Morgunblaðið - 05.10.1980, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. OKTÓBER 1980
27
Einar Björgvinsson
flugmaöur - Kveöja
Fæddur 26. febrúar 1949.
Dáinn 22. september 1980.
„Bilið er mjótt milli blíðu og éls,
og brugðist getur lánið frá morgni
til kvelds". (Sálmur).
Við aðstandendur Einars Björg-
vinssonar flugmanns, stöndum
skelfingu lostnir. í blóma lífsins,
fullur áhuga og starfsgleði, er
hann hrifinn á brott. Ungur að
árum var hann, er hann giftist
eftirlifandi eiginkonu sinni Ingi-
björgu Andrésdóttur. Að loknu
rafvirkjanámi var fljótlega horfið
að nýjum starfsvettvangi, sem svo
miklar framtíðarvonir voru
bundnar, flugnámi. Með sameigin-
legu átaki hinna hungu hjóna
tókst þeim jafnframt dýru námi
Einars að koma yfir sig húsi og
heimili hér í kauptúninu. Allt
virtist svo bjart framundan. A
augabragði er því lokið.
Samverustundirnar með mági
mínum allt frá okkar fyrstu kynn-
Guðmundur Tómasson
Trandraseli — Minning
Fa*ddur 14. september 1891.
Dáinn 13. september 1980.
Guðmundur var fæddur að Eini-
felli í Stafholtstungum. Foreldrar
hans voru Ástrós Sumarliðadóttir
og Tómas Guðmundsson. Eignuð-
ust þau 9 börn og er nú aðeins eitt
á lífi, Margrét, sem er á Dvalar-
heimilinu í Hveragerði. Tómas
missti heilsuna og heimilið leyst-
ist upp. Guðmundur var þá innan
við fermingu, svo lífsbaráttan
byrjaði snemma. Lífið á þessum
árum einkenndist af vinnu og
aftur vinnu, en atlæti ekki í sömu
hlutföllum.
Guðmundur var snillingur í
höndunum og afbragðs sláttumað-
ur. Þegar Unglingasamband Borg-
arfjarðar stóð fyrir keppni í þeirri
list vann Guðmundur þá keppni
þau þrjú ár, sem hún var haldin.
Guðmundur kvæntist liðlega
tvítugur, Ólöfu Jónsdóttur frá
Einifelli. Eignuðust þau fimm
börn, sem öll hafa erft mannkosti
foreldra sinna, en þau eru: Fjóla,
hennar maður var Kristján Jóns-
son, sem nýlega er látinn; Hall-
dóra, hennar maður var Haukur
Helgason sem dó fyrir nokkrum
árum; Margrét, gift Guðmundi
Helgasyni; Tómas, kvæntur undir-
ritaðri og Ásta, gift Geirmundi
Finnssyni.
Ólöf missti heilsuna er yngsta
barnið var á fjórða ári. Vorið 1944
fluttu þau frá Trandraseli að
Stóru-Skógum til Fjólu dóttur
sinnar, sem annaðist móður sína
af slíkri alúð og umhyggju, að ég
hef aldrei kynnst neinu líku. Oft
sat Guðmundur og las sögur fyrir
konu sína að loknu erfiðu dags-
verki. Ólöf dó sumarið 1955, þá
búin að vera rúmföst yfir 20 ár.
Aldrei heyrðust æðruorð eða
kvartanir hjá Guðmundi. Hann
dró ætíð fram það jákvæða og
bjarta í mannlífinu. Á annað var
ekki minnst.
Að leiðarlokum kemst ekkert
annað að en þakklæti fyrir að hafa
átt því láni að fagna, að kynnast
svo mætum manni.
„Far þú í friði. Friður Guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.“
Anna Sveinbjörnsdóttir
um þakka ég af alhug, svo og alla
hjálpsemi hans og vinsemd alla
við fjölskyldu mína. Meðal hinna
mörgu ógleymanlegu minninga
okkar um hann verða ánægju-
stundirnar á heimili hans og
Ingibjargar og minningar úr
sumarferðalögum liðinna ára.
Ingibjörg þörnunum og föður
hans votta ég innilega samúð og
bið góðan Guð að styrkja þau.
Hinn látni ástvinur okkar myndi
óska þeim styrks til þess að
yfirvinna sorgina.
Guð blessi minninguna um Ein-
ar mág minn.
Mágkona.
Tollskjöl og
verðútreikningar
Stjórnunarfélag íslands heldur námskeið um tollskjöl
og verðútreikninga í fyrirlestrasal félagsins að Síðu-
múla 23, dagana 13. október kl. 15—19 og 14. og 15.
Leiðbainandi:
október kl. 13—17.
Fjallað verður um:
— helstu skjöl og eyöublöi
viö tollafgreiöslu oc
notkun þeirra.
— meginþætti laga og reglu-
geröa er gilda viö tollaf-
greiöslu vara.
— grundvallaratriöi tollflokk-
unar.
— helstu reglur viö veröút-
reikning.
Gerð verða raunhæf verkefni. Námskeiðið er einkum ætlað
þeim sem stunda innflutning í smáum stíl og iönrekendum,
sem ekki hafa mikinn innflutning. Einnig er námskeiöiö
kjörið fyrir þá sem eru að hefja eða hyggjast hefja störf við
tollskýrslugerö og verðútreikninga.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélags íslands, sími 82930.
SIIÓRNUNARFÉIAG ÍSIANDS
SÍOUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930
Kart Qaröartaon,
viðskiptafraaðingur.
ÞAKRENNUR
og fylgihlutir
BORGARAS
Sundaborg 7.
S. 81044.
Dinette
BORÐSTOFU-
SETT
Dinette er fallegt
og nútímalegt boröstofusett
úr dökku mahogany
frá hinu
þekkta fyrirtæki
í Noregi
Húsgagnasýning
kl. 3—6 í dag
Komið og skoðið
okkar fjölbreytta
úrval af
húsgögnum
Verið velkomin
5be£n
Smiðjuvegi 6 — Sími 44544
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
AUGLYSINGA-
SÍMINN F.R:
22480