Morgunblaðið - 14.08.1980, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, MAGNÚS PÁLSSON, Smyrlahrauni 1, Hafnarfirói, lést í Landakotsspítala 12. ágúst. Bryndís Magnúsdóttir, Snorri Magnússon, Elisabet Jónsdóttir, Jóhanna Magnúsdóttir, Sigurjón Eiösson og barnabörn.
t Elskulegur eiginmaöur minn, GUÐMUNDUR BÖÐVARSSON, Urðarstíg 11, andaöist á Landspítalanum 12. ágúst. Fyrir hönd dætra og tengdasona. Sigríöur Þ. Jónsdóttir.
t Eiginmaður minn, AXEL ÓSKAR ÓLAFSSON, innheimtustjóri Ríkisútvarpsins, lést aöfaranótt 13. ágúst. Þorbjörg Andrésdóttir.
t Eiginmaöur minn og faöir okkar, BALDVIN SIGURÐSSON, Hjalteyri, andaöist 13. ágúst. Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Siguröur Kr. Baldvinsson, Yngvi Rafn Baldvinsson, Margrét Baldvinsdóttir, Óli Þór Baldvinsson, Ari S. Baldvinsson.
t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÍDUR FRIDRIKSDÓTTIR, Bólstaóarhlíö 54, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni á morgun föstudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Stefán Ágúst Kristjánsson, Annella Stefánsdóttir, Magnús Ólafsson, Friórik D. Stefánsson, Ólafía Sveinsdóttir og barnabörn.
t Ástkær eiginkona mín og móöir, INGIBJÖRG S. SÖRENSEN, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. ágúst kl 15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Ingvar Sörensen, Laufey Rasmussen.
t Útför, ELÍASAR KRISTJANSSONAR, er fannst látinn þann 7. ágúst sl. fer fram frá Fossvogskirkju 15. ágúst n.k. kl. 10.30 árdegis. Blóm og kransar afbeönir, en þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á Slysavarnafélag tsiands og félagiö Geöhjálp, gírónúmer 19080-2. Börn, systkini og aórir vandamenn.
t Systir okkar, HÓLMFRÍÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR, Meöalholti 4, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 15. ágúst kl. 13.30. Súsanna Guðjónsdóttir, Konráö Guójónsson.
t Alúöarþakkir til allra, fjær og nær er auösýndu samúö og vinarhug viö fráfall og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu, langömmu, langalangömmu, KRISTJÁNSÍNU SIGURÁSTAR KRISTJÁNSDÓTTUR, frá Naustum og Vindási, Eyrarsveit. Hugi Hraunfjöró, Hulda Pétursdóttir, Alfreö Hólm Björnsson, Pétur Hraunfjörö, Unnur Pétursdóttír, Guölaug Hraunfjörð, Sigfús Tryggvason, Ólöf Hraunfjörð, Karl Árnaaon, Guórún Pétursdóttir.
Jóhann G. Guðjónsson
Keflavík - Minning
Fæddur 31. maí 1897.
Dáinn 26. júlí 1980.
Fimmtudaginn 31. júlí s.l. var
til moldar borinn frá Keflavíkur-
kirkju Jóhann G. Guðjónsson
fyrrum útgerðarmaður í Keflavík.
Hann lést að Hrafnistu 26. júlí.
Jóhann Gunnlaugur var fæddur
í Syðri-Skjaldarvík við Eyjafjörð
31. maí 1897, sonur hjónanna
Ingibjargar Sigurðardóttur og
Guðjóns Jóhannssonar er þar
bjuggu. Guðjón faðir Jóhanns var
sonur Jóhanns Jónssonar bónda
að Þverá í Skíðadal og konu hans
Önnu Guðmundsdóttur frá Ing-
vörum, en Ingibjörg var dóttir
Sigurðar Jónssonar á Böggvi-
stöðum síðar á Hálsi og Snjólaug-
ar Jónsdóttur frá Bakkagerði.
Ingibjörg var kornung tekin í
fóstur af hjónunum á Hamri Árna
Árnasyni og Ingibjörgu Ólafsdótt-
ur og var hjá þeim þar til hún
giftist Guðjóni 1891. Úngu hjónin
bjuggu í fyrstu á Hamri, síðan á
Skáldalæk en fluttust þaðan að
Syðri-Skjaldarvík þar sem þrjú
barna þeirra voru fædd. Vorið
1898 var örlagaríkt þessari fjöl-
skyldu. Þá hafði Guðjón fengið
ábúð á Mið-Samtúni í Glæsibæj-
arhreppi og var nýfluttur á jörð-
ina. Ingibjörg var enn ófrísk og
með fjögur börn til umönnunar.
Guðjóni býðst þá pláss á hákarla-
skipi í eina ferð í forföllum annars
manns. Er á miðin kom fyrir
Norðurlandi veikist hann af
lungnabólgu, en vegna byrleysis
kemst skipið ekki til lands í fleiri
daga. Um síðir kemst skipið til
Siglufjarðar, en þá er Guðjón svo
langt leiddur að hann deyr stuttu
síðar og var þar jarðaður. Skipið
kom svo nokkrum vikum síðar til
Akureyrar, hafði þar skamma
viðdvöl og sigldi svo út aftur. Hin
unga kona í Samtúni sá skipið
koma inn og vænti komu bónda
síns. En er það drógst og skipið
hélt aftur til hafs, bjó hún sig til
ferðar inn á Akureyri að leita
frétta, er nágranni hennar, sem
vissi um atburðina en taldi ann-
arra skyldu að koma boðum til
ekkjunnar, stöðvaði hana og tjáði
henni hvernig komið væri. Ingi-
björg æðraðist ekki en hélt til síns
heima, en þung munu sporin hafa
verið. Nú var ekki unnt að halda
áfram búskapnum i Samtúni og
flutti ekkjan sig aftur í Svarfaðar-
dalinn.
Hún fékk ekki annan samastað
fyrir sig og börnin, en sjóbúð á
Böggvistaðasandi og þar fæddi
hún tvíbura um mánuði síðar, 30.
ágúst 1898. Hún var lengi að ná
sér eftir barnsburðinn og leitaði
nú til ættingja og vina um aðstoð,
en aldrei þurfti hún að leita til
sveitarinnar.
Árný Ingibjörg f. 1892 var
áfram með móður sinni, Guðlaug
Steinunn f. 1894 fór í fóstur til
góðra hjóna í Kræklingahliðinni,
Snjólaugu Oktavínu f. 1895 tók
hálfbróðir Ingibjargar, Sigurður
Draupnisformaður og kona hans
Ásta Antonsdóttir að sér, Jóhann
Gunnlaugur fór um skeið á fóstur-
heimili Ingibjargar að Hamri, en
sjálf sá hún um hina nýfæddu
tvíbura Guðjón og Kristjöitu.
Kristjana var síðar tekin í fóstur
af hjónunum í Tjarnargarðshorni,
Jóni Friðrikssyni og Margréti
Björnsdóttur.
Ingibjörg bjó um sex ára skeið á
Sandinum, sem um þetta leyti var
farið að nefna Dalvík og er því
talin með í hópi frumbyggja stað-
arins. Gekk hún að öllum verkum
með dugnaði og atorku, jafnt þeim
er talin voru í verkahring karl-
manna, reri sem fullgildur háseti
þrjár vorvertíðir, sá um verkun á
saltfiski fyrir aðra, reri jafnvel
ein til fiskjar á handfæri, ef hún
gat fengið lánaðan bát.
Þannig barðist hún fyrir sér og
sínum og komst af og þótti það
afrek eins og þá voru aðstæður.
Ingibjörg fór bústýra til Sigurð-
ar Jóhannssonar í Höfn á Dalvík
árið 1905 og bjó með honum síðar
þar til hann lést árið 1948. Þau
áttu eina dóttur barna, Unni f.
1908 húsfreyju á Svæði er giftist
Guðjóni S. Sigurðssyni 1932 og
eiga þau 4 börn auk fósturbarna.
Jóhann Gunnlaugur var sín
æskuár ýmist hjá móður sinni eða
nánum ættingjum, þó var hann
milli 8 og 13 ára aldurs á Kross-
hóli í Skíðadal hjá Sigfúsi Sigfús-
syni og Soffíu Þórðardóttur konu
hans. Átti hann margar góðar
minningar frá dvöl sinni þar við
smalastörf og önnur bústörf, hafði
á þeim árum yndi af að umgang-
ast skepnur, þó einkum sauðfé og
hunda. Eftir það var hann nokkur
ár á Böggvistöðum hjá móðursyst-
ur sinni Þóru og Baldvin Þor-
valdssyni manni hennar, áfram til
hjálpar við bústörfin um leið og
hann fór að stunda sjóinn frá
Dalvík. Þegar hann var 16 ára var
það orðið hans aðalstarf og þá
kominn til Sveinbjarnar Jó-
hannssonar og Ingibjargar Ant-
onsdóttur.
Á þessum árum komu fyrstu
vélbátarnir til Dalvikur og fylgd-
ist hinn ungi sveinn með hinni
nýju tækni af miklum áhuga og
boðaði það strax á hvaða sviði
sjósóknar hann myndi kjósa sér
starfssvið.
Árið 1914 bregða Ingibjörg og
Sigurður í Höfn á það ráð að flytja
til Skála á Langanesi með þau af
börnum Ingibjargar sem með
þeim dvöldu, en Jóhann verður
eftir á Dalvík.
Hinn ungi maður bar ævintýra-
þrá í brjósti og kemur sér í
skipsrúm á dönsku fisktökuskipi
sem Anne hét og hélt út í hinn
stóra heim. Þetta mun hafa verið
árið 1915. Hann siglir til Miðjarð-
arhafslanda og kynnist mörgu
nýstárlegu. Lærir meðal annars
að fara með harmóníku og kaupir
sér á Italíu eina slíka af vönduð-
ustu gerð. Jóhann var um tíma
eftirsóttur til að spila á dansleikj-
um og hafði mikla ánægju af því
starfi. Síðar notaði hann slíkt
hljóðfæri mest sér og fjölskyldu
sinni til yndisauka á heimili sínu.
Úr siglingunum kom Jóhann svo
heim haustið 1917 og eru þá móðir
t
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
KRISTJÁN HARALDSSON,
frá Nyp,
lést aö Sólvangi 11. ágúst.
Kveöjuathöfn fer fram frá nýju kapellunni í Fossvogi föstudaginn
15. ágúst kl. 13.30.
Jarösett veröur aö Skaröi á Skarösströnd laugardaginn 16. ágúst.
Ásta Sturlaugsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Faöir okkar og tengdafaöir,
KARL LEIFUR GUÐMUNDSSON,
vélatjórl,
frá Stakkadal í Aðalvík,
sem andaöist 7. ágúst veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni ( dag
kl. 10.30.
Guórún Karlsdóttir,
Ástríöur Karlsdóttir,
Guömundur Karlsson,
Jónas Karlsson,
Hugo Andreassen,
Rögnvaldur Þorleifsson,
Oddbjörg Kristjánsdóttir,
Hrönn Þóröardóttir.
t
Hjartkær faöir okkar, tengdafaöir, afi, langafi og bróöir,
GUÐMUNDUR SIGURÐSSON,
vélstjóri,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudatinn
ágúst kl. 15.00.
Jarösett veröur í Hafnarfjaröarkirkjugaröi.
14.
Arnfríóur Mathíesen, Ásgeir Gíslason,
Nína S. Mathíesen, Magnús Th. Guömundsson,
Matthías M. Guðmundsson, Kolbrún Úlfarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn,
Óskar Sigurðason.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför bróöur okkar,
ÚLFARS GUOJÓNSSONAR,
bifreiöastjóra,
frá Vatnsdal.
Guölaug Guöjónsdóttir,
Svandís Guöjónsdóttir,
Gunnhildur Guöjónsdóttir,
Lóa Guöjónsdóttir,
Ágúst Þór Guöjónsaon,
Óskar Guöjónsaon,
Bragi Þór Guöjónsson,
Höröur Guöjónsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við útför,
JÓHANNS G. GUÐJÓNSSONAR,
Vesturbraut 3,
Keflavík.
Guörún Pétursdóttir,
Guöjón Jóhannsson,
Pétur Jóhannsson,
Agnes Jóhannsdóttir,
Jón Jóhannason,
Ólöf Pétursdóttir,
Sveinbjörg Karlsdóttir,
Haraldur Sveinsson,
Jóna Sigurgísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.