Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Hveragerði Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaöið í Hvera- gerði. Uppl. hjá umboðsmanni í síma 4389 og hjá afgr. í Reykjavík sími 83033. Skrifstofustarf — tölvuvinnsla lönfyrirtæki óskar eftir aö ráða stúlku til símavörzlu og vélritunarstarfa. Ennfremur stúlku til aö starfa við IBM 32 tölvu. Upplýsingar sendist Mbl. merkt: „Framtíðar- starf — 4041“. BARNAHEIMILIÐ C6P Fóstrur Barnaheimiliö Ösp Asparfelli 10, óskar eftir að ráða fóstru. Laun miðast við 11. launafl. Uppl. gefur forstöðumaöur í síma 74500 eða á staönum. HILDA HF. Saumakonur óskast strax Fyrirtækið er miðsvæöis á góðri strætis- vagnaleið, góð vinnuskilyrði, ódýrt mötuneyti á staönum. Uppl. í síma 81699. Hilda h.f. Bolholti 6. Akraneskaupstaður Störf við leikskóla Umsóknir óskast í ettirtalin störf viö leikskóla viö Skarösbraut. 1. Málft starf fóstru fyrir hádegi, laust frá 1. sept. 2. Hálft starf aöstoóarmanns fyrir hádegi. laust frá 25. ágúst. Skriflegum umsóknum er tilgreini aldur, menntun og fyrri störf ásamt meömælum sé skilaö á Bæjarskritstofuna Krikjubraut 8, fyrlr 21. ágúst n.k. Nánari uppl veittar á leikskólanum sfmi 93-2663 og hfá undirrituöum sími 93-1211. Félagsmálast/óri. Framtíðarstarf Óskum eftir að ráða starfsmann til ýmis konar starfa viö vinnslu á laxi og síld. Hafiö samband við verkstjóra á staðnum. íslenzk matvæli h.f. Hafnarfiröi. Aðstoðarmaður óskast við dreifingu og pökkun. Brauö h.f. Skeifan 11, Reykjavík. Afgreiðslustarf Óskum eftir að ráða stúlkur í eftirtalin störf: A. Verzlunarstjóra. B. Afgreiðslustúlku, vinnutími frá kl. 13—18. Uppl. í síma 27950 eftir kl. 16 í dag og næstu daga. Piccadilly. Trésmiðir 2—3 trésmiðir óskast í 2 mánuöi, þrifaleg innivinna við grófsmíði. Upplýsingar í síma 11630. Verzlunarstjóri Þekkt sérverzlun óskar að ráða starfskraft. Aldur 28—40 ára. Góð enskukunnátta. Góö laun í boði fyrir duglegan starfskraft. Tilboð sendist Morgunbl. merkt: „Liðlegur — 4438.“ Sölumaður Óskum að ráða strax röskan sölumann í teppadeild. Uppl. hjá deildarstjóra. Jón Loftsson h.f. Hringbraut 121 Oskum að ráða starfsfólk á saumastofu. Upplýsingar í síma 38533. Rammaprjón hf. Súðavogi 50. Fataverzlun óskar eftir starfskrafti á aldrinum 20—35 ára strax. Vinnutími 1—6 e.h. Umsóknir er greini aldur, menntun og fyrri störf sendist augld. Mbl. merkt: „Hálfan daginn —4439“. Skrifstofustarf Stórt fyrirtæki í Reykjavík óskast eftir starfskrafti til að annast símavörslu og önnur almenn skrifstofustörf. Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir mánudaginn 18. ágúst n.k., merkt: „Skrifstofustarf — 4040.“ Tæknimaður Óskum eftir aö ráða starfsmann til ísetningar á rafeindatækjum í bifreiöar, enn fremur til viöhalds og viögeröa. Góð þekking og áhugi á rafmagns og rafeindatækni nauösynleg. Æskileg menntun, próf í rafeindavirkjun eða ööru áþekku. Umsóknir með uppl. um aldur, menntun og fyrri störf sendist augld. Mbl. merkt: „R — 4039“ fyrir 22. ágúst nk. HiJ BORCARLÆKN.R Fulltrúastarf Starf háskólamenntaðs fulltrúa viö skrifstofu borgarlæknis er laust til umsóknar. Starfiö felst í söfnun upplýsinga um heil- brigöismál, gagnaúrvinnslu og skýrslugerð. Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gott vald á úrvinnslu tölfræöigagna. Einnig er æskilegt að umsækjendur hafi vald á kostnaðarútreikningum og rekstraráætlun- argerð og geti framkvæmt einfaldar heilsu- hagfræðilegar athuganir. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist undirrituðum fyrir 1. september n.k. Reykjavík 6. ágúst 1980. Borgarlæknirinn í Reykjavík. Djúpivogur: Handfærabátar hafa fiskað vel síðan fiskveiðibanni lauk FRAM að þessu hefur sumarið verið gott hér í Suðurfjörðum, oftast logn og góðviðri. Þó hefur verið sólarlítið síðan um miðjan júní og heyskapur hefur gengið hægt en spretta er ágæt. Handfærabátar hafa fiskað vel eftir að fisk- veiðibanni iauk. Á hum- arvertíðinni bárust hér á land um 24 tonn af slitn- um humar af tveimur bát- um, Otto Wathne og 111- uga. Æðarvarp í eyjum úti fyrir Hamarsfirði hefur verið fremur lítið í vor þrátt fyrir góða tíð og hefur farið minnkandi síð- ustu árin. Nokkuð hefur verið um að æðafugl verpi á ströndinni meðfram fjörð- unum en mest af því varpi er eyðilagt af mink og vargfugli. Bóndi á einum bæ í Álftafirði sagðist hafa vitað af um 60 æðarkollu- hreiðrum í landi sínu, en hann taldi að þau hreiður hefðu flest verið rænd. Tvö minkagreni fundust við Hamarsfjörð og voru þar drepnir um 10 minkar í sumar. Fólk notar sumarið til ferðalaga og útiveru. Sumir fara til útlanda, t.d. er all stór hópur fólks héðan á ferð um Norðurlönd. Ásgeir Hjálmarsson bílstjóri er nýkominn úr ferð um há- lendi með annan ferðahóp. Hestamenn hafa verið með kunnáttumann í hesta- mennsku á sínum vegum. 26. júlí var haldið hér frjálsíþróttamót barna en Kristjana Hrafnkelsdóttir frá Stykkishólmi hefur kennt börnum frjálsar íþróttir frá því um miðjan júní og hafa foreldrar verið ánægðir með starf hennar og voru margir þeirra við- staddir er mótið fór fram. Ingimar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.