Morgunblaðið - 05.10.1980, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
20
Stór tár, hrynjandi niður blakka
vanga og gleiðbrosandi hvit andlit var
viðfangsefni margra barnanna. j>etta er myn(iin hennar Jónínu
Sigrúnar og lýsir hún betur en
nokkur orð hugmyndum hennar um af
hverju okkur ber að leggja hönd á
plóginn.
Baukurinn á kennaraborðinu hef-
ur þegar að geyma nokkur þúsund
krónur. — Margt smátt gerir eitt stórt.
„Ég get hjálpað“ stendur stórum
stöfum á myndinni hans Freys Frosta-
sonar, lengst til vinstri. Félagi hans á
móti notar fyrirsögnina „Ég er svang-
ur
Verkefnið var unnið í hópvinnu og
á sumum borðunum höfðu krakkarnir
límt saman blöðin sin og unnu sameigin-
lega að myndunum.
Ljósm. Mbl. RAX.
AFRIKUHJÁLPIN
1980:
,Eg get
hiálpað
- skólabörn
áhugasöm um
söfnunarher:
ferd RKÍ
„Það er stríð hjá þeim og þau fá ekkert að borða,“
sögðu krakkarnir í 9 ára bekk í Melaskóla á
föstudagsmorguninn, þegar blm. og ljósm. Mbl. litu inn
til þeirra. Þau voru öll önnum kafin við að teikna og lita
myndir af hungruðum Afríkubúum og hjálparstarfinu í
A-Afríku. Á myndunum mátti lesa „Ég er svangur44, „Ég
get hjálpað“ og auðséð var á efnisvali, að börnunum var
hugleikinn sá munur sem er á kjörum okkar og þeirra.
— Fyrst þau fá ekkert að Við fengum að skoða myndirnar
borða hvað verður þá um þau? hjá krökkunum og mátti þar sjá
Margar hendur voru á lofti og
einhver sagði: „Þá deyja þau“,
annar sagði: „Þau fá hrísgrjón".
— Getum við gert eitthvað til
að hjálpa þeim?
„Já, við setjum peninga í bauk-
inn, svo kaupir Rauði krossinn
mat handa þeim.“
Kennarinn, Dagný G. Alberts-
son sagði að krakkarnir hefðu
sjálf útbúið sérstakan bauk, sem
stendur á kennaraborðinu. „Við
höfum sameiginlega reiknað út,
sagði Dagný, „hversu mikið við
getum safnað með því að spara við
okkur 20 kr. og upp í 100 kr. á dag.
Ef við söfnum í nokkurn tíma
verður upphæðin nægileg til að
kaupa mat handa mörgum börn-
um og börnin skilja að við getum
hjálpað."
— Hvernig fáið þið peningana
sem þið safnið?
„Spörum, kaupum ekki tyggjó
eða ís. Fáum þá heima og svoleið-
is.“
mörg listaverkin. Krakkarnir ætl-
uðu að ljúka við myndirnar á
föstudeginum og síðan verða þær
sendar í samkeppni til Rauða
krossins. Síðan verður valið úr
myndunum sem berast og þær
sýndar á Hungurvöku Rauða
krossins og samtakanna Líf og
land, en hungurvakan er liður í
söfnunarherferð Rauða kross ís-
lands til hjálpar bágstöddum í
A-Afríku. Hungurvakan verður
haldin að Kjarvalsstöðum laugar-
daginn 11. október og gefst þá
almenningi tækifæri á að kynna
sér túlkun íslenzkra barna á
kjörum jafnaldra þeirra á hörm-
ungarsvæðum A-Afríku.
Þá munu skólabörn um allt land
einnig gegna mikilvægu hlutverki
á aðalsöfnunardaginn, sem verður
helgina á eftir Hungurvökunni.
Þau munu ganga í hvert hús á
landinu og gefa fullorðna fólkinu
einnig tækifæri til að leggja sitt af
mörkum.