Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 3 YFIRNEFND Verðlagsráös sjávarútvegsins að störfum í gær, frá vinstri: Ingólfur Ingólfsson, Kristján Ragnarsson, ólafur Daviðsson oddamaður nefndarinnar, Árni Benediktsson, Eyjólfur ísfeld Eyjólfsson og Sveinn Finnsson framkvæmdastjóri Verðlagsráðsins. (Ljósm. EBB). \ Næsti fundur um nýtt fiskverð á þriðjudag FUNDUR var haldinn um nýtt ráðs sjávarútvegsins i gær. fiskverð i Yfirnefnd Verðlags- Nýtt verð hefur ekki verið ákveðið, en það átti að taka gildi 1. október. Nýr fundur hefur verið boðaður í Yfirnefndinni á þriðjudag. í viðtali í fréttatíma Sjónvarpsins á miðvikudag sagði Gunnar Thoroddsen, forsætis- ráðherra, að nýs fiskverðs væri að vænta um helgina. Útvarpsleikrit í prentaðri útgáfu Út er komið leikritið Heildsal- inn, fulltrúinn og kvenmaðurinn eftir Erlend Jónsson. Það var flutt í Ríkisútvarpinu á síðastliðnu ári, nokkuð stytt, en er nú prentað sem næst upphaflegri lengd. Per- sónur eru þrjár: heildsali í Reykjavík og fulltrúi hans, sem eru að koma frá laxveiðum uppi í Borgarfirði, og kona að norðan sem er stödd á sömu slóðum og slæst í för með þeim. Þetta er sjötta bók Erlends Jónssonar, en hann hefur meðal annars sent frá sér þrjár ljóða- bækur. Leikritið er gefið út á kostnað höfundar en Litbrá offsetprentaði. íslandsmótiö í handknattleik r k,8id KR — Víkingur ki. 2o.oo Fram — Fylkir KR var eina liðið sem vann Víking í Reykjavíkurmótinu. Verður það endurtekið í i kvöld? Hvað gera Fylkismenn á móti Axel og Björgvin? Næsti leikur í Hafnarfiröi miövikudag ki. 20.00: Haukar — Víkingar í leikhléi KR og Víkings keppa 10 áhorfendur um titilinn Kókþambari kvöldsins. Glæsileg verölaun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.