Morgunblaðið - 17.08.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. ÁGÚST 1980
35
Eining samspilsins
lagr
YOGABOKIN ÞÍN
örn og örlyjíur 1979.
Jóga tengir maður ósjálfrátt
andlega sinnuðum mönnum sem
vilja gera eitthvað fyrir heilsuna.
Einu sinni iðkuðu allir spekingar
jóga. En nú fáum við að vita hjá
Skúla Magnússyni sem er mjög
framarlega í fræðunum að jóga
hafi aldrei verið hugsað sem
„heilsuræktarkerfi". Skúli segir að
jóga í heilsuræktarskyni sé vest-
rænt fyrirbrigði. Hann segir einn-
ig að hin kunna bók Hittlemanns
Yoga for Health sé „bezt geymd í
ruslakörfunni". Maharishi er
ásamt Hittlemann peningaplokk-
ari og svindlari, sá fyrrnefndi fær
umsögnina „siðleysinginn, „bítla-
yoginn" Maharishi með sína „inn-
Bökmenntir
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
hverfu íhugun““. í jógafræðunum
er greinilega deilt eins og annars
staðar meðal ófullkominna manna
og Skúli Magnússon er ekki myrk-
ur í máli.
„Yoga merkir bókstaflega Ein-
ing,“ segir Skúli Magnússon, en
einingu skortir að mati hans.
„Samspil andlegra og líkamlegra
þátta“ er það sem keppa ber að. I
bók Skúla kaupa menn ekki heil-
Sumarsýning,
Listasafns ASI
Undanfarið hefur staðið yfir
sumarsýning i hinum nýju og
vistlegu húsakynnum Listasafns
Alþýðusambands íslands að
Grensásvegi 16 og mun hún
standa út þennan mánuð. Rétt er
að vekja sérstaka athygli á sýn-
ingunni sem er hin áhugaverðasta
og vel þess virði að vera skoðuð og
ekki sakar að geta þess að gestir
geta fengið sér þar kaffisopa og
Myndlist
eftir BRAGA
ÁSGEIRSSON
meðlæti og slappað af í hámenn-
ingarlegu umhverfi.
Oþarfi er að geta þess að safnið
er að stofni til frumgjöf Ragnars
Jónssonar en hann færði safninu
120 valinkunn listaverk 17. júní
1961, það mun flestum kunnugt, en
síðan hefur mikið við þann stofn
bætzt, bæði af frekari gjöfum
hans og annarra, og eru nú í
safninu á fjórða hundrað mynd-
verka, — má hér sérstaklega geta
veglegrar gjafar Margrétar Jóns-
dóttur ekkju Þórbergs Þórðarson-
ar rithöfundar.
Á þessari sumarsýningu eru
......................
aðri flutningabifreið fyrir lista-
verk en slíkar eru til og þyrfti ekki
nema eina fyrir allt landið og svo
þurfa húsakynnin, er hýsa eiga
verkin hverju sinni, að standast
ströngustu kröfur um aðbúnað að
verkunum, t.d hitastig og gæslu.
Svo að enginn misskilji þennan
framslátt minn þá er ég mjög
hlyntur öllu því sem miðar að
aukinni dreifingu lista um lands-
byggðina, já, allra tegunda lista.
Landsbyggðin býr einnig yfir ýms-
um menningarverðmætum sem
ekki eru til staðar í Reykjavík, t.d.
byggðasöfnum og hinum stór-
skemmtilegu vel varðveittu heim-
ilum þjóðskáldanna á Akureyri.
Við sunnanbúar verðum að Ieggja
land undir fót til þess að nálgast
þær gersemar því að engum hefur
ennþá dottið í hug að setja hjól
undir húsin og aka með þau
hringveginn t.d. — Þannig eiga
menningarverðmæti í mörgum til-
vikum hvergi heima annars staðar
en í staðbundnu umhverfi en i
stöku tilvikum er réttlætanlegt að
lána myndir og hluti úr söfnum ef
tryggilega er að öllu búið. Menn
eiga þannig að mínu mati að
rækta sérkennin á hverjum stað
þannig að þau verði nýstárleg og
forvitnileg fyrir aðkomufólk og
hvetji til skoðunarferða.
Ég reifa þetta allt vegna þess að
mér þykir það einsýnt að miklir
Davíð Daviðsson læknaprófessor og Karl Kvaran listmálari virða
fyrir sér myndir á Listasafni ASÍ. Á myndinni má sjá myndverk
eftir Jóhann Briem, Einar Jónsson og hina þekktu mynd Jóns
Engilberts af Þórbergi Þórðarsyni.
samtals 60 verk en fleiri komast
naumast á veggina með góðu móti
en það gefur lika möguleika á
stöðugri hreyfingu mynda og nýj-
um sýningum. Það sem mest er
um vert er að safnið ræður yfir
fullkominni listaverkageymslu og
allmikilli vinnuaðstöðu í kjallara
en slíkt eykur stórlega möguleik-
ana á virkri og framsækinni
starfsemi.
Ekki er ég einn þeirra sem tel
æskilegt að listaverkin séu á
stöðugri hreyfingu um lands-
byggðina því að hér er um ómet-
anleg verðmæti að ræða og óbæt-
anleg ef eitthvað kæmi fyrir.
Fyrst verður að huga að sérhann-
möguleikar liggi í því að Listasafn
Alþýðusambands Islands geti orð-
ið mjög sérstætt safn og merkileg
listastofnun er fram líða stundir.
Slíkt mun tryggja stóraukna að-
sókn að safninu og gera það að
stofnun er innlendir sem erlendir
sérfræðingar munu líta upp til og
sækja föng í er þeir rita um
íslenzka myndlist.
Ég óska safninu alls góðs og
hvet sem flesta að leggja leið sína
á Grensásveg 16 þar sem það er til
húsa og telja ekki eftir sér þótt
það sé dálítið afsíðis, má benda á
að þar framhjá fer fjöldi stætis-
vagna og ágætt bílastæði er á
næsta leiti.
brigði heldur þurfa þeir að láta
breyta sér til að hafa not af henni.
Ég er í hópi þeirra lesenda sem
kæra sig ekki um að láta bók um
jóga umturna lífi sínu. Þess vegna
ætti ég að leggja frá mér bókina
eins og Skúli ráðleggur slíkum
lesendum.
En ég þrjóskast við og les
bókina áfram. Meðal annars hef
ég gaman af ýmsum yfirlýsingum
höfundarins sem ekki bera allar
vott um skapgæsku. En látum það
liggja milli hluta. Tilgangur höf-
undar er góður, ekki síst ef honum
tækist að eyða slíkum fylgifiskum
mannsins sem heimsku og ótta:
„Heimska er skortur sjálfsþekk-
ingar. Óttinn er í tengslum við
jafnvægisleysi sem öðrum þræði
stafar af ófullnægjandi slökun og
hvíld.“
Leiðbeiningar Skúla Magnús-
sonar fyrir nemendur Hatha-
Yoga, tólf æfingar eða asönur sem
hann kallar svo, eru skilmerki-
legar og fylgja þeim öllum skýr-
ingarmyndir þar sem fyrirsætan
María Éinarsdóttir birtist í ýms-
um stellingum ljósmynduð af Ás-
grími Ágústssyni. Bókin er án efa
hin gagnlegasta fyrir áhugasama
nemendur. Það dreg ég ekki i efa.
Að vísu verður að viðurkenna að
Skúli Magnússon. höfundur
Yogabókarinnar Þinnar, ásamt
fyrirsætunni Mariu Einarsdótt-
ur.
þegn velferðarþjóðfélags haldinn
ýmsum úrkynjunareinkennum
getur stundum ekki varist brosi.
En það er önnur saga.
Af því að róttækni er svo
vinsælt orð sakar ekki að minna á
skoðun Skúla Magnússonar á
þessu efni. „Hin sanna róttækni er
róttækni Gautama Búddha — og
er 2500 ára gömul."
Þá vitum við það.
En meira um róttæknina:
„Sumir vilja breyta þjóðfélag-
inu án þess huga að einstaklingn-
um sjálfum og kalla sig róttæka.
Betri stuðningur við kyrrstöðu og
stöðnun er naumast til. Þegar
„byltingin" er um garð gengin
hefir ekkert breytzt í samskiptum
fólks — nema þá til hins verra —
og allt er eins og var. Viðstöðulaus
bylting gefur tryggingu fyrir
ævarandi stöðnun."
Jafnaðarmenn
gefa út tímarit
MÁLÞING heitir nýtt
tímarit. sem ungir
jafnaðarmenn hafa hafið
útgáfu á. Ritstjórar eru
Kjartan Ottósson (ábm.)
og Hilmar S. Karlsson.
í spjalli ritstjóranna segir að
Málþingi sé ætlað að fjalla um
þjóðfélagsmál „í anda jafnaðar-
stefnunnar" og um menningarmál
„í víðasta skilningi". Meðal höf-
unda fyrsta tölublaðs eru Vil-
mundur Gylfason, Bjarni P.
Magnússon, Helgi Már Arthúrs-
son og Úlfur Bragason.
Málþing mun koma út þrisvar á
ári og fæst í bókaverzlunum og
söluturnum. Tímaritið er 26 síður,
með auglýsingum.
Colgate MFP f luor tannkrem herðir
tennurnar og ver þær skemmdum.
Colgate MFP fluor tannkrem er reyndasta tannkremiö
á markaönum
Þusundir barna um viöa verold hafa um árabil verið
þáttakendur i visindalegri Colgate-prófun og hefur hún
ótvirætt sannaö aö Colgate MFP fluor tann-
krem heröir glerung tannanna viö hverja
burstun. þannig aö tennurnar verða sifellt
sterkari og skemmast siöur.
Þess vegna velja milljónir foreldra um heim
allan Colgate MFP fluor tannkrem handa
bornum sinum.
1 Colgate MFP fluor gengur inn i glerunginn
og heröir hann
2 Þess vegna veröur glerungurinn sterkari
Og börnunum likar bragðið.