Morgunblaðið - 14.08.1980, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 1980
Loks tapaði Öster
FULLTRÚAR íslands í sænsku
fyrstu deildinni i knattspyrnu fá
mjdK K<W>a dóma fyrir frammi-
stöóu sina í leikjum helKarinnar.
Hins vegar gekk liðum þeirra
ekki sem best. aðeins IFK Gauta-
borg. lið Þorsteins ólafssonar
hlaut stig af „íslendingaliðun-
um“ er sextánda umferð All-
svenskan fór fram á sunnudags-
kvöldið.
DjurRardon 2 : Öster 1
Það kom að því að Österliðið
biði ósigur, og segja má að það
hafi lotið í lægra haldi fyrir
veðurguðunum. Stokkhólmssta-
dion var líkari sundlaug en
knattspyrnuvelli er leikurinn fór
fram í úrhellisrigningu síðastlið-
inn sunnudag. Við slíkar aðstæður
var ógerningur fyrir leikmenn
Öster að ná upp hinu stutta og
skemmtilega spili sem verið hefur
aðalsmerki liðsins að undanförnu.
í staðinn var mikið um langspyrn-
ur fram völlinn á Teit Þórðarson
sem harðist vel og skapaði hættu,
en mátti sín lítils gegn sterkri
vörn Djurgardens sem lék sinn
besta leik á keppnistímabilinu.
íslenskir kylfingar á
sterku móti í Svíþjóð
ÞRÍR islenskir kylfingar, þeir
Hannes Eyvindsson, Björgvin
Þorsteinsson og Sveinn Sigur-
bergsson eru nú í Svíþjóð en þar
taka þeir þatt í „Swedish Inter-
national Strokplay“ sem hefst á
föstudag. Keppni þessi er liða-
keppni þriggja manna, og eru
keppendur víðsvegar að úr heim-
inum. Þar á meðal háskólameist-
arar Bandarikjanna.
Þetta er í fyrsta skipti sem
íslendingar taka þátt í þessu móti,
en það þykir heiður að fá boð um
þátttöku. Það er umboðsaðili Saab
hér á landi Töggur HF sem á veg
og vanda af því að íslenska liðið
komst í keppnina. Þess má geta að
keppendur eru svo sterkir að
Sveinn Sigurbergsson sem er með
aðeins 3 i forgjöf, hefur hæstu
forgjöf allra keppenda. Fyrsta dag
keppninnar verða leiknar 36 holur
og þeir 54 kylfingar sem bestum
árangri ná fá að halda áfram. Alls
eru keppendur 154 þannig að 104
falla úr eftir fyrsta daginn. Allar
móttökur í Svíþjóð hafa verið
einstaklega góðar og meðal annars
hefur hópurinn splunkunýjan
Saab 900 turbo til umráða á
meðan á dvölinni stendur.
Kalmar F.F. 1 : IFK
Gautaborg 1
Það var ekki sanngjarnt stigið
sem Gautaborgarliðið hlaut að
þessu sinni, því Kalmar verð-
skuldaði tveggja marka sigur. En
prýðileg markvarsla Þorsteins
Ólafssonar ásamt talsverðri
heppni færði „englana" frá Gauta-
borg nær Öster, aðeins þrjú stig
skilja nú liðin að og spenna er
komin í toppbaráttuna á ný.
Hins vegar er spennufall á botni
Allsvenskan, þar sem Mjállby og
Landskrona virðast dæmd til að
falla niður í aðra deild á ný.
Stuðmenn
til Eyja
Á laugardaginn efna Valsstuð-
arar til hópferðar á leik Vals og
ÍBV ef næg þátttaka fæst. Flogið
verður með Flugleiðum frá
Reykjavík kl. 12.30 og til baka
strax að leik loknum.
Skráning hjá Flugleiðum, Inn-
anlandsflug, fyrir föstudag.
Elfsborg 1 : Landskrona 0
Það var óvenju sorglegt fyrir
Árna Stefánsson að vera í tapliði
að þessu sinni. Hann átti stórleik,
sjálfsagt sinn besta með Lands-
krona og verðskuldaði því sannar-
lega betra hlutskipti. En betra
liðið vann og nú er útlitið vægast
sagt dökkt hjá Árna og félögum í
Landskrona, liðið hefur aðeins 9
stig, 4 minna en Kalmar sem er í
þriðja neðsta sætinu.
H.H. Svíþjóð.
• Það er vel til fundið hjá hinum ýmsu knattspyrnufélögum að bjóða heiðursgesti á kappleiki sína í 1.
deild. Á heimaleik Vikings í fyrradag er liðið mætti KR var formaður Sjálfstæðisflokksins Geir
Hallgrimsson heiðursgestur. Geir lék með yngri flokkum Víkings hér á árum áður. Hann gerði sér ferð
eftir leikinn inn i búningsklefa Vikinga og heilsaði upp á leikmenn og ekki er hægt að sjá betur en að
Geir sé að stappa í þá stálinu fyrir næsta leik. Ljósm. Ragnar Axelsson.
Þorsteinn ólafsson hefur leikið
mjög vel með liði sinu að undan-
förnu.
Ljósm. ÞR.
Oítd c/Ttd.Sf'Ti dA/t *9£'jrSS /.S'o /*t í)
///££ OC St/rt/ /VSsrt* t/O- l/f/t»i//r.
C£///r/
I/jt/Ts/ Trtr*/SS<St.C'/e/i9tT)J//oCjrr-r/ /s/c
nc-c/iA .
• Kylfingarnir sem keppa I Sviþjóð. Björgvin, Sveinn, Hannes og
Kjartan fararstjóri. í baksýn er hinn glæsilegi Saab sem flokkurinn
hefur til umráða á meðan á mótinu stendur.
Ljósm. ÓS.
lympíumaðurinn
4>ess/ sm/>í/AM/)
ÍTJlM/t S/l OCSA
K0*/iJr,f// j/j/Z
'To's’/i/it/ m/u.T<M/A.
í/0/jd*<V>S4 Ho/lt-
6/Z/A J/n /tcí/M
M//n msj) CS/J///
S//M/ / mJ/sc//s> J.
SA/nr /WWíí .
m/rr/srj/tf j/JJ
J/tm/jr (///<//.
OLV/n/>/Ji/S /tJSS/)
pess/ n j/t
6/tod/Jt
/rp//S/j jj/tc/,
/r\/r» T/(dc
i,//r>/0/3J/t»/
J»/J/t J/g/J/r
'J/r/l »<■■//Jj/
(6/JJm, U <
OS Sc/S ot
tfoP/ef/n
þg/l sg/r) J/uJ J/ft _
/rt/JJsr/Jtt/t/1 r JXocA
'/t/fJ/t» j/Jj A» cÁTA /*J>
S(/t J/efiA 'A £//f - ..
Vjg/tjd sj/f/ e*r//i,,
C£/Ja/JA /9t Ý Sj/S/t/ J/Jj
sg/t. A» <//r)c£/jJ/rt.
© a€Avtne#»oo« ncws#>apcms
Örgryte sýndi
snilldartakta
Örn Óskarsson og félagar hans
i Örgryte frá Gautaborg halda
sinu striki i annarri deildinni
sænsku. Þeir áttu mjög góðan
leik síðastliðið sunnudagskvöld.
og unnu Kalmar AIK 4:0. Öll
mörkin voru skoruð í fyrri hálf-
leik, en að honum loknum risu
áhorfendur úr sætum og klöpp-
uðu leikmönnum Örgryte lof i
lófa. Örn var að vanda fastur
íyrir í vörninni. og átti enn einn
stórleikinn.
Örgryte hefur nú 20 stig og
eins stigs forystu i suðurdeild-
inni.
Halmstad 1: Grimsás 2
Með þessum sigri er Grimsás
komið upp í miðja deild, og hefur
nú leikið sex leiki í röð án taps og
hlotið úr þeim 10 stig, hefur
samtals 15. Allt hefur þetta gerst
eftir að Eiríkur Þorsteinsson var
færður í framlinuna. í leiknum
lagði Eiríkur upp fyrra markið, en
varð síðar að yfirgefa völlinn
vegna smávægilegra meiðsla.
Vegna góðs árangurs liðsins að
undanförnu hefur liðsskipan verið
óbreytt, en það þýðir að Skaga-
maðurinn Sveinbjörn Hákonarson
vermir varamannabekkinn. Útlit-
ið er nú orðið heldur svart hjá
Halmstad, gamla liðinu hans
Matthíasar Hallgrímssonar, liðið
lék í 1. deild í fyrra en er nú á leið
í 3. deild.
Karlskrona 2 : Jönköping
2
Ársæll Sveinsson varði mark
Jönköping af mikilli prýði þrátt
fyrir mörkin tvö, og liðið er enn í
hópi efstu liðanna í suðurdeild-
inni. Verr hefur Kristianstad
gengið í síðustu leikjum, og urðu
Stefán Halldórsson og félagar að
sætta sig við jafntefli gegn
Hássleholm. Kristianstad hefur
þar með hlotið 13 stig og er í 11.
sæti.
Norðurdeildin
Lið Keflvíkinganna Einars
Ólafssonar og Rúnars Georgsson-
ar hefur hleypt spennu í norður-
deildina, komið á óvart í síðustu
leikjum og gert markalaus jafn-
tefli við tvö efstu liðin, Karlstad
og Örebro. A.I.K. er nú farið að
nálgast topp deildarinnar eftir 1:0
sigur gegn Gefle. Er Stokkhólms-
iiðið fræga nú komið upp í annað
sætið með 23 stig, 3 á eftir
Karlstad. Næstkomandi laugar-
dag mætast liðin svo í Karlstad,
og verður það vafalítið hörkuleik-
ur- H.H. Svíþjóð.