síðustu árin fór heilsu þeirra hrakandi, nutu þau þá mikillar umhyggju tengdadætra sinna í Keflavík, er lögðu sig fram um að hjálpa þeim í einu og öllu og skiptust um að vitja gömlu hjón- anna oft á dag. Jóhann og og Guðrún eignuðust fjögur börn, en þau eru: Guðjón f. 8. mars 1923, kv. Ólöfu Pétursdótt- ur frá Siglufirði, þau eiga Stef- aníu, Auði, Björk og Ingibjörgu, Pétur f. 23. júní 1925 kv. Svein- björgu Karlsdóttur og eiga þau Guðrúnu, Ingunni Steinu, Sævar og Pétur og fóstursoninn Braga Guðmundsson, Agnesi f. 19. jan. 1927 g. Haraldi Sveinssyni, þau eiga Soffíu, Ásdísi, Jóhann og Svein, Jón f. 28. mars 1929 kv. Jónu Sigurgísladóttur og eiga þau Stefaníu, Guðbjörgu, Jóhann Gunnar og Sigurgeir. Alls eru afkomendurnir 35 að tölu. Það er með sárum söknuði, sem aðstandendur kveðja kæran föður, afa og langafa. Ávallt var til- hlökkunarefni að heimsækja hann og Guðrúnu á Vesturbrautinni, móttökurnar voru alltaf fullar ástar og hjartahlýju. Barngóður var afi með afbrigðum og lét sig miklu varða velferð og hag allra sinna. Hann hafði yndi af að segja frá ýmsu er á dagana hafði drifið, en síðari árin var einkennandi hve minningarnar frá æskuárunum í hinum fagra Svarfaðardal leituðu oft á. Þá voru að mestu gleymd hin erfiðu kjör í uppvextinum, en björtu minningarnar tóku völdin. Blessuð sé minning Jóhanns. Allir hugsa nú til hinnar öldr- uðu ekkju með samúð og hluttekn- ingu. Megi ylur samverustund- anna með hjartkærum lífsföru- naut um sex áratuga skeið hugga hana og styrkja. Haraldur Sveinsson. Fæddur 19. janúar 1950. Dáinn 7. ágúst 1980. Þó að þeirri staðreynd verði ekki haggað, að eitt sinn skuli hver deyja þá er jafnan erfitt að sætta sig við það, þegar dauðinn knýr dyra og ekki síst þegar ungir menn kveðja í blóma lífs og skilja eftir svo marga ástvini og eiga svo mörgu ólokið. Eiginkona sér á bak manni sínum, börn missa föður og for- eldrar sakna góðs sonar. Hvers á að gjalda spyrja menn, fá ekki svar, en standa orðvana andspænis napurri hönd dauðans. Hann var kornungur heiðurs- maður. Hann var fagurkeri og staðfast- ur drengskaparmaður. Hann var lífsglaður, góður faðir og eiginmaður. Hann átti engum skuld að gjalda. Saga hans varð ekki löng, en starf og ævi skilur eftir hressileik og kraft þess manns, sem ræktaði garðinn og miðlaði jafnan af gleði sinni og hamingju. Þótt skelfilegt slys hafi nú bundið enda á lífs- hlaup hans, þá er nokkur huggun af því, að minningin er fölskva- laus. Atli Þór var fæddur á Akranesi 19. janúar árið 1950. Foreldrar hans eru Hulda Jónsdóttir frá Skjöldólfsstöðum og ■ Helgi Júlí- usson frá Leirá. Atli var næst elstur þriggja systkina, elstur er Pétur Már, skrifstofumaður, bú- settur í Reykjavík og yngst Hall- fríður, sem stundar nám við Há- skóla íslands. Að loknu hefð- bundnu skólanámi á Akranesi hóf hann nám við Iðnskólann á Akra- nesi og nam úrsmíði, fetaði þar í fótspor föður síns, sem um árabil hefur starfað sem úrsmiður á Akranesi. Hann lauk síðan námi í danska úrsmíðaskólanum árið 1972, en hélt þá til framhaldsnáms í Sviss. Að námi loknu settist hann að á Akranesi og hóf störf við fyrirtæki föður síns, þar sem hann annaðist þau störf sem hann hafði lært til. Auk starfa sinna við úrsmíðina var hann oft til kvadd- ur þar sem sýna þurfti hagleik, enda frábærlega hjálpsamur og greiðvikinn. Hinn 6. júlí 1974 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Sigríði Óladóttur frá Akranesi, en hún er dóttir Gíslínu Magnúsdóttur og Óla Arnar Ólafssonar sem látinn er fyrir nokkrum árum. Þau Atli og Sigríður eignuðust þrjú börn, Helgu 6 ára, Óla Örn 2 ára og óskírða dóttur, sem nú er tveggja mánaða. Þessi er í örfáum orðum ævi- saga nafna míns. Getur nokkur fært í letur þau orð, sem mega verða syrgjendum huggun? Getur nokkur grætt þau sár, sem nú blæða? Getur vinur nokkuð annað en óskað eiginkonu, börnum og for- eldrum þess að minningin um góðan dreng verði björt og sárin megi gróa? Atli Freyr Guðmundsson. Margoft erum við minnt á, að íslensk náttúra er þrungin óvissu, hættum og ógnunum, sem mann- legur máttur fær oft ekki við ráðið. Þetta á ekki aðeins við um fjöll og firnindi, himinn og haf, jökla og jökulár, heldur einnig lind- og bergvatnsár, sem oft láta lítið yfir sér. Þessa urðum við áþreifanlega vör fimmtudaginn 7. ágúst síðastliðinn, er Norðurá í Borgarfirði, ein af okkar fegurstu og bestu laxveiðiám, hrifsaði til sín með hörmulegum hætti, bjart- an, glaðlegan og hraustan svein, þrítugan að aldri; Atla Þór Helga- son, úrsmið frá Akranesi. Atli Þór var fæddur 19.-janúar 1950 á Akranesi, sonur Helga úrsmiðs á Akranesi Júlíussonar, fyrrum bónda að Leirá í Leirár- sveit, og konu hans Huldu hús- móður á Akranesi Jónsdóttur húsasmiðs á Norðfirði og síðar á Akureyri. Uppvöxt sinn fékk Atli á Akra- nesi ásamt systkinum sínum þeim Pétri og Hallfríði. Stundaði hann þar nám og leik, en hélt síðan að gagnfræða- og iðnskólanámi loknu til framhaldsnáms í Ringsted í Danmörku, þar sem hann lagði fyrir sig sömu iðn og faðir hans, úrsmíði. Frá þeim tíma, náms- dvölinni í Danmörku, eiga skóla- bræður hans og kunningjar marg- ar hlýjar endurminningar. Með úrsmiðanáminu fetaði Atli í fótspor föður síns, sem alla tíð hafði á honum verðskuldað dálæti. Starfaði Atli að námi ioknu um tíma hjá Omega í Sviss, en hóf að þeim tíma liðnum, er heim kom, vinnu á Akranesi við iðn sína með föður sínum, sem þá starfrækti ásamt eiginkonu sinni úra- og skartgripaverslun auk úrsmíða- og viðgerðaverkstæðis. Tók Atli þátt í þeirri uppbyggingu af lífi og sál, eins og öllu, sem hann tók sér fyrir hendur og þótti einsýnt, hver yrði helstur til að taka við fyrir- tæki fjölskyldunnar. Harmur for- eldra hans og systkina er því mikill við svo sviplegt fráfall. Enn meiri er missir eftirlifandi eiginkonu Atla, Sigríðar hús- mæðrakennara Öladóttur fyrrum skrifstofumanns á Akranesi og konu hans Gíslínu starfsmanns í Samvinnubankanum á Akranesi. Til hjúskapar stofnuðu þau Atli og Sigríður árið 1974, sem reyndist þeim farsæll og kærleiksríkur. Eignuðust þau 3 börn. Voru þau hjónin samhent og bjartsýn á velferð sína og allt sem framund- an var hverju sinni. Virtist lífið og hamingjan leika við þau nú á þessu sumri, allt fram að þeim degi, er skugga brá fyrir svo óvænt og óviðbúið. Á slíkri rauna- stund kemur sér vel raunsæi Sigríðar, dugnaður hennar og mild lund. Mestur er þó missir barnanna þriggja, sem fengu að kynnast föður sínum, svo stutt, sem raun ber vitni, Helga í 6 ár, Óli Örn í 2 ár og stúlkan sú yngsta aðeins í 2 mánuði. Yfir slíkum örlögum ungra barna verða allir sem til þekkja agndofa. Reynir nú og síðar á vini og vandamenn í aðstoð og ummönnun þeirra. Fyrir aðra er fráfallið einnig sárt og þungt. Atli var ákaflega glaðlegur og hýr maður og átti sérstaklega auðvelt með að um- gangast fólk, létta því stundir og koma fram brosi. Þá var það fátt, sem hann lét sér óviðkomandi og hafði oft aflað sér upplýsinga og þekkingar um ótrúlegustu hluti. Áhugasamur var hann um félags- mál heimabæjar síns og tók t.d. virkan þátt í starfi íþróttahreyf- ingarinnar, einkum badmintonfé- lags Akraness, sem hann helgaði krafta sína nú hin síðari ár, en var um tíma þar á undan áhugasamur sundíþróttamaður. Átti hann sæti í stjórn Badmintonfélags Akra- ness og sem fulltrúi þess í stjórn Iþróttabandalags Akraness. Innan Kiwanishreyfingarinnar á Akra- nesi var Atli ómissandi við öll meiriháttar tækifæri og lagði á sig mikið og óeigingjarnt starf í hennar þágu. Meðal stéttarbræðra sinna, úrsmiða, var hann virtur sem fagmaður og innan Akraness, sem dugmikill, framsýnn og traustur iðnaðarmaður. Orðstír gat hann sér því góðan og varð af því mjög vin- og félagamargur hið stutta æviskeið sitt. Með trega horfa ættingjar, vinir og kunningjar á eftir Atla Þór í dag, hinsta sinni. Minningin um góðan og glaðleg- an dreng mun þó geymast og greipast í hugi og hjörtu þeirra sem eftir standa um ókomin ár. Innilegustu samúðarkveðjur til ættingja og vina. Guðrún og Jón Sveinsson. Mönnum virðast það næsta aug- ljós og sjálfsögð sannindi, að allt, sem til er orðið, renni sitt skeið á enda í þrotlausri baráttu um það að vera eða vera ekki, þar til sá tími er kominn, að það gengur úr sér og leysist upp í móðuna miklu — þá móðu, er skilur að líf og dauða. Ótrygg er ögurstund í heimi, þar sem allt er á hverfanda hveli, þar sem hlutirnir stíga fram úr engu og bera sem leiftur við himin veruleikans eina örskots- stund, hverfa síðan jafnskjótt og þeir komu inn í ginnungagap eyðingar og gleymsku. En við hinu fást engar skýr- ingar, hversvegna ungur maður í blóma lífsins, sem enn á hlutverki sínu ólokið í heimi hér, er á snöggu augabragði hrifinn brott af landi lifenda, frá konu sinni og börnum. Eigi má sköpum renna segir máltækið, en andspænis slík- um ósköpum stöndum við hin agndofa í orðlausri spurn. Nú er Atli Þór Helgason ekki framar lífs. I einni svipan er þessi lífsglaði og fjörmikli samferða- maður okkar í barna- og gagn- fræðaskóla sviptur sjónum okkar. Enn hefur sá slyngi sláttumaður höggvið skarð í hópinn. Og þetta skarð mun ævinlega standa opið og ófyllt, eins og sár, sem aldrei grær. Því það er rangt, að maður komi í manns stað. Okkur skólasystkinum Atla Þórs mun þykja veröldin snauðari eftir sviplegt fráfall svo góðs félaga. En Atli Þór skilur eftir sig ummerki, gengin spor, sem aldrei fyrnast. Þótt maðurinn sjálfur sé úr augsýn um stund, á hann ítök í okkur öllum, sem þekktu hann og minningin um góðan dreng er auður, sem við öll búum að, svo lengi sem við sjálf lifum. Við kveðjum þennan skólabróð- ur okkar í öruggu trausti þess, að sá, sem tók ástfóstri við hann í heilagri skírn, muni aldrei sleppa af honum hendi sinni, heldur halda honum í órjúfanlegu sam- félagi við sig út yfir gröf og dauða. Sigríði og börnunum litlu þremur færum við hinar dýpstu samúð- arkveðjur og biðjum Guð að vera þeim huggun harmi gegn. — Drottin veiti dánum ró, en hinum líkn, er lifa. Skólasystkini úr G.S.A. Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir vara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið af marggefnu tilefni að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.