Morgunblaðið - 05.10.1980, Page 26

Morgunblaðið - 05.10.1980, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980 t Eiginmaður minn, KJARTAN J. MAGNÚSSON, ^ Hraöastööum, Mosfellssvoit, andaöist á Landspítalanum aöfaranótt 3. okt. Fyrir hönd vandamanna, Gróa Andrésdóttír. t Bróöir okkar, GUÐJÓN VALGEIRSSON, frá Seljanesi, lézt 2. október. Systkinin. t Fóstra mín KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR lézt 26. september síöastliöinn. Útför hennar verður gerö frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriöjudaginn 7. október kl. 15. Halldór Hansen. Faöir okkar, FRITZ BERNDSEN. málarameistari, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 6.10. kl. 1.30. Jörgen Berndsen, Sessélja Berndsen, Björn Berndsen. Faöir okkar, ASTRADURJÓNSSON, f. verkstjóri, veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 6. október kl. 13.30. Þeir, sem vildu minnast hans, eru beönir aö láta líknarstofnanir njóta þess. Guöríöur Ástráösdóttir, Guðmundur Ástráösson, Friöjón Ástráösson. t Útför systur minnar og mágkonu, ÞÓRLAUGAR BRYNJULFSDOTTUR, hjúkrunarkonu, fór fram í Danmörku 24. september sl. Viö þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu. Fyrir okkar hönd, barna hennar og annarra aöstandenda. Sigríöur Brynjúlfsdóttir, Jón Vattnes. t Eíginmaöur minn og faöir okkar, EINAR S. KRISTJÁNSSON, stórkaupmaóur, lést sunnudaginn 28. september sl. í Landakotsspítala. Útförin fór fram í kyrrþey aö ósk hins látna. Fyrir okkar hönd og annarra aöstandenda, Þorbjörg Björnsdóttir, Guörún Þ. Einarsdóttir, Birna Einarsdóttir, Auöur Inga Einarsdóttir. t innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför INGIBJARGAR GUDJÓNSDÓTTUR, frá Eyri, Ingólfsfirói. Fyrir hönd vandamanna, Ólafur Ingólfsson. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. ♦ Hamarshöfða 4 — Sími 81960 Minning: Einar Sigurður Kristjánsson Tengdafaðir minn Einar Sigurð- ur Kristjánsson andaðist 28. sept. sl. á Landakotsspítala, eftir langa og erfiða sjúkralegu. Einar fæddist 5. febrúar 1907 á Flateyri við Önundarfjörð. Einar var sonur hjónanna Kristjáns Sigurðar Kristjánssonar, kennara, og konu hans Guðrúnar Þorbjarg- ar Kristjánsdóttur. Æsku og unglingsárum sínum eyddi hana í Hvammi í Dýrafirði og á Þingeyri. Um leið og hann hafði aldur til fór hann til sjós, eins og aðrir unglingar á Vest- fjörðum. En hugur hans leitaði til annarra starfa. Af tilviljun réðst hann til starfa í Tóbaksbúðina að Laugaveg 12, hér í Reykjavík. Þar starfaði hann fyrstu árin sín í Reykjavík, af mikilli trúfestu. Einn af hans mörgu kostum var stundvísi. Til marks um stundvísi hans á þessum árum vil ég nefna að hann opnaði alltaf tóbaksbúð- ina á slaginu níu. Þótti fólki í nálægum verslunum það svo mikil nákvæmni að sagt var að aðrir settu klukkur sínar eftir opnun- artíma hans. I mörg ár stundaði hann störf þarna og sem sölumað- ur hjá Landsstjörnunni, sem var innflutningsfyrirtæki í Reykjavík. Þessi fyrstu ár hafa mótað áhuga hans til verslunarstarfa. Það sést best á þvi að hann stofnar og tekur þátt í stofnun ýmissa fyrir- t Útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu okkar, SIGRÍÐAR GUÐLEIFSDÓTTUR, Holtsgötu 8, Hafnarfiröi, sem andaöist 28. september sl. veröur gerö frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi mánudaginn 6. október kl. 14.00. Kristmundur Gaorgsson, Bjarni Kristmundsson, Margrét Billhardt, Valdís Kristmundadóttir, Jens Jónsson, Ásdís Krístmundsdóttir, Guóbrandur Óli Þorbjörnsson, Guóleifur Kristmundsson, Hildur Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, fööur, tengdafööur og sonar, SIGURÐAR G. STEINÞÓRSSONAR, Selvogsgötu 24, Hafnarfirói, fer fram frá Þjóökirkjunni Hafnarfiröi þriöjudaginn 7. okt. kl. 2. Blóm afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hans, eru beönir aö láta Styrktarfélag lamaöra og fatlaöra njóta þess. Aóalheiöur Kristjánsdóttir, börn og tengdabörn, Þorbjörg Guómundsdóttir. t Útför móöur okkar og tengdamóöur VIGDÍSAR HANSDÓTTUR, Hjaröarholti 11, Selfossi, áöur húsmóöir aö Kambi í Flóa, sem andaöist í sjúkrahúsi Selfoss 30. september, fer fram frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 7. október kl. 3 e.h. Blóm og kransar afbeönir, en þelr sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á sjúkrahús Selfoss. Börn og tengdabörn. t Innilegustu þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug vlö andlát og jaröarför AOALSTEINS BALDVINSSONAR, frá Brautarholti. Ingólfur Aöalsteinsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Gunnar Aöalsteinsson, Steinunn Arnadóttir, Brynjóltur Aóalsteinsson, Guófinna Snæbjörnsdóttir, Svanhildur Aöalsteinsd., Ólafur Guðbrandsson, Emilía Lilja Aóalsteinsd., Elís G. Þorsteinsson, og barnabörn. tækja sem enn í dag eru starfandi. Þar á meðal eru Kauphöllin, íslenzk-erlenda, vikublaðið Vikan og Kristjánsson hf., sem hann stjórnaði síðastliðin þrjátíu og fimm ár. Eitt af fyrirtækjunum sem hann stofnaði er Auglýs- ingaskrifstofa EK. Það er, að mér er best kunnugt, fyrsta auglýs- ingafyrirtækið á Islandi. Það stofnaði hann eftir að hafa lært auglýsingateiknum í Kaupmanna- höfn. Eftir að hann stofnaði Kristjánsson hf. ásamt bróður sínum Guðna, átti það hug hans allan. Fyrirtækið var stofnað 1945. Einar stjórnaði Kristjánsson hf. með miklum dugnaði og mynd- arskap frá upphafi þess þar til hann veiktist á síðastliðnu ári. Ég kom til starfa hjá Einari eftir að ég varð tengdasonur hans 1966. Frá upphafi hefur hann reynst mér sem besti faðir. í þau fjórtán ár sem við höfum starfað saman höfum við verið ákaflega samríndir og hefur aldrei slettst upp á vinskapinn. Oft kom ég með unggæðislegar hugmyndir og sló þeim fram eins og ungum áköfum mönnum er svo gjarnt að gera. Hann tók öllum þessum byltingum mínum með jafnaðargeði og ef honum fannst þær fáránlegar leiddi hann mér það fyrir sjónir eins og þroskuðum skynsömum manni er einum lagið. Við höfðum mörg sameiginleg áhugamál, m.a. hestamennsku. I mörg ár fórum við í útreiðatúra þrisvar i viku og nutum þess afar mikið báðir. Við ferðuðumst þannig um nágrenni Reykjavíkur, upp í Mosfellsdal, upp að Skálafelli, inn á Hellisheiði og víðar þar sem fólk ferðast ekki á bílum. Alltaf fórum við í útreiðatúr, sama hvernig viðraði, því þegar við vorum komnir á bak skipti rigning eða kuldi ekki leng- ur máli. I Laxveiði fórum við nokkrum sinnum og vorum þá saman um stöng. Anægjan var ekki eingöngu fólgin í að veiða, heldur einnig í að setjast á árbakkann og velta vöngum um lífið og tilveruna. Einar var mjög fróður maður og víðlesinn. Hann átti það oft til að segja mér frá einu eða öðru sem hann hafði nýlega lesið og oftast var það eitthvað sem aðrir lásu almennt lítiö eða ekki. Margar voru stundirnar sem við vorum saman í sumarbústaðnum, Þingnesi, við Elliðavatn. Á vorin fórum við til að lagfæra það sem úrskeiðis fór um veturinn. Var þá Benedikt heitinn Kristjánsson venjulega með okkur. Við Bene- dikt smíðuðum en Einar sinnti öðru og eldaði mat handa okkur. Eldamennskan var á stundum ákaflega brösótt og bragðaðist misjafnlega. Við Benedikt strídd- um honum á þessu, en allir höfðum við gaman af þessu eftirá. Eftir að börnin okkar fóru að hafa aldur til nutum við öll sumarbústaðarins ennþá betur. Einar fór iðulega með þau í gönguferðir um svæðið og inn í Heiðmörkina. Á þessum ferðum sagði hann þeim sögur og ntalaði“ við fuglana. Krakkarnir héldu því statt og stöðugt fram að afi þekkti alla fuglana og fuglarnir afa, því á hverjum morgni fór hann út á hlað til að bjóða fuglunum góðan daginn. Einar var ekki mikið fyrir margmenni. Hann lifði mikið fyrir fjölskyldu sína. Allt sem hann tók sér fyrir hendur og vann að, var gert með því markmiði að Þor- björgu, eiginkonu hans og dætrum hans liði sem best. Vinum sínum var hann mikill vinur og oft fyrir jól tók hann saman pakka með mat og smágjöfum og sendi þeim sem hann vissi að voru í þörf fyrir smá aðstoð, en ávallt var það sent án þess að gefandans væri getið. Um nokkura ára skeið var hann virkur félagi í Kiwanis-klúbbnum Kötlu og var meðal annars forseti eitt ár. Að þessu starfaði hann af miklum eldmóði og áhuga, því þarna var þjónustustarf sem hann hafði áhuga á. Vegna vaxandi veikinda hans seinni ár dró úr þessu starfi hans. Einar hefur meira og minna legið á Landakotsspítala síðastlið- ið eitt og hálft ár. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu hans, þakka starfsfólki og læknum Landa- kotsspítala þá yndislegu aðhlynn- ingu sem hann varð aðnjótandi allan þann tíma sem hann átti í sínum veikindum. Sérstaklega vil ég þakka Ólafi Gunnlaugssyni lækni, fyrir hans hlýhug og vin- áttu sem hann sýndi Einari og Þorbjörgu konu hans. Um leið og ég þakka Einari fyrir allar samverustundirnar votta ég eig- inkonu hans og öðrum aðstand- endum mína innilegustu samúð. Jóhann ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.