Morgunblaðið - 03.09.1980, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1980
TASS gagn-
rýnir fregnir
um „frelsun“
Moskvu. Wa.shington, lirighton,
2. septemher, AP.
SOVEZKA fréttastofan TASS gagn-
rýndi i das harðloKa vestrænar
huKmyndir um að „freisun* biði
Pólverja. Verkföllin hafa orðið til-
efni vestrænna vanKaveltna um að
Sovétrikin kynnu að gripa i taum-
ana, en formælandi sovézka utan-
ríkisráðuneytisins hefur lýst því
yfir að verkföllin væru innanrik-
ismál Pólverja einna.
í fréttum í dag varaði TASS
jafnframt Pólverja við því, að
„ígrunda þyrfti ekki aðeins efna-
hagslegar afleiðingar verkfallanna,
heldur einnig allar aðrar afleiðingar
þeirra" að afstöðnum verkföllunum.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
skýrði frá því í dag, að i vikunni væri
von á pólskum bankamönnum og
viðskiptafulltrúum til Washington
til viðræðna um 675 milljón dollara
lán til matarkaupa í Bandarikjunum
á næsta ári. Formælandi ráðuneytis-
ins sagði, að komið hefði beiðni um
þessar viðræður í júní, löngu áður en
til ókyrrðar dró í Póllandi. Lánið
sem um væri sótt, væri af sama toga
og fyrirgreiðsla sem veitt var Pól-
verjum fyrir ári.
Allt bendir til þess, að fulltrúar
brezka alþýðusambandsins (TUC)
fari í heimsókn til Póllands síðar á
árinu, eins og fyrirhugað hefur verið
um hríð, þar sem Ijóst er að mikill
meirihluti fulltrúa á þingi sam-
bandsins muni greiða atkvæði gegn
tillögu um að hætt verði við förina.
Mörg verkalýðsfélög höfðu lagt fram
tillögu á þinginu um að hætt verði
við förina í ljósi síðustu viðburða í
Póllandi, en OII hafa dregið hana til
baka, utan eitt. Samningaviðræður
að tjaldabaki á þinginu benda til
þess að tillagan um að hætt verði við
förina verði kolfelld, ef hún hefur þá
ekki verið dregin til baka þegar aö
atkvæðagreiðslu kemur.
\
Þetta gerðist <
1977 — Zulfíkar Ali Bhutto, fv.
forsætisráðherra Pakistans,
handtekinn fyrir samsæri um að
myrða pólitískan andstaeðing
1974.
1965 — Borgarastríð brýzt út í
Dóminikanska lýðveldinu.
1962 — Stjórnin í Katanga
samþykkir áaetlun U-Thant um
sameiningu Kongó.
1945 — Singapore fer aftur
undir stjórn Breta eftir hernám
Japana.
1943 — Innrás Bandamanna í
Ítalíu hefst.
1939 — Bretar og Frakkar segja
Þjóðverjum stríð á hendur.
1925 — Bandaríska loftarið
„Shenandoah" brotnar í spón í
Cardwell, Ohio.
1923 — Bandaríkin viðurkenna
stjórn Mexíkó.
1916 — Fyrsta Zeppelin-loft-
skipið ferst á Englandi.
1913 Kínverskir byltingar-
menn undir forystu Yuan-Shih-
Kai taka borgina Nanking.
1879 — Afghanskir hermenn
myrða brezka sendiráðsmenn.
1789 — Parísar-sáttmáli Bret-
lands, Frakklands, Spánar og
Bandaríkjanna undirritaður og
frelsisstríði lýkur.
1759 — Brottvísun kaþólskra
Jesúíta hefst í Portúgal.
1651 — Orrustan við Worcester
(sigur Cromwellsinna á kon-
ungssinnum).
1650 — Orrustan við Dunbar
(sigur Englendinga á Skotum.)
1603 — Hinrik IV af Frakklandi
leyfir Jesúítum að koma aftur til
3. september.
Frakklands þrátt fyrir andstöðu.
1591 — Kristján II af Saxlandi,
8 ára, tekur við völdum við lát
föður síns, Kristjáns I.
1497 — Manúel Spánarkonung-
ur kvænist Isabellu af Spáni.
590 — Gregorius mikli vígður.
Afmæli. Diane de Poitiers,
frönsk ævintýrakona (1499—
1566) — Jacques Necker, svissn-
eskur heimspekingur (1732—
1804) — Matthias Boulton, ensk-
ur verkfræðingur (1728—1809).
Andlát. 1658 d. Oliver Cromwell,
hermaður & stjórnmálaleiðtogi
— 1877 d. Adolphe Thiers,
stjórnmálaleiðtogi — 1948 d.
Eduard Benes, stjórnmálaleið-
togi.
Innlent. 1537 Kirkjuskipun
Kristjáns III lögfest — 1582 d.
Gísli biskup Jónsson — 1714 Jón
Vídalín stefnir Oddi Sigurðssyni
— 1723 d. Sigurður Björnsson
lögmaður 1804 Bjarni frá
Sjöundá strýkur úr fangahúsinu
í Reykjavík — 1878 F. Sigurður
Guðmundsson skólameistari —
1919 Fyrst flogið á íslandi —
1957 d. Sir William Craigie —
1965 d. María Andrésdóttir, 106
ára — 1968 Viðræður um lausn
efnahagsvanda — 1979
Grunnskólar byrja — 1916 F.
Björn Jónsson — 1928 f. Bjarni
Guðnason.
Orð dagsins. Sápa og menntun
eru ekki eins skjótvirk og fjölda-
morð, en banvænni þegar fram í
"sækir — Mark Twain, banda-
rískur rithöfundur (1835—1910)
ÞÓTT svo virðist sem öldur hafi
verið lægðar i Póllandi, i bili
a.m.k.. á enn eftir að koma i ljós
hvort Edward Gierek flokksfor-
maður haidi velli i kjölfar verk-
fallanna. Ekki hefur enn verið
séð fyrir enda þeirra. Þeir sem
liklegastir þykja sem eftirmenn
hans eru Stefan Olszowski fyrr-
um utanrikisráðherra og Lech
Walesa leiðtogi verkfallsmanna.
Walesa er 37 ára rafvélavirki, en
Olszowski 49 ára, og hefur hann
verið talsmaður frjálslyndari
afla pólska kommúnistaflokks-
ins.
Það kom fróðum mönnum á
óvart er Olszowski var endurskip-
aður í framkvæmdanefnd Komm-
únistaflokks Póllands á „blóð-
sunnudeginum" er m.a. Edward
Lech Walesa Stefan Olszowski
Olszowski eða
Walesa líklegir
eftirmenn Giereks
Babiuch forsætisráðherra var lát-
inn víkja úr embætti. Hvað vakti
fyrir flokknum er hinn „frjáls-
lyndi“ Olszowski var kallaður
heim úr pólitiskri útlegð frá
A-Þýzkalandi, en þar var hann
sendiherra Póllands, aðeins sex
mánuðum eftir að honum var
sparkað úr framkvæmdanefnd-
inni? Þeirri spurningu er enn
ósvarað, en um tíma þótti margt
benda til þess að það yrði
Olszowski sem flytti inn í Belve-
derehöllina er Gierek yrðu mis-
lagðar hendur við lausn deilunnar
við verkamennina.
Tvívegis hefur Olszowsky verið
vísað úr framkvæmdanefndinni
vegna gagnrýni hans á pólitíska
stefnu stjórnarinnar, fyrst í
febrúar 1971 og aftur í febrúar
síðastliðnum. I fyrra skiptið var
hann settur í embætti untanríkis-
ráðherra, og samdi þá m.a. við
V-Þjóðverja um eðlilegt samband
ríkjanna tveggja eftir langt kulda-
skeið. A þessum árum var hann
m.a forseti Allsherjarþings Sam-
einuðu þjóðanna og hann varð
fyrstur háttsettra Pólverja til að
heimsækja Vatikanið í Rómaborg,
en þangað fór hann árið 1973.
Og er hann var rekinn úr
nefndinni á 8. flokksþinginu í
febrúar sl. var hann gerður að
sendiherra í Austur-Berlín, þ.e.
sendur nógu langt til að hafa ekki
truflandi áhrif heima fyrir. Hann
var rekinn úr nefndinni öðru sinni
vegna framsækni sinnar í kjölfar
verkfalla 1976. Hann var þá settur
yfir „starfshóp" er gera átti tillög-
ur um úrbætur í efnahagsmálum
og endurskoða efnahagsstefnu
stjórnarinnar. { nefndina valdi
hann fyrst og fremst tæknikrata
en fáa úr framvarðasveitum
flokksins.
Æðimikil gagnrýni
Niðurstöður nefndarinnar birt-
ust í skýrslu er nefndist „Reynslan
og framtíðin". Að ýmsu leyti var
þar um æðimikla gagnrýni á
efnahagsstefnu stjórnarinnar að
ræða, og gerðu andstæðingar
stjórnarinnar sér mat úr skýrsl-
unni með því að birta kafla
hennar í neðanjarðarblöðum sín-
um.
Upp frá þessu kom Olszowski
með ýmsar tillögur um úrbætur í
efnahagsmálum við miðnefnd
flokksins, og var tillögunum það
sameiginlegt, að allar miðuðu þær
í átt til meira frjálsræðis í efna-
hagsmálum. Stjórnvöld vildu ekki
una þessu þá, en ef til vill er
afstaða stjórnarinnar í þessum
efnum að breytast?
Það hjálpaði ekki Olszowski að
vera talinn líklegur eftirmaður
Giereks fljótlega á áttunda ára-
tugnum, en upp úr miðjum ára-
tugnum fóru vinsældir Giereks að
þverra. Andstæðingar Olszowski
reru að því öllum árum að honum
yrði ekki ágengt, en það þótti
mikill virðingarauki er Leonid
Bresjnev forseti Sovétríkjanna tók
á móti honum er hann heimsótti
Moskvu sem ritari pólska komm-
únistaflokksins. Það er heiður sem
venjulega er aðeins veittur fyrsta
flokksritara.
Úr fæðingarbæ
Kópernikusar
Olszowski er fæddur í heimabæ
Kópernikusar stjarnfræðings,
hansastaðamannabænum Torun
við ána milli Varsjár og Gdansk,
hinn 28. ágúst 1929. Foreldrar
hans og ættfeður höfðu stundað
kennslustörf og lá leið hans í
fyrstu inn á þær brautir. Hann tók
embættispróf í pólskri tungu og
bókmenntum við háskólann í
Lodz. Upp úr því hófst ferill hans í
stjórnmálum og fyrsta skrefið á
pólitískri framabraut var stigið
fljótlega eftir að hann hætti námi,
er hann var gerður að unglinga-
leiðtoga. Árið 1963 var hann
útnefndur formaður Blaða- og
menningarmálanefndar Mið-
nefndar Kommúnistaflokks Pól-
lands, og fimm árum seinna var
hann gerður að flokksritara. Hann
var valinn í framkvæmdanefndina
(Politbyro) árið 1970.
Guðrækinn kaþólikki
Æviþættir Lech Walesa hljóða
nokkuð á annan veg en æviþættir
Olszowskis. Walesa er sex barna
faðir og guðrækinn kaþólikki.
hann er vinsælastur manna í
SKÓLAVÖRUR
attt tíl skólans!
BÓKAHÚSiÐ
Laugavegi 178, s.86780.
Herforingi á
Spáni myrtur
Barcelona, 2. september. AP.
VOPNAÐIR menn, sennilega
róttækir vinstrisinnar, réðu
spænskan hershöfðingja af dög-
um i Barcelona i dag og særðu
tvo hermenn þegar þeir gerðu
vélbyssuárás á bifreið hershöfð-
ingjans og flúðu i stolnum bíl.
Þetta er 79. pólitíska morðið á
Spáni á þessu ári og á sama tima
er óttazt að til nýrra átaka kunni
að koma í Baskahéruðunum.
Enriques Briz Armengol hers-
höfðingi lézt samstundis þegar
þrír menn óku upp að bifreið hans
á gatnamótum og létu kúlum
rigna yfir bílinn. Seinna fannst 21
byssukúla í likinu. Lífvörður hans
hlaut fimm skotsár og hann og
bílstjórinn eru alvarlega særðir.
Talið er, að hershöfðinginn hafi
verið veginn til að hefna þess að
lögregla bankaði í síðustu viku
skæruliðaleiðtoganum Abelardo
Collazo úr samtökunum Grapo á
götu í Madrid.
Liðsauki hefur verið sendur til
Baskahéraðanna, þar sem helztu
stjórnmálaflokkar hafa hvatt til
götumótmæla gegn hryðjuverka-
starfsemi skilnaðarsamtakanna
E7TA og vinstriflokkar hafa hvatt
til funda gegn „ríkishryðjuverk-
um“.
Spennan hefur aukizt við það,
að varaforseti fylkisstjórnarinnar
í Pamplona hefur verið handtek-
inn, þar sem hann sagðist styðja
Eta.