Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.10.1980, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 *í& W i«lM [ íJvhIÍ mm óskast Austurbær Ármúli Hverfisgata 4—62 Sóleyjargata Leifsgata. Kópavogur Skjólbraut Úthverfi Smálönd Hringið í síma 35408 Box 118 — 121 Reykjavík — Island — Sími: 91-26155 Telex 2074 Ný alsjálfvirk skeiðarpresssa • Pressan er alsjálfvirk og skilar pakkanum út í sekknum. • Pressan er mjög fljótvirk. Hægt er aö hlaða í hana 45 sek. eftir að henni hefur veriö startaö. Náöst hefur aö pakka nær 50 pökkum á klukkustund af hausum og smáfiskl. Afköst í venjulegri skreiö eru 30—35 pakkar á klukkustund. • Sérstakir hleöslukassar eru til að raöa í skreið á meðan pressan er aö pressa og pakka. Hausum og smáfisk er sturtaö beint í pressuna. • Pressan er sérlega hentug fyrir hausa og þurrkaöan smáfisk. • Reynslan sýnir, að pakkarnir eru um 30% minni en pakkar úr pressum af eldri gerö. • Pakkarnir eru nánast sléttir að utan. • Pressan er viðurkennd af Öryggiseftirliti ríkisins. • TRAUST hf hefur á lager saumaöa sekki úr gervistriga, sem eru ódýrari umbúðir en strigi. • Góöir lánamöguleikar eru fyrir hendi. TRAUST hf framleiöir: — Lausfrystitæki, sérsmíðuö. — Saltflutninga- og söltun- arkerfi fyrir saltfiskverk- endur. — Skreiöarpressu. — Losunarbúnaö fyrir fiski- kassa. — Slægingarvél fyrir kol- munna. — Hreinsibúnaö fyrir frá- rennsli. — Hausara. TRAUST hf flytur inn m.a.: — Lausfrystitæki — spíral- gerö frá Lewis Refriger- ation CO. — ísvélar — allar stæröir. — Klórtæki. — Rafmótora, gírmótora. — Færibönd — ryöfrí. — Lykteyöingartæki fyrir fiskimjölsverksmiðjur. — Kvarnir fyrir fiskúrgang. Fi»kvinn»luvélar • Verkfræöileg ráðgjafarþjónmta • Skipulagning Eiríkur St. Eiríksson skrifar frá Osló: Seióskratti frá A-Berlín í xulum „babydoir náttkjól, svörtum sokkabuxum, fjólubláu nærhaldi og með bleikt hár, tróö a-þýska „pönkdrottninxin“ Nina Haxen upp i Chateau Neuf hljómleikasalnum i Osló og þegar i upphafi var ljóst hvert stefndi. — Eg er enginn „glymskratti", æpti Nina Hagen fram i salinn. og þar við sat. Sárafá gömul lög voru á efnisskránni, en uppistað- an þess í stað, ný lög af væntan- legri hljómplötu Hagcn, flest með enskum textum. Það má til sanns vegar færa að ■ Nina Hagen er enginn „glym- skratti", eins og hún komst sjálf að orði, en seiðskratti væri orð að sönnu. Oft á tíðum var sem ójarðnesk rödd þrumaði frá svið- inu og þær voru ómældar áttund- irnar sem urðu að láta í minni pokann fyrir hinni 25 ára gömlu söngkonu þetta kvöld. Ekki voru ieikhæfileikarnir minni en söngkunnáttan og má segja að hljómleikarnir hafi verið samfelldur látbragðsleikur frá upphafi til enda. „African reggae“ En þó að söngkúnst Hagen sé Hljómleikar Ninu Hagen í Chateau Neuf í Osló mikil, þá vöktu nýju lögin sem hún flutti á þessum hljómleikum, meiri athygli, en röddin sjálf. Þungur „reggae“-taktur einkenndi nær öll lögin og 'enskir textar í algjörum meirihluta, nokkuð sem Nina Hagen hefur ekki verið þekkt fyrir fram að þessu. „African Reggae" af plötunni „Unbehagen", sem var eitt af örfáum eldri lögum sem fann náð fyrir augum söng- konunnar að þessu sinni, gaf tóninn í þessari „reggae“-syrpu og af öllum öðrum ólöstuðum, lag kvöldsins. Fyrrverandi heróínsjúklingur Hin nýja hljómsveit Hagen sem sett var saman fyrir skemmstu og steig sín fyrstu spor í Hollywood á dögunum, er e.t.v. gleggsta vitnið um þá stefnubreytingu sem orðið hefur í tónlist Ninu Hagen. Bæði trommuleikarinn og bassaleikar- inn (ungur blökkumaður í bláum stuttbuxum), eru dæmigerðir „reggae"-tónlistarmenn og sveifl- an var þeirra. Gítarleikarinn Ferdinand Karmelk frá Hollandi, nýjasti fylgisveinn Ninu Hagen, vakti einnig óskipta athygli fjöld- ans og var það mál manna að betri gítarleikari hefði ekki sótt Chate- au Neuf heim í langan tíma. Þessi fyrrverandi herónínsjúklingur, sem Hagen mun hafa hjálpað til lífsins á nýjan leik, var þó greini- lega frekar óstyrkur á taugum, a.m.k. keðjureykti hann alla hljómleikana og þeir voru ófáir sígarettustubbarnir sem lágu í valnum er upp var staðið. Nokkrir hraust- legir hrákar Þó að hljómleikar Ninu Hagen hafi að mínum dómi verið ákaf- lega velheppnaðir tónlistarlega séð, þá skorti mikið á að stemmn- ingin væri eins og hún gerist víst best á hljómleikum með þessari fjölhæfu söngkonu. Greinilegt var að viðstaddir bjuggust við einni allsherjar orgíu á sviðinu, en Hagen brást þeim vonum algjör- lega og aðeins einu sinni leyfði hún sér að hafa í frammi kynferð- islega tilburði á sviðinu. Stutt gaman, en skemmtilegt, en von- brigði manna þeim mun meiri. Ekki einu sinni nokkrir hraustleg- ir hrákar úr munni söngkonunnar (sem æstur aðdáandi „hirti upp“ af sviðinu), megnuðu að vekja hrifningu manna, en hvað sem því líður, þá sveik tónlistin og söngur Hagen ekki frekar en fyrri daginn. Það vekti trúlega stórathygli á Islandi, ef erlendur tónlistarmað- ur tæki ekki nema eitt aukalag, þrátt fyrir klapp og stapp, en Nina Hagen tók ekkert tillit til óska viðstaddra. Sveipuð hvítri skikkju hvarf hún út í myrkrið og djöful- leg röddin bergmálaði í salnum lengi á eftir. ★ ★ ★ Hagen til sænsku þjóðarinnar — kveðja Ninu ESE/OSLÓ Ekki verður annað sagt, en að koma Ninu Ilagen til Noregs og Svíþjóðar, hafi vakið vcrðskuld- aða athygli. í viðtölum við norsk blöð, sagði Ilagen m.a. að hún hefði aldrei lært að syngja, en eftir að hafa talað lcngi við engil á einni af „ferðurn" sinum, þá hafi hún ekki verið í vafa um hvað hún ætti að taka sér fyrir hendur i framtiðinni. Nina Hagen flutti frá A-Þýska- landi, er hinum kunna stjúpföður hennar Wolf Bierman var vísað úr landi árið 1976 og er haft fyrir satt að a-þýzk yfirvöld hafi verið guðs lifandi fegin að losna við þennan vandræðagrip. Síðan hef- ur Nina Hagen stöðugt sótt á brattann og í dag efast víst fáir um réttmæti tilkalls hennar til nafnbótarinnar „Drottning pönk- aranna", þó fleiri söngkonur s.s. Patti Smith og Lene Lovich, séu líka um hituna. En þó að Nina Hagen hafi hneykslað sannkristna Norðmenn með gáleysislegu tali sínu um engla, sem hún hefur hitt undir áhrifum fíkniefna, var þó hneyksl- un Svía á söngkonunni öllu meiri. I ljós kom nefnilega að Hagen hafði neytt marihuana á báðum hljómleikum sínum í Svíþjóð, í Gautaborg og Stokkhóimi og fylg- du víst margir viðstaddra for- dæmi hennar. Sænska stórblaðið Expressen skoraði á sænskan al- menning eftir hljómleikana að snúa baki við Ninu Hagen og hætta að kaupa plötur hennar og í svipaðan streng tóku fleiri. Meðal þeirra sem lýstu yfir hneykslun sinni á framferði Hagen, var Agnetha Fáltskog úr ABBA, sem lét þau orð falla að hegðun hennar væri óafsakanleg. A seinni hljómleikum Hagen í Svíþjóð, ruddist lögreglan inn í búningsherbergi hennar fyrir hljómleikana í leit að fíkniefnum, en fann ekkert. Það var því reið og sár Nina Hagen sem yfirgaf Sví- þjóð og kveðjuorð hennar til sænsku þjóðarinnar voru — „ Meg- ið þið stikna í helvíti".

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.