Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
17
Föðurnafn
SIGURÐUR SVERRISSON fyrr-
um bóndi að Ljótarstöðum í Skaft-
ártungu varð 85 ára í gær. —
Föðurnafn hans misritaðist í Dag-
bók Mbl. í gær. Stóð þar Sigurðs-
son. — Afmælisbarnið biðjum við
afsökunar á þessu.
Gilwellskátar
með samkomu
að Úlfljótsvatni
SKÁTAR, sem lokið hafa for-
ingjaþjálfun Gilwellskólans,
halda mót að Úlfljótsvatni laug-
ardaginn 11. október.
Gilwellskólinn dregur nafn af
Gilwell Park á Englandi, sem er
skammt frá London en þar stofn-
aði Baden-Powell til foringja-
þjálfunarnámskeiða árið 1919.
Námskeið þessi eru alþjóðleg og
hafa verið sameiningartákn
skátaforingja um heim allan.
Fyrsta alþjóðlega foringjanám-
skeið islenska Gilwellskólans var
haldið 1959 og hafa slík nám-
skeið verið haldin nokkuð reglu-
lega siðan. Þátttakendur hafa
verið frá Noregi og Bandarikjun-
um auk íslendinga.
Á Gilwellnámskeiðunum eru
helstu námsgreinar uppeldisfræði,
félagssmálfræði og hagnýt skáta-
fræði ýmiss konar. Einnig er stór
þáttur námskeiðanna tjaldbúðalíf
og útilíf. Hafa þátttakendur verið
371 á námskeiðum þessum, sem
hafa verið haldin að Úlfljótsvatni
og vetrarnámskeið norðanlands.
Sú venja varð fljótlega til meðal
þátttakenda námskeiðanna að
hittast árlega og rifja upp gömul
kynni og bera saman fræði sín.
Hefur sá siður einnig verið í heiðri
hafður hér á landi og verður slík
samkoma að Úlfljótsvatni 11.
október og hefst kl. 18.30 siðdegis.
Stjórnandi verður Björgvin Magn-
ússon. D.C.C.
Nær annar
hver maður
hefur séð
Óðalið
ÓÐAL feðranna var tekið
til endursýningar í Reykja-
vík í Laugarásbíói í þessari
viku. Seinni hluta vikunnar
hefur verið slík aðsókn að
færri hafa komist á mynd-
ina en vildu og hefur því
verið ákveðið að sýna hana
áfram um sinn kl. 7 á
kvöldin í Laugarásbíói. Að-
spurður um fjölda sýn-
ingargesta sagði Hrafn
Gunnlaugsson að tölur
lægju ekki fyrir ennþá en
það færi að nálgast það að
annað hver maður á Islandi
hefði séð Óðal feðranna.
Pétur
Guðjénsson
á ferðalagi í
NEW YORK
í New York gefur aö líta alla heimsbyggðina í
hnotskurn. Þar eru öll þjóöerni, öll trúarbrögö, öll
form húsageröarlistar, öll þjóöerni matargeröar, allt
vöruúrval heimsins, mestur fjöldi skýjakljúfa, er
gefur borginni þann stórkostleik, er fyrirfinnst
aðeins í New York. Heimsókn á topp Empire
State-byggingarinnar, R.C.A.-byggingarinnar eöa
World Trade Center, 110 hæöir,
opinberar hvaö bezt þennan
einstæöa stórkostleik.
World Trade Center, með
heilu verzlunarhverfi neöanjarö-
ar, er syöst á Manhattan-eyjunni,
langri og mjórri, liggjandi frá
noröri til suöurs, en hjarta New
York-borgar er á henni. Hiö
fræga Wall Street, sem er líka
samnafn fyrir stærsta fjármagns-
markaö heimsins, er hér. Hór
rísa risabankarnir í eigin skýjakljúfum, og hér er
stærsta kauphöll heimsins, New York Stock
Exchange. Þar gefur aö líta, hvernig jafnvel
smæsti fjármagnseigandi getur oröiö eigandi og
þátttakandi í stórfyrirtækjum Bandaríkjanna.
Federal Hall er í Wall Street meö minjagripum frá
embættistöku George Washington, fyrsta forseta
Bandaríkjanna. Trinity Church, ein elzta kirkja í
New York, er viö enda Wall Street.
China Town er nokkuö til austurs, kínverskt
hverfi í miöri New York meö austurlandamat og
austurlenzkt vöruúrval. Nokkuö til noröurs er Wash-
ington Square, aöaltorg í Greenwich Village, sem er
listamannahverfi New York. Þúsundir skapandi
listamanna eiga hér heimkynni, og hér eru haldnar
stórar og litríkar útisýningar. Stórkostleg listasöfn
eru í New York. Frægast er Metropolitan Museum of
Art á 5. breiögötu í Central Park. Önnur listasöfn,
Frick Collection, Guggenheim, og Museum of
Modern Art eru meö stööugar farandsýningar.
Madison-breiðgatan ofan viö 60. götu býöur upp á
fjölda lítilla sölusýninga (galleries). Central Park,
Miögaröur, er stór trjágaröur á miöri Manhattan-
eyju. Hann gefur aö deginum í góöu veöri tækifæri til
skógargöngu í miöri stórborginni. í honum er
dýragaröur. Rétt frá suö-vesturhorni Miögarös
er Lincoln Center meö Metropolitan-óperunni,
leikhúsi og tónlistarhöll. Þar eru fluttar óperur og
haldnir hljómleikar og þar fara fram sýningar á
leikritum og listdansi samtímis.
Nú skal haldiö á 5. breiögötu miöja og skoöuö
St. Patricks-dómkirkjan, gotneskt listaverk í
hæsta gæðaflokki. Viö hlið hennar er hiö fræga
vöruhús Sack’s 5th Avenue. En andspænis henni er
Rockefeller Center, samsafn stórbygginga byggöra
um 1930, neöanjaröar verzlunarhverfi og skrifstof-
ur Flugleiöa. Þetta eru áhugaveröir stoppistaöir á
leiö okkar til aöalbyggingar Sameinuðu þjóðanna,
eins af fyrstu stórverkum hús-
ageröarlistar úr málmi og gleri.
Kynnisferöir eru farnar um aö-
setriö og upplýsingar gefnar um
starfsemi SÞ.
Ekkert jafnast á viö ameríska
steik, þaö vita þeir, sem kynnzt
hafa. Pen and Pencil og The Palm
eru frægir steikarstaöir. í hádeg-
ismat er skemmtilegt aö fara á
Sexurnar, 666, 5. breiðgötu,
Rainbow Room í RCA-byggingunni
og Windows of the World í World Trade Center
(laugard. sunnud. og á kvöldin), allir staöirnir á
efstu hæö skýjakljúfa meö ógleymanlegu útsýni yfir
borgina. Einnig í Tavern on the Green, (Crystal room)
í Central Park. Snöggur lúxushamborgari á J.P.
Clark á 3. breiögötu. Á sunnudögum iöar allt af lífi
í verzlunargötunni Grant Street í gyöingahverfinu
á Lower Eastside. Þar má gera reyfarakaup.
Vöruhús eru Macy, Gimbles, og Alexanders. Hærri
gæöaflokkar eru í Bloomingdales, B. Altman,
Sacks 5th Avenue.
Til hvíldar frá stórborginni eru bátsferðir til
Liberty Island þar sem Freisisstyttan er eöa
hringferð meö bát um Manhattan-eyjuna. Einnig
ganga fljótaskip upp Hudson-fljótiö. Viö þaö
stendur West Point Military Academy, sem er
frægasti herfræöiháskóli Bandaríkjanna. Fræg nöfn
nemenda: Mac Arthur, Patton, Eisenhower. í minja-
safninu er veldissproti Görings. Á austurbakka
árinnar í Hyde Park eru heimili Roosevelts og
Vanderbilts, sem eru áhugaverö söfn í dag.
Ef fara á aöeins stutta ferö í friö og kyrrö þarf
ekki út fyrir Manhattan-eyju aö fara, því í Fort Tryon
Park er The Cloisters, einstætt safn franskrar og
spánskrar miöaldalistar. Þarna er safni uppruna-
legra herbergja meö upprunalegum listaverkum
komið fyrir í byggingum sem minna á miöalda-
klaustur.
í sambandi viö New York-ferö væri tilvalin 3ja
daga ferö til Washington, einnar fegurstu og
sérstæöustu borgar heimsins.
Ef þú hyggur á ferö til
NEW YORK
geturöu klippt þessa
auglýsingu útog haft hana
með,þaö gæti komiö sér vel.
FLUGLEIÐIR