Morgunblaðið - 03.09.1980, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1980
Gunnar lætur af for-
mennsku á næsta ári
GUNNAR Guðbjartsson. furmaður
Stéttarsambands bamda lýsti því
yfir í Ink aðalfundar Stéttarsam-
handsins á Kirkjuba-jarklaustri, að
hann gæfi ekki kost á sér til
áframhaidandi starfa scm formaður
á aðalfundi sem haldinn verður að
ári.
Sagðist Gunnar hafa verið formað-
ur Stéttarsambandsins í 18 ár og
væru það jafn mörg ár og forveri
hans í embætti formanns. Það væri
því kominn tími til að nýir menn
tækju við forystunni.
Gunnar sagði, að á næsta ári yrðu
kjörnir nýir fulltrúar til setu á
aðalfundum Stéttarsambandsins og
hann hefði því talið rétt að láta menn
vita af þessari ákvörðun sinni, þann-
ig að menn byggju sig undir að velja
nýjan forustumann fyrir islenska
bændastétt. Gunnar Guðbjartsson
tók um síðustu áramót við starfi
framkvæmdastjóra Framleiðsluráðs
landbúnaðarins.
Fundur BSRB á Akureyri í gærkvöldi:
Vildu ekki
hlusta á Pétur
A FUNDI BSRB í Sjálfstæðishúsinu
á Akureyri i gærkvöldi, þar sem
framámenn i BSRB kynntu nýgert
samkomulag bandalagsins og rikis-
ins, gerðist það, að fundarmenn
neituðu að leyfa að flutt yrði á
fundinum ávarp Péturs Péturssonar
þuls. Á fundinum voru um 200
manns. en við atkvæðagreiðslu viidu
17 að ávarp Péturs yrði flutt, en 42
voru því andvigir. — Flestir fund-
armanna kusu því að taka ekki
afstöðu í málinu.
Pétur Pétursson sagði í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að
„Áhugasamir félagar" hefðu á sínum
tíma óskað þess að fá að ferðast um
landið til að kynna afstöðu þeirra til
hinna nýgerðu samninga. Hefði verið
óskað eftir því að þeir fengju að
ferðast á kostnað bandalagsins eins
og þeir sem mæltu með því að
samningarnir væru samþykktir. Ekki
hefði verið orðið við þessum óskum.
Því hefði hann tekið það til bragðs, að
senda fundinum 10 mínútna langt
erindi á segulbandsspólu, til að kynna
afstöðu „Áhugasamra félaga", og
hvers vegna þeir legðust gegn sam-
þykkt samninganna.
Hörður Ólafsson skólastjóri á Ak-
ureyri, sem var fundarstjóri á fundin-
um í gærkvöldi, sagði að ákveðið hefði
verið að bera ósk Péturs undir
fundinn, og þar hefði því verið hafnað
„að hlusta á segulbönd".
Viðræðunefnd ASÍ
á fundi i dag
VIÐRÆÐUNEFND Alþýðusam-
bands fslands hefur verið boðuð
saman tii fundar í dag og verður
væntanlega á fundi hcnnar tekin
ákvörðun um. hvena-r 13ja-manna-
nefnd sambandsins kemur saman.
Eins og frá var skýrt í Morgunblað-
inu í gær, er búizt við að nefndin
verði vart kóiluð saman. fyrr en
niðurstöður liggja fyrir í allsherjar-
atkva-ðagreiðslu Bandalags starfs-
manna ríkis og ba>ja um kjarasamn-
ing bandalagsins og fjármálaráð-
hcrra. Talning mun eiga að fara
fram 8. september og er þá gert ráð
fyrir að fundur 43ja-manna-nefndar
ASÍ verði 9. eða 10. september.
í gær var haldinn fundur í fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitendasam-
bands Islands og samráðsnefnd um
kjarasamninga og voru viðræðuslit
aðila þar hörmuð. Nánar segir frá
þessu í fréttatilkynningu VSÍ, sem
birt er í heild á bls. 19.
Þórður Jasonarson látinn
KÍNVERSKUR SKÁKMAÐUR í HEIMSÓKN
UNGLINGASKÁKMÓT hófst á Kjarvalsstöðum í
gær í tilefni heimsóknar kinversks skákmanns,
Ye Itonguang að nafni. Hann er 16 ára og kemur
beint frá heimsmeistaramóti ungiinga i Dort-
mund, þar sem hann hlaut 5,5 vinninga. Aðrir
keppendur á mótinu eru Árni Árnason. Jóhann
Iljartarson. Elvar Guðmundsson, Jóhannes Gísli
Jónsson og Björgvin Jónsson. f gær voru tefldar
tvær umferðir og var staðan að þeim loknum sú,
að Elvar og Jóhann eru efstir með 2 vinninga.
Björvin er með IVíj, Jóhann xh og Árni og
Ronguang töpuðu báðum sinum skákum.
Það er Skáksamband íslands, sem gengst fyrir
mótinu á Kjarvalsstöðum. Því lýkur á fimmtu-
dag og heldur Ronguang þá til Akureyrar, en
kemur aftur suður á mánudaginn og heimsækir
þá Taflfélag Reykavíkur. Meðfylgjandi mynd tók
Rax við upphaf fyrstu umferðar í gær, en þá átti
Ronguang í höggi við Elvar Guðmundsson, sem
vann skákina.
Skattar á félög og fyrirtæki i Reykjavik:
Greiða samtals rúma
18 milljarða króna
Hækkunin 44.78% milli ára
SKATTAÁLAGNINGU á félög og
fyrirtæki i Reykjavik er nú lokið.
eins og skýrt var frá í Morgunbiað-
inu i gær. Að sögn Gests Steinþórs-
sonar skattstjóra í Reykjavík er
heildarálagningin í ár rúmlega 18
milljarðar króna. og nemur hækk-
unin á milli ára 44,78%. Álagn-
ingarseðlar hafa þcgar verið sendir
út, og eiga nú að hafa borist öllum
gjaldendum.
Skiptinggjaldanna er sú, að tekju-
skattur er 5.036.169.430 krónur, eða
rösklega 5 milljarðar króna. Eigna-
skattur er 1.951.876.542 krónur,
kirkjugarðsgjald 117.797.007 krónur,
slysatryggingagjald er 446.486.120
krónur, lífeyristryggingagjald
2.598.432.280, atvinnuleysistrygg-
ingagjald 373.856.841 króna, launa-
skattur 758.045.939 krónur, aðstöðu-
gjald 5.269.025.000 krónur, iðnlána-
og iðnaðarmálagjald 558.778.000
krónur og skattur af skrifstofu- og
verslunarhúsnæði er alls 995.338.000
krónur.
Sem fyrr segir er heildarhækkun
gjalda á milli ára 44.78%, en á
einstaka skatta og gjöld er hækkun-
in þessi, milli áranna 1978 og 1979:
Tekjuskattur: 37.35%, eignaskattur
43.76%, kirkjugarðsgjald 42.62%,
slysatryggingagjald 47.17%, lífeyr-
istryggingagjald 50.72%, atvinnu-
leysistryggingagjald 32.45%, launa-
skattur 51.33%, aðstöðugjald
47.31%, iðnlána- og iðnaðarmála-
gjald 48.30% og skattur á skrifstofu-
og verslunarhúsnæði hækkar um
70.22% á milli ára.
Steingrimur Hermannsson samgönguráðherra:
Verðum fyrst að ákveða
hvað við viljum og ætlum
- áður en hægt er að ganga til viðræðna við stjórnvöld í Luxemborg
LÁTINN er i Reykjavik. Þórður
Jasonarson byggingatæknifræðing-
ur. 73ja ára að aldri. Þórður var
fæddur í Vorsabæ í Gaulverjabæjar-
hreppi árið 1907. sonur hjónanna
Jasonar Steinþórssonar og Ilelgu
Ivarsdóttur. Þórður rak um árabil
byggingastarfsemi í Reykjavfk og
rak einnig teiknistofu.
Hann lauk prófi frá Iðnskólanum í
Reykjavík árið 1934 í húsasmíði, og
stundaði síðan tæknifræðinám í hús-
byggingartækni í Stokkhólmi árin
1935 til 1940. Þórður gegndi margvís-
legum trúnaðarstörfum um ævina,
meðal annars var hann í stjórn
Iðnfræðingafélags íslands og for-
maður sóknarnefndar Háteigssafn-
aðar í sjö ár.
Eiginkona Þórðar er Jónína Þórð-
ardóttir frá Votmúla í Sandvíkur-
hreppi, og lifir hún mann sinn.
Þórður Jasonarson.
„ÞESSI mál eru f jarri því að vera
einföld. í fyrsta lagi verður að
kanna, hvort einhver vilji er til
þess að halda Atlantshafsflugi
áfram. Ef menn gefa það upp á
bátinn, þá verður að skoða,
hvernig flugi skuli skipað í
okkar eigin þágu, bæði til Amer-
iku og Evrópu. Þetta er grund-
vallarspurning. sem menn verða
að taka afstöðu til áður en iengra
er haldið,“ sagði Steingrimur
Hermannsson samgönguráð-
herra í samtali við Mbl. f gær-
kvöldi.
Við höfum nú látið í ljós vilja til
frekari viðræðna við stjórnvöld í
Luxemburg miðað við þá stöðu,
sem nú er. En slíkar viðræður geta
auðvitað ekki hafizt fyrr en við
höfum sjálfir gert það upp við
okkur, hvað við viljum og ætlum í
málinu."
Ráðherralaun hækkuðu
um 153 til 162 þúsund kr.
VERÐBÓT AVÍSIT ALA hækfc
aði kaupgjald nú um mánaða-
mótin um 8,57%. Vegna verð-
hótavísitölunnar hækka laun
ráðherra um 153.856 krónur á
mánuði og laun forsætisráð-
herra ha’kka um 162.524 krón-
ur á mánuði. Lægstu verka-
mannalaun hækka af sömu
ástæðu um 23.568 krónur og er
þá miðað við samræmdan
launaskala. Þingfararkaup al-
þingismanna ha'kkar um 70.063
krónur.
Laun forsætisráðherra verða
nú eftir þessa breytingu að
þingfararkaupi meðtöldu
2.058.960 krónur á mánuði og
mánaðarlaun annarra ráðherra
verða 1.949.142 krónur. Hefði
20% hækkun þingfararkaupsins,
sem taka átti gildi hinn 1. júlí
náð fram að ganga, hefðu laun
forsætisráðherra þá orðið 984
krónum hærri en þau eru nú
eftir 1. september. Hins vegar
vantar aðra ráðherra enn 9.652
krónur á mánuði til þess að
júlílaununum, sem komu ekki til
framkvæmda, sé náð.
Þingfararkaup, laun alþing-
ismanna, sem ráðherrar njóta og
innifaliðer í áðurnefndum tölum
um ráðherralaun, hækkar nú um
70.063 krónur og verður 887.604
krónur á mánuði. Til þess að
áðurnefndum júlílaunum, sem
frestað var, sé náð vantar þing-
menn enn 93.445 krónur á mán-
uði. Ef hins vegar júlíhækkunin
hefði náð fram að ganga, hefðu
laun forsætisráðherra nú hækk-
að um 176.537 krónur á mánuði,
laun annarra ráðherra um
167.869 krónur og þingfarar-
kaupið um 84.076 krónur.
„Það er spurning, hvort einhver
möguleiki er á því að reka Atl-
antshafsflug í dag. Ég hygg, að
vonlaust sé, eins og nú háttar, að
reka slíkt flug með hagnaði og þá
er spurning, hvort menn vilja taka
á sig eitthvert tap í von um betri
tíma síðar,” sagði Steingrímur.
„Innanlandsflugið er það, sem við
getum alls ekki án verið og við
verðum að leggja áherzlu á það að
tefla því ekki í fjárhagslega tví-
sýnu með áhættu í Atlantshafs-
flugi.“
Mbl. spurði Steingrím um fyrri
viðræður hans við stjórnvöld í
Luxemburg og fyrirhugaðar fram-
haldsviðræður. „í viðræðum mín-
um við stjórnvöld í Luxemburg í
vor var lagður viss grundvöllur að
áframhaldandi Atlantshafsflugi á
nýjum forsendum. Þessar nýju
forsendur brugðust svo, þegar
viðræður Flugleiða og Luxair
strönduðu á því, að Luxair hafnaði
nýjum samstarfsgrundvelli.
Gömul og
gróin
vinátta
— athugasemd frá
Franziscu
Gunnarsdóttur
SUNNUDAGINN 31. ágúst ritar
Jóhanna Kristjónsdóttir grein um
Skriðuklaustur í Fljótsdal. Þar
kemur fyrir eftirfarandi setning:
„Húsið teiknaði Höger, arkitekt
Hitlers sáluga, sem gerði sumar-
hús hans hið fræga, Arnarhreiðr-
ið, en sem margir hafa heyrt
nefnt.“
Af þessu tilefni gefnu vil ég taka
fram, að vinátta afa míns, Gunn-
ars Gunnarssonar, skálds, við
Höger arkitekt var þegar gömul og
gróin fyrir tíma nokkurs nazisma.
Franzisca Gunnarsdóttir.