Morgunblaðið - 10.09.1980, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. SEPTEMBER 1980
31
Gunnar í bann
GUNNAR Sigurðsson, formaður
knattspyrnuráðs Akraness var i
gærkvöldi dæmdur i eins leiks
bann af aganefnd KSÍ vegna
atviksins i leik Vals og ÍA sem
frægt er orðið. Tekur Gunnar út
bannið á laugardaginn, er ÍA
mætir ÍBK.
Ragnar Margeirsson miðherji
ÍBK missir einnig af leiknum,
hann var dæmdur i eins leiks
bann. Þá missir Jóhann Hreiðars-
son, Þrótti, af leiknum gegn FH á
föstudagskvöldið, hann var
dæmdur í tveggja ieikja bann.
Ásgeir Arnbjörnsson úr FH fékk
eins leiks bann.
— gg.
Kemur Reinke fleiri
í atvinnumennsku?
MORGUNBLAÐIÐ hefur fregn-
að að þýzki umboðsmaðurinn
Wille Reinke, sá sem hafði milli-
göngu um það að ráða Atla
Eðvaidsson til þýzka knatt-
spyrnuféiagsins Borussia Dort-
mund, sé væntaniegur til lands-
ins á næstunni.
Heyrzt hefur að Reinke ætli að
ræða við nokkra knattspyrnu-
menn með það fyrir augum að
koma þeim i atvinnuknattspyrnu
hjá félögum i Evrópu.
Fullar sættir milli
Gunnars og Grétars
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi fréttatilkynning:
„Gunnar Sigurðsson, form.
Knattspyrnuráðs Akraness hefur
tekið afsökunarbeiðni Grétars
Norðfjörð, knattspyrnudómara.
gilda vegna atviks, er varð að
loknum leik Í.A. og Vals á
Akranesi hinn 30. ágúst sl.
Gunnar hefur dregið kæru sína
á hendur Grétari til baka og hafa
þeir náð fullum sáttum.“
• Gunnar Sigurðsson • Grétar Norðf jörð
Stjórarnir reknir
í stórum stíl
STJÓRAR hjá breskum knatt-
spyrnufélögum eru látnir fjúka i
stórum stil þessa dagana. Fjórir
tóku pokann sinn á sunnudaginn,
þar á meðal Aian Dicks, sem séð
hefur um Bristol City i 13 ár.
Stjórnarmenn hjá Bristol City
buðu honum stöðu aðstoðarþjálf-
Formanna-
fundur hjá HSÍ
Formannafundur HSÍ fer fram
á Hótel Loftleiðum næstkomandi
laugardag og hefst kl. 13.30.
Mjög áriðandi er að formenn
aiíra handknattleiksdeilda mæti
á fundinn. jjgf
ara, en Dicks leit á það sem
uppsögn og hvarf af vettvangi.
„Við treystum honum ekki leng-
ur,“ var haft eftir talsmanni
stjórnar BC.
Jimmy Adamson hjá Leeds
hlaut að vera einn hinna brott-
ræku, en Leeds hefur gengið
ömiirlega það sem af er hausti.
Adamson fékk þá afarkosti að
hætta eða vera rekinn og tók hann
fyrri kostinn. Þriðji sem fékk
spark var Martin Harway hjá
Carlisle. Liðinu var spáð frægð og
frama á þessu keppnistímabili, en
ekkert hefur gengið. Loks var
John King sparkað úr brúnni hjá
Trammere, þar sem hann hefur
ráðið lögum og lofum í fimm ár.
Mikill ágóði af
rekstri getrauna
í 3. leikviku Getrauna komu
fram 2 raðir með 12 réttum og
var vinningur fyrir hvora röð kr.
1.001.000 en alls voru 15 raðir
með 11 rétta og vinningur fyrir
hverja kr. 57.200. Báðir „tólfar-
arnir“ voru á 16 raða kerfi og
hvor seðill þar af leiðandi með 11
rétta i 4 röðum. Var vinningur
fyrir hvorn kr. 1.230.000.
Reikningar Getrauna fyrir sl.
vetur eru komnir út. Hagnaður
eignaraðilanna þriggja tifaldaðist
á milli ára, hluti I.S.Í. fór úr kr.
1.052.000 í kr. 10.357.540, hluti
U.M.F.Í. úr 300 þús. kr. í tæpar 3
millj. kr. og hluti íþróttanefndar
ríkisins úr 150 þús. kr. í tæplega
1,5 millj. kr. Salan tvöfaldaðist úr
tæpum 100 millj. kr. í kr. 197,5
millj. og þá einnig þeir liðir, sem
tengdir eru sölunni, vinningar
urðu alls kr. 98,7 millj. og sölulaun
íþróttafélaganna kr. 49,4 millj.
Alls varð ágóði íþróttasamtak-
anna á síðasta vetri af rekstri
Getrauna kr. 71,8 millj.
er til a útsölumarkaðnum
□ 100% ullarbuxur dömu □ Frotté fóöraöir sportjakkar
□ Kakhi og denim gallauxur □ Bolir - vesti - peysur - blússur -
□ Riflaöar flauelisbuxur skyrtur
□ Tereline ullarbuxur herra □ Unglinga- og barnafatnaöur -
□ Herraföt og stakir herraiakkar □ Skór — ýmsar gerðir o.m.fl.
50%—70%
afsláttur
Aðeins 2 dagar eftir
Vörur frá Karnabæ,
Garbó,Bonaparte og aö
sjálfsögöu
frá
Bonanza.
Laugavegi 20. Sími frá skiptiboröi 85055.