Morgunblaðið - 03.09.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 1980
15
Gdansk. Þrátt fyrir rúmlega
tveggja vikna taugastríð við
valdakerfið, þar sem honum var
lítils og óreglulegs svefns auðið,
var hann ætíð jafn glaður í bragði
og spaugaði oft við félagana úr
ræðustóli.
En þrátt fyrir að útlitið bendi
til þess að Walesa sé af léttvigt, er
hann dugmikill baráttumaður og
fylginn. Hann hefur varist af
krafti mörg undanfarin ár fyrir
trúfrelsi og fyrir ýmsum félags-
legum úrbótum, en fyrir þá bar-
áttu hefur hann orðið að taka á sig
þungar búsifjar. Þrisvar sinnum
frá því 1976 hefur hann misst
vinnuna vegna verkalýðsbaráttu
sinnar.
Fjölskyldan lifir
á samskotum___________________
Frá því í febrúar sl. hefur
Walesa-fjölskyldan, sem telur
átta manns, orðið að framfleyta
sér á gjöfum og skotsilfri sem
vinir og kunningjar hafa aurað
saman. Kona Walesa er ekki
útivinnandi, en hún ól manni
sínum son aðeins tveimur vikum
áður en verkföllin byrjuðu.
Það eru um tvö ár síðan Walesa
og nánustu skoðanabræður hans
brydduðu sín á milli upp á umræð-
unni um frjáls verkalýðsfélög,
nokkuð sem þá var næstum því
óhugsandi möguleiki í Póllandi.
Þar áður var Walesa nokkuð þekkt
persóna, í heimabyggð sinni
a.m.k., því hann hélt oft ræður í
kirkjum eftir messu.
Vikið úr starfi
Walesa hóf störf sem rafvéla-
virki í Lenínskipasmíðastöðinni í
Gdansk árið 1966. Honum var
vikið úr starfi eftir verkföllin
1976, en hann var mjög aðsóps-
mikill í verkalýðsbaráttunni þá,
eins og 1970. Honum var aftur
vikið úr starfi í fyrra og einnig í
ár, einnig af sömu ástæðum og er
honum var vikið úr starfi í
Lenínskipasmíðastöðinni, vegna
verkalýðsbaráttu sinnar. Ein
fyrsta krafa verkfallsmanna var
að hann fengi vinnú sína í skipa-
smíðastöðinni á ný, svo og krana-
stjórinn Anna Walentynowicz,
sem missti vinnuna fyrir að minn-
ast verkfallsins frá 1970 í desem-
ber ár hvert. Þau fengu bæði
vinnuna, en baráttan heldur
áfram, fyrir framtíð pólsku stétt-
arfélaganna.
Er verkfallsmenn sömdu við
stjórnvöld á sunnudag, hafði Wal-
esa ekki séð nýfæddan son sinn í
tvær vikur, og síðast er hann hitti
eiginkonu sína og hin börnin var
það við guðsþjónustu í Lenín-
skipasmíðastöðinni fyrra sunnu-
dag. Þau hjónin gengu þá til
altaris.
(Þýtt og endursagt)
Hansen algengasta
ættarnafn í Noregi
Ósló, 2. soptember, írá Jan Erik Laure,
fréttaritara Mbl.
EF ÞÚ þekkir norska fjölskyldu
sem hefur ættarnafnið Hansen, er
hún ein af mýmörgum norskum
fjölskyidum með það ættarnafn,
því alls eru þær 72.016 samkvæmt
opinberum heimildum. Ættarnafn-
ið Hansen er algengasta ættarnafn-
ið i Noregi, og kemur það t.d. vei i
ljós þegar simaskránni fyrir Ósló
er flett, en samtals fylla Hansenar
tiu blaðsiður i skránni.
Næstalgengasta ættarnafnið í
Noregi er Olsen, en alls eru Olsen
fjölskyldurnar rúmlega 66 þúsundir.
í þriðja sæti er Johansen ættar-
nafnið, sem 62.129 fjölskyldur bera,
í fjórða sæti er ættarnafnið Larsen,
sem 45.815 fjölskyldur bera, í
fimmta sæti Andersen, sem 44.623
fjölskyldur bera. Þá koma Nilsenar,
en þær fjölskyldur eru alls 43.706 og
einnig eru Pedersen fjölskyldurnar
fleiri en 40 þúsund, eða 40.855. í tíu
algengustu ættarnafnanna eru einn-
ig Kristiansen (27.461), Jensen
(27.370) og Karlsen (24.451).
Etna byrjuð
að gjósa
Catania. Slklley, 2. september. — AP.
ELDFJALLIÐ Etna, sem byrjaði
að gjósa i gær, hélt áfram að spúa
eldi og eimyrju i dag, en er þó
ekki talið ógna nærliggjandi
byggðum, að þvi er yfirvöld á
Sikiley sögðu i dag. Gígur i
norð-austanverðu fjallinu opnað-
ist skyndilega með ofsalegri
sprengingu og þeyttust grjót-
hnullungar i allt að 500 metra
hæð.
Við sprenginguna opnuðust
tveir aðrir gígar, annar efst á
fjallinu og hinn neðarlega á tind-
inum. Öskuský umlukti fljótlega
fjallið, en eftir hádegi fór það að
berast í átt til sjávar.
Meðal þeirra sem fylgjast með
gosinu, er franski eldfjallafræð-
ingurinn Haron Tazieff, sem
staddur var á þessum slóðum
þegar gosið hófst vegna umræðu-
fundar, sem þá stóð yfir, um þetta
virkasta eldfjall Evrópu.
Flóðí
Mexikó
ArandaN. Mexikó, 2. sept. — AP.
FIMM manns drukknuðu og yfir
hundrað manna er saknað eftir
að flóð gengu yfir bæinn Arandas
i Mexikó i dag, þegar áin Ríó
Colorado flæddi yfir bakka sína í
framhaldi af miklum rigningum
á svæðinu. Talsmaður hjúkrun-
armanna á svæðinu sagði, að
liklega myndi tala látinna fara
hækkandi frá þvi sem nú er.
Fulltrúi Rauða Krossins í bæn-
um Tepatetlan skammt frá Ar-
andas sagði, að kröftug flóðalda
hefði riðið yfir bæinn, 20 íbúðar-
hús hefðu eyðilagst og 80 laskast.
Símasamband rofnaði, orkulaust
varð á svæðinu vegna flóðanna og
hermenn voru kallaðir út til að
hjálpa við leitina.
Rigningarnar, sem ollu flóðinu,
hófust eftir hádegi í gær og
snemma í morgun hafði yfirborð
árinnar hækkað um þrjá metra.
Veður
víða um heim
Akureyri 12 skýjaó
Amsterdam 22 heióskírt
Aþena 30 skýjað
Berlín 20 heiðskírt
Brlissel 22 heióskírt
Chicago 28 rigning
Denpasar vantar
Dublin vantar
Feneyjar 22 lóttskýjað
Frankfurt 18 skýjaó
Fnreyjar 12 skýjað
Genf 18 heióskírt
Helsinki 18 heiðskírt
Hong Kong vantar
Jerúsalem 29 heióskírt
Jóhannesarborg 21 heiöskírt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Las Palmas 27 heiósklírt
Lissabon 31 heiöskírt
London 23 heióskírt
Los Angeles 26 heióskírt
Mexicoborg vantar
Madrid 33 heiðskírt
Malaga 27 lóttskýjaó
Mallorca 28 lóttskýjaó
Miami 29 rigning
Moskva 17 rigning
Nýja Delhi vantar
New York 36 skýjaó
* Oslo 19 heióskírt
Paría 21heíóskírt
Rio de Janeiro 34 skýjaó
Reykjavík 12 lóHskýjað
Rómaborg 23 heiðaklrt
San Francisco 16. skýjaó
Stokkhólmur 15 heiósklrt
Tel Aviv 29 heióskírt
Tókýó 29 rígning
Vancouver 13 rigning
Vínarborg 15 rigníng
GO
13
cn
CO
færöu námsbækurnar
líka í Pennanum.Þar með
höfum viö allt fyrir skólafólkið
HALLARMÚLA 2
iJf"
tr -
nVja omic reiknivéun er helmingi
FVRIRFEMlARHINNI OC TÖLUVERT ÓDVRAM
Nú hefur ný reiknivél bæst í Omic fjöl-
skylduna, - Omic 410 PD. Þessi nýja
Omic vél er lítil og lipur. Hún gengur
fyrir rafhlööum jafnt sem rafmagni.
Omic 410 PD skilar útkomu bæði á
strimli og með Ijósatölum. Hún vinnur
að öllu leiti verk stærri véla bæði fljótt
og vel.
Við byggjum upp
framtið fyrirtækis þins.
Þegar Omic reiknivélarnar komu fyrst
á markaðinn voru þær sérhannaðar
samkvæmt óskum viðskiptavina Skrif-
stofuvéla h.f. Á örfáum vikum urðu
Omic 312 PD, Omic 210 PD og Omic 210
P, sannkallaðar metsöluvélar.
Komið og kynnist kostum Omic.
Verðiö og gæðin tala sínu máli.
V*,f Bf.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
Vi, + — ~ Hverfisgötu 33
Simi 20560