Morgunblaðið - 10.09.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980
7
Útvarpiö og
Flugleiöir
Sæmundur Guövins-
son, blaðamaður á Vísi,
sogir f Sandkorni þess
blaðs í gær:
„Fréttastofa útvarps
var á æðislegu flugtrippi
um helgina og kenndi þar
margra grasa. Meðal
annars töldu fréttamenn
brýna nauðsyn bera til að
gera breytingar á stjórn
Flugleiða og var reynt að
fá samgönguráðherra til
að fallast á þessa skoð-
un.
L
Hann var spurður,
hvort líklegt væri að
samningar tækjust við
Luxara meö óbreyttri
stjórn Flugleiða. Þegar
ráðherra fékkst ekki til
að fullyröa að stjórn
Flugleiða stssði í vegi
fyrir samningum, var
hann spuröur hvort ekki
væri vonlaust að semja
við flugmenn Flugleiöa,
meðan stjórn fyrirtækis-
ins væri óbreytt.
Það þótti hins vegar
engin ástæða til að
spyrja, hvort flugmenn
Flugleíða þyrftu ekki aö
ná samkomulagi sín á
milli áður en nokkuð væri
hægt að semja við þá.
Fleiri „fréttir" útvarpsins
af þessum flugmálum
voru í sama dúr, og hlust-
endur voru ekki í vafa um
áhuga fréttastofunnar á
því að Sigurður Helgason
skyldi settur af. Það hefði
mátt hafa yfirskriftina af
þessum fréttum: „Nú
verður tekið fyrir málið
Ríkisútvarpið gegn Sig-
urði Helgasyni forstjóra.
Varnir ákærða verða tak-
markaðar.“
Viö vitum
betur.. .
Enn um flugtripp út-
varpsins. í fréttum þess
um helgina var greint frá
því, að sum flugfélög
rækju Atlantshafið með
hagnaði og Northwest
Airlines nefnt sem dæmi.
Tímaritið Business
Week greindi frá því
þann 25. ágúst, að
Northwest hefði tilkynnt
um 16,1 milljón doílara
tap fyrstu sex mánuði
þessa árs. Ennfremur, að
við lok fjárhagsárs fé-
lagsins þann 31. marz
hefði tap á Atlantshafs-
fluginu numið 26,6 millj-
ónum dollara.
En það er auðvitaö
óþarfi að taka mark á
upplýsingum félagsins
fyrst útvarpið er á önd-
verðum meiði í þessu
efni.“
Ólafur Ragnar
og Baldur
á ferö
Athygli hefur vakið, að
ummæli þeirra Baldurs
Óskarssonar og Ólafs
Ragnars Grímssonar i út-
varpinu og síðdegisblöö-
unum í gær um greinar-
gerð Flugleiða um fjár-
hagsstöðu fyrirtækisins
voru nær samhljóða.
Ólafur Ragnar sagði efn-
islega það sama í síödeg-
isblöðunum og Baldur
sagöi í útvarpinu. Skýr-
ingin er einföld. Alþýðu-
bandalagið hefur skipu-
lagt aðför að Flugleiðum,
eins og rætt er um í
forystugrein Morgun-
blaðsins í dag. Sérstakur
hópur innan flokksins
skipuleggur þessa aðför.
í honum eru þeir Ólafur
Ragnar, Baldur Óskars-
son, Arnmundur Bach-
man, fulltrúi félagsmála-
ráðherra og fleiri. Þessi
hópur eða einhverjir úr
honum hafa hitzt í fyrra-
kvöld. Þar hafa þeir lagt á
ráðin um það, hvernig
þeir ættu að bregðast við
skýrslu stjórnar Flug-
leiöa. Þeir hafa komið sér
saman um það, hvaöa
athugasemdir þeir
mundu gera. Síöan hafa
þeir ákveðið, að Baldur
Óskarsson hringdi í ein-
hvern vin Alþýðubanda-
lagsins á fréttastofu út-
varpsins og óskaði eftir
viðtali viö sig, en Ólafur
Ragnar mundi hringja i
Dagblaöið og Vísi og
bjóða fram forsíðufréttir.
Þetta hefur Ólafur Ragnar
gert snemma í gærmorg-
un með þeim árangri, að
ummæli hans um grein-
argerö Flugleiöa er á for-
síðu beggja síðdegis-
blaðanna. Aöstandendur
Vísis og Dagblaðsins
ættu að hugleiða, hvort
ástæða sé til aö láta Ólaf
Ragnar komast upp meö
þessi vinnubrögð öllu
lengur. Hann er frægur
fyrir það á öllum dag-
blöðunum að hringja
sjálfur og bjóða fram
skoðanir sínar. „Sko, ef
þú vilt, þá máttu hafa
eftir mér...“ Stjórnend-
ur fréttastofunnar ættu
líka að fara að hugsa sinn
gang. Fyrr á þessu ári
misnotuðu alþýöubanda-
lagsmenn fréttastofuna í
sambandi við kjarnorku-
vopnaupphlaupið. Nú
misnota þeir hana í sam-
bandi við Flugleiöamálið.
Hafa starfsmenn frétta-
stofunnar ekkert faglegt
stolt fyrir hönd sjálfra sín
og Ríkisútvarpsins?
Þetta gerðist
10. september
1976 — 176 farast í árekstri tveggja
flugvéla í Júgóslavíu.
1974 — Guinea-Bissau fær sjálf-
stæði.
1964 — Utanríkisráðherrar Eining-
arsamtaka Afríku samþykkja á
fundi í Addis Ababa áætlun um að
binda endi á uppreisn og deilur i
kongó.
1956 — Nasser hafnar tillögu 18
ríkja um Súez-skurð.
1945 — Vidkun Quisling dæmdur til
dauða í Noregi fyrir samvinnu við
Þjóðverja.
1939 — Þýzki herinn nær algerum
yfirráðum yfir Vestur-Póllandi —
Kanada segir Þýzkalandi strið á
hendur.
1935 — Þing hvítra landnema for-
dæmir stjórnarstefnu og hvetur til
nánara sambands við Uganda og
Tanganyika.
1919 — Sáttmálinn í Saint Germain
undirritaður — Friður saminn við
Austurríki.
1918 — Uppþot múhameðstrúar-
manna brjótast út í Kalkútta, Ind-
landi.
1907 — Nýja-Sjáland verður sam-
veldisríki.
1898 — Elízabet keisaradrottning af
Austurríki vegin af ítölskum stjórn-
leysingja í Genf.
1885 — Bretar semja við Rússa um
landamæri Afganistans.
1844 — Marokkó-ófriði lýkur með
Tangier-sáttmála.
1823 — Símon Bólivar verður ein-
valdur.
1813 — Orrustan á Erie-vatni (sigur
Perry á Bretum).
1780 — Hyder Ali af Mysore leggur
undir sig svæðið umhverfis Madras,
Indlandi.
1654 — Alexis Rússakeisari tekur
Smolensk í stríði við Pólverja.
1547 — Orrustan við Pinkie (Sigur
Englendinga á Skotum) — Sonur
páfa, Pierluigi Farnese, veginn af
Ferrante de Gonzaga, landstjóra í
Mílanó.
Afmæli. Mungo Park, skozkur land-
könnuður (1771—1806) — Franz
Werfel, austurrískur rithöfundur
(1890—1945) — Arnold Palmer,
bandarískur golfleikari (1929— ).
Andlát. 954 d. Loðvík IV Frakka-
konungur — 1797 d. Mary Woll-
stonecraft, kvenréttindakona.
Innlent. 1257 Sættagerðin í Bjarna-
dal — 1728 d. Jón Steingrímsson
prófastur — 1874 Vesturfaraskip
flytur 375 íslendinga frá Sauðár-
króki — 1877 „Framfari" hefur
göngu sína í Manitoba — 1908
Stórsigur uppkastsandstæðinga í
kosningunum um Uppkastið — 1908
Aðflutningsbann á áfengi samþykkt
— 1938 Vinnumálalöggjöfin öðlast
gildi — 1938 d. Jens B. Waage —
1942 Þýzk flugvél gerir árás á hús og
báta á Austfjörðum — 1964 d. frú
Dóra Þórhallsdóttir — 1977 Þriðja
Kröflugosið — 1979 Bráðabirgðalög.
Orð dagsins. Hafðu augun opin og
munninn lokaðan — Japanskur
málsháttur.
Verksmiójusala
Buxur á alla aldurshópa
Herrabuxur úr flaueli, kakí og denim.
Dömubuxur úr flaueli, flannel og kakí.
Unglingabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Barnabuxur úr flannel, flaueli og denim.
Sumarjakkar á börn og karlmenn.
Gerið góö kaup í úrvalsvöru.
Opiö virka daga kl. 9—18. Laugardaga kl. 9—12.
BOT HF.
Skipholti 7.
Simi 28720.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu mér vináttu
meö heimsóknum, gjöfum og hlýjum kveöjum á
stjötíu ára afmodi minu.
GuÖ blessi ykkur.
Dórothea Erlendsdóttir,
Akranesi.
00^ MILWARD
• Hringprjónar
• Fimmprjónar
• Tvíprjónar
• Heklunálar
Framleitt úr
léttri álblöndu
Heildsölubirgðir:
Davíð S. Jónsson & co. hf.
Sími 24-333.
MiLWARD
A22S2
CwcufíK Knrtítng Pirttt
A*y»jrtte OfuMarte
Rundstricknadrtn
Verö 42.800.-
Litur: Rústrautt.
Verö 44.200.-
Litir: Biátt og Ijós-
brúnt.
Póstsendum
bÁeAl Laugavegi 60,
^9IVUDC19 sími 21270.