Morgunblaðið - 10.09.1980, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 10.09.1980, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980 15 Um 37 þús. kóreanskir larfalákar teknir Seul, Suöur-Kóreu. 9. sept. — AP. HERSTJÓRN Suður-Kóreu tilkynnti í dag að um þrjá- tíu og átta þúsund meintir larfalákar, fjárhættuspilar- ar og braskarar hefðu verið handteknir í sérstökum að- gerðum lögreglunnar, sem stefnir að því að uppræta hvers kyns svínarí og spill- ingu í landinu. Talsmaður herstjórnarinnar sagði að rösklega fimm þúsund manhs yrðu settir í nauð- ungarvinnu, höfðað yrði sakamál á hendur um 1500 sem hefðu hvað mestar sakir að bera, um tíu þús- und hefðu verið látnir laus- ir að loknum yfirheyrslum og 17 þúsund yrðu látnir lausir eftir fjögurra vikna endurhæfingu. Kitty, Kitty, bang, bang til sölu! Amanda Clayton og Michaela Pain, aðalleikarar í myndinni Kitty, Kitty. hantf, hanií ásamt nefndum bil, en nú er ætlunin að billinn verði seldur á uppboði i Englandi þann 22. september. Eins ok menn muna sem hafa séð myndina er þessi bíll hinn kostamesti i hvivetna, flýtcur i lofti og siglir um sjá auk þess að aksturseiginleika hans dregur enginn i efa. Vopn geymd í Þrændalögum Osló, 9. Heptember. Frá fréttaritara Mbl. ÞAÐ virðist nú frágengið að birgðir af þungum bandariskum vopnum. sem Atlantshafshanda- lagið getur gripið til ef á þarf að halda. verður komið fyrir i Þrændalögum og ekki i Norður- Noregi. Stjórn Noregs hefur fengið stuðning frá landsstjórn flokksins um að hefja viðræður við Bandarikin, sem miði að þessu. Á þann hátt er talið að varnir Norður-Noregs kunni að Veður víða um heim Akureyri 7 léttakýjaö Amsterdam 18 bjart Aþena 30 heiöskirt Barcelona 22 skýjaö Berlín 17 rigning BrUssel 18 skýjaö Chicago 30 rigning Oenpasar 30 skýjað Dublin 17 heiöskírt Feneyjar 24 þokumóöa Frankfurt 25 skýjaö Fsreyjar 10 skýjaö Genf 20 skýjaö Helsinki 20 heiöskírt Kong Kong 31 heiöskirt Jerúsalem 32 heiöskírt Kaupmannahöfn 20 rígning Las Palmas 22 aiskýjað Lissabon 23 heiöskirt London 20 heiöskírt Loa Angeles 25 skýjaö Madrid 30 skýjaö Malaga 26 skýjaö Mallorca 20 skýjaö Mexíkó 24 skýjaö Miami 30 skýjaö Moskva 19 skýjaö Nýja Delhi 32 skýjaö New York 26 heiöskírt Oslo 16 heiöskírt París 24 skýjað Reykjavík 9 léttskýjað Rómaborg 29 bjart San Fransisco 16 skýjað Stokkhólmur 20 heiöskírt Tel Aviv 31 heiöskírt Tókýó 25 skýjaö Vancouver 18 skýjað Vínarborg 18 skýjaö veikjast nokkuð og mun ríkis- stjórnin ætla að bæta úr því með þvi að efla innanlandsvarnir sin- ar i norðlægustu fylkjunum. Lausn þessi er studd þeim rökum, að Knut Frydenlund, utanríkis- ráðherra, telji, að mest nauðsyn sé að styrkja eigin varnir i N-Noregi og Norðmenn muni verða snarari i snúningum á þessum landsvæðum en erlendar sveitir. Frydenlund leggur áherzlu á að öry8RÍsn'álastefna Noregs byggi á tveimur meginreglum: að tryggja varnir og öryggi norsks landsvæð- is og nágrannalanda. Með því að koma slíkum vopnabirgðum fyrir í Þrændalögum megi líta svo á, að hér sé um fyrirbyggjandi ráðstaf- anir að ræða og ekkert land geti litið á þessa ákvörðun sem ögrun á neinn hátt. Þær vopnabirgðir sem verður komið fyrir í Þrændalögum munu verða notaðar af tíu þúsund bandarískum sjóliðum. Þarna er um að tefla sprengiefni, Hawk- eldflaugar, sem notaðar eru við að verja flugvélar, 18—24 stórar fall- byssur og töluverðar birgðir af matvælum. Innan stjórnarflokksins, Verka- mannaflokksins, er verulegur ágreiningur um þetta mál og margir sem vilja ekki ljá land undir vopnabirgðir fyrir Atlants- hafsbandalagið. ERLENT Heilsa skánar ögn Moskva. 9. sept. — AP. LÍÐAN ANATOLI Shcharansky hefur batnað undan- farnar vikur, að því er heimildir innan andófsmanna- samtaka í Moskvu greindu frá í dag. Shcharansky hefur verið í þrælkunarbúðum í Úralfjöllum á sjötta mánuð. Fyrst hafði hann verið í fangelsi í þrjú ár, en var fluttur í búðirnar í marz. Var hann þá illa haldinn, kvartaði undan stöðugum þrautum í höfði og augum, en á því hefur nú orðið einhver breyting til bóta. Fjöl- skylda Shcharanskys hefur feng- ið að heimsækja hann einu sinni, móðir hans og bróðir dvöldu hjá honum í tvær klukkustundir sl. föstudag. Shcharansky var mjög ötull innan samtaka sovézkra Gyðinga og barðist ótæpilega fyrir aukn- um réttindum þeim til handa. Hann var handtekinn 1977 og dæmdur fyrir njósnir í þágu Bandaríkjanna. Hann á að vera í þrælkunarvinnubúðunum í tíu ár enn. Maður i frettunum: Yinur Dengs arf taki Hua Næsti forsætisráðherra Kína, Zhao Ziyang, hefur orð fyrir að vera nýj- ungagjarn hagfræðingur og harður stjórnandi, sem hiki ekki við að gæla við kapitalisma. Zhao, sem hefur verið varafor- sætisráðherra í aðeins nokkra mánuði, er kurteis maður með viðfelldna framkomu, en um- fram allt framtaksamur og læt- ur verkin tala. Hann hefur haft á orði, að Kínverjar megi ekki rígbinda sig við gamlar venjur og leggja verði niður allt sem hamli aukinni þjóðarfram- leiðslu. Hua Guo-feng, fýrirrennari Zhao, sem mun gegna áfram starfi formanns kommúnista- flokksins, var skjólstæðingur Mao heitins flokksformanns, sem nú er óspart gagnrýndur. Zhao er hins vegar skjólstæðing- ur Deng Xia-ping varaforsætis- ráðherra, sem einnig er raunsæ- ismaður í efnahagsmálum. Deng vill, að stuðningsmenn sínir myndi nýja „samvirka forystu“ og haldi áfram að hrinda í framkvæmd umfangsmiklum áætlunum um nýsköpun og nú- tímavæðingu. Zhao er leiðtogi þessara manna. „Hæfileikamaður" I janúar sl. var Zhao í skyndi kvaddur til Peking frá Sichuan, fjölmennasta héraði í Kína, þar sem hann hafði verið aðalflokks- ritari síðan í desember 1975. Hann var skipaður varaforsætis- ráðherra og hafði með höndum það verkefni að stjórna málum ríkisráðsins frá degi til dags. Þegar Hua kynnti Zhao fyrir utanríkisráðherra Japans, Masa- yoshi Ito, í síðustu viku, kallaði hann eftirmann sinn „mikinn hæfileikamann". Hua sagði, að hann hefði unnið „merkileg af- rek“ í Sichuan og miðstjórninni. í Sichuan er haft á orði, að ef menn vilji korn skuli þeir ræða við Ziyang. Ziyang vann sér það álit, sem hann nýtur, þegar hann kom á reglu í héraðinu eftir glundroðann í menningarbylt- ingunni 1966—67. Árum saman voru betlarar frá Sichuan kunn- ugleg sjón í Kína, en Ziyang kom landbúnaðinum og iðnaðinum aftur á réttan kjöl. Svo slæmt hafði ástandið ver- ið í Sichuan, sem er byggt 100 milljónum manna, að sagt var að margar fjölskyldur hefðu gripið til þess ráðs að selja dætur sínar fyrir hrísgrjón. En á árunum 1977 til 1979 jókst iðnaðarfram- leiðsla í fylkinu um 81% og kornframleiðsla jókst um 25%: Um 600.000 atvinnulausu og ungu fólki var útveguð atvinna, mörgu í samyrkjubúum. Zhao er kunnastur fyrir að hafa haft á hendi umsjón með efnahagslegum umbótum í iðn- aði og landbúnaði og fyrir að veita smábændum og verka- mönnum aukið frelsi. í landbúnaði hvatti hann til ZHAO ZIYANG — raunsær og nýjungagjarn þess, að bændur fengju aftur að stunda búskap á eigin jarðnæði eða að þeir fengju að stunda búskap í hjáverkum ef þeir voru í öðrum störfum. Samkvæmt skipunum hans hafa bændur fengið greitt hærri laun fyrir meiri vinnu og verið verðlaunað- ir þegar þeir hafa komið meiru í verk en af þeim hefur verið krafizt með kvótakerfum. Tilraunir Zhao hefur sagt, að hagfræði sósíalismans grundvallist í aðal- atriðum á tveimur meginþátt- um: þjóðnýtingu atvinnutækja og launagreiðslum i samræmi við þá vinnu sem er leyst af hendi. Með þessar meginreglur til grundvallar er hann fús að gera tilraunir með ný stjórnun- arkerfi og nýtt skipulag iðnfyr- irtækja. Kapitalistum mundi hlýna um hjartarætur, ef þeim væri skýrt frá ýmsum hugmynd- um hans. Rúmlega 300 fyrirtæki í eigu ríkisins gera um þessar mundir tilraunir með nýtt sjálfstjórn arkerfi. I stað þess að afhenda ríkinu allan arð, mega þau halda eftir hluta hans eða jafnvel greiða skatta og halda afgangin- um. Verksmiðjur standa í samn- ingum um hráefni, vinna að aukningu framleiðslunnar um- fram ákveðna kvóta, greiða verkamönnum aukin laun fyrir aukavinnu og senda sölumenn út af örkinni. „Eftirlit ríkisins er of strangt í Kína,“ sagði Zhao einu sinni. „Það gerir ekki ráð fyrir áhuga fyrir fyrirtækjunum." Zhao er fæddur 1919 í Henan- fylki. Árið 1951 fór hann til Guang-dong-fylkis, sem liggur að Hong Kong, til að stjórna jarðaskiptingaáætlunum. Hann var hreinsaður 1967 um leið og Deng. Hann fékk uppreisn æru 1971 og varð fyrsti flokksritari í Innri-Mongólíu og 1975 fór hann til Sichuan. Víkingar kunnu að framleiða stál Jórvik. EnKlandi. 8. Heptember. AP. STANS, sem notaður var við myntsláttu á valdatím- um víkinga í Englandi fyrir 1000 árum, bendir til að iðnaðarmenn þeirra tima hafi kunnað ýmislegt fyrir sér í stálgerð, að því er haft er eftir fornleifa- fræðingum. Stansinn er fjögurra þuml- unga langur og er hamar og sverð grafið á annan enda hans. Hann kom upp við gröft í víkingabyggð í hjarta Jór- víkur og er talið að þar hafi verið slegin mynt. Dominic Tweddle, sem hefur umsjón með uppgreftrinum, sagði, að járnið væri þakið viðarkolum en þau væru notuð við fram- leiðslu hrástáls. Með stál- stansinum hefði mátt slá þús- • undir einstakra peninga án þess að hann léti á sjá.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.