Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 HÁRGREIÐSLUTÍZKAN fyrir veturinn 1980 er komin. Berst okkur að venju frá París, þar sem samtökin Ilaute Coiffure Francaise leggja línurnar, er síðan herast í vor og haust út um víða veröld. Hingað til íslands koma hártískufréttirnar með hraði. því nokkrir íslenzkir hárgreiðslumeistarar eru í þessum samtökum og sækja nýjustu línurnar um Icið og þær koma fram. í haust var sýning HCF dagana 7. og 8. septemher í nýjum og stærri sýningarsal í heimsborginni, í Porte Mallot. í þetta sinn fóru þangað af íslandi hárgreiðslumeistararnir Hanna í Kristu, Bára í Hár og snyrting, Lovísa í Venus, Dúddi í hárgreiðslustofunni Hjá Dúdda, Matti á Þinghólabraut 19 og Elsa í Salon VEH. Sögðu þau að mjög gott andrúmsloft hefði ríkt á sýningunni og fólk virzt ánægt með nýju hártízkuna, sem er að þessu sinni mjög hentug og ekki íburðarmik- il. Á við flestar konur, alla aldursflokka og er hentug okkar veðráttu á íslandi. Þegar Parísarfararnir komu heim, hittust þeir að venju til að bera saman bækur sinar, um það sem þeir höfðu séð, og færa hárgreiðsluna upp á íslenzk höfuð. Höfðu til þess sex sýningar- stúlkur. Klæddu þær í loðkápur, svo sem mikið hafði verið gert á tízkusýn- í hamttískunni Tvær línur ingunni í Paris. Má sjá árangurinn á þessum myndum, sem Emilía ljós- myndari Morgunblaðsins tók, svo les- endur mættu verða einhvers vísari um hvað hæst mundi bera í hártízkunni á þessum vetri. Haustgreiðslan í ár nefnist Julie og eru Unurnar íþetta sinn tvær, önnur stuttu hári og hin í síðu. En fyrir báðar greiðslurnar verður að hafa létt permanent. Sú fyrrnefnda, Julie I, er styttuklippt og nothæf fyrir bæði karla og konur. Toppurinn er stuttur og greitt frá andlitinu. Þetta hentar hér vel, því íslenzka konur vilja yfirleitt hafa toppinn stuttan. Síðari hárgreiðslan, Julie II hár- greiðslan, gerir ráð fyrir millisídd á hárinu, sem er þverklippt. Með því er notað alls konar hárskraut, gjarnan undir kínverskum áhrifum, þar sem prjónar eru m.a. í tízku. Auk þess notaðar slaufur og bönd, svo sem sjá má á myndunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.