Morgunblaðið - 14.08.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
29
Atvinnulausum f jölg-
ar í Vestur-Þýzkalandi
SAMDRÁTTAR er nú far-
ið að gæta í vestur-þýzku
efnahagslífi, sem sézt bezt
á því, að í s.l. mánuði jókst
atvinnuleysi töluvert, jafn-
hliða því, sem iðnaðar-
framleiðsla landsmanna
dróst lítillega saman.
Samkvæmt upplýsingum
atvinnumálaráðuneytisins í
Bonn fjölgaði atvinnulaus-
um um liðlega 71 þúsund í
sl. mánuði og eru atvinnu-
lausir í Vestur-Þýzkalandi
því orðnir rúmlega 853 þús-
und talsins. Aukningin frá
júní til júlí er mjög nærri
9%.
Þetta er ennfremur
athyglisvert þegar það er
haft í huga, að atvinnulaus-
um fækkar alla jafna þessa
HEILDARFJÖLDI vinnuíærra
manna í Sviþjóð i lok júnimánaö-
ar var liðloKa 4.42 milljónir. sem
er um 73.2% aí heildarfjulda
landsmanna á aldrinum 16—74
ára.
Sambærilegar tölur á síðasta
Janúar-júní:
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR Svia
var óhagstæður fyrstu sex mán-
uði ársins um 6 milljarða
sænskra króna, eða sem næst 714
milljörðum íslenzkra króna.
Vöruskiptajöfnuður Svía var
hins vegar hagstæður um 760
milljónir sænskra króna á fyrstu
scx mánuðum s.I. árs, eða sem
næst 90 milljörðum islenzkra
króna.
Heildarverðmæti innflutnings
Á sama tíma og
iðnaðarfram-
leiðsla
landsmanna
dregst saman
mánuði, þegar fólk er ráðið
til sumarafleysinga.
Prósentulega eru nú um
3,7% vinnufærra manna í
Vestur-Þýzkalandi án at-
vinnu, en á sama tíma í
fyrra var talan um 3,4%.
Josef Stingl, ráðuneytis-
stjóri atvinnumálaráðu-
neytisins, sagði fyrir
skömmu, að ástæðan fyrir
þessari fjölgun atvinnu-
lausra væri alveg ljós.
ári voru 4.38 milljónir manna eða
um 72.8% á þessu aldursbili.
í lok júní voru alls 85 þúsund
manns án atvinnu, eða um 1.9%
vinnufærra manna, en voru á
sama tíma í fyrra 97 þúsund
manns, eða um 2,2% vinnufærra.
fyrstu sex mánuðina var um 70.2
milljarðar sænskra króna, eða
sem næst 8350 milljörðum ís-
lenzkra króna. Heildarverðmæti
útflutnings var hins vegar um 64.2
milljarðar sænskra króna, eða
sem næst 7640 milljörðum ís-
lenzkra króna.
Verðmæti olíuvara var um 24%
af heildarinnflutningi lands-
manna, en var á sama tíma í fyrra
um 17%.
Samdráttur í iðnaðarfram-
leiðslu og í þjónustu væri
augljós. Fyrirtæki hefðu
einfaldlega ekki ráð á því
að ráða til sín nauðsyn-
legan fjölda sumarstarfs-
manna.
Hann sagði ennfremur,
að iðnaðarframleiðslan í
landinu hefði minnkað um
1% í síðasta mánuði og
síðustu þrjá mánuði hefði
framleiðslan minnkað um
3,5%. Þá kom fram hjá
ráðuneytisstjóranum, að
byggingariðnaður ætti nú
við mikil vandamál að
stríða, og hefði samdrátt-
urinn þar verið um 4,5% á
sl. þremur mánuðum. —
„Fólk hefur einfaldlega
minna handa á milli og
útlánsvextir eru of háir,“
sagði ráðuneytisstjórinn
ennfremur.
Heildaratvinnuleysi
kvenna er um 5,4% á sama
tíma og atvinnuleysið er í
kringum 2,7% hjá karl-
mönnum í Vestur-Þýzka-
landi.
Fer sennilega
í leigu áfram
„ÞVI er til að svara, að við
höfum enn ekki fundið nein
verkefni fyrir vélina, en
sennilega fer hún í leigu
áfram," sagði Sigurður
Helgason, forstjóri Flug-
leiða, er Mbl. innti hann
eftir því hvað félagið hygð-
ist gera við DC-8 þotu þá er
Cargolux mun skila þeim
úr leigu í haust, eins og
kemur fram í viðtali við
Einar Ólafsson, forstjóra
Cargolux hér á síðunni.
„Það er ljóst, að hún mun
ekki fara inn í áætlun hjá
okkur þar sem hún er
útbúin með fraktinnrétt-
ingu,“ sagði Sigurður
ennfremur.
Atvinnulausum fækk-
ar nokkuð í Svíþjóð
V öruskiptajöf nuður
Svía óhagstæður um
714 milljarða króna
Eigendaskipti á
Olivetti-umboðinu
OLIVETTI-umboðið Skrifstofutækni hf. hefur nú skipt um eigendur.
Hinir nýju eÍKendur eru Bernur Björnsson ok Leó M. Jónsson ok kom
fram hjá Leó i samtali við Mbl., að unnið er að mjög mörgum
verkefnum á vegum fyrirtækisins um þessar mundir.
Nefndi hann í því sambandi
undirbúning að gerð tilboðs í 176
sjálfstæða tölvuterminala fyrir
banka hér á landi. Hér er um að
ræða terminala af gerðinni Oliv-
etti TC 1800 og sambærilegt tölvu-
kerfi á við það sem danskir bankar
hafa nýlega keypt af Olivetti.
Þetta verkefni er unnið í sam-
vinnu við tölvudeild Olivetti i
Mílano og samkvæmt útboði*
Reiknistofu bankanna.
Þá er unnið að gerð forrita-
pakka fyrir bókhalds- og endur-
skoðunarfyrirtæki. Þegar eru til-
búin forrit fyrir viðskiptamanna-
bókhald, launareikning og nótu-
útskrift og hafa þau verið reynd
með ágætum árangri. Verið er að
vinna að því, að setja upp fjár-
hagsbókhald og samræma við-
skiptaskrá, nótuútskrift, birgða-
skrá og sölu/'ærslu þannig að um
sjálfvirka uerslu og afstemmingu
sé að ræða þar á milli þannig að út
úr fáist bæði innheimtueftirlit og
pantanadagbók.
Nýtt tölvukerfi fyrir Hótel frá
DTS h^fur verið kynnt stærstu
hótelum í Reykjavík. Rekstur hót-
ela gjörbreytist með notkun slíkra
kerfa og er það fyrst og fremst
fólgið í samtengingu afgreiðslu-
stöðva um allt hótelið þannig að
innfærslur á gestareikningi gerast
jafnóðum og keypt er inn á
móðurtölvu í gestamóttöku.
Þá eru á boðstólum svokölluð
„Skannerkerfi" fyrir kjörbúðir frá
DTS og er það nýjung á markaðn-
um hér. Kerfið gerir það að
verkum að allur innsláttur á kassa
í kjörbúðum verður úr sögunni.
Þess í stað er vörunni með sér-
stakri OCR kvótamerkingu brugð-
ið undir til þess gerðan skanner,
eða nema, sem skráir sjálfvirkt
inn á DTS afgreiðslutölvu jafnóð-
um.
Á verkstæði fyrirtækisins
starfa nú þrír skrifvélavirkjar og
einn rafeindatæknir við tölvuvið-
hald. Einn kerfisfræðingur er í
hlutastarfi, en auk hans sjá fram-
kvæmdastjóri og sölustjóri um
gerð forrita. Þá er sérstakur
forritunarmaður í hlutastarfi
vegna DTS-tölva.
Minning:
Sigurður Gunn-
arsson prentari
Fæddur 10. ágúst 1923.
Dáinn 6. ágúst 1980.
Sú harmafregn barst okkur,
starfsfólki Félagsprentsmiðjunn-
ar, þegar við mættum til vinnu á
fimmtudagsmorguninn í sl. viku,
að Sigurður Gunnarsson verk-
stjóri væri látinn.
Hann hafði farið um helgina
ásamt konu sinni norður á Skaga-
strönd að heimsækja æskustöðvar
hennar, þegar kallið kom.
Sigurður Gunnarsson var fædd-
ur 10. ágúst 1923 að Selalæk á
Rangárvöllum. Foreldrar: Gunnar
Sigurðsson frá Selalæk, bóndi og
þingmaður, og kona hans Sigríður
Siggeirsdóttir.
Sigurður hóf störf við sendiferð-
ir í félagsprentsmiðjunni á unga
aldri og lærði þar síðan og starf-
aði um árabil, síðar vann hann í
ýmsum prentsmiðjum í Reykjavík.
Það var gleðiefni þegar Sigurður
kom til okkar aftur og tók við
verkstjórn, við höfðum haft af
honum löng og góð kynni.
Sigurður var einstakt prúð-
menni og góður í umgengni.
Hann var góður verkmaður og
smekkmaður. I stóru fyrirtæki eru
verkefnin mörg, sem leysa þarf
daglega og ekki síst nú í prentiðn-
aði þegar ný tækni gengur í garð,
slíkt reynir á huga og hönd.
Sigurður var kvæntur Sigríði
Ólafsdóttur, ágætri konu, sem
starfaði fyrr á árum í Félags-
prentsmiðjunni. Þau áttu tvö upp-
komin börn, Sigríði og Ólaf,
myndarleg og vel menntuð.
Að leiðarlokum sendum við,
starfsfólkið í Félagsprentsmiðj-
unni, konu hans og börnum inni-
legar samúðarkveðjur og biðjum
þess að minningin um góðan dreng
veiti þeim styrk í þeirra miklu
sorg.
Blessuð sé minning Sigurðar
Gunnarssonar.
Erlendur Guðlaugsson.
Föðurbróðir minn Sigurður
Gunnarsson prentari lést þ. 6.
ágúst sl. Hann var fæddur 10.
ágúst 1923 að Selalæk á Rangár-
völlum, sonur hjónanna Gunnars
Sigurðssonar og Sigríðar Siggeirs-
dóttur. Var Sigurður yngstur
fimm systkina og eru nú tvö
þeirra á lífi. Sigurður var giftur
Sigríði Ólafsdóttur frá Skaga-
strönd og áttu þau tvö börn:
Sigríði sem er gift Helga Krist-
björnssyni lækni og Ólaf kennara
á Dalvík sem kvæntur er Sólveigu
Pétursdóttur og eru barnabörnin
orðin sjö.
Nam Sigurður prentiðn í Fé-
lagsprentsmiðjunni og stundaði
hann þá iðn til dauðadags.
Minningarnar streyma upp í
huga mér þegar vitneskjan um að
svo kær og nákominn ættingi sem
Siggi var, er horfinn af sjónar-
sviðinu, ekki síst um allar þær
góðu stundir sem öll fjölskyldan
átti saman á heimili ömmu Sigríð-
ar. En einmitt þaðan á ég svo
margar góðar minningar um
Sigga frænda minn. í mínum huga
var hann dagfarsprúður, glaðlynd-
ur og góður maður og mun minn-
ingin um góðan dreng lifa meðal
okkar sem þekktum hann og þótti
vænt um hann. Það var bæði gott
og gaman að koma á heimili
þeirra Sigga og Sissu enda þau
hjón óvenju samhent og miklir og
góðir félagar, og var ávallt glað-
værð og góðvild í fyrirrúmi þar.
Þar sem það var ávallt kært með
þeim bræðrum, föður mínum og
Sigga, mynduðust sterk tengsl
milli fjölskyldna þeirra og eigum
við systurnar margar góðar minn-
ingar úr æsku með þeim Siggu og
Óla ásamt foreldrum okkar. Hafa
þessi tengsl við Sigga og Sissu
ekki slitnað síðan.
Sissa mín, megi guð gefa þér,
Siggu og Óla, Helga og Sólveigu
styrk og varðveita ykkur og blessa
litlu barnabörnin sem kveðja afa
sinn hinstu kveðju. Er ég kveð
elsku frænda minn með hlýhug og
þakklæti efst í huga bið ég guð að
blessa hann og varðveita. Megi
hann hvíla í friði.
Þorgerður Gylfadóttir.
Guðmundur Jóns-
son - Minningarorð
í dag er til moldar borinn
mágur minn Guðmundur Jónsson,
Bólstaðarhlíð 64.
Guðmundur fæddist að Litlu
Hnausum í Helgafellssveit 20.
nóvember 1910, en ólst upp að
Lækjakoti í Borgarfirði, hjá
frændfólki sínu.
Árið 1940 lá leið Guðmundar til
Reykjavíkur, en þar kynntist hann
konuefni sínu Sigríði. Guðmundur
og Sigríður giftust árið 1941 og
hófu þau fyrst búskap að Hofs-
vallagötu 18, hjá móður og tengda-
móður þeirra Steinunni Jóhannes-
dóttur. Síðar fluttust þau að
Tómasarhaga í eigin íbúð og voru
þar allmörg ár.
Börn þeirra eru Guðbjörn,
Steinar og Ólafur. Guðbjörn býr í
Vestmannaeyjum, giftur, en
Steinar í Reykjavík, giftur. Ólafur
hefur alla tíð búið hjá foreldrum
sínum að Bólstaðarhlíð.
Það er ekki ætlun mín með
þessum línum að rekja ættir og
uppruna Guðmundar, né starfs-
feril hans, að öðru leyti en því að
hann fékkst við bifreiðaviðgerðir á
vegum Reykjavíkurborgar síðustu
árin. Guðmundur vann störf sín af
alúð og samviskusemi, enda vel
verki farinn í sínu fagi, og var
hann vel liðinn af starfsfélögum
sínum, sem öðrum.
Gott var að leita til Guðmundar
ef bíllinn var í ólagi og var hann
jafnan reiðubúinn til aðstoðar.
Guðmundur var sem sagt traust-
vekjandi og ljúfur maður.
Síðustu mánuði átti Guðmundur
við mikla vanheilsu að stríða og
varð nokkrum sinnum að fara á
sjúkrahús, en komst jafnan heim
aftur, nema úr siðustu legunni.
Með þessum línum vil ég kveðja
góðan mág og flytja systur minni
og börnum þeirra mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Páll Hannesson.