Morgunblaðið - 14.08.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
3
Ljósm. Mbl. Kristinn.
Hafbeitarlaxar hafa skilað sér vel í laxeldisstöðina í Kollafirði í sumar, eins og fram hefur komið i
blaðinu. Meðfylgjandi mynd var tekin í gær er starfsmaður stöðvarinnar var að vigta og mæla einn
hafbeitarlaxinn.
Færri en stærri laxar
hafa veiðst í sumar
LAXVEIÐI hefur verið misjöfn
hér á landi i sumar, vel hefur
veiðst í net, en minna á stöng.
að því er Þór Guðjónsson veiði-
málastjóri sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins i
gær. Að sögn Þórs er liklegast
að lítið vatn í ám og hlýtt
veðurfar geri það að verkum að
stangaveiðin hefur verið frem-
ur dræm, en mikið virtist þó um
lax i ánum.
Laxinn í sumar hefur aftur á
móti verið vænni en oft áður, og
fjöldi laxa yfir 20 punda þungir
hafa veiðst. Minna hefur verið
um smálax, og hann hefur geng-
ið seinna í árnar en venja er til.
Netaveiðin hefur einkum verið
góð í Hvítá í Borgarfirði og
Olfusá, en laxveiði hefur verið
dræm í Hvítá í Árnessýslu, mest
vegna leirburðar úr Langjökli
sem hefur verið mikill í sumar. I
laxeldisstöðinni í Kollafirði hef-
ur verið nokkuð mikil laxagengd
í sumar, og hafa þegar komið um
25000 laxar. Þeir eru ýmist
seldir á markað í Reykjavík eða
notaðir til undaneldis.
Af ám þar sem veiðin hefur
farið yfir 1500 laxa í sumar má
nefna Norðurá, Laxá í Aðaldal,
Þverá, Miðfjarðará og fleiri, og
er veiðin þar ekki mikið lakari
en oft áður, enda þessar ár
fremur vatnsmiklar miðað við
margar aðrar.
Færeyingar búnir
með veiðikvótann
- Halda eigi að siður áfram veiðum
FÆREYSK fiskiskip hér við land
hafa nú veitt upp i umsaminn
kvóta. þ.e. 17 þúsund tonn, sam-
kvæmt upplýsingum Landhelgis-
gæzlunnar.
Þeir halda eigi að síður áfram
veiðum sínum. Togararnir eru
tveir og eru þeir báðir farnir til
Færeyja. Tveir línubátar eru enn-
þá hér við land, annar þeirra út af
Jökli og hinn suður á Hvalbak.
Ellefu handfærabátar eru svo í
tveimur flokkum, annar við
Langanes og hinn við Kolbeinsey.
Friðjón Þórðarson, dómsmála-
ráðherra, sagðist hafa kynnt mál-
ið í ríkisstjórn í fyrradag, en hann
ætti von á því, að nauðsynlegt yrði
að grípa til aðgerða. Færeyingarn-
ir myndu eflaust halda heim á leið
innan tíðar.
jr r
Magnús A. Arnason
listamaður látinn
MAGNÚS Á. Árnason. list-
málari, er látinn 85 ára að
aldri, en hann var fæddur
28. desember 1894 í Narfa-
koti, Innri-Njarðvík.
Á yngri árum stundaði
Magnús nám í ýmsum
listaskólum erlendis og
nam þar myndlist og tón-
smíðar, enda hafa hans
aðalstörf í gegnum árin
verið listmálun, högg-
myndalist og tónsmíðar,
auk þess sem Magnús hefur
stundað þýðingar.
Magnús var giftur Bar-
böru Árnason listakonu,
sem látin er fyrir nokkrum
árum.
Magnús Á. Árnason listmálari.
Krefjast kjötbirgða
á höfuðborgarsvæðið
„ÞAÐ var samþykkt á stjórnar-
fundi hjá okkur í dag, að kref jast
þess að eitthvað af þeim miklu
kjötbirgðum, sem sagðar eru úti
á landsbyggðinni, verði þegar í
stað sendar til höfuðborgarsvæð-
isins, þar sem um helmingur
landsmanna býr.“ sagði Jónas
Gunnarsson, formaður Félags
matvörukaupmanna.
„Undir þessa kröfu okkar taka
svo Neytendasamtökin, en Jónas
Bjarnason, varaformaður þeirra
sat þennan stjórnarfund, að okkar
beiðni.
Það var einróma álit ókkar
allra, að þetta kjöt væri eign allra
landsmanna, a.m.k. að því leyti
sem niðurgreiðslunum nemur, auk
þess sem þessir aðilar fá aðra og
meiri lánafyrirgreiðslu til kaupa á
kjötinu en gengur og gerist á
almennum lánamarkaði. Það má í
raun segja, að þjóðin taki þátt í að
kaupa kjötið með þeim. Við erum
því ekki sammála þeim fram-
leiðsluráðsmönnum, sem segja
þessa aðila hafa fullan yfirráða-
rétt yfir kjötinu," sagði Jónas.
Aðspurður sagði Jónas, að þeir
myndu ásamt fulltrúum Neytend-
asamtakanna fara á fund hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins í
dag til að ræða þessi mál og fá
nánari upplýsingar um hvar kjötið
sé niðurkomið. — „Ef málið hefst
ekki með aðstoð Neytendasamtak-
anna munum við væntanlega snúa
okkur til verkalýðssamtakanna,
sem hljóta að styðja okkur í þessu
máli,“ sagði Jónas ennfremur.
Útlit er fyrir minni raf-
magnsskömmtun í vetur
VATNSBORÐ Þórisvatns er nú
um tveimur metrum hærra en
það var á síðasta ári, sem var
óvenjulega slæmt, að sögn Jó-
hanns Más Maríssonar, yfirverk-
fræðings hjá Landsvirkjun.
Vatnið er hins vegar ekki nærri
fullt, því enn vantar um þrjá
Myndatöku frest-
að um eitt ár
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta
töku myndarinnar, Leit að eldi,
um a.m.k. eitt ár vegna verkfalls
leikara i Bandarikjunum, en það
var bandariska kvikmyndafyrir-
tækið 20th Century Fox, sem
ætlaði að fjármagna hana.
Ekki tókst að fá annað kvik-
myndafyrirtæki til að taka verkið
að sér og því ákveðið að fresta því
eins og áður sagði.
metra ti). þess. „Við bíðum því
eftir haustrigningunum og vonum
að þær verði okkur hagstæðar,"
sagði Jóhann.
Verður rafmagnsskömmtun í
vetur? — „Það lítur allt út fyrir að
um einhverja skömmtun verði að
ræða, jafnvel þótt vatnið fyllist.
Hversu mikil þessi skömmtun
verður ræðst svo af því hvernig
veturinn verður. Það má og geta
þess, að þessi skömmtun mun
væntanlega ekki koma niður á
venjulegum neytendum, heldur
aðeins þeim aðilum, sem kaupa
orku af okkur á svokölluðum
„ótryggum sölugrundvelli", eins og
t.d. Járnblendiverksmiðjan, sem
er með um helming sinnar orku á
ótryggum sölugrundvelli. Þá verð-
ur nýja viðbótin hjá ÍSAL á
þessum ótrygga grundvelli með
helming sinnar orku,“ sagði Jó-
hann ennfremur.
vikufcrö til
Rimini
18. ágúst
Verð frá kr. 229.000
Nú bjóöum viö örfá sæti í vikuferö til
Rimini 18. ág. Gisting í ibúöum á Sir
og Sole Mar. Spegiltær sjór og sand-
ur og iðandi mannlif ailan sólar-
hringinn.
Rimini - ein af allra bestu sóiar-
ströndunum.
Takmarkað sætaframboö - pantiö
strax.
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆT112 - SlMAR 27077 & 28899