Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 21 Þorleifur Ágústsson frá Hrísey - Attræöur Á morgun verður tengdafaðir minn, Þorleifur Ágústsson frá Hrísey, áttræður. Hann fæddist að Felli í Svarfaðardal 6. október aldamótaárið og ólst þar upp fyrstu árin, en fljótlega fluttust foreldrar hans að Ystabæ í Hrís- ey. Þar ólst Þorleifur upp til fullorðinsára. Hann hóf snemma sjósókn og varð ungur skipstjóri á þilfars- og mótorbátum. Fljótlega eftir að Þorleifur stofnaði eigið heimili byggði hann nýbýlið Mið- bæ úr landi Ystabæjar, og stóð það vestanvert á eynni miðri, miðja vegu milli Ystabæjar og þorpsins. Þar höfðu þau hjónin nokkurn búskap, en sjóinn stund- aði Þorleifur þó jafnan með bú- skapnum. Eftir að frystihús var reist í Hrísey hóf Þorleifur þar störf og var lengst af frystihús- stjóri, eða þar til hann fluttist til Akureyrar á árinu 1957, er hann þá tók við starfi yfirfiskmats- manns á Norðurlandi. Þó að það starf væri erilsamt í víðfeðmu umdæmi, held ég að hann hafi á margan hátt notið sín vel í því. Hann ferðaðist mikið og naut þess að minnsta kosti framan af, en oft urðu ferðalögin þó allt annað en skemmtireisur, einkum á vetrum við erfið skilyrði. Á ferð- um þessum kynntist hann fjöldan- um öllum af fólki, sem hann naut að blanda geði við, en hann hefur jafnan verið mannblendinn, ræð- inn og fróður um almenna lands- hagi. Á þessum árum lærði Þor- Norðmenn á grænni grein ÓhIó. 3. okt. - AP. Vöruskiptajöfnuður Norð- manna var hagstæður um 2.720 milljónir norskra króna á tímabilinu jan.—júlí á þessu ári en var hins vegar óhag- stæður um 3,485 milij. n.kr. á sama tíma fyrir ári. Þessar upplýsingar komu í dag frá norsku hagstofunni. ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU M (ilASINí, \- SÍMINN EK: 22480 leifur fyrst á bíl, þá orðinn fullorðinn nokkuð, en hafði af því ómæld not og talsverða ánægju. Og enn má sjá Þorleif bregða sér í bæinn eða bæjarleið út í sveit á Skódanum sínum. Mér skilst, að Þorleifur hafi í starfi sínu sem yfirfiskmatsmaður farið bil beggja, var kröfuharður um vöruvöndun án þess að ofnota vald sitt. Hann var í því starfi jafn agaður og í öðru líferni sínu, gerði meiri kröfur til sjálfs sín en annarra. Hann ávann sér traust yfirboðara sinna jafnt og sam- starfsmanna. Er Þorleifur lét af starfi yfir- fiskmatsmanns á árinu 1970 flutt- ust þau hjónin til Hafnarfjarðar, þar sem þau bjuggu í fimm ár. Þau ár starfaði hann sem hús- vörður í Hafnarfjarðarkirkju og sem meðhjálpari. Því starfi hafði hann einnig gegnt í Hríseyjar- kirkju og á Akureyri mörg árin sín þar. Árið 1928 kvæntist Þorleifur Þóru Magnúsdóttur frá Streiti í Breiðdal og eiga þau fimm börn. Barnabörnin eru orðin allmörg og tvö barnabarnabörn. Allt þetta fólk sameinast nú um að senda föður, tengdaföður og afa hugheil- ar afmæliskveðjur með ósk um kyrrlátt en ánægjulegt ævikvöld. Sjálfur kaus hann að draga sig snemma út úr skarkalanum, er þau hjónin gerðust á árinu 1975 heimilismenn á elliheimilinu á Akureyri, þar sem þau nú dvelja við hið besta atlæti og við góða heilsu. Björn Hermannsson Nauðungaruppboð sem auglýst var í 57., 62. og 67. tölublaöi Lögbirtinga- blaösins 1980, á Skemmuvegi 10 — hluta —, þinglýstri eign Reykjavogs hf., fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 14. október 1980 kl. 13:30. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 57., 62. og 67. tölublaöi Lögbirtinga- blaðsins 1980, á Víðigrund 45, þinglýstri eign Sveins Skaftasonar, fer fram á eigninni sjálfri þriöjudaginn 14. október 1980 kl. 14:00. Bæjarfógetinn í Kópavogi. 1 s ! STERKASTI LEIKURINN Á tímum síhækkandi verðlags er um að gera að vanda vel valdið á hljómpiötum. Þeim sem nú eru að leita sér að hressri og virkilega vandaðri rokkplötu, viljum viö eindregið benda á nýjustu plötu QUEEN, THE GAME. í n ■ \ F0t KO uonc 0C1 4. 1« Billboord HOT TITlE-fctBt t ^ t Momu o« «fm tn o«t-« M.L 0U1 0F __ í Billboord caur umi noaíCMUO io*i-«— Tvö lög af henni hafa nú þegar náö í 1sta sæti Banda- ríska vinsældalistans, Crazy Little Thing Called Love, sem sat á toppnum í tvo mánuöi snemma á árinu, og núna lagið Another One Bites the Dust, sem sigldi á methraöa á toppinn vestan hafs. Til enn frekari staöfestingar á vinsældum THE GAME má geta þess aö hún situr nú sem fastast í 1sta sæti L.P. listans í Bandaríkjunum og er þetta fyrsta stóra plata QUEEN sem nær því takmarki. Þess vegna getum viö óhikað fullyrt aö sterkasti leikurinn í plötukaupum í dag sé THE GAME meö QUEEN. Fæst í verslunum um land allt. FALKIN N Suöurlandsbraut 8 — sími 84670 Laugavegi 24 — sími 18670 Austurveri — sími 33360 ■nnimmnni in 3 !

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.